Einmitt / Menn eins og við

Einmitt / Menn eins og við

Einar Bárðarson
Страна Исландия
Язык IS
Эпизодов 100
Последний 10.09.2026

Einmitt eru samtöl á sunnudagsmorgnum þar sem Einar ræðir við áhugaverða einstaklinga úr öllum áttum um smelli og skelli á lífsins svelli.

Эпизоды

  • MENN EINS OG VIÐ #24: Ertu að horfa á það viljandi? 10.09.2026 1ч 12мин
    Er hægt að mæla alvöru miðaldra lífsgæði – og hvað segir það um mann að horfa viljandi á Married at First Sight? Í 24. þætti Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir lista með 15 atriðum sem eiga að skilgreina alvöru lúxus miðaldra mannsins. Þeir skoða listann, sannreyna hann eftir eigin höfði og komast að því að lífsgæðin felast stundum í mun hversdagslegri hlutum en maður hefði haldið. Um leið reyna þeir að komast til botns í einni stærstu ráðgátu þáttarins: Af hverju í ósköpunum horfir Baldur viljandi á Married at First Sight? Eins og venjulega fara þeir félagar á kostum í umræðum um allt það sem skiptir miðaldra menn gríðarlega miklu máli – en mögulega engan annan. Aðalbakhjarlar Menn eins og við eru:  hertzlangtimaleiga.is kolski.is gefur.is  Bpro.is    
  • MENN EINS OG VIÐ #23 "Með Dolly síðasta daginn" 01.09.2026 1ч 4мин
    Baldur var staddur í Nashville fyrir algjöra tilviljun daginn sem Dolly Parton féll frá og endaði á því að leggja blóm við stjörnu hennar. Þaðan liggur leiðin í kúrekahatta, strútsleðursstígvél og manninn sem spurði: „Are you from around here?" Einar og Baldur ræða líka opin sambönd, sameiginleg áhugamál hjóna, hárvörur miðaldra karla og róbótasláttuvélina sem enn neitar að vinna vinnuna sína. Sem sagt flest það sem skiptir þig nákvæmlega engu máli.    
  • MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal 21.08.2026 1ч 5мин
    MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal Einar og Baldur fara yfir allt það mikilvægasta sem skiptir engu máli: hárfund með tugum nýhærðra manna, deilur Baldurs við slátturóbótinn, Einar fór í þjóðbúningamessu, hvort Menningarnótt sé orðin Menningarkvöld og hvernig tveir lofthræddir menn komast upp á Bolafjall. Svo fer Baldur heim í Búðardal, rifjar upp sumrin í sveitinni, fólkið, ættirnar og gömlu sögurnar. Smá ferðalag, smá fortíð og fullt af algjörlega áríðandi en gagnslausu spjalli. Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is   http://bpro.is
  • MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta bara fast á?" 12.08.2026 1ч 2мин
    MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta fast?" Þá er komið að stóra Sólmyrkvaþættinum en í þessum þætti ræða þeir Einar og Baldur nákvæmlega ekkert um sólmyrkvann, enda nóg annað sem þarf að leysa. Til dæmis muninn á pizzu og pinsu, hvers vegna menn fara í hárígræðslu og verða svo hissa þegar hárið heldur áfram að vaxa – og skilja ekkert í því af hverju þeir þurfa þá allt í einu að fara í klippingu. "Er þetta bara fast á?"  Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is   http://bpro.is „Er þetta fast?"
  • Menn eins og við #20 – "Verslunarmannahelgarþátturinn" 31.07.2026 1ч 5мин
    Menn eins og við #20 – Verslunarmannahelgarþátturinn Þessi þáttur er helgaður Verslunarmannahelginni og sögum af fræknum ferðalögum, vafasömum ákvörðunum og furðuverkum sem verða helst til þegar fólk er komið í frí. Þar er meðal annars sagan af vininum sem vaknaði með tvær konur sér við hlið, mundi ekki neitt en hafði sem betur fer tekið mynd til öryggis, og rútubílstjóranum sem fór í Sálarbol og fékk óvænta gistingu. Baldur hringir í gerfigreindina og fær hana til að skipuleggja fyrir sig sólóferð til Danmerkur, Einar útskýrir af hverju Jón Gnarr er í raun og veru svona flughræddur.  Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is   http://bpro.is
  • Menn eins og við #19 "Baldur splæsir" 24.07.2026 1ч 19мин
    Menn eins og við #19 "Baldur splæsir" Í þessum þætti velta Baldur og Einar fyrir sér feimninni við að rukka vini sína og þessari eilífu spurningu um hver borgar hvað. AUR segir „splitta og rukka" og öpp eins og Splitwise, Tricount og Revolut eiga að hafa leyst vandamálið – en rannsóknir sýna að okkur finnst samt merkilega óþægilegt að rukka vini okkar. En gilda sömu lögmál þegar Baldur hoppar reglulega upp á stól, slær út höndunum og tilkynnir hátt og snjallt: „ÉG SPLÆSI!"? Hvenær á að rukka, hvað má upphæðin vera lítil og hvað þýðir eiginlega „ég tek þetta næst"? Að venju fá hversdagsleg vandamál miðaldra karla óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og umræðan endar einhvers staðar allt annars staðar en lagt var upp með. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli… en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við  http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is   http://bpro.is
  • Menn eins og við #18 Á einhver startkappla? 18.07.2026 1ч 14мин
    Hvernig kennir maður notkun startkapla í gegnum síma án þess að valda slysi? Baldur reynir það – með misjöfnum árangri. Sláturóbótinn reynir á þolinmæðina og Einar reynir á móti að kenna Baldri hvernig á að velja almennilegt kaffi. Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli. Góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar verða sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is   http://bpro.is
  • Einmitt special #17 Menn eins og við - Brúnkustigið "Mandarin Flare" 10.07.2026 1ч 22мин
    Í nýjasta þætti Menn eins og við taka Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir mikilvægustu spurningar sumarsins. Hvenær verður brúnkan að hinu alræmda Mandarin Flare? Eiga miðaldra karlar að fara í hand- og fótsnyrtingu? Og hvernig gengur 54 ára karlmanni að hætta loksins að naga á sér neglurnar eftir áratuga baráttu? Eins og svo oft áður fara umræðurnar víða, með tilheyrandi vandræðagangi og sjálfsháði sem aðeins menn á miðjum aldri virðast kunna. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is
  • Einmitt special #16 Menn eins og við - Karlmennskan og slönguöfund 30.06.2026 1ч 8мин
    Í þessum þætti fagna Einar og Baldur fyrsta gróðurhúsinu frá BK Hönnun í garði Baldurs – en ný garðslanga stelur senunni og kveikir líklega fyrsta skráða tilfelli garðslönguöfundar á Íslandi. Þeir fara yfir Bergmál, umferðina yfir á Þingvelli, Skinny jeans-sjokkið þegar Just Björn mætti í þeim og af hverju Levi's 501 Loose Fit varð eina rétta svarið. Einnig ber á góma sextugsafmæli Stefáns Hilmarssonar, barnaafmæli að hætti Ásgeirs Kolbeinssonar og ýmislegt annað sem getur með engu móti bætt líf þitt – en gæti samt gert daginn aðeins skemmtilegri. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://heilsuhornid .is http://goa.is www.ccep.is
  • Einmitt special #15- Menn eins og við -Það verður enginn í skinny jeans á Þingvöllum 20.06.2026 53мин
    Í þætti #15 af Menn eins og við velta þeir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir sér öllum þeim spurningum sem miðaldra menn eru ekkert endilega stoltir af að spyrja upphátt. Bergmál og KALEO á Þingvöllum eru framundan og þeir félagar reyna að komast að því hvað menn eins og þeir eigi eiginlega að vera í, hvort einhver fari enn í skinny jeans, hvað þessir margumtöluðu gullmiðar raunverulega þýða og hvort það sé yfirhöfuð hægt að treysta íslenskri veðurspá þegar stórir útitónleikar eru annars vegar. Þá fara þeir einnig yfir frábæra tónleika Friðriks Dórs, ræða sumarið, tónleika, stemningu og þá staðreynd að það getur tekið furðu stuttan tíma að murka lífsviljann úr miðaldra mönnum í biðröðum eftir candyflossi, blöðrum og andlitsmálningu á 17. júní í Garðabæ. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://heilsuhornid .is http://goa.is www.ccep.is
  • Einmitt special #14 - Menn eins og við – Allsber á Range Rover í lúgunni á Aktu Taktu 12.06.2026 1ч 3мин
    Í nýjasta þætti af Menn eins og við fara þeir Baldur Rafn Gylfason og Einar Bárðarson um víðan völl eins og þeim einum er lagið. Báðir misstu þeir af tónleikum Bubba um síðustu helgi og glíma enn við talsvert FOMO vegna þess. Á meðan situr Baldur fastur í framkvæmdum heima hjá sér þar sem garðverktakarnir hafa í raun tekið sumarið hans í gíslingu og hann er farinn að sýna öllum einkennum Stokkhólmsheilkennis gagnvart mönnum með gröfur og hellulagnir. Einar kynnir svo hina margrómuðu F350 reglu um heimilisfjárfestingar eftir að hafa eytt heilu kvöldi í að rannsaka kælibox af slíkri ástríðu að hann sannfærðist næstum um að hann þyrfti eitt – áður en hann komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði nákvæmlega ekkert við það að gera. Svo segir Baldur sanna sögu af manni sem mætti allsber á Range Rover í lúguna hjá Aktu Taktu á Sæbrautinni til að panta sér ís. Afgreiðslumaðurinn var ekki undirbúinn fyrir þá upplifun og sagan verður vart endursögð án þess að hlæja. Sumarið, grasið, græjurnar, Bubbi, framkvæmdir, kælibox og allsberir menn í lúgum. Þetta er allt saman í nýjasta þætti af Menn eins og við. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://heilsuhornid .is http://goa.is www.ccep.is
  • Einmitt special #13 - Menn eins og við 13 "Typpi og toppur?" 02.06.2026 1ч 3мин
    Sumarið er komið og með því gróðurhús, slátturóbótar, veðurvélar, hárígræðslur og endalaus verkefni sem miðaldra menn ætla sér að klára en gera ekki. Baldur og Einar fara um víðan völl í enn einum þættinum af Menn eins og við þar sem tækninýjungar, sumarplön og karlmennskan sjálf fá að fara í gegnum litgreiningu lífsins. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://pureshilajit.is http://goa.is www.ccep.is
  • Einmitt special #12 - Menn eins og við "Sumarkvíði, er það til?" 16.05.2026 1ч 9мин
    Nú er það grillin sem taka mesta athyglina. Strákarnir sóttu sér ráð inni á pabbatips um hvernig sé best að þrífa gasgrillin fyrir sumarið. Þá kom hugtakið "sumarkvíði" upp í samtalinu og það var greint í döðlur. Einnig fá klósett með heitri setu, lúxusrúm og sumar heima hjá sér hefðbundna litgreiningu. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://pureshilajit.is  http://goa.is  www.ccep.is     
  • Einmitt special #11 - Menn eins og við "Eiga karlar að pissa sitandi?" 08.05.2026 1ч 13мин
    Baldur glímir við afleiðingar hásinarslits á meðan Einar hefur verið í spænskri endurhæfingu frá íslenskum raunveruleika. Í þættinum ræða þeir meðal annars salerni með skol- og þurrkkerfum, hvort karlmenn eigi að pissa sitjandi, gróðurhúsadrauma, tómatarækt og slátturóbóta. Einnig fá Bjarni Benediktsson, Friðrik Dór og Auddi Blö sína hefðbundnu litgreiningu. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is  http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is  http://kjotburid.is  http://pureshilajit.is  http://goa.is  www.ccep.is 
  • 121 Einar Þorsteins "Við sjáum öfgarnar aukast í borginni" 07.05.2026 1ч 17мин
    Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík og fyrrum Borgarstjóri er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum komandi kosningar og stöðu flokksins á Höfuðborgarsvæðinu, er erindi flokksins búið í borgaralegu samhengi eða er ennþá eftir spurn eftir rödd á miðjunni? Aðalbakhjarlar Einmitt eru: bkhonnun.is  hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is    bpro.is  stereo.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is  egc.is  mammaveitbest.is  fylgifiskar.is  kjotburid.is  http://pureshilajit.is    
  • 120. Elís Árnason „Nýtt líf í sólinni á Spáni" 18.04.2026 1ч 29мин
    Elís Árnason eða Elli í Sjallanum fasteignasali á Spáni er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum Sjallann, Hótel Kea, Eina með öllu, Hard Rock, árin í Smáralind og lífið á Spáni en síðustu 15 ár hefur hann verið með annan fótinn á svæðinu fyrir neðan Alicante og nú síðustu 3 ár hefur hann starfað þar sem fasteignasali við góðan orðstír.
  • 119 Patrekur Jaime „Það er alvöru raunveruleiki í óraunveruleikanum" 11.04.2026 49мин
    Gestur minn í þessum þætti er Patrekur Jaime, fjölmiðlamaður, raunveruleikastjarna og gleðisprengja. Hann er 26 ára, nýhættur að drekka og á erfitt með að kveðja gamla starfið sitt við hjúkrun og líknandi meðferðir, sem hann segir að sé alvöru raunveruleiki í hringiðu raunveruleikastjörnunnar.  Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is    Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - egc.is - Hamraborg -  mammaveitbest.is -  fylgifiskar.is Nýbílavegi kjotburid.is Selfossi    pureshilajit.is
  • 118. Jóna Hrönn „Konan frá Betaníu" 04.04.2026 1ч 26мин
    Jóna Hrönn Bolladóttir er gestur minni í Páskaþættinum í ár. Hún er nýkomin út úr erfiðri krabbameinsmeðferð þar sem hún gekkst undir beinmergskipti. Hún talar um meðferðina, tímann og lífsreynsluna af miklu hispursleysi, og fyrirbænirnar frá vinum og ókunnugum sem hún heyrði í gegnum ferlið og leiddu hana í gegnum dimmustu dalina.  Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is    Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - egc.is - Hamraborg -  mammaveitbest.is -  fylgifiskar.is Nýbílavegi kjotburid.is Selfossi    pureshilajit.is    
  • 117. Ívar Guðmunds "Ég gef mig allan í þetta" 24.03.2026 59мин
    Ívar Guðmundson hefur starfað í útvarpi í hátt í fjóra áratugi, eða frá því um 1988, og á þeim tíma hefur íslenskt útvarpsumhverfi breyst gríðarlega. Hann hefur hins vegar staðið vaktina í gegnum allar þessar breytingar, hjá mismunandi eigendum, á mismunandi tímum í rekstri og fjölmiðlaumhverfi sem hefur oft verið bæði stormasamt og krefjandi. Ívar er ekki aðeins þekktur útvarpsmaður heldur einnig mikill áhugamaður um líkamsrækt og keppnismaður af lífi og sál, og þá hefur hann verið einn ötulasti stuðningsmaður íslenskrar tónlistar í útvarpi um áratugaskeið, kynnt nýtt efni, stutt íslenska tónlistarmenn og haft raunveruleg áhrif á það sem þjóðin hefur hlustað á. Í þættinum ætlum við að fara yfir ferilinn, morgnana í útvarpinu, líkamsræktina og lífið, ræða allar eigendurnar sem hafa átt félagið sem á Bylgjuna, væntanleg kaup á stöðinni og hvernig útvarpsumhverfið hefur breyst frá því hann byrjaði í útvarpi seint á níunda áratugnum. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is    Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - egc.is - Hamraborg -  mammaveitbest.is -  fylgifiskar.is Nýbílavegi kjotburid.is Austurvegi Selfossi    pureshilajit.is
  • Einmitt special #10 – Menn eins og við "Átta vikur í gifsi" 23.03.2026 55мин
    Í glænýjum þætti af Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir það af hverju í ósköpunum miðaldra menn geta ekki gert neitt eðlilega. Baldur var plataður í padel í vikunni af félögunum og endaði uppi á Bráðamóttöku. Niðurstaðan: 8 vikur í gifsi og sjálfsvirðingin aðeins líka í gifsi. Á meðan var Einar hins vegar eins og fínn maður í nýjum smóking frá Kölska, hangandi með tónlistarelítunni í Hörpu eins og ekkert væri eðlilegra. Báðir áttu þeir afmæli í vikunni, lífið var krufið, ákvarðanir fortíðar dregnar í efa og ýmislegt misgáfulegt rifjað upp eins og venjulega. Allt þetta og meira til í nýjasta þættinum af Menn eins og við. bakhjarlar manna eins og okkar… www.bpro.is www.bilasnyrtistodin.is www.kolski.is www.gefur.is

Популярен в

Этот подкаст также попадал в подкаст-чарты этих стран.