Heimsborgarar
Hljóðkirkjan
0
Við ferðumst mikið. Stundum stígum við upp í flugvél og förum út í heim. Upplifum framandi menningu og víkkum þannig sjóndeildarhringinn. En stundum leyfum við heiminum einfaldlega að koma til okkar. Við höfum burrito í matinn, borðum franska súkkulaðiköku í eftirrétt og horfum síðan á margverðlaunaða búlgarska bíómynd fyrir svefninn. Samt erum við líkamlega bara í Kópavogi. Þetta hlaðvarp er því ferðaþáttur, en í mjög víðum skilningi, þar sem Baldur og Haukur skoða allt sem tengist öðrum löndum, ferðalögum, menningu, sögu, mat og því sem þeim dettur í hug.
Епизоде
-
#9 „Ofmetið. Mjög langt labb. 1 stjarna.“ 18.07.2026 1ч 31минEkki einu sinni mestu undur veraldar eru óhult fyrir kvörtunum frá ósáttum ferðalöngum. Kínamúrinn? „Mjög gamall múr og liturinn ekki góður. Ekki fara þangað.“Einnig: örlítil áfangastaðalistagerð, stóra fánalýsingamálið gert upp og sitthvað fleira. Takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur. -
#8 Rassinn á Stjána 03.07.2026 1ч 23минHeimsborgarar etja saman 20 þjóðfánum í nýjum leik, svara nokkrum spurningum úr sal og tækla gríðarlegt hitamál: ferðalög innanlands. Eru þau algjör snilld eða ömurlegt drasl?Takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur. -
#7 Vængjaðar vítisvélar 19.06.2026 1ч 38минOkkur er talin trú um það að flug sé öruggasti ferðamátinn. Staðreyndin er hins vegar sú að það er stórhættulegt að fljúga og hvert skipti sem þú gengur ólaskaður frá borði flugvélar er í rauninni algjört kraftaverk.Spennið sætisólarnar, signið ykkur og takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur. -
#6 Þrjár ferðir til fjár 05.06.2026 1ч 25минHeimsborgarar flugu út í heim — og svo aftur til baka með öll koffort stútfull af góssi og góðum minningum. Einnig er kynntur til sögunnar nýr dagskrárliður: Útsláttarkeppni þjóðsöngva!Takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur. -
#5 Biðin langa 22.05.2026 1ч 10минÁ eldfjallaeyjunni Tanna í Suður-Kyrrahafi hefur hópur fólks beðið í næstum heila öld eftir heimsókn frá dularfullum dáta að nafni John Frum. Eða var það Broom? -
#4 Ófreskjan og einræðisherrann 08.05.2026 1ч 19минHvað gerir vitfirrtur þjóðarleiðtogi þegar kvikmyndaiðnaðurinn í ríki hans er í niðursveiflu? Jú, hann auðvitað rænir kvikmyndaleikstjóra frá nágrannaríkinu og pínir hann til að leikstýra sjö kvikmyndum í fullri lengd á tveimur árum. Heimsborgarar fjalla um þetta glórulausa plan, sem þér er að sjálfsögðu meira en velkomið að tjá þig um í Heimsborgarar - Umræðuhópur. -
#3 Landsleikur! 24.04.2026 1ч 37минHvernig verða lönd til? Jú, með slembivali á internetinu auðvitað. Heimsborgarar fara í sinn fyrsta „landsleik“ og reyna að fá úr því skorið hvort landið sé betra – Haukstópía eða Baldland.Taktu þátt í umræðunni á Heimsborgarar – Umræðuhópur. -
#2 Bobbi í Berlín 24.04.2026 1ч 5минÞjóðverjar eru þekktir fyrir vandvirkni, verkvit og stundvísi. Einhvern veginn klikkaði þetta samt allt þegar ákveðið var að byggja nýjan flugvöll í Berlín eftir fall múrsins 1989. Baldur leiðir okkur í gegnum söguna af þessu ævintýralega klúðri, sennilega því næstvandræðalegasta í sögu Þýskalands.Taktu þátt í umræðunni á Heimsborgarar – Umræðuhópur. -
#1 Skepnuskapur 10.04.2026 1ч 30минHeimurinn er fullur af alls konar framandi furðuskepnum, en við Íslendingar fengum öll lélegu dýrin. Í þessum fyrsta „alvöru“ þætti Heimsborgara ræða þeir Baldur og Haukur um það hvernig fríska mætti upp á íslensku dýraflóruna. Afsakið ... fánuna.Umræður eru velkomnar í Heimsborgarar – Umræðuhópur. -
#0 Velkomin í heiminn 09.04.2026 42минHeimsborgarar! Hvað er nú það? Í þessum fyrsta þætti, sem við flokkum sem þátt númer núll, ætlum við að gera okkar besta til að útskýra það fyrir ykkur. Það er ekkert víst að það takist, en leyfið okkur að reyna.Annars megið þið líka spyrja að nokkurn veginn hverju sem er inni á Heimsborgarar – Umræðuhópur.
Популаран у
Овај подкаст се појављује и у подкаст листама ових земаља.