Umræðan

Umræðan

Landsbankinn
Țara Islanda
Limba IS
Episoade 68
Ultimul 02.06.2026

Á Umræðunni, efnis- og fréttaveitu Landsbankans, birtist fjölbreytt umfjöllun um efnahagsmál, fjármál einstaklinga, og fleira.

Episoade

  • Hagvöxtur í kólnandi hagkerfi 02.06.2026 22min
    Í nýjasta þætti Umræðunnar fara Una Jónsdóttir og Hjalti Óskarsson yfir nýjustu vendingar í efnahagsmálum með Kristínu Gunnarsdóttur. Stýrivextir voru hækkaðir, hagvöxtur mældist 2,7% á fyrsta ársfjórðungi, verðbólga mældist 5,1% í maí en undir yfirborðinu má sjá merki um kólnandi hagkerfi. Rætt er um áhrif gagnavera á hagvöxt, stöðu húsnæðismarkaðar, verðbólguþróun og horfur næstu mánaða.
  • Það helsta úr nýrri hagspá til 2028 17.04.2026 19min
    Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð, samkvæmt nýrri hagspá Landsbankans (setja link). Hagvöxtur verður hóflegur og einkum drifinn áfram af þjónustuútflutningi. Útlit er fyrir að verðbólga verði 4,8% í ár og sennilegt er að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25% á þessu ári. Una Jónsdóttir og Hjalti Óskarsson úr greiningardeild Landsbankans ræða hagspána við Kristínu Gunnarsdóttur í nýjasta þætti Umræðunnar.
  • Pallborð - Komum hreyfingu á hlutina 14.03.2025 25min
    Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviða Fundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.
  • Lilja, Teitur, Kashif - Komum hreyfingu á hlutina 14.03.2025 20min
    Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviða Fundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.
  • Ingólfur Bender - Komum hreyfingu á hlutina 14.03.2025 11min
    Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviða Fundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.
  • Lilja Björk Einarsdóttir - Komum hreyfingu á hlutina 14.03.2025 11min
    Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviða Fundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.
  • Teitur Samuelsen - Komum hreyfingu á hlutina 14.03.2025 25min
    Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviða Fundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.
  • Verðbólga þokast niður og vextir lækka 06.02.2025 20min
    Verðbólga hefur hjaðnað á síðustu mánuðum og vextir þokast niður á við. Viðnámsþróttur hagkerfisins virðist samt þó nokkur og segja má að hagkerfið stefni í átt að mjúkri lendingu. Óvissa í heimshagkerfinu hefur þó magnast á síðustu vikum og Ísland er í viðkvæmri stöðu gagnvart hnökrum á alþjóðaviðskiptum. Hagfræðingar greiningardeildar bankans stikla á stóru um efnahagsmál í nýjasta þætti Umræðunnar.
  • Vextir þokast niður í takt við væntingar 22.11.2024 21min
    Stýrivextir voru lækkaðir um 0,5 prósentustig á miðvikudaginn og peningastefnunefnd hittist ekki aftur fyrr en í febrúar. Ef verðbólga hjaðnar í takt við spár má gera ráð fyrir að raunvextir hækki um heilt prósentustig á næstu þremur mánuðum. Áfram er verðbólga þó langt yfir markmiði og vextir himinháir, og ýmsir óvissþættir kunna að setja strik í reikninginn. Hagfræðingar í Greiningardeild Landsbankans stikla á stóru um stöðuna í efnahagsmálum í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.
  • Það helsta úr nýrri hagspá 17.10.2024 27min
    Horfurnar eru nokkuð bjartar, samkvæmt nýrri hagspá Landsbankans, þrátt fyrir lítils háttar samdrátt á þessu ári. Með hjaðnandi verðbólgu og auknum slaka á vinnumarkaði skapast svigrúm til áframhaldandi vaxtalækkana sem blása lífi í hagkerfið. Hagfræðingar Greiningardeildar bankans ræða hagspána í nýjasta þætti Umræðunnar.
  • Hæg kólnun og harður tónn 23.08.2024 23min
    Eftir heilt ár af óbreyttu vaxtastigi virðist enn bið eftir að hægt verði að slaka á aðhaldinu. Verðbólga færðist lítillega í aukana í sumar, íbúðaverð hefur haldið áfram að hækka og kortavelta landsmanna hefur aukist milli ára að raunvirði. Staðan er snúin og væntingar um verðbólguþróunina eru enn langt yfir markmiði. Þetta er á meðal þess sem er til umræðu í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.
  • Þarftu að endurfjármagna? 12.06.2024 24min
    Fjölmargir lántakendur standa frammi fyrir því að fastir vextir á íbúðalánum þeirra eru að losna og horfa fram á að taka ákvörðun um hvað skuli gera næst. Í þætti Umræðunnar förum við yfir stöðuna, hvernig endurfjármögnun virkar og kynnum nýja lausn í appinu sem gerir endurfjármögnun þægilegri.
  • Aukin verðbólga og 4% samdráttur 04.06.2024 19min
    Verðbólga var umfram spár í maí og jókst milli mánaða. Hagkerfið dróst saman um 4% á fyrsta ársfjórðungi og þar með varð samdráttur í fyrsta sinn síðan í byrjun árs 2021. Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir, Hjalti Óskarsson og Una Jónsdóttir ræða stöðuna í efnahagsmálum í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.
  • Þrautseigt hagkerfi við háa vexti 03.05.2024 23min
    Hagfræðideild spáir því í nýrri hagspá að enn sé þó nokkur bið eftir fyrstu vaxtalækkun. Verðbólgan hjaðni smám saman á næstu árum og efnahagsumsvif aukist eftir því sem vextir lækka. Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir, Hjalti Óskarsson og Una Jónsdóttir ræða hagspána í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.
  • Lengist biðin eftir vaxtalækkun? 21.03.2024 21min
    Seðlabankinn hélt vöxtum óbreyttum á miðvikudag og sló harðari tón en búist var við. Markaðsaðilar gerðu flestir ráð fyrir að vaxtalækkunarferli gæti hafist í maí, en lengist biðin kannski fram í haust? Hvað þarf að gerast áður en hægt verður að slaka á taumhaldinu?
  • Stormasamt stjórnmálaár og varkár vaxtalækkun 15.02.2024 31min
    James Ashley, forstöðumaður markaða og stefnumála í Goldman Sachs, er gestur í nýjasta þætti Umræðunnar. Hann ræðir efnahagshorfur í heiminum, óvissuþætti í tengslum við komandi kosningar í Bandaríkjunum og ólgu í alþjóðastjórnmálum. Karítas Ríkharðsdóttir, sérfræðingur í Samskiptum, stýrir þættinum og með henni er Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur.
  • Vaxtalækkun ólíkleg þótt verðbólga hjaðni 02.02.2024 21min
    Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vöxtum verði haldið óbreyttum í næstu viku. Þótt verðbólguhorfur hafi batnað stígi peningastefnunefnd varlega til jarðar, ekki síst í ljósi óvissu í tengslum við náttúruhamfarir og kjaraviðræður. Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson ræða meðal annars vaxta- og verðbólguhorfur í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.
  • Íbúðaverð á uppleið en hægir á hagvexti 08.12.2023 18min
    Verðbólguhorfur hafa versnað lítillega á síðustu vikum. Seðlabankinn hefur haldið stýrivöxtum óbreyttum í vetur, íbúðaverð er aftur á uppleið en hagvöxtur er mun minni en í upphafi árs. Hagfræðideildin ræðir þetta og fleira í nýjasta hlaðvarpsþættinum.
  • Spjall um spá: Hagkerfi í leit að jafnvægi 19.10.2023 20min
    Hófstilltur hagvöxtur, háir vextir og hjaðnandi verðbólga. Þetta er á meðal þess sem einkennir efnahaginn næstu ár, samkvæmt nýrri hagspá Hagfræðideildar Landsbankans. Í nýjasta þætti Umræðunnar ræða hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson efnahagshorfurnar og fara yfir það helsta úr spánni.
  • Rými til bætinga í fjármálum ungs fólks 27.06.2023 34min
    Fjármál ungs fólks hafa verið sérstaklega til umfjöllunar hjá fræðsludeild Landsbankans að undanförnu. Helgi Teitur Helgason, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Landsbankans, og Guðrún H. Bjarnadóttir, sérfræðingur í viðskiptalausnum, ræða við Karítas Ríkharðsdóttur um hvað gögn bankans segja um fjárhagsstöðu ungs fólks. Meðal annars kemur fram að nokkuð sé um að ungt fólk geymi háar fjárhæðir á veltureikningum og að ungir karlar fjárfesti í hlutabréfum í meiri mæli en ungar konur. Þá eru ung...

Popular în

Acest podcast apare și în topurile de podcasturi din aceste țări.