Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur
RÚV
0
Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.
Epizode
-
Berglind Viggósdóttir 05.08.2026 41minBerglind Viggósdóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Hún hefur misst tvo syni og hefur heitið því að berjast fyrir bættum úrræðum innan kerfisins fyrir börn sem passa ekki inn í hið hefðbundna kerfi. Eftir að hafa barist í hljóði fyrir sonum sínum allt frá unga aldri ákvað hún að skila skömminni og gera sitt til að bæta kerfið í minningu þeirra. -
Silja Sóley Birgisdóttir 04.08.2026 42minSilja Sóley Birgisdóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Hún segist hafa komið sjálfri sér á óvart í baráttunni enda séu aðeins örfá ár síðan að hún var svo feimin og kvíðin að koma fram að hún fékk að flytja kynningar fyrir kennara sína í einrúmi. Við heyrum sögu Silju Sóleyjar í þætti dagsins. -
Snorri Helgason 30.07.2026 43minTónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur verið heillaður af tónlist frá barnsaldri. Hann les allt sem hann kemst yfir um tónlist, meira segja ævisögur tónlistarmanna sem hann er ekki sérlega hrifinn af. Snorri missti föður sinn sama dag og útgáfutónleikar hans fóru fram og hann segir ekkert annað hafa komið til greina en að halda tónleikana og um leið minnast föður síns, tónlistarmannsins Helga Péturssonar. -
Þórir Kjartansson 29.07.2026 40minÞórir Kjartansson bílstjóri og öryggisvörður borgarstjóra er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Saga Þóris er sannkölluð kraftaverkasaga en hann fór frá því að vera heimilislaus og sofa stundum í bílakjallara ráðhússins yfir í að vera bílstjóri borgarstjóra. Hann segir okkur ótrúlega sögu sína í dag- frá ofbeldi, neyslu og skömm yfir í að öðlast frelsi, fallegt líf og að vera treyst fyrir mikilli ábyrgð í störfum sínum. Við kynnumst Þóri í þætti dagsins. -
Sigríður Birna Sigvaldadóttir 28.07.2026 43minSigríður Birna Sigvaldadóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Hún var á dögunum valinn sjálfboðaliði ársins hjá Rauða krossinum fyrir starf sitt með föngum. Hún stendur fyrir konukvöldum einu sinni í viku í fangelsinu á Hólmsheiði þar sem reynt er að gleyma lífinu í fangelsinu um stund. Hún hefur mikla trú á að betrun skili fólki betra út í lífið að afplánun lokinni. Sigríður segir okkur frá lífi sínu og veitir innsýn inn í líf í fangelsum á Íslandi. -
María Einarsdóttir, Maya 27.07.2026 41minMaría Einarsdóttir framkvæmdastjóri NTC er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. María var orkumikið barn sem skipti nánast á einni nóttu íþróttum út fyrir tísku. Hún hefur lifað og hrærst í heimi tískunnar í áratugi en tók líf sitt í gegn fyrir um 15 árum, hætti að drekka og gerði upp áföll, meðal annars sáran barnsmissi en elsti sonur hennar lést aðeins nokkurra mánaða gamall. -
Monika Hjálmtýsdóttir 23.07.2026 41minMonika Hjálmtýsdóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Monika varð eiginlega óvart fasteignasali en er í dag formaður félags fasteignasala. Hún gekk í gegnum mikinn missi fyrir tveimur árum þegar bróðir hennar, tónlistarmaðurinn Róbert Örn Hjálmtýsson, lést langt fyrir aldur fram. Hún segist í dag skilgreina lífið fyrir og eftir þann missi. Við kynnumst Moniku betur í þætti dagsins. -
Ragnar Jónasson 22.07.2026 41minRithöfundurinn Ragnar Jónasson hefur skrifað frá unga aldri. Hann bjóst þá aldrei við því að geta lifað af skrifunum - hvað þá að bækur hans væru seldar í 35 löndum og þýddar á 27 tungumálum. Í dag ferðast hann um heim allan að kynna bækur sínar en finnst þó mikilvægast að gefa sér tíma til að sinna skriftum. -
Guðni Már Harðarson 21.07.2026 43minGuðni Már Harðarsson var harðákveðinn frá unglingsaldri að verða prestur. Hann segir að starfið sé gefandi og hans köllun en það geti líka verið erfitt. Hann segir það hafa reynt mikið á að koma að hrikalegu máli þegar ung stúlka í blóma lífsins var myrt, Bryndís Klara Birgisdóttir. En af þessu hörmulega máli hafi þó sprottið upp kærleikshreyfing í minningu hennar. Hann ákvað á dögunum að breyta til og stefnir nú til Danmerkur þar sem hann verður prestur Íslendinga í Kaupmannahöfn. -
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir 20.07.2026 40minÞórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrrverandi ráðherra og þingmaður hætti á þingi fyrir nokkrum mánuðum og gerist eftir nokkra daga sendiherra Íslands í London. Hún fer yfir ferilinn og ákvörðunina um að bjóða sig ekki fram til formanns, ákvörðun sem var henni erfið. Hún ræðir líka æskuárin á Akranesi, hvað mótaði hana mest og hvað framundan er. -
Rósa Ólöf Ólafíudóttir 07.08.2025 41minRósa Ólöf Ólafíudóttir ólst upp í mikilli fátækt og bjó á mörgum vistheimilum þar sem hún hlaut misgott atlæti. Hún þráði ekkert heitar en að fá að búa hjá móður sinni sem þráði að hafa börn sín hjá sér en fékk ekki. Rósa vinnur nú að því að skrifa sögu bróður síns heitins, Lalla Johns. -
Valdimar Guðmundsson 06.08.2025 43minValdimar Guðmundsson. -
Sema Erla Serdaroglu 05.08.2025 42minSema Erla Serdaroglu hefur verið áberandi undanfarið ár í baráttu fyrir réttindum flóttafólks. Hún hefur fengið hótanir í ýmsu formi síðan hún hóf að vinna fyrir þennan hóp og hefur ekki tölu á öllum þeim hótunum sem henni hafa borist. Gjarnan er vísað í uppruna hennar en Sema er hálf tyrknesk en hefur alltaf búið á Íslandi, gekk hér í skóla og er fermd til kristinnar trúar þó hún aðhyllist engin sérstök trúarbrögð í dag. Hún ræðir ofsóknirnar, baráttuna og unglingsárin þar sem örlagarík ferð á Neyðarvistun Stuðla breytti miklu í hennar lífi. -
Auður Guðjónsdóttir 31.07.2025 43minAuður Guðjónsdóttir hefur í yfir þrjá áratugi barist fyrir rannsóknum á mænuskaða eftir að Hrafnhildur dóttir hennar lamaðist í alvarlegu bílslysi. Við heyrum sögu Auðar og Hrafnhildar heitinnar í þættinum í dag. -
Patrik Atlason 30.07.2025 41minÞegar Patrik Atlason var lítill ætlaði hann að verða betri en pabbi sinn í fótbolta. Þegar það gekk ekki eftir sneri hann sér alfarið að tónlistinni og það hefur heldur betur skilað sér enda er hann einn vinsælasti tónlistarmaður landsins í dag. Hann reynir ekki að fela hvaðan hann kemur og segist hafa fengið meira en margir aðrir. Hann ræðir lífið, ferilinn og áfallið sem mótaði fjölskylduna þegar frændi hans var myrtur. -
Gerður Jónsdóttir - Gerða Inshape 29.07.2025 44minÍþróttafræðingurinn Gerða Jónsdóttir hefur slegið í gegn með líkamsræktarnámskeið sín undir nafninu Inshape. Hún ræðir æskuna í Mosfellsdalnum, íþróttirnar, sáran systurmissi, áföll og hvernig getur hjálpað manni á öllum aldursskeiðum. -
Bríet Ísis Elfar 24.07.2025 42minSöngkonan Bríet hefur verið lengi í sviðsljósinu þrátt fyrir ungan aldur. Hún var 16 mánaða þegar hún byrjaði að fara í svett indjánaathafnir með móður sinni sem hún segir hafa mótað sig mikið. Hún ræðir bernskuna, ferilinn og það sem framundan er. -
Júlía Margrét Alexandersdóttir og Freyr Gígja Gunnarsson 23.07.2025 43minHjónin Júlía Margrét og Freyr Gígja ræða à einlægan og opinskáan hátt um geðhvörf sem Júlía veiktist fyrst af fyrir 15 árum. Þau veita dýrmæta innsýn inn í það hvernig er að veikjast af þessum sjúkdóm og vera aðstandandi í þeim aðstæðum. -
Gulla Bjarnadóttir 08.08.2024 41minGulla Bjarnadóttir átti óvenjulega æsku. Fyrsta árið var hún vistuð á barnaheimili þar sem foreldar hennar deildu um forræði yfir henni. Móðir hennar var andlega veik og faðir hennar glímdi við alkhólisma en hann fékk á endanum forræðið yfir henni. Hann hvarf oft í nokkra daga þegar hann datt í það en móðir hennar brýndi fyrir henni að láta engan vita af því svo kerfið myndi ekki skipta sér af. Hún var oft með móður sinni á geðdeild sem barn og segir hafa verið hálfgerður heimalningur þar. Þrátt fyrir óvenjuleg og erfið bernskuár segist hún engu vilja breyta þar sem reynslan geri hana að því sem hún er í dag. -
Nadine Guðrún Yaghi 07.08.2024 39minFjölmiðlakonan Nadine Guðrún Yaghi er hálf íslensk og hálf líbönsk. Foreldrar hennar skildu þegar hún var fimm ára og móðir hennar þorði ekki að senda hana og systur hennar einar til pabba þeirra í frí vegna aðvarana annarra um að kannski kæmu þær ekki aftur til baka. Hún heldur sambandi við föður sinn og vann meðal annars á sumrin í menntaskóla á hótelkeðjum í Miðausturlöndum sem faðir hennar var hótelstjóri hjá. Nadine ræðir æskuna, fjölmiðlabakteríuna, Eftirmál og hjónabandið sem var ekki jafn löglegt og hún stóð í trú um.
Priljubljen v
Ta podkast je tudi v lestvicah podkastov teh držav.