Bíddu Bara

Bíddu Bara

Bíddu bara
ประเทศ ไอซ์แลนด์
ภาษา IS
จำนวนตอน 28
ล่าสุด 14.07.2026

Mömmuhópurinn þinn í eyrunum 🎧. Hlaðvarpið fjallar um lífið, foreldrahlutverkið og allt þar á milli með hlýju og húmor.

ตอน

  • Þriðji þriðjungur meðgöngu 14.07.2026 49นาที
    Lokum þessari seríu með lokakafla meðgöngunnar – þriðja þriðjungi🤰✨Margir myndu segja að þetta sé mest krefjandi tímabilið. Maginn er orðinn stór, svefninn oft stopull, orkustigið sveiflukennt og biðin eftir litla krílinu getur verið löng. Á sama tíma er spennan að ná hámarki og undirbúningurinn fyrir fæðingu og nýtt hlutverk í fullum gangi.
  • Annar þriðjungur meðgöngu 07.07.2026 50นาที
    Annar þáttur af þremur í seríunni okkar um meðgönguna. Í þessum þætti förum við yfir annan þriðjung meðgöngunnar, tímabil sem oft er kallað „hveitibrauðsdagarnir“. Við ræðum hvað einkennir þessa mánuði, breytingarnar sem eiga sér stað og deilum okkar eigin reynslu á leiðinni💛
  • Fyrsti þriðjungur meðgöngu 30.06.2026 56นาที
    Í þessum þætti förum við yfir fyrsta þriðjung meðgöngunnar, frá því augnabliki sem maður fær já á prófi yfir í fyrstu vikurnar af ógleði, þreytu og alls konar tilfinningum.
  • Terrible twos og mömmubugun 23.06.2026 1ชม. 5นาที
    Yapp session þáttur, fórum yfir lífið og einhvernegin erum við báðar að díla við terrible twos á byrjunarstigi. Smá reality check líka um bugun og hversu erfitt það getur verið að pússla lífinu þegar maður er með ung börn.
  • Sumarfrí með börnum 16.06.2026 40นาที
    Nú styttist í hið hefðbundna sumarfrí með börnunum☀️Í þessum létta sumarþætti spjöllum við um sumarið framundan, rifjum upp okkar uppáhalds æskuminningar og deilum hugmyndum af hlutum til að gera með börnunum í sumar.
  • Pabbaspjall - Heimir Daði 09.06.2026 1ชม. 50นาที
    Þá er komið að næsta pabbaspjalli!Heimir Daði er 32 ára þriggja barna faðir úr Grindavík. Hann eignaðist sitt fyrsta barn aðeins 17 ára gamall og fer hreinskilnislega yfir hvernig það er að stíga svona ungur inn í foreldrahlutverkið.Í þættinum deilir hann einnig reynslu sinni af erfiðum áföllum, þar á meðal foreldramissi.
  • Elínborg - unga fólkið okkar 02.06.2026 1ชม. 23นาที
    Elínborg Ingvarsdóttir er tómstunda- og forvarnarfulltrúi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún brennur fyrir málefnum barna og unglinga og hefur víðtæka reynslu, meðal annars sem forstöðumaður félagsmiðstöðvar og umsjónarmaður ungmennaráðs í Grindavík.Við fengum Elínborgu til okkar í spjall þar sem fókusinn er á ungt fólk – enda verða börnin okkar eldri og þá taka við nýjar áskoranir. Þetta var virkilega áhugavert og fræðandi samtal sem gaf okkur margt til að hugsa um fyrir unglingsárin.Það er svo mikilvægt að hlúa vel að þessum hópi og tryggja að honum standi til boða faglegt og uppbyggjandi starf í frístunda- og tómstundamálum.
  • Hafdís - ósýnilegir sjúkdómar 26.05.2026 1ชม. 49นาที
    Hafdís Houmøller Einarsdóttir kom til okkar í spjall og segir okkur frá sinni reynslu af því að lifa með ósýnilegum sjúkdómum. Hún ræðir fordóma og skilningsleysi sem oft fylgir, en líka ákvörðunina að verða mamma þrátt fyrir áskoranir lífsins. Meðal sjúkdóma sem hún er með eru endómetríósa, vefjagigt og mígreni.
  • Að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlof 19.05.2026 58นาที
    Ræðum um það hvernig það er að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlof. Hvernig þetta er á sama tíma erfitt en líka svo frelsandi!
  • Mömmuþáttur 12.05.2026 1ชม. 1นาที
    Við settumst niður á mæðradaginn sjálfan og spjölluðum um móðurhlutverkið í allri sinni dýrð 💛Ræðum allt frá því hvað okkur finnst best/erfiðast við móðurhlutverkið, hvað breyttist mest þegar við urðum mömmur og allskonar mömmuspjall. Dass af ranti líka um nýjast útspil heilbrigðisráðherra!
  • Ofbeldi í nánum samböndum 05.05.2026 1ชม. 35นาที
    Trigger warning: Í þessum þætti er rætt um heimilisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum. Jenný Kristínu Valberg, mamma og starfandi teymisstjóri Bjarkahlíðar ræðir við okkur um ofbeldi í nánum samböndum. Sláandi tölfræði sýnir að um 20 prósent íslenskra mæðra eru beittar ofbeldi á meðgöngu, sem undirstrikar hversu mikilvægt er að tala opinskátt um þessi mál.Jenný, sem hefur mikla reynslu af málaflokknum, fræðir um birtingamyndir heimilisofbeldis, rauð flögg í upphafi sambanda og hvert hægt er að leita eftir hjálp og stuðningi.
  • Aðskilnaðarkvíði 28.04.2026 55นาที
    Í þessum þætti tölum við um aðskilnaðarkvíða, bæði hjá okkur foreldrunum og börnunum. Hvort sem það er í fyrsta skipti sem barnið fer í pössun, næturpössun, til dagmömmu eða byrjar í leikskóla, þá fylgja oft alls konar tilfinningar.
  • Fæðingarsaga Helgu Dísar 21.04.2026 1ชม. 31นาที
    Helga Dís deilir reynslu sinni af erfiðri fæðingu og þeim áhrifum sem hún hafði á fyrstu mánuðina. Hún ræðir bæði andlega og líkamlega vanlíðan og þá áskorun sem fylgdi því að stíga inn í móðurhlutverkið við þær aðstæður ❤️‍🩹
  • Guðrún Sortveit - finna stílinn eftir meðgöngu ✨ 14.04.2026 1ชม. 29นาที
    Guðrún Sortveit áhrifavaldur kom til okkar í spjall um mömmulífið og hvernig það er að finna sig og stílinn sinn aftur eftir meðgöngu og orlof.
  • Fæðingarsögur Ásdísar 07.04.2026 1ชม. 35นาที
    Í þessum þætti segir Ásdís frá sínum tveimur meðgöngum og fæðingum. Við deilum líka fréttum tengdum hlaðvarpinu 💬✨
  • Páskaþáttur 🐰 31.03.2026 54นาที
    Má borða páskaegg fyrir páska? förum yfir páskahátíðina - hefðir og venjur. Léttur og góður þáttur fyrir fríið.
  • María Ellen - ófrjósemi 24.03.2026 2ชม. 6นาที
    María Ellen kom í heimsókn til okkar og deildi sinni persónulegu og heiðarlegu sögu af ófrjósemi. Það gekk ekki áfallalaust fyrir hana að verða ólétt og hún ræðir opinskátt um sína reynslu.
  • Eyrún Ösp - Krabbameinsgreining eftir fæðingu 17.03.2026 1ชม. 31นาที
    Eyrún Ösp greindist með þriðja stigs krabbamein í leghálsi þegar hún fæddi þriðja barnið sitt. Hún deilir ótrúlegri baráttu sinni og fjölskyldunnar á krefjandi tíma, en skömmu síðar varð rýming í Grindavík þar sem þau bjuggu.
  • Fanney Dóra - Baby Led Weaning 🥑 10.03.2026 1ชม. 36นาที
    Fanney Dóra, mamma og áhrifavaldur kemur til okkar að spjalla um spennandi og stressandi tímann þegar maður byrjar að gefa barninu sínu að borða.
  • Babyshower & skírnarveislur 03.03.2026 1ชม. 31นาที
    Í þessum þætti tölum við um allt sem tengist babyshower og skírnar/nafna-veislum. Förum yfir undirbúninginn, vafaatriði, hugmyndir að gjöfum, veitingar og fleira. Léttur og skemmtilegur þáttur fullur af praktískum ráðum og svörum við algengum spurningum!

ยอดนิยมใน

พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย