Stéttir Landsins

Stéttir Landsins

Stéttarfélagið
Țara Islanda
Genuri Education, Business, Careers
Limba IS
Episoade 35
Ultimul 11.03.2026

Stéttir Landsins er íslenskur podcast þáttur sem kafar inn í hin ýmsu störf Íslendinga. Í hverjum þætti fá hlustendur innsýn í raunveruleikann á bak við starfsheiti, allt frá leikurum til útfararstjóra. Þátturinn er í umsjón Hinriks Wöhler og Ólafs Jóhanns Þórbergs og kemur út á miðvikudögum. Samstarfsaðili þáttarins er Alfreð & Giggó.

Episoade

  • Sería 2 - Litið yfir farinn veg 11.03.2026 21min
    Í vetur höfum við fengið 16 starfsstéttir í heimsókn til okkar, allt frá sóknarprests til stjörnuspekings. Við félagarnir fengum okkur uppáhelling og fórum yfir seríuna, hringdum meðal annars í bókasafnsfræðing til að heyra hvað væri að frétta úr bókasöfnum landsins. Slóum einnig stuttlega á þráðinn til hlustenda til að fá hugmyndir fyrir næstu seríu. Við þökkum styrktar- og samstarfsaðilum kærlega fyrir stuðninginn í vetur. Við mætum sprækir til baka að nýju eftir sumarfrí. Það er allt...
  • #33 - Réttarmeinafræðingur - Pétur Guðmann Guðmannsson 04.03.2026 55min
    Réttarmeinafræðingurinn Pétur Guðmannsson hefur um árabil verið eini réttarlæknir landsins í fullu starfi. Í þætti vikunnar köfum við dýpra í eitt sérstæðasta starf landsins og spyrjum stóru spurningarinnar: hvernig er að vinna við það að kryfja lík? Spjallið leiðir okkur víða. Við ræðum meðal annars hvernig dánartími er metinn, hvað gerist í líkamanum þegar við tökum okkar hinsta andardrátt, nálykt, samstarf við lögreglu, rannsóknarskýrslur og þau óútskýrðu dauðsföll sem koma upp á Ísl...
  • #32 - Afbrotafræðingur - Margrét Valdimarsdóttir 25.02.2026 1h 3min
    Afbrotafræðingurinn Margrét Valdimarsdóttir sýndi okkur miskunn þegar við viðurkenndum nýlegar stöðumælasektir og við fórum yfir sviðið með henni í klukkustund eða svo. Við fórum um víðan völl: afglæpavæðingu fíkniefna, innflytjendamál og þróun glæpa á Íslandi og á Norðurlöndum, vopnaburð ungmenna, áhrif CSI á hennar feril, hvað einkennir svæði með háa glæpatíðni og að sjálfsögðu sjálft fagið og námið. Góðar stundir! Samstarfsaðilar þáttarins: 🔍Alfreð -⚕️Sjúkraliðafélag Íslands - 🎓Endur...
  • #31 - Dýrahjúkrunarfræðingur - Eva Rún Freygerðard. Árnadóttir 18.02.2026 58min
    Dýrahjúkrunarfræðingurinn Eva Rún er sannarlega öflugur talsmaður gæludýra landsmanna og talaði þeirra máli í þætti vikunnar. Við fórum víða um sviðið og ræddum meðal annars lífstílssjúkdóma dýra, umræðuhópa á samfélagsmiðlum, gullfiskaæðið í upphafi 21. aldar, samband dýrahjúkrunarfræðinga og dýra, hetjuleg augnablik á skurðstofunni, smitsjúkdóma tengda leðurblökum og hundaæði. Að sjálfsögðu fórum við einnig yfir það góða starf sem unnið er á dýraspítölum um allt land, hvernig dæmigerður dag...
  • #30 - Þingmaður - Sigmar Guðmundsson 11.02.2026 1h 8min
    Alþingismaðurinn alþýðlegi, Sigmar Guðmundsson, tók sér hlé frá þingstörfum og kíkti í uppáhelling til okkar. Fyrst og fremst brann á okkur sú spurning hvort þetta væri raun og veru skemmtilegt starf. Hversu gíraður þarftu að vera í kosningaframboði, hjá hverjum maður situr í mötuneyti Alþingis, sitja undir málþófi korter í sumarfrí og hvort það sé hægt að hafa skoðanir á öllu. Síðan var snert á alþjóðamálum, ESB og NATO. Þjóðlegar og hressandi umræður. Samstarfsaðilar þáttarins: 🔍Alfre...
  • #29 - Sjúkraliði - Elísa Finnsdóttir & Saga Ólafsdóttir 04.02.2026 50min
    Sjúkraliðarnir síkátu, Elísa Finnsdóttir og Saga Ólafsdóttir, gáfu okkur innsýn í starf og umhverfi sjúkraliða á Íslandi. Sjúkraliðar ganga með marga hatta innan heilbrigðiskerfisins og var komið víða við. Félagslíf og virkni eldri borgara var í brennidepli, opnar skurðaðgerðir, heldri menn með mótþróa, samskipti við skjólstæðinga, boccia, hvernig á að taka á því þegar einstaklingar eru á síðustu metrunum, og meðferðargeitur í Eyjafjarðarsveit. Sannarlega augu og eyru heilbrigðiskerfisins! Ky...
  • #28 - Fornleifafræðingur - Hildur Gestsdóttir 28.01.2026 54min
    Fornleifafræðingurinn Hildur Gestsdóttir lagði múrskeiðina til hliðar og spjallaði við okkur. Það var farið aftur til fortíðar og meðal annars rætt um mannabeinarannsóknir en Hildur sérhæfir sig í þeirri áhugaverðu undirgrein fornleifafræðarinnar. Það var rætt m.a. um merka uppgrefti, tæki og tól fornleifafræðinga, umhverfi fornleifafræðinga á Íslandi, gömul sverð, myntasöfnun, fallega bæjarhóla, og fornleifauppgröft framtíðarinnar (rafsígarettur og annað eins). Samstarfsaðili þáttarins...
  • #27 - Íþróttafréttamaður - Jóhann Páll Ástvaldsson 21.01.2026 55min
    Íþróttafréttamaðurinn Jóhann Páll Ástvaldsson er iðulega staðsettur í Efstaleiti hjá Ríkisútvarpi allra landsmanna. Hann leit við hjá okkur í spjall og fór yfir landslagið í sportinu. Handboltinn tröllríður umræðunni í dag og við fórum aðeins yfir stöðu handboltans á alþjóðavísu og fyrirkomulag stórmóta. Auðvitað var ekki hægt að tala um íþróttir án þess að ræða uppgang krullunnar, en einnig var komið inn á friðarverðlaun FIFA og HM 2026, klisjur í viðtölum, íþróttaskandala, aukið...
  • #26 - Flugumferðarstjóri - Diljá Mjöll Kolár Hreiðarsdóttir 14.01.2026 54min
    Flugumferðarstjórinn Diljá Mjöll steig úr flugturninum og leit við til okkar í stúdíóið. Við ræddum námið hjá Isavia og hið daglega starf flugumferðarstjóra, allt frá samskiptum, ákvarðanatöku og öllu sem starfinu fylgir. Einnig bar á góma flugvélalingóið, óvænt atvik í háloftunum, áhrif veðurfars, flugvöllinn á Gjögur, mikilvægi rýmisgreindar í starfi flugumferðarstjóra, listflug í steggjunum og ferlið sem fer í gang ef til flugslyss kemur. Í janúar er opið fyrir umsóknir í nám í...
  • #25 - Fangavörður - Heiðar Smith 07.01.2026 59min
    Fangavörðurinn Heiðar Smith fór yfir stöðuna í fangelsismálum á Íslandi, starf fangavarða og hið daglega líf innan veggja fangelsanna. Heiðar starfar í fangelsinu á Hólmsheiði og er jafnframt formaður Félags fangavarða. Í spjallinu var farið yfir þær fjölmörgu áskoranir sem fangelsisyfirvöld standa frammi fyrir í nútímasamfélagi. Að vanda var farið um víðan völl og einnig komið inn á stigskiptingu afplánunar, félagsstarf fanga, samneyti fanga og fangavarða, Fangavarðaskólann, Stóra-Hraun og m...
  • #24 - Stjörnuspekingur - Guðrún Bergmann 31.12.2025 51min
    Stjörnuspekingurinn Guðrún Bergmann er með marga hatta og einn þeirra er stjörnuspekin. Nýtt ár er í vændum og því tímabært að rýna í stjörnukortin og kanna hvað þau segja um það sem fram undan er. Við ræddum hvort stjörnuspeki geti nýst við að velja réttu lottótölurnar, taka skynsamlegar ákvarðanir á fasteignamarkaði og í lífi og leik. Guðrún dró upp persónuleg stjörnukort fyrir okkur félagana og þar kom margt áhugavert í ljós. Rísandi Venus, loftmerki, mikil sól og ýmis persónul...
  • #23 - Jólasveinn - Bjúgnakrækir 21.12.2025 23min
    Jólasveinninn gjafmildi, Bjúgnakrækir, hélt að hann væri á leið á jólaball þegar hann sparkaði upp hurðinni á stúdíóinu. Við fengum hann þó til að setjast niður með okkur á þessum háannartíma. Það var rætt um þennan fjölskyldubransa og mikla eftirspurn í desember, kjarasamninga jólasveina, hvort Kertasníkir væri uppfullur af sjálfum sér, og þá gagnrýni sem Gluggagægir hefur sætt undanfarin ár. Bjúgnakrækir kom einnig inn á það að Grýla væri ekki jafn ógnvænleg og áður, enda komin á safa...
  • #22 - Lýtalæknir - Þórdís Kjartansdóttir 17.12.2025 57min
    Lýtalæknirinn Þórdís Kjartansdóttir er alla jafna með skurðhnífinn á lofti hjá DeaMedica, en að þessu sinni settist hún niður með okkur og fór yfir þennan áhugaverða bransa. Í þætti vikunnar er komið víða við, allt frá bótoxi og til Simon Cowell, andlitslyftinga, BBL, hárígræðslna, calf implants, nýjustu tískubólur og margt fleira. Þórdís, sem hefur starfað sem lýtalæknir um árabil, fékk misgáfulegar spurningar frá okkur drengjunum og erum við aðeins fróðari fyrir vikið. Samstarfs...
  • #21 - Tölvuleikjaframleiðandi - Halldór Snær Kristjánsson 10.12.2025 1h 14min
    Tölvuleikjaframleiðandinn, Halldór Snær Kristjánsson, stofnaði Myrkur Games ásamt tveimur félögum sínum úr HR. Þó nokkrum árum síðan og talsverðri mikilli vinnu er leikurinn þeirra, Echoes of the End, loks kominn út. Við félagarnir vorum að vanda forvitnir um hvernig svona ferli gengur fyrir sig og Halldór fræddi okkur um það hvernig hægt er að taka bjartsýna hugmynd úr háskóla og fylgja henni eftir alla leið. Við ræddum ekki eingöngu leikinn sjálfan, heldur einnig leikjabransann á Íslandi, f...
  • #20 - Brúðkaupsplanari - Alína Vilhjálmsdóttir 03.12.2025 1h 2min
    Brúðkaupsplanarinn skipulagði, Alína Vilhjálmsdóttir, gaf okkur nokkur góð ráð fyrir stóra daginn. Við fórum yfir allt litrófið í brúðkaupsplaneríi og getum sagt að við séum skrefi nær því að verða tilbúnir að ganga í það heilaga. Hvernig á að tækla langar og leiðinlegar ræður, litapallettur og smekksatriði, kostnað, hversu mörgum gestum á að bjóða, furðulegar hefðir og auðvitað starfið sjálft var til umræðu í þættinum. Tilvalið fyrir þau sem eru brúðkaupshugleiðingum eða bara almenna r...
  • #19 - Veðurfræðingur - Einar Sveinbjörnsson 26.11.2025 1h 3min
    Veðurfræðingurinn vinalegi, Einar Sveinbjörnsson, kom í heimsókn og leit með okkur til veðurs eins og honum einum er lagið. Veðrið er okkur hugleikið á hverjum degi og því lá ekki á spurningunum. Við fórum yfir helstu spálíkön, ræddum hvort það væri á einhvern hátt skynsamlegt að flytja höfuðborgina miðað við veðurfar, hvernig það reynir á sálartetrið að spá fyrir heilli þjóð og rýndum í helstu vindáttir og strauma. Við veltum einnig fyrir okkur hvar á höfuðborgarsvæðinu veðrið væri bes...
  • #18 - Prestur - Guðmundur Karl Brynjarsson 23.11.2025 1h 1min
    Sóknarpresturinn síungi, Guðmundur Karl Brynjarsson, hefur gengið Guðs veg síðan á tíunda áratug síðustu aldar. Guðfræðin kallaði þó ekki sterkt til hans á æskuárum og kom mörgum á óvart þegar hann gerðist prestur. Gummi Kalli þjónar hjá Lindakirkju í Kópavogi og hefur getið sér góðs orðs sem sóknarprestur. Hann ræddi við okkur um ýmislegt sem tengist trúnni, meðal annars hvort það væri rými til að bæta við boðorðum, lagaval í kirkjukórum, hlutverk djákna, messuvínið og hvort kristileg ...
  • Sería 1 - Litið yfir farinn veg 19.05.2025 13min
    Við drengirnir settumst niður í stutta stund og litum yfir farinn veg í svokölluðum „wrap up“ þætti. Líkt og flestar stéttir landsins ætlum við að skella okkur í sumarfrí. Í þessari stuttu samantekt rifjuðum við upp skemmtileg atvik og eftirminnileg augnablik. Við þökkum öllum kærlega fyrir hlustunina og hlökkum við til að byrja ferskir í ágúst. Gleðilegt sumar ☀️ Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 🎵Elephant - Tame Impala 🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þó...
  • #17 - Bráðatæknir - Höskuldur Friðriksson 07.05.2025 1h 12min
    Bráðatæknirinn reynslumikli, Höskuldur Sverrir Friðriksson, hefur starfað sem sjúkraflutningamaður og bráðatæknir í tæp 40 ár. Hann hefur sannarlega upplifað ýmislegt og séð tímana tvenna. Höskuldur fór um víðan völl og sagði okkur meðal annars frá starfi sínu í Bandaríkjunum, Nígeríu og Líbanon. Þar upplifði hann skotárásir og sinnti störfum á jarðsprengjusvæðum. Starfsferill hefur ekki alltaf verið dans á rósum og var þetta sannarlega áhugaverð sögustund. Samstarfsaðili þáttarins:&nbs...
  • #16 - Kokkur - Snædís Xyza 30.04.2025 58min
    Kokkurinn kraftmikli, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, er margverðlaunaður matreiðslumeistari og hefur verið hluti af kokkalandsliðinu um árabil. Við spjölluðum meðal annars um trendin í matarmenningu Reykjavíkur, fáum góð ráð um hvernig á að elda fisk, kíkjum á bakvið tjöldin hjá íslenska kokkalandsliðinu og ræðum fyrir hverja kokkanámið er. Matur, menning og metnaður í þætti vikunnar. Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷 @snaedisxyza 🎵Elephant - Tame Imp...

Popular în

Acest podcast apare și în topurile de podcasturi din aceste țări.