Fotbolti.net

Fotbolti.net

Fotbolti.net
ประเทศ ไอซ์แลนด์
แนวเพลง กีฬา
ภาษา IS
จำนวนตอน 2811
ล่าสุด 19.09.2026

Podcastþættir Fótbolta.net fjalla um íslenskan og erlendan fótbolta. Í hverjum þætti ræða gestir og umsjónarmenn um nýjustu fréttir, leiki og þróun í fótboltaheiminum. Þættirnir eru á íslensku og koma út reglulega.

ตอน

  • Innkastið - Skortur á reisn 19.09.2026
    Innkastið eftir lúxus laugardag. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn.Víkingur varð meistari á Meistaravöllum. Það voru læti.Bestu liðin komust upp í Bestu deildina. Til hamingju Þróttur.KA rúllaði yfir Þór í seinni hálfleik.
  • Útvarpsþátturinn - 100 milljónir í rúllettu 18.09.2026
    Þátturinn er frumfluttur á föstudegi. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir rosalega fótboltahelgi. Víkingur getur orðið meistari á Meistaravöllum, það verður barist upp á líf og dauða í Akureyrarslag og þá tilkynnti Arnar Gunnlaugsson landsliðshóp og lagði starfið að veði á fréttamannafundi fyrir Þjóðadeildina. Þróttur og Fylkir mætast í 100 milljóna króna leiknum. Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttar og Kári Sigfússon leikmaður Fylkis eru í viðtölum. Á Michael Carrick framtíð sem stjóri Manchester United?
  • 38 umferðir - Pascal engan undra hversu góður Gross er í fantasy 16.09.2026
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í deildinni er lið Jóhanns Arnar Kjartanssonar sem situr á 365 stigum eftir 4 umferðir. Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 5 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Brentford - Chelsea kl 19:00 síðar sama dag.
  • Innkastið - Læti undir ljósum Lautarinnar 15.09.2026
    Elvar Geir, Valur Gunnars og Maggi Hödd í Innkastinu að þessu sinni. Byrjað er að skoða umspil Lengjudeildarinnar og undanúrslitaleikirnir gerðir upp. Það ræðst á laugardaginn hvort Þróttur eða Fylkir spili í Bestu deildinni á næsta tímabili. Svo er það fyrsta umferð Bestu deildarinnar eftir tvískiptingu. Það stefnir í rosalega helgi þar sem Víkingur getur orðið Íslandsmeistari og KA leikur gegn Þór þar sem er að duga, eða drepast.
  • Harkið - Gæsaveiðar á Dalvík 15.09.2026
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í loka umferð 2. og 3. deildar karla auk þess var rætt Gatorade bikarinn - Uppgjör 3 deildar - 11 mín - Uppgjör 2 deildar - 45 mín - Gatorade bikarinn - 01.21 mín Harkið er í boði Serrano, Ab sportvörum og Macron Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
  • Enski boltinn - Hörmulegir dómarar í bestu deild heims 14.09.2026
    Það vantaði ekki dramatíkina í Manchester slaginn á Old Trafford í gær en dómararnir voru í aðalhlutverki. Erling Haaland skoraði sigurmarkið, en það mark átti aldrei að standa. Byrjunin hefur verið erfið fyrir United á þessu tímabili en Arsenal og Manchester City eru með fullt hús stiga. Hvenær kemur fyrsta mark Tottenham á tímabilinu? Hull heldur þá áfram að gera flotta hluti og Leedsarar fara frábærlega af stað. Guðmundur Aðalsteinn fór yfir allt það helsta með Haraldi Erni og Sölva Haraldssyni. Þátturinn er í boði Nova.
  • Útvarpsþátturinn - Blikar tóku bikar og æsispennandi umspil 12.09.2026
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 12. september. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars eru í hljóðveri í þættinum og rætt er við Hilmar Jökul, stuðningsmann Breiðabliks. Bikarúrslitaleikurinn er gerður upp en Breiðablik varð meistari. Rýnt er í umspil Lengjudeildarinnar þar sem allt er á suðupunkti og hitað upp fyrir komandi leiki í Bestu deildinni.
  • 38 umferðir - Kominn tími á að Hull fái á sig mörk 09.09.2026
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á sunnudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í deildinni er lið Jóhanns Arnar Kjartanssonar sem situr á 280 stigum eftir 3 umferðir. Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 4 er á laugardaginn kemur kl. 12:30 en umferðin hefst á 5 leikjum kl 14:00 sama dag.
  • Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Starfið undir á Laugardalsvelli? 08.09.2026
    Sigurjón Jónsson og Arnór Gauti Ragnarsson voru gestir í setti í sérstökum upphitunarþætti fyrir viðureign Aftureldingar og Breiðabliks í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Leikurinn fer fram á föstudaginn og er Sigurjón stuðningsmaður Breiðabliks en Arnór er Mosfellingur sem lék sömuleiðis með Breiðabliki. Farið var yfir leiki liðanna í undanúrslitum, gengi þeirra í sumar og spáð í úrslitaleikinn sjálfan.
  • Harkið - Nágrannar en ekki vinir 08.09.2026
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í 21. umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild:14:42 Uppgjör 2.deild:40:53 Spá:01:17:14 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
  • Uppbótartíminn - Fáránleg spenna þegar deildin skiptist 07.09.2026
    Síðasta umferðin í Bestu deild kvenna fyrir skiptingu fór fram í kvöld. Núna er gríðarleg spenna framundan á bæði toppi og botni deildarinnar. Hvaða lið verður Íslandsmeistari og hvaða lið falla? Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Arnar Páll fóru yfir 18. umferðina og sitthvað fleira í Uppbótartímanum. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
  • Enski boltinn - Hver stoppar eiginlega Arsenal? 07.09.2026
    Arsenal fór með sigur af hólmi í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni, 2-1 gegn Chelsea. Manchester United fékk rýting í bakið á lokasekúndunni gegn Everton og Alexander Isak skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í sigri gegn nýliðum Ipswich. Tottenham náði í sitt fyrsta stig og Manchester City vann tæpan sigur á nýliðum Coventry. Guðmundur Aðalsteinn fór yfir þessa leiki og helstu sögulínur ásamt Jóni Kaldal og Halldóri Marteinssyni í Coke stúdíóinu hjá Fótbolta.net. Þátturinn er í boði Nova.
  • Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla 06.09.2026
    Innkastið eftir 22. umferð, síðustu umferðina fyrir tvískiptingu. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra. Stjarnan og Valur þurfa að sætta sig við að spila í neðri hlutanum en Keflvíkingar komust í efri hlutann þrátt fyrir tap á Ljósanótt. Farið er yfir alla leikina og einnig rætt um lokaumferð Lengjudeildarinnar sem var á laugardag.
  • Útvarpsþátturinn - Haukar fljúga upp og lokaumferðir framundan 04.09.2026
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Guðjón Pétur Lýðsson þjálfari Hauka er gestur þáttarins en Hafnarfjarðarliðið er komið upp í Lengjudeildina. Lokaumferðir eru framundan um helgina, síðasta umferð fyrir tvískiptingu Bestu deildarinnar og svo ræðst hvaða lið fellur með Ægi úr Lengjudeildinni. Í lok þáttar er sumarglugginn í ensku úrvalsdeildinni skoðaður með Kára Snorrasyni, fréttamanni Fótbolta.net.
  • Uppbótartíminn - Glötuð tækifæri og stórt kærumál 02.09.2026
    Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir 17. umferð Bestu deildar kvenna. Toppliðin tvö hikstuðu bæði, aftur. FH hefur núna fengið tvö tækifæri til að komast á toppinn en ekki nýtt sér þau. Á hinum enda töflunnar er spennan gríðarleg. Þá var rætt um stórt kærumál sem getur haft mikil áhrif á framhaldið í Bestu deildinni. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
  • 38 umferðir - Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu? 02.09.2026
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í deildinni er lið Jóhanns Arnar Kjartanssonar sem situr á 216 stigum eftir 2 umferðir. Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 3 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich og Liverpool kl 19:00 á föstudagskvöld.
  • Enski boltinn - Hull í draumalandi og glugganum lokað 02.09.2026
    Það eru fjögur lið með fullt hús stiga eftir tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni. Það eru Arsenal, Chelsea, Manchester City og.. Hull City. Það er óhætt að segja að Hull sé í draumalandi eftir fyrstu tvo leikina en fyrir tímabil var þeim spáð 20. sæti í flestöllum spám. Guðmundur Aðalsteinn fékk því Friðleif Friðleifsson, mikinn Hull stuðningsmann, í heimsókn í Coke stúdíóið í kvöld. Haraldur Örn Haraldsson fór einnig yfir sterka byrjun Xabi Alonso hjá Chelsea. Félagaskiptaglugginn lokaði þá í kvöld og var farið yfir allt það helsta sem gerðist í lok þáttarins. Þátturinn er í boði Nova.
  • Innkastið - Ljúgum til um titilbaráttu 01.09.2026
    Innkastið eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Runólfur Trausti. Þátturinn var tekinn upp strax eftir stórleik KR og Víkings. Fjallað er um leikinn sjálfan og allt í kringum hann. Auðvitað er síðan farið yfir allar helstu sögulínur í kringum hina leiki umferðarinnar.
  • Harkið - Hiti í 3. deildinni 01.09.2026
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í tuttugustu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 07:14 Uppgjör 2.deild:44:48 Spá: 01:29:00 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
  • Kaffispjallið: Blæti fyrir takkaskóm og nýtt tækifæri í KR 01.09.2026
    Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, er nýjasti viðmælandi Kaffispjallsins. Líkt og vanalega var farið yfir víðan völl en Nördahornið og Hraðaspurningarnar eru að sjálfsögðu á sínum stað.

ยอดนิยมใน

พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย