Mín skoðun

Mín skoðun

Valtýr Björn
Shteti Islandë
Zhanret Sport
Gjuha EN
Episode 999
I/E fundit 15.09.2026

Podcast með Valtý Birni þar sem hann deilir sinni skoðun á ýmsum málefnum.

Episodet

  • Xið 977 - Mín skoðun. 4.þáttur. 15092026 15.09.2026 59min
    Heil og sæl. Í þætti dagsins eru tveir viðmælendur. Þórhallur Dan kemur í heimsókn og fer á kostum að vanda. Við tölum um Bestu deildina, Lengjudeildina, enska boltann, landsliðið og margt fleira. Síðan kemur Flosi Eiríksson formaður Breiðabliks í heimsókn og svarar meðal annars fyrir gagnrýni Dagnýjar Brynjarsdóttur þar sem hún segir í viðtali á visi.is að aðbúnaði kvennafótboltans hér á landi hafi farið aftur á síðustu árum. Þetta og sitthvað fleira er í dag. Takk fyrir að hlusta og takk LENGJAN og POULSEN fyrir ykkar stuðning. 
  • Xið 977- Mín skoðun. 14092026 14.09.2026 59min
    Heil og sæl. Í þætti dagsins eru tveir frábærir viðmælendur. Magnús Már Einarsson þjálfari karlaliðs Aftureldingar í knattspyrnu mætir og við förum um víðan völl skal ég nú segja ykkur. Þá kemur einnig í heimsókn Einar Jónsson þjálfari Fram í handbolta. Við tölum um Olísdeildirnar sem eru nýfarnar af stað á ný. Njótið og munið að símanúmerið í studiói Xins er 517-0977
  • X ið 977 - Mín skoðun. 2.þáttur 11092026 11.09.2026 59min
    Heil og sæl. Í þætti dagsins í beinni á Xinu 977 var nóg um að vera og bikarhelgin framundan í fótboltanum var aðalmálið. Haukur Guðberg Einarsson fyrrum formaður Grindavíkur og Bolli Már Bjarnason Þróttari og Köttari með meiru mættu í spjall um bikarúrslitaleik kvenna á milli Grindavíkur/Njarðvíkur og Þróttar. Þá komu einnig í spjall Agnar Freyr Gunnarsson Aftureldingarmaður og Hilmar Jökull Breiðabliksmaður og ræddu um bikarúrslitaleik Aftureldingar og Breiðalbiks. Geggjað spjall við þessa aðila. Takk fyrir að hlusta og næsti þáttur er á mánudag. Takk Poulsen og Lengjan fyrir stuðninginn. 
  • X-ið 977 - Mín skoðun. 1.þáttur 10.09.2026 59min
    Í þessum fyrsta þætti af Mín skoðun á X-inu 977, eru þrír viðmælendur. Böddi Bergs, Gummi Ben og Einar Jónsson. Við tölum um fótbolta, handbolta, slúður, golf og allt milli himins og jarðar. Ég vil svo þakka Lengjunni og Poulsen innilega fyrir að vera samstarfsaðilar okkar. TAKK. 
  • 1094.þáttur. Mín skoðun. 24082026 24.08.2026 1h 54min
    ENSKI BOLTINN-SPÁ. Í þætti dagsins spá fimm spekingar í spilin fyrir enska boltann á leiktíðinni sem nú er nýhafin. Böddi Bergs, Svanhvít Valtýs, Þórhallur Dan, Siggi Hlö og Kristinn Kjærnested eru spekingarnir og þau raða liðunum í sæti frá 1-20 ásamt rökstuðningi. Njótið og takk fyrir að hlusta. 
  • 1093.þáttur.Mín skoðun. 14082026 14.08.2026 57min
    Heil og sæl. Í dag heyri ég í Þórhalli Dan og Kristni Kjærnested. Við förum um víðan völl og tölum um Lengjudeildina,  Bestu deildina, enska boltann, íslensku liðin í evrópukeppninni, fréttir og slúður og margt margt fleira. Njótið og takk fyrir að hlusta.
  • 1092.þáttur.Mín skoðun. 07082026 07.08.2026 1h 25min
    Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í þremur aðilum, Kristni Kjærnested, Einari Jónssyni og Þorkeli Mána Péturssyni. Við tölum um Bestu deildina, enska boltann, íslenka handboltann og Gianni Infantino forseta FIFA ásamt einhverju fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta. 
  • 1091.þáttur.Mín skoðun. 17072026 17.07.2026 54min
    Heil og sæl. Í þætti dagsins eru Kristinn Kjærnested og Þórhallur Dan gestir. Við ræðum um HM í fótbolta, Bestu deildina og svo árangur íslensku liðanna í evrópukeppninni ásamt ýmsu fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta. 
  • 1090.þáttur.Mín skoðun. 03072026 03.07.2026 56min
    Heil og sæl og velkomin til leiks. Í þætti dagsins er farið yfir gang mála hjá íslenska karlalandsliðinu í körfubolta með Inga Þór körfuboltagúrú. Kristinn Kjærnested er svo á línunni og við tölum um HM í fótbolta, íslenska boltann og einnig aðeins um enska boltann ásamt því að tvær Krummasögur eru þættinum. Njótið og takk fyrir  að hlusta. 
  • 1089.þáttur.Mín skoðun. 17062026 17.06.2026 1h 25min
    Heil og sæl. Í dag heyri ég í Þórhalli Dan og viðð tölum um íslenska boltann sem og HM í fótbolta og fleira. Einar Jónsson er í spjalli um Meistaradeildina í handbolta og einnig um íslenska leikmannamarkaðinn og fleira. Að lokum tala ég við Úlfar Jónsson golf snilling og við förum yfir US Open sem hefst á morgun og þar verður Gunnlaugur Árni Sveinsson meðal keppenda. Til hamingju með daginn íslendingar og takk fyrir að hlusta. 
  • 1088.þáttur.Mín skoðun. 11062026 11.06.2026 1h 29min
    Heil og sæl. Í þætti dagsins eru fimm gúrúar viðmælendur. Kristinn Kærnested, Einar Jónsson, Þórhallur Dan, Siggi Hlö og Svanhvít Valtýs. Við tölum um íslenska boltann, landsliðin okkar í fótbolta og handbolta, Final4 og svo HM í fótbolta svo eitthvað sé nefnt. Af nógu er að taka. Njótið og takk fyrir að hlusta. 
  • 1087.þáttur.Mín skoðun. 03062026 03.06.2026 1h 8min
    Heil og sæl. Í dag heyri ég í Þóroddi Hjaltalín yfirmanni dómaramála hjá KSÍ. Við förum yfir dómaramálin þegar þriðjungur er búinn af Bestu deildinni og hvað er framundan. Kristinn Kærnested fótboltagúrú er svo í spjalli um Bestu deildina, ensku deildina, nýjan þjálfara Liverpool, HM og margt fleira. Njótið og takk fyrir að hlusta. 
  • 1086.þáttur.Mín skoðun. 27052026 27.05.2026 1h 6min
    Heil og sæl. Í dag heyri ég í Þórhalli Dan og við tölum um fótboltann hér á landi ásamt fleiru. Arsenal aðdáendurnir Bjarni Ákason og Einar Jónsson eru svo á línunni og Einar spjallar einnig við mig um evrópu handboltann og slúður hér heima. Svanhvít Valtýs er svo í spjalli þar sem við förum yfir fréttir og slúður í boltanum ásamt fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta. 
  • 1085.þáttur.Mín skoðun. 19052026 19.05.2026 1h 42min
    Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera og það eru fjórir viðmælendur. Einar Jónsson, Benedikt Guðmundsson, Kristinn Kærnested og Svanhvít Valtýs. Við ræðum um handboltalandsliðið, þýska boltann og meistaradeildina í handbolta. Úrslitakeppnina í körfubolta þar sem Grindavík og Njarðvík fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum. Enski boltinn er á sínum stað og Besta deildin og svo fréttir og slúður og Lengjudeildin í fótbolta. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta. 
  • 1084.þáttur.Mín skoðun. 13052026 13.05.2026 1h 18min
    Heil og sæl. Í dag heyri ég í Kristni Kærnested fótboltagúrú og við tölum um íslenska boltann sem og enska boltann ásamt fleiru. Benedikt Guðmundsson körfuboltagúrú er á línunni um úrslitaeinvígin í körfuboltanum hér heima og þar er um nóg að tala. Einar Jónsson handboltagúrú er svo í spjalli um íslenska handboltann, landsliðið okkar, Final4 og þýska handboltann. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.
  • 1083.þáttur.Mín skoðun. 08052026 08.05.2026 1h 42min
    Heil og sæl. Í þætti dagsins eru þrír gúrúar í spjalli. Þórhallur Dan, Benedikt Guðmundsson og Einar Jónsson. Við tölum um enska boltann, meistaradeildina í fótbolta, Bestu deildina, Lengjudeildina, úrslitakeppnina í körfubolta karla og kvenna, úrslitakeppnina í handbolta karla og kvenna og meistaradeildina ásamt fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta. 
  • 1082.þáttur.Mín skoðun. 05052026 05.05.2026 1h 33min
    Heil og sæl. Í dag eru fjórir viðmælendur, Kristinn Kærnested, Benedikt Guðmundsson, Einar Jónsson og Svanhvít Valtýs. Við tölum um enska boltann, meistaradeildina, evrópudeildina og íslenska fótboltann og svo um körfuboltann og handboltann hér heima ásamt fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta. 
  • 1081.þáttur.Mín skoðun. 28042026 28.04.2026 1h 33min
    Heil og sæl. Kristinn Kærnested fótboltagúrú er í spjalli í dag um Bestu deildina, enska boltann og Meistaradeildina. Einar Jónsson handboltagúrú er svo á línunni um úrslitakeppnina í handbolta karla og kvenna ásamt því að við förum yfir gang mála í meistaradeildinni og fleira. Að lokum heyri ég í Benedikt Guðmundssyni körfuboltagúrú og við förum yfir málin í úrslitakeppni karla og kvenna þar sem spennan er mikil. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.
  • 1080.þáttur.Mín skoðun. 22042026 22.04.2026 1h 27min
    Heil og sæl. Í dag heyri ég í Benedikt Guðmundssyni körfuboltagúrú og við förum yfir gang mála í úrslitakeppninni í körfubolta. Einar Jónsson handboltagúrú er svo á línunni um úrslitakeppnina í handbolta og að lokum heyri ég í Haraldi Hróðmarssyni fótboltagúrú þar sem við förum yfir gang mála í enska boltanum og Bestu deild karla ásamt fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta. 
  • 1079.þáttur.Mín skoðun. 16042026 16.04.2026 57min
    Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Einar Jónssyni handboltagúrú og við förum yfir gang mála í handboltanum hér heima sem og í Þýskalandi og Meistaradeildinni ásamt fleiru. Kristinn Kærnested fótboltagúrú er svo á línunni og við tölum um evrópumótin þrjú í fótbolta, ásamt því að fara í yfir gang mála í Bestu deildinni sem og ensku úrvalsdeildinni. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.

I/E popullarizuar në

Ky podkast shfaqet edhe në listat e podkasteve të këtyre shteteve.