Þetta helst: Saga Sofiu

Þetta helst: Saga Sofiu

RÚV Hlaðvörp
País Islândia
Géneros Society & Culture, Documentary
Idioma IS
Episódios 4
Último 24.03.2025

Þegar Sofia Kolesnikova fannst látin á Selfossi var óljóst hvort hún hefði verið kyrkt af kærasta sínum eða látist af of stórum skammti fíkniefna. Kærastinn eyddi sönnunargögnum af vettvangi áður en tilkynnt var um andlátið og varð margsaga um hvað gerðist. Við lögreglurannsóknina teiknaðist upp mynstur sem líktist nauðungastjórnun. En málið fór aldrei fyrir dóm þar sem sakborningur lést í miðri málsmeðferð.

Episódios

  • 4. „Þetta hefði getað verið ég" 24.03.2025 16min
    Fyrrverandi kærasta mannsins sem grunaður var um að hafa banað Sofiu, segist ítrekað hafa misst meðvitund eftir kyrkingatök hans. Í þættinum lýsir hún sambandi þeirra og sláandi líkindum við sögu Sofiu. Einnig er rætt við föður hennar. Umsjón: Þóra Tómasdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 3. Hinar kærusturnar 24.03.2025 18min
    Við heyrum af ýmsu sem lögregla komst að við rannsókn á andláti Sofiu Kolesnikova. Við fáum að heyra meira um samband Sofiu og kærastans sem lögregla varð sífellt uppteknari af að skoða. Og, heyrum að hinn grunaði átti ekki aðeins eina kærustu.Viðmælendur: Jón Gunnar Þórhallsson, Valda Kolesnikova, Deivs Kolesnikovs og Kristrún Elsa Harðardóttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 2. Fjölskyldusagan 24.03.2025 18min
    Venjur og hagir Sofiu Kolesnikova breyttust verulega á síðustu mánuðum lífs hennar. Áður en hún fannst látin með áverka á hálsi og gríðarlegt magn kókaíns í líkamanum. Hún sýndi breytta hegðun og steypti sér í skuldir. Deivs Andrei Kolesníkovs, litli bróðir Sofiu, og Valda Kolesnikova, móðir Sofiu, segja frá sögu fjölskyldunnar. Umsjón: Þóra Tómasdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 1. Ráðgátan um andlátið 24.03.2025 19min
    Þegar Sofia Kolesnikova fannst látin á Selfossi var óljóst hvort hún hefði verið kyrkt af kærasta sínum eða látist af of stórum skammti fíkniefna. Kærastinn eyddi sönnunargögnum af vettvangi áður en tilkynnt var um andlátið og varð margsaga um hvað gerðist. Við lögreglurannsóknina teiknaðist upp mynstur sem líktist nauðungastjórnun. En málið fór aldrei fyrir dóm þar sem sakborningur lést í miðri málsmeðferð.Viðmælendur: Jón Gunnar Þórhallsson og Kristrún Elsa Harðardóttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Popular em

Este podcast também aparece nas paradas de podcasts destes países.