Gullkastið
Kop.is
0
Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.
ตอน
-
Gullkastið - Work In Process 16.09.2026 50นาทีUngu strákarnir komu með orku í leikinn gegn Tottenham í deildarbikarnum sem sárlega vantaði í helstu lykilmenn Liverpool gegn Fulham. Hellingur eftir þessa viku fyrir Iraola að greina á meðan hann lærir inn á hópinn sem hann er með hjá Liverpool. Ögurverk liðið er á sínum stað, Gullstund(ir) vikunnar og framundan deildarleikur fyrir voðalega langt landsleikahlé Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: -
Gullkastið - Framfarir 10.09.2026 49นาทีTveir sigurleikir í röð í þessari viku og Liverpool lið sem við þekkjum mun betur og líkar betur við. Það eru framfarir milli leikja þessa dagana og spennandi breytingar á leik liðsins sem enn á þó töluvert í land. Spáum aðeins í leikmannaglugganum og tíma Richard Hughes hjá Liverpool Ögurverk liðið er á sínum stað og tveir leikir framundan í næstu viku líka. Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: -
Gullkastið – Leikmannaglugganum Lokað 02.09.2026 45นาทีLiverpool gekk loksins frá kaupum á Bradley Barcola frá PSG en létu bara þar við sitja á lokavikum leikmannagluggans, innkaup langt undir væntingum flestra stuðningsmanna félagsins. Spáum í glugganum hjá Liverpool sem og hinum toppliðunum í deildinni. Hverjir eru sáttir eftir sumarið og hverjir ekki. Notthingham Forest fór þriðja tímabilið í röð með eitthvað frá Anfield í leik helgarinnar sem er óþolandi trend og leikurinn um helgina eftir því. Næst er það svo Ipswich á föstudagskvöldið á Portmann Road. Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Óli Haukur Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf -
Gullkastið - Stór vika 26.08.2026 1ชม. 4นาทีTímabilið er farið af stað og eitt stig á endanum niðurstaðan í Newcastle með flautumarki annað árið í röð. Spáum í spilamennsku Liverpool og umferðina í heild. Þetta er jafnframt síðasta vika leikmannagluggans og sjaldan sem Liverpool á svona mikið eftir að gera á leikmannamarkaðnum. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig hópurinn breytist áður en við fáum Nottingham Forest í heimsókn næstu helgi. Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: -
Gullkastið – Er Liverpool tilbúið í Tímabilið? 17.08.2026 1ชม. 2นาทีÆfingaleikir að baki og nýtt tímabil byrjar um helgina á útivelli gegn Newcastle. Er Liverpool liðið tilbúið í mótið og fáum við fleiri leikmenn áður en glugganum lokar? Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: -
Gullkastið – Araujo mættur til æfinga 12.08.2026 50นาทีLiverpool bætti Araujo miðverði frá Barceolna við leikmannahópinn í vikunni og kom það nokkuð óvænt upp. Hann hefur átt erfitt uppdráttar eftir að Hansi Flick tók við liðinu en var lykilmaður hjá Xavi og hefur verið í fyrirliðahópi Barcelona. Þetta er strákur frá Úruvgæ sem kom til Barcelona árið 2018. Spáum í honum og slúðri af leikmannamarkaðnum. Liverpool spilaði æfingaleik um helgina sem var mjög svipaður leikjum gegn Leeds í Bandaríkjunum, gríðarlega kaflaskiptur og mikið hrun í leik liðsins þegar lykilmenn fóru að fara af velli. Iraola var ekki sáttur við hlaupagetu hópsins eftir leik sem klárlega er verið að vinna í á æfingasvæðinu og vonandi leikmannamarkaðnum líka. Héldum áfram með Power Rank á deildina, Ögurverk liðið o.fl. Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf -
Gullkastið – Lífsmark á Leikmannamarkaðnum? 05.08.2026 1ชม. 16นาทีÆfingaferðin til Bandaríkjanna er afstaðin og Iraola búinn að endurheimta alla núverandi leikmenn Liverpool til æfinga eftir HM. Spáum í hvað við lærðum af ferðinni til Ameríku. Leikmannamarkaðurinn er farinn að sýna eitthvað smá lífsmark en þó ekkert mikið meira en það eins og er. Vonandi spennandi vika og vikur framundan þar. Létt Power Rank á liðin í deildinni eins og staðan er í dag Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf -
Gullkastið – Barcola og Æfingaleikir 28.07.2026 47นาทีLiverpool verður ekki sakað um að spila leiðinlega fótbolta í fyrsta æfingaleik undirbúningstímabilsins þó varhugavert sé að lesa of mikið í slíka leiki. Fjölmargir ungir leikmenn fengu tækifæri inná vellinum að sýna sig fyrir Iraola og verður fróðlegt að sjá hvernig hann metur þær frammistöður. Fréttir þess efnis að barcola sé á leiðinni til Liverpool eru farnar að hitna töluvert í þessari viku og klárlega það langheitasta tengd leikmannaslúðri Liverpool þessa dagana. Framundan er svo leikur gegn Wrexham í New York rétt fyrir miðnætti annað kvöld. Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf -
Gullkastið – HM búið 21.07.2026 1ชม. 24นาทีLiverpool er farið með 31 manna leikmannahóp til Bandaríkjanna í æfingaferð og spilar fyrsta æfingaleik í þessari viku. HM er loksins búið og því hægt að snúa sér aftur af alvöru fótbolta sem skiptir máli. Örlítið uppgjör á HM og eins skoðum við auðvitað stöðuna á leikmannamarkaðnum og hópnum hjá Liverpool. Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Óli Haukur Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: -
Gullkastið – Iraola mættur til starfa 13.07.2026 1ชม. 11นาทีLeikmann Liverpool sem ekki voru uppteknir með landsliðum sínum í sumar eru mættir aftur til æfinga og Iraola því formlega mættur til starfa og hélt blaðamannafund í morgun. Ofsalega lítið að frétta af leikmannamarkaðnum hjá Liverpool enn sem komið er en öllu meira hjá hinum toppliðunum. Skoðum aðeins helstu breytingar í deildinni og helstu fréttir tengdar Liverpool. Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf -
Gullkastið - Hvaða Kaupir Liverpool fyrir Iraola 29.06.2026 1ชม. 8นาทีLiverpool náði ekki að sannfæra hinn 19 ára Yan Diomande sem var helsta skotmark sumarsins í stöðuna hans Mo Salah á hægri vængnum og því áfram töluverð óvissa hvernig brottför hans verður leyst. Þetta er síður en svo það eina sem Liverpool þarf að gera á leikmannamarkaðnum í sumar. Skoðum aðeins hvað bíður Iraola hjá Liverpool og hvernig leikmannamarkaðurinn er í þeim stöðum sem Liverpool þarf að styrkja. Nýtt leikjaplan er komið út og Kop.is. ferðir á leið í sölu. HM er svo auðvitað í fullum gangi og átta leikmenn Liverpool ennþá á mótinu núna þegar 32.liða úrslit eru hafin. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf -
Gullkastið – Arne Slot Rekinn 30.05.2026 54นาทีLiverpool hélt spilunum þétt að sér varðandi framtíð Arne Slot voru voru flestir farnir að búa sig undir hann áfram sem stóra liðsins þrátt fyrir að hans staða væri orðin allt að því vonlaus. Það lá því ekkert í loftinu að fréttin Arne Slot rekinn væri yfirvofandi þó það sé ekki hægt að segja að hún komu á óvart. Andoni Iraola yfirburða langlíklegastur til að taka við. Hann hefur gert frábæra hluti með Bournemouth og var auðvitað ráðin þangað af Richard Hughes. Liverpool hefur ekki skipt oft um stjóra í sögulegu samhengi og þegar það gerist er jafnan tilefni fyrir Neyðarþátt. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf -
Gullkastið – Tölum Aldrei Um Þetta Aftur 26.05.2026 1ชม. 10นาทีLiverpool spilar í Meistaradeild Evrópu næsta vetur þannig að það er óhætt að nota gamla góða Men In Black pennann á þetta tímabil og gleyma því. Tímabilið 2025-26 gerðist ekki. Skoðuðum lokaumferðina, stöðuna á toppliðunum í upphafi leikmannagluggans og hentum í létt uppgjör á tímabilinu Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf -
Gullkastið – Lokavikan 19.05.2026 1ชม. 13นาทีBlessunarlega er þetta síðasta vika tímabilsins og Meistaradeildarsæti á næsta tímabili ekki enn í höfn. Liverpool er ennþá með þetta í sínum höndum og getur tryggt sæti í Meistardeild á erfiðum heimavelli sínum Anfield Road á sunnudaginn. Ekki tókst það á föstudaginn á Villa Park, alls ekki. Salah baunaði félagið og hefur umræða vikunnar heldur betur snúist um hans yfirlýsingi og ekki síst viðbrögð leikmanna Liverpool við henni, það er augljóslega ekki allt með felldu innan herbúða félagsins. Spáðum einnig í helstu fréttum vikunnar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf -
Gullkastið – Erfiður Heimavöllur? 12.05.2026 57นาทีAnfield Road í vetur hefur verið völlurinn þar sem lið í frjálsu falli geta mætt og fengið sjálfstraust á ný. Amorim vann sem stjóri United, Totenham og Chelsea voru búin að tapa sex leikjum í röð áður en þau mættu á Anfield, Sean Dyche náði í 3-0 sigur áður en hann var rekinn og ekkert af nýliðunum hefur tapað á Anfield. Frammistaðan og leikurnn gegn Chelsea var alveg á pari við þessa verslu leiki og stuðningsmenn á Anfield orðnir það langþreyttir að baulað var hraustlega á liðið, það er ekki eðlilegt ástand á Anfield. Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er ekki staðfest ennþá en Liverpool fær gott tækifæri á Villa Park á föstudaginn. Sigurvegari í þeim leik verður í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Staða Arne Slot hefur töluvert mikið verið til umræðu þessa vikuna Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Óli Haukur Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf -
Gullkastið – Stórleikur um helgina 29.04.2026 1ชม. 8นาทีLiverpool fer næst á Old Trafford og getur með sigri náð djöflunum að stigum sem væri hressandi eftir allt sem á undan er gengið í vetur. Risaslagur að vanda en Meistaradeildarsætið að ári er orðið ansi líklegt eftir annan góðan sigur í deildinni gegn Crystal Palace. Drógum svo m.a. tvo heppna í Bræðsluleiknum okkar en þeir fá sitthvora tvo miðana á Bræðsluna á Borgarfirði Eystri í sumar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf -
Gullkastið – Leiðtogarnir Afgreiddu Everton 20.04.2026 1ชม. 20นาทีTrölla sigurmark fyrirliðans gegn Everton á 100.mínútu er nokkuð auðveldlega besta moment þessa tímabils og tryggði í leiðinni ákaflega mikilvæg þrjú stig og 100% árangur Liverpool á þessum nýja heimavelli Everton. Borgin er svo sannarlega rauð eftir sem áður. Meistaradeildarsæti er því enn meira innan seilingar eftir helgina. Það er hinsvegar ekki nóg að komast í Meistaradeildina það þarf spila eins og menn þar líka, Liverpool gerði það vissulega öllu betur á Anfield heldur en í París um daginn en niðurstaðan varð sú sama, 0-2 tap og samanlagt 0-4 gegn PSG sem er bara alls ekkert ásættanlegt hjá Liverpool. Tvö vonbrigðatímabil í röð í Meistaradeildinni og klárlega eitthvað sem félagið þarf að stefna á að laga strax í sumar. Allar fréttir frá klúbbnum eru líka á þá leið að félagið þurfi að láta taka til sín á leikmannamarkaðnum enda stór skörð sem þarf að fylla og ljóst í vetur að stórar holur eru í hópnum fyrir. Skoðum aðeins þann markað líka. Bræðslan 2026 – Gjafaleikur Við framlengjum gjafaleikinn okkar með Bræðslunni í nokkra daga. Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár. Það er koluppselt á hátíðina og því um að gera að freista gæfunnar að vinna miða. Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu á Facebook síðu Kop.is Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf -
Gullkastið – Er Ennþá Séns? 13.04.2026 1ชม. 10นาทีEinvígið gegn PSG er í brennidepli og ljóst að Liverpool er í gríðarlegri brekku núna þegar einvígið er hálfnað eftir vond úrslit og enn verri frammistöðu í París. Ef það er eitt lið sögulega sem getur snúið svona stöðu þá er það að sjálfsögðu Liverpool þannig að höldum ennþá aðeins í vonina. Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er hinsvegar ennþá möguleiki eftir nokkuð góða helgi í ensku deildinni. Chelsea og Aston Villa töpuðu stigum á meðan Liverpool vann góðan sigur á Fulham. Spáum aðeins í stöðuna í deildinni almennt enda áhugaverð staða á flestum vígsstöðvum. Bræðslan 2026 – Gjafaleikur Áskell Heiðar Bræðslustjóri var með okkur að þessu sinni en þeir bræður eru einmitt að fara hefja sölu miða á Bræðsluna 2026 og kynntu byrjunarliðið á Bræðslunni í dag. Sjá nánar hér Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og af þessu tilefni hlöðum við í gjafaleik og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár. Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu eða þessa færslu á Facebook síðu Kop.is og hafa netfang með. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og Áskell Heiðar Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf -
Gullkastið – Allt Undir 07.04.2026 1ชม. 1นาทีFrammistaða Liverpool um helgina var í beinu framhaldi af tímabilinu í heild og því lá við að skoða hvað væri raunverulega í boði á þjálfaramarkaðnum í sumar. Hvaða nöfn eru þetta sem eru efst hjá veðbönkum og er hægt að máta þá stjóra við Liverpool? Verkefni þessarar viku ráða svo líklega úrslitum um þetta tímabil og jafnvel næsta tímabil líka. Ef að Liverpool liðið ætlar að sýna eitthvað baráttuþrek og hjarta í vetur þá þetta tímapunkturinn til að byrja. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf -
Gullkastið – Sumarið Er Tíminn 02.04.2026 58นาทีHvað gerir Liverpool í sumar? Það þarf að fylla fleiri stór skörð en bara það sem Mo Salah skilur eftir sig til að koma Liverpool aftur á rétta braut. Landsleikjapásunni er lokið og komið er að stórleik á útivelli í FA Cup. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
ยอดนิยมใน
พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย