EKKI AUMINGI
Eva Matta
0
Eva Matta endurrammar umræðuna um endurhæfingu og kulnun. Af hverju er svona erfitt að hægja á, án þess að líða eins og aumingja?
ตอน
-
S1E1 - Lóan er komin að segja mér að vera ekki aumingi 05.05.2026 1ชม. 14นาทีFyrsti þáttur í fyrstu seríu! Þetta podcast er tilraun Evu til þess að endurramma orðræðuna um hvíld, endurhæfingu og allt sem fylgir. Hún fer yfir hvers vegna í ósköpunum henni datt í hug að henda í þetta podcast og að sjálfsögðu þurfum við að ræða þessa aumingjahræðslu okkar... TAKK FYRIR AÐ VERA MEÐ: LYFJA, NORDAID, SAN PELLEGRINO & BATI.APP <3
-
S1E2 - "Ekki ganga yfir Vatnajökul einn" - Matti Osvald 12.05.2026 1ชม. 30นาทีKæri hlustandi það er komið að fyrsta viðmælanda þessa ágæta hlaðvarps.. og fyrst ég er að vanda mig að halda taugakerfinu rólegu í endurhæfingunni þá var best að fá hann pabba minn bara með mér í fyrsta þátt. Hann er engum líkur, fagmaður í því að koma fólki í gegnum krefjandi tímabil, Matti Osvald gjöriðisvovel!
-
S1E3 - "Hvað er líkaminn að reyna að segja þér?" - Hólmfríður sjúkraþjálfari 19.05.2026 1ชม. 20นาทีHólmfríður B. Þorsteinsdóttir eða Hófí eins og við þekkjum hana mörg, er sjúkraþjálfari sem ég fór til í minni endurhæfingu, og það breytti öllu. Hófí starfar hjá Verkjalausnum og er önnur stofnenda Stoðkerfis- og heilsuskóla Hólmfríðar og Þórhöllu, ásamt allskonar öðrum áhugaverðum úrræðum fyrir fólk í leit af lausnum fyrir líkamann. Þetta er fagkona sem þú vilt hlusta á. Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid spreyvítamína, Bati.app og San Pellegrino - TAKK
-
S1E4 - Er baðið að sjóða þig lifandi? 26.05.2026 1ชม.Hvað einkenndi langlífustu konu heims? Skammar þú þig einhverntíman? Ertu að bíða eftir að einhver sjái þig? Hvað er temmilegt hitastig á baði? Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid spreyvítamína, San Pellegrino og Bati.app - TAKK
-
S1E5 - "Ég er ekki lengur með áfallastreituröskun" - Svava Brooks 02.06.2026 1ชม. 14นาทีSvava Brooks er er mögnuð kona, TRE® leiðbeinandi og ein af stofnendum samtakanna Blátt áfram. Hún hefur áratuga reynslu af því að styðja fólk á batavegi eftir áföll og erfiðleika. Ég er vægast sagt þakklát fyrir að hafa tekið þetta spjall við Svövu og þú verður eiginlega að heyra þetta. Í þættinum ræðum við meðal annars TRE® (Tension & Trauma Releasing Exercises), aðferð sem hjálpar líkamanum að losa um uppsafnaða spennu, streitu og áföll, og Svava deilir sinni innsýn í tengsl áfalla, taugakerfisins og bataferlisins, og hvernig hægt er að finna leiðina aftur til sín með mildi, öryggi og sjálfsást.
ยอดนิยมใน
พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย