Tveir á toppnum

Tveir á toppnum

Tveir á toppnum
País Islândia
Idioma IS
Episódios 153
Último 29.07.2026

Blaðamennirnir Oddur Ævar og Tóti ræða kvikmyndir, sjónvarp og allt þar á milli í óbeinu framhaldi Bíóvarpsins sem dó með Fréttablaðinu. Þættirnir eru óvenju góð flétta þar sem mannlegi þátturinn hefur ekki gleymst.

Episódios

  • #159 - Talking Bollocks! 29.07.2026 1h 4min
    Hefðbundin dagskrá trufluð og þætti #159 er droppað á miðvikudegi svo Oddur geti kastað sér head first ofan í Marvel-trogið á fimmtudaginn. Stjórnlaust og tilgangslaust blaður Tveggja á toppnum þar sem verslunarmannahelgin, bláir gaskútar og alls konar annað er tæklað ásamt skúbbi vikunnar: HVAÐA ÞJÓÐÞEKTTA MENNINGARDROTTNING GEKK ÚT AF THE ODYSSEY Í HLÉI????
  • #158 - The Odyssey 23.07.2026 1h 5min
    Þátturinn sem er búinn að vera u.þ.b. 3200 ár á leiðinni er loksins í höfn! Christopher Nolan er tekinn á beinið og Ódysseifskviðu hans snúið á alla kanta í epískum panel með Illuga Jökulssyni, sem kannast eitthvað aðeins við frumtextann sem myndin byggir á, og Birgi Olgeirssyni, sem hefur aldrei verið jákvæðari en að þessu sinni.
  • #157 - Frjáls tími og glápskýrslur 16.07.2026 1h 24min
    Þátturinn um allt sem hefur ekki komist að í fjarveru Odds ásamt tveimur stórfréttum sem skekið hafa heimsbyggðina; andlát Sam Neill og íslenskt Love Island.
  • #156 - Stallone 80 ára 06.07.2026 2h 13min
    Sylvester Stallone, okkar eigin Sly, fagnar 80 ára afmæli í dag, 6. júlí, og ekki annað hægt en sýna honum þann sjálfsagða sóma að rjúfa hefðbundna dagskrá með sérstökum þætti. Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, rithöfundur og jafnaldri fyrstu Rocky-myndarinnar, stígur aftur í hringinn og fer með Tóta yfir langan, glæstan en þó brokkgengan feril rómuðustu hasarhetju síðustu áratuga í 130 mínútur sem gerir þáttinn að langlengsta Tveir á toppnum þætti allra tíma.
  • #155 - Citizen Vigilante 01.07.2026 1h 18min
    Eldfimur þáttur þar sem Kristinn Theódórsson er kallaður til og fenginn til þess að ræða umtalað furðuverkið og svimandi lélega ruslið Citizen Vigilante jafn vítt og breitt og takmarkaður efniviðurinn leyfir. Myndin og áróðurinn sem hún rekur eru þess eðlis að umræðunum fylgja allar mögulegar og ómögulegar trigger warnings, til hægri og vinstri.
  • #154 - Disclosure Day 18.06.2026 1h
    Undarlegur þáttur hlaðinn sláandi afhjúpunum þar sem hæst ber að Oddur er í gíslingu vondra hvalfangara og missir því af gesti þáttarins sem er af því kalíberi að hann þarfnast ekki kynningar. En við kynnum hann nú samt: Sjáðu-maðurinn sjálfur Ásgeir Kolbeins ræðir við Tóta um nýjustu Spielberg-myndina, Disclosure Day, og alls konar annað mismerkilegt en allt skemmtilegt.
  • #153 - Obsession 11.06.2026 1h
    Öll og afar þeirra obsessa nú yfir Obsession. Maðurinn sem uppgötvaði Obsession á Íslandi, Arnar Tómas Valgeirsson, lætur sig því ekki vanta í þáttinn og þar sem hermt er að um sérstaka Gen Z-mynd sé að ræða voru sérstakir fulltrúar kynslóðarinnar, Ragga Björt Tótadóttir og Alda Örvarsdóttir, kallaðar til lóðbeint úr MH.
  • #152 - Backrooms 05.06.2026 52min
    Öll eru að tala um Backrooms þannig að Oddur og Tóti verða að gera það líka. Verst bara að þeir skilja ekki neitt.
  • #151 - 2EXTRA - Euphoria 3 03.06.2026 39min
    Dóra Júlía er dregin inn í neyðarpodd, sérstakan aukaþátt, þann fyrsta í langan tíma, um Euphoria 3 í fjarveru Tóta.
  • #150 - The Mandalorian and Grogu 28.05.2026 54min
    Þegar ný Star Wars-mynd kemur í bíó dugir ekkert annað en að draga fram stóru geislabyssurnar og það er gert í þessum þætti sem fjallar bara um Stjörnustríð og ekkert nema Stjörnustríð með okkar helsta Star Wars-manni, sjálfum Geir Finssyni.
  • #149 - The Boys vertíð 5 - Lokauppgjör 21.05.2026 52min
    Lokahnykkur The Boys er í brennidepli og maðurinn sem uppgötvaði þættina á Íslandi, sjálfur Arnar Tómas Valgeirsson, er ekki langt undan og kveður upp sinn endanlega dóm símleiðis.
  • #148 - Daredevil: Born Again vertíð 2 - The Punisher: One Last Kill 14.05.2026 1h 2min
    Arnar Tómas Valgeirsson kemur aftur eftir ársfjarveru en er enn með heitu take-in. Marvel trogið krufið í þaula.
  • #147 - The Devil Wears Prada 2 08.05.2026 35min
    Hátískuþáttur með súperstjörnunni DJ Dóru Júlíu sem leiðir leppalúðana Odd og Tóta meðfram sýningarpöllunum inn í allan sannleikann um menningarfyrirbærið sem kennt er við Andskotann dressaðan upp í Prada.
  • #146 - Apex og bestu myndir síðustu 25 ára 30.04.2026 59min
    Síðasti þáttur aprílmánaðar byrjar á spjalli við Björn Þór Vilhjálmsson, dósent í kvikmyndafræði við HÍ, um býsna áhugaverðan lista yfir 25 bestu kvikmyndir síðasta aldarfjórðungs. Apex hans Balta er síðan rædd út og suður en aðalega norður áður en hefðbundnu stöðutjékki er troðið sem rúsínu í þennan mánaðarenda.
  • #145 - Invincible og The Drama 23.04.2026 45min
    Heilsufarsskoðun Tóta hjá hjartalækninum á sumardeginum fyrsta. Fjórða sería af The Invincible öll komin út, endurnýjun Law and Order og The Drama. Michael Jackson myndin sem er víst að falla í grýttan jarðveg meðal gagnrýnenda. Skoðanir Tóta á MJ koma ekki á óvart, eða hvað?
  • #144 Malcolm & Melania í miðjunni 16.04.2026 52min
    Þreyttir, slæptir og tættir en óbugaðir barma Oddur og Tóti sér yfir ómannúðlegu glápálagi. Oddur finnur þó huggun í því að hann er að byrja aftur að éta vængi í sjónvarpi og hefur hrifist af Malcolm in the Middle: Life's Still Unfair. Tóti hins vegar deilir hlutskipti með Malcolm og hefur tekið út talsverða þjáningu til þess að efna loks loforið um Melaniu umfjöllun.
  • #143 - Project Hail Mary og sjónvarpsvorfenið 08.04.2026 1h 1min
    We are so back! Ferðasaga Odds, ótrúlegar hrakfarir Tóta í gestagangi, Project Hail Mary, The Boys, Invincible, Daredevil: Born Again, Euphoria, Harry Hole og vorbylgjan ógurlega.
  • #142 - Óskarinn 2026 19.03.2026 52min
    Óskarinn gerður upp. Tóti er Nostradamus! Eða svona því sem næst. Hvenær kemur að Timothée Chalamet? Hvar var Sean Penn? Leonardo DiCaprio bölvunin. Manosphere, Spiderman trailer og að sjálfsögðu Law and Order. Og margt fleira.
  • #141 - ESB dómsdagurinn, Rachel Weisz og Vladimir plús allt reglulega bullið 10.03.2026 50min
    Þáttur í flýtimeðferð þar sem Oddur er á leið í óbyggðaferð í vetrarfríinu. Farið er ofan í skuggalega kvikmyndatengingu sem boðar ekkert gott fyrir ESB-þjóðaratkvæðaflippið. Rachel Weiz rokkar Netflix með Vladimir á meðan Jack Reacher púllar Arnold og slæst við hönnungargallaðan Transformer frekar en alvöru Predator. Að ógleymdri fullkomlega ómarktækri og ábyrgðarlausri Óskarsspá. ----- Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af ...
  • #140 - Meint siðblinda Tyru Banks og mikilvægt stöðutékk 05.03.2026 44min
    Vistaskipti Tóta, myrk saga America's Next Top Model, ótrúlegar breytingar á Jim Carrey, síðvetrardepurð og fleira og fleira og fleira. ----- Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

Popular em

Este podcast também aparece nas paradas de podcasts destes países.