Handkastið

Handkastið

Handkastið
Shteti Islandë
Zhanret Sport
Gjuha IS
Episode 352
I/E fundit 15.10.2026

Podcast by Handkastið, a show dedicated to handball. It covers handball-related topics, likely including match analyses, player interviews, and discussions about the sport.

Episodet

  • Valur með svarta beltið í Evrópu og fimm mestu harðhausar Olís-deildanna 15.10.2026 1h 3min
    Sérfræðingurinn fékk Sigurjón Friðbjörn og Gunnar Val beint af grillinu í Rapyd-stúdíóið. Farið var yfir fyrstu tvo leikina í 6.umferð Olís-deildar karla og spáð í spilin í næstu leiki auk þess sem spa´ð var í spilin í 6.umferð í Olís-deild kvenna. Farið var yfir frammistöðu Vals og FH í Evrópudeildinni. Í lokin var farið yfir fimm mestu harðhausana í Olís-deildum karla og kvenna og var Sérfræðingurinn fenginn til að blind ranka leikmennina. Þar var mikið hlegið og mikið fjör.
  • Facebook færslur og hvað er í gangi hjá Fram? 12.10.2026 1h 10min
    Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Ásgeir Jónsson settust í Rapyd-stúdíó-ið og fóru yfir Facebook færslur, Olís-deild kvenna, Powerade-bikar karla, spáðu í spilin fyrir næstu umferð í Olís-deild karla og sitthvað fleira í þessum þætti. Erlingur Richardsson er ósigraður í Þýskalandi og óskum við honum til hamingju með það að hætti Maggi Stef. Valur og FH verða í eldlínunni í Evrópudeildinni þar sem Valur er í dauðafæri að koma sér í kjörstöðu í sínum riðli. Arnar Pétursson og Rakel Dögg Bragadóttir settust við lyklaborðið a´ dögunum og skrifuðu Facebook-færslur sem farið var vel yfir. Þá var velt fyrir sér þeirri ákvörðun Þórs að spila tvo leiki á tveimur dögum í Vestmannaeyjum um næstu helgi.
  • Þjálfarinn ræður og hvað er að fæðast í Mosfellsbænum? 08.10.2026 1h 1min
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Arnar Pétursson er búinn að velja landsliðshópinn og hann ræður. Haukar og Afturelding eru mættir í 8 liða úrslit Powerade bikarsins. Fáum við óvænt úrslit í hinum leikjum 16 liða úrslitanna? Gidsel jafnaði markametið og Emil Nilsen er allt önnur skepna hjá Veszprém. Heil umferð í Olís deild kvenna um helgina. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Evrópa truflaði ekki og markaskor nær nýjum hæðum í Olís deildinni 05.10.2026 1h 6min
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó´ Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Valur og FH létu ekki Evrópuleikina trufla sig og unnu sigra í Olís deildinni. HK vann sigur á Stjörnunni í svokölluðum fjögurra stiga leik. Þrjú lið eru á toppi Olís deildar kvenna með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir. Botnbaráttan mun vera æsispennandi hjá stelpunum í vetur. Álaborg skíttapaði gegn GOG í dönsku deildinni um helgina. Strákarnir okkar eru hættir að vera í liði umferðarinnar í Þýsklandi. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Fjárhagsvandamál hjá Val og voru menn sviknir í Eyjum? 02.10.2026 1h 11min
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum hérlendis og erlendis. Orri Freyr er á leiðinni til Guðjóns Vals. Veszprem eru heimsmeistarar félgasliða. Mönnum var heitt í hamsi fyrir Vestan. Sissi kveður Val með 13 titla í farteskinu. Fram eru í mikilli brekku eftir 18 marka tap gegn UMFA. KA og Haukar með góða sigra í 5.umferðinni. Mikill handbolti alla helgina bæði hjá strákunum og stelpunum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Þjálfaraskipti og krísufundur í Olís deild karla 28.09.2026 1h 6min
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Ásgeir Jónsson mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp handbolta helgina hér heima og erlendis. Valur og FH byrja Evrópuævintýrið í vikunni. Mikið um óvænt úrslit í Olís deild karla. Hvernig eru liðin í Olís deild karla að hefja tímabilið? Erlingur Richardsson hefur tekið við þjálfun hjá Minden í Þýskalandi og fengum við þær upplýsingar í miðjum þættinum. Olís deild kvenna hefst aftur í vikunni. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • 307 daga bið Stjörnunnar á enda og nennir enginn að spila vörn lengur? 24.09.2026 1h 2min
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Sigurjón Friðbjörn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Haukar unnu FH en gerðu sitt besta til að kasta leiknum frá sér. Stjarnan vann loksins í Olís deildinni eftir 307 daga bið. Einar Jónsson var virkilega ósáttur með sína menn. Afturelding fór illa með Selfyssinga. HK fór til Eyja og stal báðum stigunum. Einars Braga hornið hóf göngu sína í Handkastinu. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Jóhanna í hefndarhug og það styttist alltaf í sigurleik 21.09.2026 1h 2min
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Magdeburg tapaði óvænt gegn Melsungen. Elítuhópurinn æfði um helgina. Haukar vinnu stórleikinn í kvennaboltanum um helgina. Meiðsli herja á leikmenn og þjálfarateymi KA/Þórs. Fram tapaði niður 9 marka forskoti. FH og Haukar mætast í st´órleik á fimmtudaginn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Þór með montréttinn og kveður Gunnar Róbertsson okkur í janúar? 16.09.2026 1h 7min
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp 3.umferð í Olís deild karla. Gunnar Róbertsson er á góðri leið með að taka yfir þessa deild. Siggi Dan bjargaði stigi fyrir Stjörnuna fyrir austan fjall. Þórsarar unnu KA á útivelli í kvöld og eru með montréttinn fyrir norðan næstu dagana. Haukar eru á toppi deildinnar með fullt hús stiga. Heil umferð fer fram í Olís deild kvenna um helgina. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Markametið slegið og undarlegustu félagsskipti síðustu ára 14.09.2026 1h 2min
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi. Víkingar verða byrja leikina. Hvað var KA að spá að reyna ekki að halda í Magnús Dag? Markametið slegið á Hlíðarenda? Verður Einar Jónsson að fara að róa sig? Valskonur svöruðu eftir slæma byrjun með þægilegum sigri á ÍBV. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.
  • Aron til bjargar og Eyjamenn með veskið á lofti 10.09.2026 53min
    Stymmi Klippari, Geiri Gunn og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp vikuna í handboltanum hér á Íslandi og erlendis. Aron reddar Íslendingum og mætir til landsins í janúar. Arnar Pétursson hefur valið æfingarhóp fyrir landsliðið. Danskir dagar í Þorpinu þegar Þórsarar unnu sinn fyrsta leik í vetur. FH kastaði frá sér sigri í Mosfellsbænum. Nóg af handbolta alla helgina bæði í karla og kvenna. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Óvæntustu úrslit síðari ára og 2010 árgangurinn er mættur til leiks 07.09.2026 1h 9min
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Haukar mættu til leiks með látum. Það tók 2 sólarhringa að klára leik Aftureldingar og Víkings. Selfoss kom öllum á óvart og unnu Íslandsmeistaranna. Stelpurnar voru með skotleyfi um helgina. Lið umferðanna opinberuð. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Valur slapp með skrekkinn og ný nöfn í deild þeirra bestu 04.09.2026 1h 1min
    Olís-deild karla er farin af stað og hinar deildirnar hefjast um helgina. Boltinn er farinn að rúlla í Evrópu. Óvænt félagaskipti síðustu daga og nýtt félag í Grill66-deildinni. Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Kiddi Bomba fóru yfir allt það helsta í Rapyd stúdíóinu.
  • Olís deildirnar að byrja, Iðkendagjöld HSÍ og yfirferð á Olísdeild kvenna 31.08.2026 1h 18min
    Stymmi Klippari, Sigurjón Friðbjörn, Gunnar Valur og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og fóru yfir fréttir vikunnar. Iðkendagjöld HSÍ voru rædd og möguleg útfærsla á þeim. Ákvörðun Víkinga að taka ekki þátt í Olís deild kvenna var rædd. Selfyssingar ósáttir við vinnubrögð Víkinga. Yfirferð yfir öll liðin í Olís deild kvenna Olís deildirnar hefjast í vikunni. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Tvær bombur úr Virkinu og yfirferð yfir Olís deild karla 27.08.2026 1h 32min
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og fóru yfir helstu mál handboltans í dag. Kvennalið Víkings hefur afþakkað sæti sitt í Olís deild kvenna 9 dögum fyrir fyrsta leik. Stiven Tobar Valencia er ennþá án liðs. Fórum yfir öll liðin í Olís deild karla og veltum fyrir okkur félagskiptaglugga liðanna, áhyggjum fyrir komandi tímabil, þakinu, gólfinu og hver er með lyklavöldin þegar nýtt tímabil fer af stað. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Barnalandsliðin vinna ekkert án Heimis og mánuður í mót 06.08.2026 1h 20min
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már kíktu í stúdíó Handkastsins og fór yfir fréttir vikunnar. Handboltapassinn er kominn yfir á Livey. 18 ára landsliðs okkar datt út í dag gegn Þýskalandi á HM. Heimir Ríkharðsson er eini þjálfarinn sem hefur klárað þann stóra. Mánuður í mót og mörg lið þurfa ennþá að styrkja sínar herbúðir fyrir veturinn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Stútfullur fréttapakki í sumarútgáfu Handkastsins 09.07.2026 57min
    Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í stúdíó Handkastsins og fóru yfir fréttir sumarsins. Vinstri hornamenn landsliðssins á ferð og flugi. Unglingalandsliðin út um allan heim undanfarnar viku. Hreyfingar á íslenska markaðnum. Ótímabær spá í karla og kvenna. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Gústi Jó fer yfir tímabilið og fréttir vikunnar með Handkastinu 02.06.2026 1h 8min
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gústi Jó mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp fréttir vikunnar. Dagur Árni genginn í raðir KA. Er Benedikt Gunnar Óskarsson á leiðinni heim í Val. Valur tekur alltaf stöðuna á strákunum sínum erlendis eftir hvert ´tímabil. Aron Pálmarsson tekinn við FH. Handboltafólkið okkar heldur áfram að gera frábæra hluti erlendis með félagsliðum sínum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Viðtal við nýráðinn þjálfara FH - Aron Pálmarsson 28.05.2026 8min
    Aron Pálmarsson var kynntur sem nýr þjálfari karlaliðs FH í dag.
  • Viðtal við Steina Arndal fráfarandi þjálfara FH 28.05.2026 9min
    Viðtal við Steina Arndal eftir að hann var kynntur sem nýr aðstoðarþjálfari FH og stígur til hliðar sem aðalþjálfari liðsins eftir sjö ár í starfi.

I/E popullarizuar në

Ky podkast shfaqet edhe në listat e podkasteve të këtyre shteteve.