Spekingar Spjalla
Podcaststöðin
0
Spekingar Spjalla er íslenskur podcastþáttur þar sem rætt er við fólk og fjallað um fólk, lífshætti og mannlega reynslu. Þátturinn fjallar um samskipti, sögur og sjónarhorn sem tengjast daglegu lífi og samfélagi. Gestir koma úr ýmsum áttum og deila sögum sínum og hugleiðingum. Markmiðið er að bjóða hlustendum inn í samtöl sem varpa ljósi á margbreytileika mannlífsins.
ตอน
-
286. Skírdags sprell 17.04.2025 1ชม. 28นาทีPáskagír í strákunum. Yfirferð á páskaeggjum, Topp 3 uppáhalds frídagarnir, Gull Lite Testið með páskaívafi og dagskrá Spekinga yfir hátíðirnar.Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
285. Allt er fertugum fært 09.04.2025 1ชม. 23นาทีFullur bátur tjútjú. Spekingar fóru yfir stóru málin. Slúður, Geymt en ekki gleymt, Hvenær Dó Hann, Kvikmyndaskorið og Helgin.Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
284. Spekingar fara yfir staðreyndir 26.03.2025 1ชม. 22นาทีSpekingar fara yfir mál líðandi stundar. Slúðrið er á sínum stað, nú í boði gervigreindar. Staðreyndir um manneskjuna og að sjálfsögðu er farið vel yfir vikuna.Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
283. Mars er mánuðurinn hans Matta 12.03.2025 1ชม. 26นาทีÉg hef aldrei skilið fólk sem fílar Mars enda Snickers maður sjálfur. Kóngurinn Matthías Óskarsson er þó mars-barn og gladdi heiminn með fæðingu sinni þann 16. mars 1983. Þökkum guði og lukku fyrir það.Efnisliðir þáttarins: Geymt en ekki gleymt, Hvenær dó hann/hún/hán er nýr og ferskur og Kvikmyndaskorið.Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
282. Þökkum guði hvað febrúar er stuttur 27.02.2025 1ชม. 6นาทีVitringarnir þrír mættir í hljóðver. Fórum yfir ýmislegt gagnlegt fyrir hlustendur. Slúður, Snælduvitlausar Staðreyndir um hina heilögu bók og Kvikmyndaskorið. Fleira var það ekki að sinni.Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
281. Febrúar Fjör 19.02.2025 1ชม. 49นาทีAllir landvættirnir mættir í dag. Slúður, Fjársjóðurinn var gull, Topp 3, Umræðan er nýr liður og Helgin framundan. Matti mætti með tollinn.Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
280. JútjúbJón snýr aftur 13.02.2025 1ชม. 54นาทีJútjúbJón mætir loksins aftur eftir jólafrí og kemur inn fyrir Matta sem þurfti að bregða sér af landinu. Fórum yfir það helsta undanfarið, Kendrick Lamar Slúður, Umhverfishorn Jóns, PottCastið og Myndir´ðu Fyrir Smá Aur. Þéttur pakki að vanda.Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
279. Rauð skemmtiviðvörun 05.02.2025 1ชม. 34นาทีVeðrið hefur aldrei stoppað Spekinga. Skelltum í eina upptöku á milli utanlandsferða Matta. Pólítík, verkföll og almennt stuð í upphafi þáttar. Slúðrið, Kvikmyndaskorið og Helgin. Allt saman uppskriftin hennar ömmu. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
278. Nýtt ár og nýtt stórmót 23.01.2025 1ชม. 45นาทีStrákarnir okkar heldur betur að standa sig stóra sviðinu á HM. Fórum yfir sigurinn gegn Egyptum og miklu fleira. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
277. Jólaskraut og önnur mál 20.12.2024 1ชม. 51นาทีTitringur á meðal Spekinga í aðdraganda jóla. Ætluðum í fasta liði en við komumst ekki í þá. Jólastuff og nærbuxur til umræðu. Allt saman eyrnakonfekt í eyrum þeirra sem vilja njóta.Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
276. Catalina - Gimsteinn í hjarta Kópavogs 12.12.2024 1ชม. 36นาทีStór helgi að baki hjá Spekingum. Slúðrið á sínum stað, TayTay véfréttin , Myndir Þú Fyrir Smá Aur, Kæjinn og Hver Er Maðurinn. Loks helgarplönin framundan. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
275. Annar í aðventu framundan 05.12.2024 1ชม. 30นาทีFull lestað í dag choo-choo! Almennar umræður, SlúSlú, rætinn Tilfinningaskali og Meiða eða Leiða Valkyrjuspecial, allt í boði Alþingis. Spekingar eru í boði GULL LITE og taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
274. Betriborgara klippur 28.11.2024 55นาทีSkammdegið siglir hraðbyri til landsins og Spekingar fara ekki varhluta af því. Það er ekki bara möndulhalli jarðar sem fælir Spekinga frá upptökum heldur eru 3/4 Spekinga bara obboslega uppteknir við að fá sér nú þegar aðventan er að ganga í garð. En Sæþór stendur vaktina og gefur ykkur vikulega skammtinn sem þið eigið skilið. #101 Jólabjór með Atla Þór Albertssyni - Hver er besta eftirherma landsins eftir þriggja tíma+ jólabjórssmakk? Atli fudging Albertsson - Nóvember 2020 #113 Valgeir Magnússon - Þegar Hollywood fékk Hausverk og þá sérstaklega um Helgar - Apríl 2021 #99 Eva Ruza & Hjálmar Örn - Þau eru einfaldlega alltaf best - September 2020 #78 Örn Árnason - Það á enginn núlifandi roð í Eagle Árnason - Apríl 2020 Glöggir hlustendur átta sig á því að það eru 2 dagar til kosninga en ritstjórn tók ákvörðun um að spila ekki brot úr þáttum stjórnmálafólks sem komið hafa til Spekinga. Spekingar hvetja öll til að mæta á kjörstað og fylgja eigin sannfæringu. Spekingar eru í boði GULL LITE og taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
273. Eldgosa þáttur 21.11.2024 1ชม. 43นาทีÞað er enginn tilviljun að það fór að gjósa á sama tíma og Spekingar luku upptökum enda eldvirkur þáttur. Eldfimt Slúður, Hvort Myndir Þú Heldur, Myndir Þú Fyrir Smá Aur og Kvikmyndaskorið á sínum stað. Spekingar eru í boði GULL LITE og taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
272. Ljúfir, kátir og í besta falli léttir 15.11.2024 1ชม. 43นาทีSpekingar eru alltaf ljúfir og kátir en varla léttir, í líkamlegri skilgreiningu þess orðs. Svefn & heilsa (ekki auglýsing) í fyrirrúmi með þar sem Sæþór er farinn að sofa eins og sjálfur Gabríel engill guðs. Hver er Maðurinn, nýr liður frá Matta og Vafflan ekki upp á sitt besta í þetta skipti. Allt þetta og meira til. Spekingar eru í boði GULL LITE og taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar. -
271. Nóvember hnossgæti 08.11.2024 1ชม. 26นาทีKalt er það Klara en veðrið hefur ekki áhrif á Spekinga enda hlýtt í studíói Podcaststöðvarinnar. Við komumst ekki hjá því að ræða aðeins forsetakosningar í BNA, Snældu-vitlausar Staðreyndir, Hvort Myndir þú Heldur og flugvéla Kvikmyndaskor. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar og eru í boði GULL LITE -
270. Spekingar after dark 31.10.2024 1ชม. 53นาทีEftir gyllta mola í síðustu viku er tímabært fyrir Spekinga að snúa aftur í stúdíó, þó í misjöfnu ástandi. TayTay Hornið lét heldur betur vita af sér, PottCastið leiðbeindi hlustendum í vali á eldhúsáhöldum, Hver er maðurinn siðlaus að vanda og GULL LITE Testið gulls ígildi. Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar og eru í boði GULL LITE -
269. Oldies but goldies 26.10.2024 53นาทีSpekingar eins og aðrir eru að vinna í sjálfum sér um þessar mundir. En örvæntið ei, þáttur þessa vikuna fer með okkur á gamlar og góðar slóðir. Eva Ruza (Júní 2019) - Tvíburar og konungborið fólk Heiðar Logi (Apríl 2019) - Lífsháski og föðurmissir Siggi Gunnars (Ágúst 2019) - Skápurinn, Bretland og Spánn/Tenerife Logi Bergmann (Nóvember 2018) - Stjórnmálafræði og handbók hrekkjalómsins Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar og eru í boði GULL LITE -
268. Yes We Can 17.10.2024 1ชม. 9นาทีVetur konungur færist nær en það er hlýtt í hjörtum Spekinga. Meiða eða Leiða, Topp 3, Frægar Línur og Gumma Emils Hornið. Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite. -
267. Armageddon 09.10.2024 1ชม. 52นาทีBæng! Eftir óvænt frí í síðustu viku eru Spekingar mættir til starfa. Vikan viðburðarrík, Gull Lite Testið Yellowstone edition, Frægar stórslysamynda Línur og október Kvikmyndaskor. Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite.
ยอดนิยมใน
พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย