Bíófíklar
Bíófíklar Hlaðvarp
0
Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.
Episódios
-
Disclosure Day (2026) 15.06.2026 1h 46minSteven Spielberg og geimverur. Er það ekki býsna sígild og (oftast) skotheld blanda? Er einn þekktasti leikstjóri okkar kynslóða kannski farinn að reiða eingöngu á gömul trix eða er nóg eftir í tankinum?Til að viðra þessi svör og almennt skoðanir á mysteríunni Disclosure Day hafa Kjartan og Tommi snúið aftur bökum saman við þau Ragnar og Hildi úr hlaðvarpinu Video rekkinn.Að þessu sinni eru bíófíklar ekki staddir í Podcaststöðinni við þessar upptökur, heldur í sérstöku ‘gettó stúdíói’ Video rekkans. Um er að ræða svokallaðan collab-þátt þar sem nóg af gúrme umræðum eru á boðstólnum ásamt einkennilega fríkuðum haug af skemmtilegum útúrdúrum.Og að sjálfsögðu afhjúpunum - á persónulegri nótunum.Veisla þessi hefst með einum litlum Play-takka!Efnisyfirlit:00:00 - Afhjúpanir við borðið07:04 - Raunveruleikasjónvarpsflipp20:44 - Rant um útileigur31:37 - Bíósalir landsins40:29 - Obsession-pælingar56:46 - Stebbi Spilaborg01:01:42 - D-Day, án spilla01:16:48 - "Spoiler-tími!"01:35:02 - Stóra afhjúpunin
-
Scary Movie (2026) 08.06.2026 1h 3minMargt hefur breyst síðan Scary Movie leit fyrst dagsins ljós fyrir 26 árum, bæði út frá þróun hryllingsmynda og í hversdagsheiminum almennt. Serían hefur flakkað á milli alls konar ólíkra húmorista og lagðist í góðan dvala eftir misheppnuðu fimmtu myndina frá árinu 2013. Nú eru Wayans-bræður mættir aftur ásamt fleirum úr gamla teyminu, með það að markmiði að hrista duglega í smekklegheitum, velsæmismörkum og hryllingsmyndaformúlum. Hvort húmorinn allur gangi upp er algjört smekksatriði. En smekksatriði sem er þess virði að greina.Kjartan, Tommi og Atli Freyr ræddu þessa sjöttu mynd með góðvini hlaðvarpsins, Arnóri úr Tölvuleikjaspjallinu. Hingað til hefur Arnór ekki leynt ást sína á fyrri myndum seríunnar og fór hann bjartsýnn á þá nýjustu. Til að koma beint að efninu er öruggt að segja að skoðanir bíófíkla og gests séu misjafnar á endurkomu Wayans-bræðra í þessa syrpu. Er þetta kannski bara mynd þar sem best er að slökkva á heilanum til að geta öskurhlegið yfir ruglinu eins og óður bavíani? Eru brandararnir mögulega orðnir þreyttir og örvæntingafullir? Hversu mikið er að marka fáeina spretti sem ganga upp? Svörin fást öll í kostulegu hlustuninni, og eldmóði Arnórs. Efnisyfirlit:00:00 - Scary Movie 1-514:28 - Scary MoVIe20:55 - Keimlíkir djókar28:54 - Árshátíðarmynd36:37 - 'Virkir í athugasemdum'44:09 - Endurtekningar á teygðum lopa50:43 - Bingó í salnum59:19 - Samantekt
-
Obsession (2026) 07.06.2026 1h 22minGættu hvers þú óskar þér. Í tilfelli litlu 'stórmyndarinnar' Obsession hefði leikstjórinn og YouTuber'inn Curry Barker ekki mögulega getað óskað sér betri útkomu hvað aðsóknina varðar. Þessi mynd hefur verið að vekja gríðarlega athygli um allan heim og árangurinn er þeim mun magnaðri í ljósi þess að myndin er sögð hafa kostað undir milljón dollara. Þar af leiðandi má tvímælalaust gera ráð fyrir að Barker sé kvikmyndagerðarmaður sem kominn er til að vera og ekki síður leikkonan Inde Navarette, sem er hreint út sagt meiriháttar í hlutverki sínu.Íris, Kjartan, Tommi og Atli Freyr kryfja atburðarás þessarar stórvinsælu indí-myndar eftir bestu getu, þar sem ólíkur bakgrunnur hvers og eins við mækinn spilar einhverja rullu í túlkunum. Obsession er kannski ekkert sérlega djúp bíómynd en það breytir því ekki að um margt er að ræða í tengslum við skilaboð hennar, persónusköpun og þemu. Er hægt að óska eftir meiru?Efnisyfirlit:00:00 - Sumarbíó og Backrooms11:06 - Obsession, án spilla21:05 - Bróðir eða ekki bróðir36:44 - Spillarnir krauma...43:25 - Alvöru Nikki/"Djöfla-Nikki"54:03 - Flótti undan ábyrgð01:08:05 - Jákvæðar breytingar01:14:11 - Samantekt
-
Topp 5: Coen-bræður 03.06.2026 1h 32minJoel og Ethan Coen eru tvímælalaust prakkaralegt tvíeyki sem leynt hefur margt frumlegt og fjölbreytt í gegnum áraraðirnar. Þetta eru kvikmyndagerðarmenn sem hafa einstaka hæfileika þegar kemur að farsakenndum glæpasögum, misskilningum, hálfvitum, afbyggingum formúla og mörgu, mörgu öðru.Fastagesturinn Atli Sigurjónsson kveðst vera mikill aðdáendi Coen-bræðra og hvatti Bíófíkla til að hlaða í áskorun þar sem framúrskarandi myndir dúósins eru fyrir valinu. Jafnframt er reynt að komast til botns á því hvað einkennir frábæra ‘Coen-bræðra mynd’ og hvers vegna sérviska þeirra hittir mismikið í mark hjá almenningi. Hlustandi kær er hvattur til að hlera þennan fróðlega fíflagang með líflegri innsýn í hugarheim tveggja virtra furðufugla. Efnisyfirlit:00:00 -Einkenni eða mynstur06:51 - *Hvað* er Coen-mynd?18:36 - The Big Lebowski28:00 - Barton Fink33;10 - Burn After Reading38:03 - Miller’s Crossing44:51 - O Brother, Where Art Thou?49:38 - A Serious Man53:49 - No Country for Old Men01:02:26 - The Man Who Wasn’t There01:11:26 - Fargo01:20:44 - Raising Arizona
-
Star Wars: The Last Jedi vs. The Rise of Skywalker 27.05.2026 1h 28minStar Wars hefur í áratugaraðir reynst sumum mikill gleðigjafi en hafsjór af triggerum fyrir aðra hópa. Þetta þykir furðu áhugavert í ljósi þess hversu títt þessar bíómyndir predika uppbyggjandi móral og stuðla að von, sameiningu og bjartsýni gegn myrkari mynstrum. Mætti jafnvel færa rök fyrir að Star Wars ‘aðdáendur’ séu á meðal reiðustu hópa veraldarvefsins, kaldhæðnislega.Kjartan, Tommi og gestur þeirra, Einar Michaelsson, ræða tvær umdeildustu ‘Disney Star Wars’ myndirnar í seríunni; almennt umtal þeirra, legasíu á meðal aðdáenda/markhópsins, sitthvora kosti þeirra og galla. Tilangur umræðunnar er að komast aðeins til botns á því hvers vegna svona mikið úlfúð hefur fylgt þessum tilteknu myndum og hvað þær segja í sameiningu um svokallaða Sequel-þríleikinn sem hófst með aðsóknarsprengjunni The Force Awakens.Þá skal bara kveikja á geislasverðunum og kanna hvað liggur á bak við nöldrið sem oft hefur einkennt Star Wars vörumerkið, og um leið hlusta hvort nákvæmlega sú krufning leiði til (en ekki hvað…) nöldurs!Efnisyfirlit:00:00 - Hver er Rey?05:57 - Upprunalega Star Wars16:36 - Hvað vilja aðdáendur?25:58 - Karakterdýnamík í klessu36:24 - Nostalgíubeiturnar 41:48 - “Strákafantasía”50:15 - Er sjarminn farinn?01:02:11 - Gæðamunur á myndum01:16:55 - Samleikur við dauða manneskju01:19:33 - Fúli Ford
-
The Mandalorian and Grogu (2026) 23.05.2026 1h 11minÞað hlaut að koma að því. Eitt vinsælasta tvíeyki síðustu ára úr Stjörnustríðsheiminum fékk að skjótast upp á hvíta tjaldið. The Mandalorian and Grogu er fyrsta Star Wars bíómyndin í sjö ár og má lengi spyrja sig hvort um ræði fagnaðarerindi fyrir aðdáendur eða merki um ákveðin vonbrigði. Þá er einnig kjörið að kanna hvort hægt sé að njóta þessarar myndar án þess að hafa horft á sjónvarpsþættina, eða aðrar Star Wars myndir ef út í það er farið.Kvikmyndagerðarmaðurinn Einar Michaelsson er sestur í stúdóið hjá þeim Kjartani og Tomma þar sem mikilvægu nördamálin eru í brennidepli. Af stærra umræðumenginu að dæma er að minnsta kosti ljóst að skoðanir gætu skipst í ólíkar áttir. Ætli Einar sé á því að Jon Favreau (ásamt Dave Filoni) hafi dúndrað út algjörri neglu fyrir MandoGrogu unnendur? Hvaða kröfur gerði Kjartan til myndarinnar ? Er þetta leiðin, eða bara leiðinlegt? Betra er að halda hjálminum áföstum, því leiðin að uppgjörinu gæti orðið snúin - þó fjörið vanti ekki. Efnisyfirlit:00:00 - Íslendingar í The Odyssey07:05 - Einar á fullu12:38 - Star Wars tilvistarkreppan22:23 - ‘Fan edits’26:55 - MandoGrogu, án spilla42:44 - Spillingar!48:59 - Tónninn hjá Favreau01:01:04 - Samantekt
-
Dick Tracy (1990) 20.05.2026 1h 10minWarren Beatty og litríka draumaverkefni hans frá árinu 1990 er ein djöfulsins skrípó-steypa, en með merkilega sögu að baki og síðan hún kom út. Dick Tracy var gefin út skömmu eftir stórvinsældir fyrstu Batman myndarinnar frá Tim Burton og býr yfir (næstum því…) samskonar fíling.Tommi er sestur niður með Ötlum tveimur, sum sé Atla Frey og Atla Sigurjóns þar sem saga ræmunnar, stjarna, efnistök, leikarasúpa, litaþemu, Óskarstilnefningar, aðsókn og allt tilheyrandi er tekið til ítarlegrar skoðunar.Skellið ykkur í skærgulu frakkanna og upp með Tomma-byssurnar… Þetta verður ruglað!Efnisyfirlit:00:00 - Litir og leikarar12:10 - "Dirty Harry týpa"24:18 - Óskarsmynd (?!)30:31 - Fullorðinsleg krakkamynd...38:27 - Markaðssetningin 45:19 - Meira um Warren...52:40 - Tracy Zooms in...56:00 - Fleira stílíserað 'noir'...01:00:06 - Disney/Touchstone
-
Nirvanna The Band The Show The Movie (2025) 15.05.2026 1h 25minEkki láta gallsúra titilinn blekkja. Nirvanna The Band The Show The Movie er sprenghlægileg tímaflakkskómedía um tvo félaga sem setja líf sitt og dægurmenningu á annan endann.Þeir Matt og Jay eiga þann langþráða draum að ná stórvinsældum með hljómsveit sinni, Nirvanna. Áætlanir þeirra um að fá gigg á skemmistaðnum Rivoli í Toronto hafa gengið hægt fyrir sig og þolinmæðin á þrotum. Þá breytast horfur skyndilega þegar Matt finnur upp á tímavél fyrir slysni og félagarnir eru óvart orðnir heimsins fyrstu tímaflakkarar. Ætli þeir hafi þá loksins fundið lykilinn að tilvonandi heimsfrægð eða enda verða hlutirnir mögulega enn verri?Þessi frumlega, pönnusteikta og tilkomumikla ræma er byggð á samnefndum sjónvarpsþáttum sem örfáir Íslendingar ættu að þekkja til. Á meðal þeirra Íslendinga eru Atli Sigurjónsson, sem mættur er í stúdíóið til Tomm og Kjartans ásamt Fannari Traustasyni, sem kom alveg kaldur að Nirvanna, en við upptöku þessa þáttar voru Bíófíklar nýbúnir að halda sérsýningu á myndinni í Smárabíói. Hefst þá hin alíslenska krufning á Hljómsveitinni Nirvanna og brengluðu ævintýrum þeirra. Myndin er rædd með spillum...Efnisyfirlit:00:00 - Nirvanna The Band03:22 - 'The Show'08:35 - 'The Movie'11:11 - CN turninn20:29 - Trylltar blekkingar27:00 - Áætlun með tímavél34:50 - Tímalínan brenglast41:27 - Hálfvitalegir snillingar46:46 - Öskurhlátur í bíósal (þungir spillar!)52:25 - 'Force Awakens' þátturinn...58:42 - Löggubílarnir01:02:06 - Munur á útgáfum01:08:22 - Skapandi takmarkanir01:18:16 - Samantekt
-
Mortal Kombat II (2026) 12.05.2026 1h 7minMortal Kombat vörumerkið hefur haldist býsna stöðugt og notið ágætra vinsælda síðustu 30+ árin. Fyrir utan heimsfræga tölvuleikinn og öll þau mismunandi form sem hann hefur fengist í, má nefna teiknimyndir, sjónvarpsþætti, vefþætti, myndasögur og - að sjálfsögðu - bíómyndir sem sveiflast hafa heiftarlega til í gæðum.Þeir Atli Freyr, Tommi og Kjartan skelltu sér á ‘fjórðu’ Mortal Kombat-myndina, sem er þó í raun númer tvö í glænýrri endurræsingu. Um er að ræða beint framhald myndarinnar frá 2021 sem lenti með litlum hvelli í miðjum heimsfaraldri en varpaði engu að síður fram stórum loforðum um áframhaldið.Nú fer Karl Urban á kostum ásamt fleiri slagsmálaóðum góðkunningjum í þeysireið þar sem ýmsu subbulegu er tjaldað til. Kjartan kemst þó ekki hjá því að spyrja hvaða kröfur er sanngjarnt að áhorfendur geri til svona myndar. Er Mortal Kombat II lítið annað en skítþunn hasarsteypa sem eingöngu er ætluð aðdáendum tölvuleikjanna eða leynist meira á bakvið þessa ljómandi flippuðu bardagaveislu?Skoðanir munu stangast á og þá er ekkert annað hægt en að kanna hver þremenningana hefur vinninginn. Efnisyfirlit:00:00 - Lamið yfir víðan völl12:49 -Mortal Kombat (2021)21:23 -Mortal Kombat II27:18 - Spillar blæða…30:11 -Nýjar áherslur34:15 -Svindl og flipphljóð42:12 - Fortnite-leiðin…46:12 - Helvíti og blævængir53:31 - Karakterar út um allt57:26 -Samantekt
-
Áfram Latibær (1996) & Glanni glæpur í Latabæ (1999) 10.05.2026 1h 5minHér kemur smá sprell með skondna sögu að baki. Kvöld eitt, fyrir fimm árum síðan (veturinn 2021 nánar til tekið…), settust þeir Tommi og Óli Bjarki Austfjörð niður við míkrafóna til að ræða stóru málin í tengslum við tvær af þekktari leiksýningum íslenskrar menningar. Bæði leikritin voru gefin út á VHS/DVD og hafa lifað ágætu ‘költ’ lífi síðan, einna helst hjá hópum sem eiga sér nostalgíurætur að tengja við þetta skrípóflipp úr smiðju Magnúsar Scheving.Tommi og Óli, eins og má kannski heyra, eru vel galsaðir þegar upptökur stóðu en halda engu að síður efnistökunum hnitmiðuðum og krufningunni innan velsæmis- og skynsemismarka. Upp rísa spurningar á borð við þessar: Hvar er allt fullorðna fólkið í Latabæ? Hvers vegna er bæjarstjórinn svona niðurlútur? Af hverju eru krakkarnir með bílpróf? Hversu úthugsað er lykiláætlunin hjá Glanna glæp og af hverju í ósköpunum beitir Íþróttaálfurinn handrukkara-töktum á hrekkjusvíninu Höllu?Þáttur þessi hefur lengi safnað ryki í geymslu og þótti bíófíklunum að nú væri sá tími kominn til að gefa þetta út. Hví ekki?Efnisyfirlit:00:00 - Nostalgían kvödd07:34 - Áfram Latibær11:59 - Karakterkynningar25:00 - Hentugar lausnir39:52 - Bær sem heitir ‘Frábær’…42:11 - Glanni glæpur…48:12 - Ýktar breytingar51:21 - Stóra planið58:35 - Samantekt(ish)
-
Topp 5: Ridley Scott 05.05.2026 1h 32minEinn sá virkasti í bransanum og að öllum líkindum methafi þegar kemur að 'leikstjóraköttum' eða almennt lengri útgáfum af kvikmyndum. Þar að auki hefur Ridley Scott sýnt fram á gríðarlega fjölbreytni í gegnum áraraðirnar og gælt við alla mögulegu flokka; frá vísindaskáldsögum eða hryllingsmyndum til epískra períódumynda, sannsögulegra glæpamynda og meira að segja furðulegra gamanmynda.Fjölbreytnin er meira að segja orðin svo mikil að lengi má spyrja sig; Hver eru einkenni kvikmyndar frá Ridley Scott? Hver eru mynstrin? Hvar liggja gildin? Hverjir eru styrkleikarnir? Og... (vitaskuld!) hvaða fimm myndir frá manninum þykja mest framúrskarandi og hvers vegna?Þeir Kjartan, Tommi og Birgir Snær tækla þessar spurningar og ýmsar fleiri, til að betur skilja þennan kvikmyndagerðarmann sem lætur fátt stoppa sig og virðist fara létt með það að dæla út hverri risamyndinni á eftir annarri. Stundum árlega!Efnisyfirlit:00:00 - Sjónvarp og stöff11:51 - Boromír og Faramír30:44 - Blade Runner37:47 - Matchstick Men40:34 - Black Hawk Down44:22 - The Counselor47:28 - Kingdom of Heaven: DC52:50 - The Martian59:47 - Thelma & Louise01:02:26 - Gladiator01:08:22 - Alien01:21:26 - InfinityVision...?
-
Samtal við Greg Sestero 01.05.2026 15minOft hefur heitið ‘Íslandsvinur’ verið innistæðulaust þegar kemur að frægu fólki. Hins vegar er leikarinn, bókahöfundurinn og framleiðandinn Greg Sestero sannur Íslandsvinur í orðsins fyllstu merkingu. Hann hefur komið til landsins í ófáu skiptiin, hvort sem það hefur verið til að kynna nýjar bíómyndir eða vera viðstaddur á partísýningum hinnar ómetanlegu ruslmyndar The Room.Íris Árnadóttir, góðvinur og fastagestur hlaðvarpsins, hitti Greg nú á dögunum í Bíó Paradís og átti hressilegt spjall við kauða á vegum Bíófíkla. Í þessu stutta en sérstaka innslagi er farið yfir ýmist í tengslum við feril leikarans, almennan kvikmyndasmekk og verkefni í gegnum árin og á næstunni.Þá er gráupplagt að sperra upp eyrun og hlera samtal Írisar við nýja vin sinn. Efnisyfirlit:00:00 - Inngangur01:45 - Big Shark7:03 - Leikstíll Gregs9:45 - Hvað ef...11:00 - The Disaster Artist12:45 - Bíónördið í 'Mark'
-
'Topp 5': Gervigreindarmyndir 28.04.2026 58minEr það A.I. eða 'Æ, æ', eða stöndum við einhvers staðar þarna á milli? Í þessum sérstaka samstarfsþætti leiða Gervigreindarklúbburinn og Bíófíklar hesta sína saman á Podcaststöðinni. Strákarnir kafa djúpt ofan í heim gervigreindar í kvikmyndum — allt frá klassískum hrollvekjum til hjartnæmra framtíðarsýna.Stefán Atli, Tómas og Kjartan ræða helstu stórvirkin sem hafa mótað hugmyndir okkar um vélar, meðvitund og framtíð mannkyns. Þátturinn fer út fyrir hvíta tjaldið og spyr spurninganna sem brenna á mörgum í dag:Mun gervigreind taka störfin okkar? Getur tækni öðlast sjálfstæðan vilja? Hvað verður um tilgang mannsins ef vélar geta gert allt betur en við? Er framtíðin meira í ætt við Wall-E, Her eða The Matrix?Efnisyfirlit:00:00 - Hið jákvæða og neikvæða08:03 - Samtal við ChatGPT20:56 - Uppreisn vélanna29:57 - HAL ofl.37:02 - Þróun og framtíð46:54 - "Gullsins virði"
-
Súrt og svarað: Gervigreind í bíómyndum 23.04.2026 1h 33minHver væri versta kvikmyndin til að talsetja á íslensku? Hvaða bíósería veitir ekki af því að vera tekin í gegn með ‘Evil Dead’-vinkli? Hvaða eintak í þekktum myndabálki væri ásættanlegt að gera ef hún væri skrifuð af gervigreind? Hvaða titlar eru endanlega ónýtir út af ofbeldisfólki? Tommi, Atli Freyr og Vilmundur Örn skoða þessar sturluðu og helvíti súru spurningar ásamt fleirum í þessu tiltekna innslagi af spurningarleik Bíófíkla þar sem hvorki eru til rétt eða röng svör; aðeins gamanið sem gert er til að veita innsýn inn í smekk þeirra sem við mækana sitja.Hlustandi er hvattur til að hlera þessa steik og svara í eigin kolli.Efnisyfirlit:00:00 - ‘Leikreglur’ og vangaveltur14:13 - “Pop-up” aðlögun20:19 - Frægir Íslendingar í myndum25:41 - Leikstjóraegó á næsta stigi46:08 - AI skrifar bíómynd…51:50 - Talsetningar á íslensku01:02:45 - Evil Dead-vinkillinn01:12:17 - Af tvennu ömurlegu…01:20:56 - Óæskileg röðun01:28:03 - Leynigestur…!
-
I Swear (2025) 11.04.2026 54minEinstaka sinnum koma út bíómyndir sem óhætt er að mæla með fyrir alla. Þá bókstaflega alla; óháð aldurshópi, stétt, pólitískum gildum, lífsreynslu og fleira þess háttar. Svona myndir sem hitta einfaldlega bara vel í mannsálina, auka skilning á átökum náungans og skilja ýmist eftir sig. I Swear er ein slíkra mynda. Eða svo segir allavega annar þáttastjórnenda Bíófíkla.Myndin er byggð á sannri sögu og fjallar um hinn ljúfhjartaða John Davidson, sem hefur frá unglingsaldri glímt við Tourette heilkenni. Útkoman er ljúfsár og einstaklega yljandi þar sem varpað er sterku ljósi á umræðuefni sem ber að fræða margan manninn um (ekki síður í ljósi umtalaða atviksins á BAFTA verðlaununum…). Þá má jafnframt fullyrða að atburðarás þessarar kvikmyndar kann að vera lyginni líkust, enda er veruleikinn gjarnan furðulegri en skáldskapur.Kjartan og Tommi fara ítarlega í frásögnina, ‘biopic’-formúlur, mýtur og vangaveltur um Tourette, kosti myndarinnar og galla. Gætu hugsanlega líka dúkkað upp leynigestir í miðjum tökum.Hendum okkur í þetta helvíti!…Efnisyfirlit:00:00 - BAFTA-skandallinn…05:38 - “Of mikil biopic-mynd”?09:05 - Skilningur og umburðarlyndi 15:37 - Baylen Out Loud20:44 - Of gott til að vera… (spillar!)29:28 - Flæði tilfinninga37:19 - Nei sko, leynigestir…!43:03 - Erfiðu samtölin49:17 - Listin að tilheyra
-
The Super Mario Galaxy Movie (2026) 04.04.2026 1h 3minMario-bræður og vinir möluðu gjörsamlega gull í aðsókn á heimsvísu þegar fyrsta bíómyndin mætti með látum árið 2023. Þá kom að sjálfsögðu ekki annað til greina en að halda samstarfinu áfram hjá Nintendo og Illumination. Hvar endar þetta?Skipta gæðin einu sinni máli þegar um ræðir svona þekkt vörumerki og skilyrðislausar vinsældir? Er kannski bara nóg að krakkarnir gangi alsælir og sáttir út úr bíóinu? (og ekki er það beinlínis neikvætt að börn flykkist í kvikmyndahús til að byrja með…). Laumast kannski meira undir yfirborði Super Mario myndanna en eingöngu sykurvíma, tilvísanir og ‘páskaegg’?Svör þessi reyna á mat sérfræðings og Kjartan og Tommi fengu Arnór Stein Ívarsson úr Tölvuleikjaspjallinu til að greiða úr gúmmelaðinu. Tengsl hvers og eins við tölvuleikina eru einnig krufin, almenn nostalgía og hlutleysi.Skellum í okkur sveppina og kýlum á þetta.Efnisyfirlit:00:00 - Nintendo mafían09:00 - Mario-legasían18:01 - Super Mario ’64…26:38 - Fyrri myndin29:27 - Hegðun í bíósal36:28 - Illumination-lógík40:01 - Super Mario Galaxy43:41 - Star Fox og cast’ið…48:56 - Lagstuldur…52:48 - Samantekt og krítík
-
Topp 10: Svavar Máni 03.04.2026 1h 52minSvavar Máni Geislason brunaði beinustu leið frá Akureyri til að skella sér í stúdíó Podcast-stöðvarinnar til að setjast niður með Bíófíklum, enda mikill slíkur sjálfur að eigin sögn. Þegar upp kom spurningin um umfjöllunarefni þá varð vissulega svonefndur 'kósí-þáttur' fyrir valinu; kósí fyrir þáttastjórnendur, krefjandi fyrir gestinn. Eins og það á að vera...Smekkur Svavars fer yfir víðan völl og leiðir hann Kjartan og Tomma í gegnum sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir, með viðeigandi sem og furðulegum útúrdúrum annað slagið. Þess að auki myndast merkilega skondnar umræður um vægi og gildi Óskarsverðlauna.Efnisyfirlit:00:00 - Bíóið á Akureyri09:21 - Aftersun16:09 - In Bruges22:11 - Beautiful Boy33:23 - Better Man43:43 - The Holdovers53:14 - Scott Pilgrim Vs. The World01:01:34 - Pulp Fiction01:09:27 - All of Us Strangers01:13:16 - One Flew Over the Cuckoo’s Nest01:19:00 - The Green Mile01:31:07 - Magnolia01:38:16 - One Battle After Another
-
Meet the Feebles (1989) 28.03.2026 43minEf það er til eitthvað steiktara frá leikstjóra The Lord of Rings-myndanna heldur en Braindead eða jafnvel Bad Taste, þá er það klárlega Meet the Feebles! Hér er enginn afsláttur veittur og öll velsæmismörk eru svo gott sem ósýnileg. Það er að minnsta kosti öruggt að aldrei hefur áður eða síðan sést eitthvað í líkingu við hana. Við viljum vita hvers vegna….Tommi og Frikki settu upp prakkaralegt glott og völdu þessa kvikmynd með séróskir um að Kjartan fengi ekkert að kynna sér né lesa sig til um hana fyrirfram, að hann þurfti sumsé að horfa á hana algjörlega blindandi. Þekkjandi Kjartan eru viðbrögðin klárlega skrautleg og umræðan verður svoleiðis sprellfjörug að Atli Freyr Bjarnason stóðst heldur ekki mátið að vera með í öllu glensinu. Þetta er Meet the Feebles frá Peter Jackson, og hún er vægast sagt ein spes bíómynd. Hlustandi er vitaskuld hvattur til að taka þátt í smekkleysunni.Efnisyfirlit:00:00 - “Fokkaðu þér, Frikki”07:15 - Stoltur viðbjóður14:48 - Metnaður?26:23 - Söguþráðurinn…34:43 - Samantekt(ish)
-
Project Hail Mary (2026) 21.03.2026 1h 29minEr þetta með betri sci-fi skáldverkum undanfarinna ára, spurning? Bókin eftir Andy Weir virðist allavege eiga stóran hóp aðdáenda og þá er bara að skoða hvernig til tekist hefur með kvikmyndaaðlögunina. Nöfnin eru allavega ekki af slakari endanum; Leikstjórateymið Lord & Miller, handrit eftir Drew Goddard, Ryan Gosling í burðarrullunni og ein stjarnfræðilega krúttleg geimvera að nafni Rocky. Svo fáein dæmi séu nefnd.Kjartan, Tommi og Birgir Snær skella sér í þessi sendiför og meta hvort allt hæperbólið standist, ásamt mögulega einum leynigesti.En ekki hvað?Efnisyfirlit:00:00 - Tuð, nostalgía og hasar09:51 - Weir, Goddard og Lord/Miller28:54 - Samantekt án spilla47:13 - Dýpra kaf (þ.e. spillar)01:00:05 - Fíllinn í aspect ratio’inu…01:07:46 - Leynigestur01:12:01 - Brúða en ekki brella01:17:10 - Í hvaða sal?01:26:00 - “Æðisleg. Fullyrðing”
-
The Commitments (1991) 18.03.2026 1h 2minDögg Mósesdóttir er leikstjóri, naglharður múltítaskari og með heldur betur heilmikla reynslu af kvikmyndahátíðum á Íslandi. Undanfarin ár hefur hún verið dagskrástýra Stockfish en að hennar eigin sögn er þemað ákaflega fjörugt í ár. Írsk menning er allsráðandi þetta árið en Dögg settist niður með Kjartani og Tomma til að ræða Sprettfiskinn næstkomandi, feril sinn, áhugasvið, íslenska kvikmyndabransann og eina af sínum uppáhaldsmyndum. Það mun vera stuðmyndin The Commitments, sem á sér skemmtilega sögu og legasíu. Myndin naut mikilla vinsælda á sínum tíma og fylgir henni hafsjór af bæði hressilegum tónlistaratriðum og fjörugum fróðleiksmolum.Efnisyfirlit:00:00 - Írskur fókus14:31 - Íslandstenging19:30 - Hagkerfi kvikmyndagerðar36:47 - The Commitments40:50 - Fjölbreyttur soul-hópur50:36 - Óreyndir naglar58:31 - Súrrealisminn heillar
Popular em
Este podcast também aparece nas paradas de podcasts destes países.