Korter í kosningar
Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson
0
Korter í kosningar er hlaðvarp um kosningarnar framundan og er sniðið fyrir fólk sem vill fylgjast vel með þegar það er korter í kosningar. Þáttastjórnendur eru Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson.
Episódios
-
Sætasta stelpan á ballinu 02.06.2026 1h 6minSandra Hlíf Ocares og Stein Olav Romslo, nýr borgarfulltrúi mættu til leiks. Nýr meirihluti og nýir borgarfulltrúar taka formlega við völdum í dag. Hver verður í hvaða hlutverkum? Hvernig mun samgöngusáttmáli þróast? Verður verkefnalisti.is vinsælasta heimasíða landsins? Hvað gerðist í Hafnarfirði og er betra að ráð bæjarstjóra en að hafa hann pólitískan?
-
Korter yfir kosningar 17.05.2026 57minHróðugur Maggi og tapsár Pétur fóru yfir málin.Sjálfstæðisflokkurinn með stórsigur út um allt land. Hvaða meirihlutar verða myndaðir? Hvaða mál verða tækluð strax? Hvað klikkaði hjá Samfylkingunni í Reykjavík? Hvað þýðir þessi niðurstaða fyrir stjórnmálalandslagið í heild?Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin.
-
Hildur & Pétur 14.05.2026 1h 14minHildur Björnsdóttir og Pétur H. Marteinsson. Oddvitar stærstu flokkanna komu til okkar. Sammála um sumt, alls ekki allt. Hluti samgöngusáttmála þarfnast endurskoðunar að mati Hildar. Hvar byrjum við á leikskólamálunum? Pétur segir mörg mistök hafi verið gerð í núverandi meirihluta. Spennandi þáttur af Korter í kosningar, þeim síðasta korter í kosningar.Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru styrktaraðilar Korter í kosninga.
-
Teppalögð Reykjavík 12.05.2026 1h 8minFreyr Eyjólfsson og Áslaug Hulda Jónsdóttir mættu til okkar í upphafi kosningaviku og með sterkar skoðanir á öllu. Á Sjálfstæðisflokkurinn að auglýsa meira? Er Samfylkingin ekki að svara nógu miklu? Ætlar Viðreisn að starfa til hægri? Mun einhver starfa með Miðflokki? Er Einar Þorsteins í meðbyr? Er Flokkur fólksins að ofnota gervigreindina? Er Vinstrið búið að toppa?Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosninga.
-
Kosningaspámenn Íslands 05.05.2026 1h 12minBogi Ágústsson og Ólafur Þ. Harðarson - frægasta tvíeyki landsins síðan Halli og Laddi mættu í stúdíóið. Hver verður næsti borgarstjóri? Hvaða flokkar ná inn og hver græðir á því? Hversvegna má ekki telja atkvæði á meðan kjörstaðir eru ennþá opnir og af hverju geta þingmenn ekki bara breytt kosningalögum? Korter í kosningar verða í beinni 14. maí á Ölver. Miðasala á stubb.is.Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosningar.
-
15 dagar í kosningar 01.05.2026 1h 6minSvo margar spurningar í helgarþættinum. Halda Sósíalistar áfram að vinna oddvitakeppnina? Hver er stefna flokkana og fer hún saman við veruleikann? Hvaða flokkur er með besta slagorðið? Er að sjóða uppúr í Kópavogi? Vinnur Viðreisn til hægri í Reykjavík og vinstri í Kópavogi? Munu hálmstrá Framsóknar breyta einhverju? Hvað er þetta tígrisdýr sem allir eru að tala um? Er hægt að gervigreinda sig í gegnum kosningabaráttu og vinna?Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosningar.
-
Besta starf í heimi 28.04.2026 1h 4minÞað þurfti ekki að toga yfirlýsingarnar upp úr Gísla Marteini Baldurssyni og Svandísi Svavars í nýjasta þættinum en þau eru bæði fyrrverandi borgarfulltrúar. Um hvað snérist leynisamkomulagið í Moskvu? Er Gísli Marteinn með innirödd? Hvers vegna er Svandís ekki í Samfylkingunni og eiga kosningarnar að snúast um mannlíf og mannréttindi?Enor, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin styrkja Korter í kosningar.
-
Ríða, drepa, giftast? 21.04.2026 1h 1minFyrrverandi borgarfulltrúinn Katrín Atladóttir, Katrín.is og Sorpuprinsinn Gunnar Dofri Ólafsson ræddu um regnboga, Guðmund Sæland, næsta borgarstjóra og hvort það verði tveir slíkir á næsta kjörtímabili. Enor, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin styðja við bakið á Korter í kosningar.
-
Baráttan um Kópavog 17.04.2026 1h 11minÁsdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi mættu í Korterið. Þau hittust í fyrsta sinn við upptökur á þættinum. Fram að því höfðu þau forðast hvort annað á þorrablótum. Þau lofuðu að vera skemmtileg sem tókst að einhverju leyti, eða hvað? Hvort er veltufjárhlutfallið hjá Kópavogsbæ gott eða slæmt? Hvort er betra að lækka leikskólagjöld eða fasteignagjöld og hvað er Gunnar Birgisson að gera í rúminu mínu?
-
Gerðum það sem var rétt fyrir Reykjavík 14.04.2026 1h 14minHanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi kíktu í Korterið. Kjörtímabilið 2006-2010 snerist í minningunni bara um marga borgarstjóra, dramatík og efnahagshrun. Það mikilvægasta á því kjörtímabili var það sem gerðist á bakvið tjöldin í skipulagsmálum þegar unga kynslóðin í borgarstjórn þvert á flokka sammæltist um að gera það sem væri rétt fyrir Reykjavík. Þökkum Enor, Tryggingum og ráðgjöf og Jómfrúnni fyrir samstarfið.
-
Tekst flokkunum að skila inn framboðum í vikunni? 07.04.2026 1h 2minKorter vikunnar er tileinkað kosningastjórum um land allt. Diljá Ragnarsdóttir kosningastjóri Samfylkingarinnar og Helga Lára Haarde kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins kíktu til okkar í spjall um starf kosningastjórans og hvernig þeim líður með að vinna á bakvið tjöldin, hvort þeim takist að skila inn löglegum framboðslistum með öllum 46 frambjóðendum, því það má ekki klikka og hvort það sé búið að finna kosningaskrifstofu. Þökkum Enor, Tryggingum og ráðgjöf og Jómfrúnni fyrir samstarfið.
-
Hvað er Borgarlína? 03.04.2026 52minByrjendanámskeið í Borgarlínu með Davíð Þorlákssyni nýjum framkvæmdastjóra Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins. Hvernig lítur planið út? Er samgöngusáttmáli rofinn ef Borgarlína er sleginn af borðinu? Hvað er meira í samgöngusáttmála? Enor, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosningar
-
Var Ari stunginn af Pírata? 31.03.2026 1h 4minFM Belfast söngvarinn Bjössi “Borko” Kristjánsson og kosningagreinandinn Silja Rán Arnarsdóttir fara yfir stöðuna. Sameiningar sveitarfélaga, besti oddvitinn, Reykjavík, Hafnarfjörður, Drangsnes og Lars Løkke Rasmussen. Þökkum Enor endurskoðun, Tryggingum og ráðgjöf og Jómfrúnni fyrir samstarfið.
-
Fyrsta kosningaspáin 24.03.2026 1h 1minFyrsta kosningaspá Korter í kosningar er kynnt í upphafi þáttar. Gestir eru Margrét Bjarnadóttir forseti bæjarstjórnar í Garðbæ fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir frambjóðandi í 3. sæti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Líflegar og skemmtilegar umræður um Garðabæ og Reykjavík og allt þar á milli.
-
Verður hægt að endurtaka ævintýri Besta flokksins? 17.03.2026 1h 15minSálirnar í Besta flokknum Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri og S. Björn Blöndal fyrrverandi aðstoðarmaður borgarstjóra útskýrðu fyrir okkur hvernig flokkur sem bauð einu sinni fram og aldrei aftur - gjörsigruðu kosningarnar árið 2010. Ásamt því að líta um öxl spáðu þeir í spilin fyrir komandi kosningar þann 16. maí nk. Enor endurskoðun og Jómfrúin eru styrktaraðilar Korter í kosningar.
-
Kosningahismið 10.03.2026 1h 10minHlaðvarpskempurnar og goðsagnirnar Árni og Grétar úr Hisminu komu til okkar í stöðugreiningu. Mun stemningin ein vinna kosningarnar í vor? Hvernig var hlaðvarpsleikurinn fyrir 13 árum? Má taka úr Góða hirðis gámnum í Sorpu eins og Þór bæjarstjóri? Samstarfsaðilar Korter í kosningar eru Enor endurskoðun og Jómfrúin.
-
Eru Píratar búnir að vera í Reykjavík? 06.03.2026 1h 4minMagnús Már Guðmundsson fyrrverandi borgarfulltrúi og Áslaug María Friðriksdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi spjalla við þáttastjórnendur Magnús Sigurbjörnsson fyrrverandi framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins og Pétur Krogh Ólafsson fyrrverandi aðstoðarmann borgarstjóra um borgarstjórnarkosningarnar. Fullt af fyrrverandi í fyrsta þætti af Korter í kosningar.
Popular em
Este podcast também aparece nas paradas de podcasts destes países.