Svörtu tungurnar
Hljóðkirkjan
0
Svörtu tungurnar er spilahópur sem fjallar um spunaspil í þætti sínum. Hver þáttur er tekinn upp rétt áður en hópurinn sest við spil í Svörtuloftum. Umfjöllunin snýst um leikina sjálfa, persónur og söguþræði, auk þess sem hlustað er á upplifun leikmanna. Þættirnir bjóða inn í heim skapandi spilamennsku og samveru.
Episoade
-
#0114 Sumarspil eða gervigreind 14.07.2026 50minÞátturinn er í boði Malbygg Hvað gera spunaspilarar á sumrin? Er sami fílingur að kíkja í grámygluna í Baroviu á sumrin og á veturnar? Getur gervigreindin bætt spunaspila upplifun eða auðveldlega drepið eitthvað í okkur sem við notum til að skapa sögur og spennu? Svörtu tungurnar fara yfir víðan völl í síðasta þætti fyrir sumarfrí! Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ – Mættir eru: Hilmir, Tryggvi og Lúlli – Tónlist: Simulacrum – Flytjandi: Scorching Ray Taylor -
#0113 - Einhleypa í Borgó 09.06.2026 55min#0113 Þátturinn er í boði Malbygg. Hvernig er hið fullkomna DnD ævintýri fyrir byrjendur? Bjössi og Tryggvi hafa nokkra daga til að búa það til með dyggri aðstoð Svörtu tungnanna og prufa það svo á nokkrum byrjendum í starfsmannahópi Borgarleikhússins. Hvað gæti farið úrskeiðis? Mættir voru Tryggvi Hlynur Hannes Bjössi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar -
#0112 Tveir úr Tungunum: Töfraveröld ímyndunaraflsins 26.05.2026 59minÞátturinn er í boði Malbygg Ókei ókei ókei. Eftir harðorð bréf og andstyggilegar athugasemdir höfum við ákveðið að breyta titli þessa innslags yfir í "Tveir úr Tungunum". Þar setjast tvær tungur niður og ræða málin í þaula, almennilegt nörda trúnó. Að þessu sinni eru það Snæbjörn og Hjörtur sem eru mættir. Til stendur að spila hið æsispennandi spunaspil Draw Steel frá MCDM Productions. Bibbi fer yfir helstu þætti spilsins og þeir pæla í hvernig gera megi langdregna bardaga skemmtilegri, sem er nauðsynlegt þegar þú ert með spilahóp fullan af snarofvirkum athyglissjúkum spunadrottningum með athyglisbrest. Þeir fara yfir óheft ímyndunarafl barnsheilans og hvað við gerum til að reyna að endurheimta þá tilfinningu. Hvenær hætti maður að vera heillaður yfir smáatriðum á einhverju korti? Hvers vegna flækjum við hlutina með sögufléttum og flókinni heimssköpun þegar hægt er að spinna hvað sem er á staðnum og það er alveg jafn gaman? Hvernig nær maður að plata sig í að halda að eitthvað sem gerist á spilakvöldi sé gríðarlega mikilvægt þegar allir vita að þetta er auðvitað alltsaman tilbúningur frá rótum? Og hvað er í þessu andskotans bréfi sem Bjössi lét okkur fá í spili um daginn? Megum við opna það? Eigum við að opna það? Eða mun það bara þýða að spilið er búið og allir verða sendir heim... Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ – Mættir eru: Hjörtur og Snæbjörn – Tónlist: Flight – Flytjandi: Scorching Ray Taylor -
#0111 Brú milli guðdómsins og veruleikans 19.05.2026 59minÞátturinn er í boði Malbygg Athugið að þátturinn inniheldur spilliefni um kvikmyndina Project Hail Mary. Hvað er list? Er listamanneskjan bara tilgerðarlegur aumingji sem á að fá sér alvöru vinnu? Eða það bara enn ein afleiðing brothættrar karlmennsku að geta ekki bara notið listar og sköpunar án þess að þurfa að smætta það? Og hvað í andskotanum hefur þetta með spunaspil að gera? Snæbjörn kafar á dýpið í sínu andlega ferðalagi um sína eigin innri rödd og raddbeitingu í spunaspilum, Hannes bjargar móður sinni, Óli veltir upp áleitnum spurningum um skoplist og eftirhermur, og Hjörtur rýnir í kvikmyndina Project Hail Mary á sinn hárbeitta og nákvæma hátt. Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ – Mættir eru: Hannes, Hjörtur, Snæbjörn og Óli – Tónlist: Dimension Door – Flytjandi: Scorching Ray Taylor -
#0110 Beggi Brugg 12.05.2026 53min#0110 Þátturinn er í boði Malbygg. Í þættinum í kvöld fáum við Begga vin okkar í heimsókn. Við ræðum um heima og geima, gervigreindar dómstóll, óvenjugóðir galdrar og galdramunir ofl ofl. Hlustið og þér munið heyra! Mættir voru LúlliBeggi Bjarni Hilmir Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar -
#0109 Fúría, framtíð vitkanna og Daði halldórsson 28.04.2026 57min#0109 Þátturinn er í boði Malbygg. Í þessum þætti ræðum við leikarasögu lúlla, módelið sem wizards of the coast eru að fara bjóða uppá? Er þetta að fara verða live service tölvuleikur? Er ekki nóg að eiga bara bækurnar. Spjallið færist svo yfir í frænda Tryggva. Hlustið og þér munið heyra! Mættir voru LúlliHannes Tryggvi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar -
#0108 Hópfjármögnun og ægivald valkostanna 21.04.2026 41minÞátturinn er í boði Malbygg Er þetta of mikið? Of stórir tölvuleikir? Of mikið af efni á streymisveitum? Of margir valkostir? Verðum við að geta spilað leik og horft og þátt og verið í símanum á sama tíma? Er þetta ný tegund miðlunar í dag? Hannes Óli segir okkur frá "second-screen theory", við syrgjum þá tölvuleiki sem við höfum ekki náð að klára og köfum ofaní allt dótið sem við höfum keypt gegnum hópfjármögnun á borð við Kickstarter. Tossaspilararnir eru mættir á ný fyrir framan hljóðneman og ræða málin af dýpt og næmni, eins og vanalega. Og hver veit nema það komi jafnvel óvæntir gestir eða tveir... Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ – Mættir eru: Hannes, Hjörtur og Snæbjörn – Tónlist: Confusion – Flytjandi: Scorching Ray Taylor -
#0107 Hart og mjúkt 14.04.2026 55min#0107 Þátturinn er í boði Malbygg. Við byrjum þáttinn á útsláttarkeppni en tökum svo upp sama þema og í síðustu viku. Hver og einn kemur með umræðuefni og svo bara spjall og gaman. Mættir voru LúlliHilmir Bjarni Hlynur Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar -
#0106 Þroskað malbygg, ríða og deyja fyrir þema 31.03.2026 53min#0106 Þátturinn er í boði Malbygg. í þættinum í dag ætlum við að prófa nýtt þema, hver og einn kemur með eitt umræðuefni og við spjöllum um það og við erum ekki frá því að þetta hafi bara heppnast svona líka vel! Mættir voru Hilmir Bjarni Lúlli Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar -
#0105 Tjékkinn 18.03.2026 51min#0105 Þátturinn er í boði Malbygg. Jæja kæru vinir, afsakið þessa óvæntu pásu, en við erum komnir tvíefldir til baka! Í þessum fyrsta þætti eftir hlé ræðum við um þá yndislegu hefð sem hefur myndast hjá okkur í Silfurskottunum að tjékka okkur inn fyrir spil. Við mælum með, hefur góð áhrif á geðheilsu og vinskap.Njótið vel. Mættir voru Hilmir Tryggvi Bjarni Hlynur Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar -
#2.4 Fallistarnir - Bjór og rækjur 03.02.2026 49minMalbygg, Malbygg! Konungsríki mitt fyrir Malbygg. Við höldum ævintýrinu áfram, ásamt því að finna Shakespeare tengd slagorð fyrir Malbygg. Nú eru tossarnir okkar hinsvegar týndir. En samt ekki svo illilega að þeir hafi ekki tíma fyrir bjór og rækjur. Og hver veit nema þeir hendi í eina sósíalíska spunatónleika á Kristals svölunum. Mættir eru: Tryggvi, Hilmir Bjarni, Hannes og Lúlli. Tónlist: Crown of Madness Flytjandi: Scorching Ray Taylor Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ -
#0104 Tvær Tungur: Og skammastu þín svo! 29.01.2026 1h 21minÞátturinn er í boði Malbygg Og við höldum áfram með seríuna okkar sem við höfum ákveðið að nefna „Tvær Tungur“ héðanaf, þar sem Bjössi og Hjörtur ræða lífsins lystisemdir og mannskepnunnar misbresti, á misgáfulegan hátt. Stundum tengt spunaspilum… Þeim tókst að taka upp þátt um daginn og stroka hann svo gjörsamlega út og því var tilvalið að ræða um skömmina í þessum þætti. Hver er munurinn á heilbrigðri og óheilbrigðri skömm? Hvað gerir maður til að rífa sig aftur upp eftir að hafa gert einhver skammarstrik? Og er ekki bara nauðsynlegt að kunna að skammast sín? Þeim tekst þó líka að ræða áframhaldandi framþróun tölvuleiksins „Skoplegur blær“ sem þeir vinna hörðum höndum að og kom fram í síðasta innslagi þeirra, þeir ræða skipulagða erótík ráðsetta fullorðna fólksins, meðvirkni, og gríðarlega flókið víddar- og tímaflakk síðasta ævintýris sem Svörtu Tungunum tókst loksins að klára um daginn, fjórum árum eftir að spilið hófst. Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ – Mættir eru: Bjössi og Hjörtur – Tónlist: Borrowed Knowledge – Flytjandi: Scorching Ray Taylor -
#2.3 Fallistarnir - Dullarfullir atburðir 22.01.2026 1hÞeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað. Þá er komið að þriðja þætti af Fallistunum, heimabrugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna. Nú koma allir spilarar saman og sameina krafta sína og reyna að komast að því hvað er eiginlega að gerast innan veggja Taskíu. Þátturinn er í boði Malbygg. Mættir eru: Tryggvi, Hilmir, Lúlli, Bjarni og Hannes Tónlist: Gust of Wind Flytjandi: Scorching Ray Taylor Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ -
#0103 Tvær Tungur: Skoplegur blær 13.01.2026 1h 15minÞátturinn er í boði Malbygg Bjössi og Hjörtur eru aftur komnir saman tveir til að leysa ráðgátur lífsins og greiða úr flækjum manneskjunnar. En fyrst og fremst ræða þeir um tölvuleiki. Ok. Kannski ekki fyrst og fremst. En það var allavega hugmyndin og þeir svo sannarlega gera það þegar þeir loksins koma sér að efninu. Hvers konar tölvuleik myndu ÞEIR vilja búa til? Er þetta enn einn "open world" leikurinn á borð við Fallout 3 eða Read Dead Redemption? Eða kannski skotleikur? Eða jafnvel ævintýraleikur í ætt við Monkey Island og Day of the Tentacle? Hvað er málið með gagnrýni á poppkúltúr á internetinu? Hvernig nær maður sér á strik eftir langt jólafrí? Hvað í fjandanum gerðist eiginlega í covid? Og hvað ætlar ógæfusami rannsóknarlögreglumaðurinn Brjánn Brjánsson til bragðs að taka þegar hann kemur fram á hrottalegan glæp sem framinn var á bryggjusvæðinu í Reykjavík árið 1960? Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ – Mættir eru: Bjössi og Hjörtur – Tónlist: Dissonant Whispers – Flytjandi: Scorching Ray Taylor -
#2.2 Fallistarnir - Hinir tossarnir 23.12.2025 1hÞeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað. Það er komið að öðrum þætti af Fallistunum, heimabugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna. Nú fylgjumvið Tossunum Þórði Nikulási og Vilhjálmi Elíasi eftir á vaktinni í Akademíunni. Þetta er seinni hluti af fyrsta þætti. Þátturinn er í boði Malbygg. Mættir eru: Tryggvi, Hilmir og Lúlli. Tónlist: Silvery Barbs Flytjandi: Scorching Ray Taylor Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ -
#2.1 Fallistarnir - Tossarnir í Taskíu 16.12.2025 53minÞeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað. Það er komið að fyrsta þætti af Fallistunum, heimabugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna. Það er eitthvað stórt í uppsiglingu í undirheimum Taskíu. Á meðan varðsveitir Batterísins reyna að komast að því hvað það er, er verkefni Fallistanna einfalt: Ekki vera fyrir og ekki klúðra þessu (eins og þeir gera alltaf). Þetta er fyrri hluti af fyrsta þætti. Þátturinn er í boði Malbygg. Mættir eru: Tryggvi, Hannes og Bjarni. Tónlist: Wish Flytjandi: Scorching Ray Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ -
#0102 Prepp og pepp - partur tvö 09.12.2025 51minSeinni þáttur í undirbúningi fyrir upptöku á spili. Nú búum við til tvo fyrstu karakterana, sósíalíska þjóðlagaskáldið Virginíu Fönix og fyrrum undrabarnið Orfeus Killdaar. Svo köstum við uppá tölur og reiknum... ...sem er frábært podcast efni! Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ – Mættir eru: Tryggvi, Bjarni og Hannes – Tónlist: Zephyr strike – Flytjandi: Scorching Ray Taylor -
#0101 Tvær Tungur: Sagan af Kristjáni Kristjánssyni handboltaþjálfa 02.12.2025 1h 9minÞátturinn er í boði Malbygg Aftur eru tveir spilatossar sestir niður til að mana sig upp í spil. En nú er það á næsta leiti! Það stefnir í ægilega sjóræningjasögu fljótlega. Og þá spyr maður sig. Hvaða þráhyggja er þetta að vera að segja endalausar sögur af hlutunum? Spila spunaspil, leika leikrit, gera hlaðvörp, skrifa ævintýri, handrit, bækur? Er þetta ein af grunnþörfum manneskjunnar? Eða erum við bara ólæknandi kjaftatuskur? Og hver var þessi dularfulli maður sem veittist að Birni Stefánssyni í Hagkaup í Garðabæ? Hver er hans saga? Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ – Mættir eru: Bjössi og Hjörtur – Tónlist: Weird – Flytjandi: Scorching Ray Taylor -
#0100 Tvær Tungur: Verðlagning tímans eða Hreint eldhús - betra líf 22.11.2025 59minÞátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg Hundraðasti þáttur! Og við vissum ekki einusinni af því þegar við tókum hann upp. Þetta hefur nú verið meira ævintýrið elsku hlustendur og hjartans ástarþakkir til ykkar sem hafið lagt á hlustir! Í þetta skiptið setjast tveir týndir synir niður og ræða málin. Bjössi og Hjörtur hafa verið fjarverandi bæði þáttum og spilum alltof alltof lengi. Afhverju í ósköpunum? Hvers vegna dettur maður úr takti við eitthvað sem maður elskar? Hvað er það sem fær mann til að vanrækja hluti sem maður veit að eru mikilvægir? Þegar forgangsröðun hversdagsins tekur alltsaman yfir, hvernig kemur maður sér aftur á vagninn? Og hvenær í fjandanum náum við aftur að spila!? Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ – Mættir eru: Bjössi og Hjörtur – Tónlist: Ravenous Void – Flytjandi: Scorching Ray Taylor -
#0099 Prepp og pepp 13.11.2025 1h 43min#0099 Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Hér kemur langur og góður þáttur, þetta er fyrsti undirbúnings þátturinn komandi ævintýrinu okkar. Í þessum fyrsta þætti ræðum við um ævintýrið og búum í sameiningu til borgina og samfélagið sem verður sögusvið ævintýrisins. Hér má sjá kortið borginni. https://ibb.co/fz3VN64R Mættir voru Hilmir Tryggvi Bjarni Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
Popular în
Acest podcast apare și în topurile de podcasturi din aceste țări.