Flekaskil
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson
0
Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri ræða flekaskil í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur. Þau fjalla um hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands í öryggis- og varnarmálum, samskiptum við bandalagsríki, Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.
Епізоди
-
Flekaskil 23. þáttur - Bjarni Már Magnússon - Örlagatímar í alþjóðamálum 14.09.2026 1год 20хвSímtal Bjarna Ben og Trump. Viðaukinn við varnarsamninginn sem aldrei var kynntur Alþingi. Það var komið víða við í samtali Dags B. og Bjarna Más Magnússonar lögmanni og fyrrverandi prófessors. Erum við að afsala okkur fullveldi án þess að ræða það? Og erum við að horfa á uppnám í aldagömlum reglum um hafrétt og siglingarfrelsi. Hvaða áhrif hefur það á heimili og fyrirtæki á Íslandi. -
Flekaskil 22. þáttur - Ingólfur Bjarni Sigfússon 07.09.2026 1год 13хвÍslendingar halda að ástand heimsins komi þeim ekki við Ingólfur Bjarni fréttamaður er gestur Flekaskila þar sem komið er víða við. Um þjóðaratkvæðagreiðsluna og Evrópu, viðræður um frið í Úkraínu, fjölþáttaógnir, varnarsamninginn við Bandaríkin, leyndarhyggju og hvort hægt sé að treysta gömlum samningum í nýjum heimi, Trump og Pútin. -
Flekaskil - 21. þáttur - Pipaluk Lynge 31.08.2026 1год 6хвFlekaskil – halda áfram. Heimurinn á korteri og Grænland Flekaskil halda áfram þótt Þórdís Kolbrún stigi til hliðar sem stjórnandi. Pipaluk formaður utanríkis- og öryggisnefnd Grænlenska þingsins opnar hjarta sitt í einstöku viðtali um stöðuna í Grænlandi og það sem hefur gengið á. Þjóðaratkvæðagreiðslan, deilur Bandaríkjanna og Kanada, tilhugalíf Kanada og Evrópu, CIA forstjóri í Moskvu, skeytasendingar í Íran, eignarhald og olíugjafir til Trump í Venesúela og fjölmargt fleira er umfjöllunarefni í „Heimurinn á korteri“ – yfirliti yfir það fjölmarga sem gengið hefur á undanfarna daga á meðan Ísland var undirlagt af Evrópu-umræðunni. -
Flekaskil - 20. þáttur - Þáttaskil, viðskiptastríð og Evrópa 25.08.2026 1год 19хвVið ræðum viðskiptastríð sem braust út milli Bandaríkjanna og Kanada, kröfur Trump sem ganga á fullveldi og spurningalista Bandaríkjanna til NATO-ríkja. Við berum orðræðuna saman við Grænlandsmálið og ræðum Evrópumálin í þessu ljósi. Þá tilkynnir Þórdís Kolbrún um þáttaskil í þáttöku sinni í Flekaskilum. -
Flekaskil - 19. þáttur - Titringur milli Trump og bandamanna og Evrópu-umræðan 18.08.2026 1год 28хвÞegar 60 daga tímamörk vopnahlés í Íran liði í morgun, virðist langt í samninga. Titringur er milli Trump og bandamanna í Evrópu, í Mið-Austurlöndum, Asíu og Kyrrahafi. Við ræðum málefnalegar greinar fyrir já og nei og óvissu um framtíð EES-samningsins. -
Flekaskil - 18. þáttur - Bandarísk olíuleit í óleyfi við Grænland - afleiðingar Íran-stríðsins og atburðirnir við Ceuta 10.08.2026 57хвBandarískt olíufyrirtæki gerir sig líktlegt til að hefja olíuleit í lögsögu Grænlands, án leyfa og gegn mótmælum landstjórnarinnar. Við fjöllum um kenningar og skýringar á því að tugþúsundir lögðust til sunds að ströndum spænska hluta Marókkó, Ceuta, sem olli pólitískum skjálfta í Evrópu og var kallað innrás í Evrópu. Afleiðingar og staða Íran-stríðsins, Gaza, yfirgripsmiklar árásir sem við köllum sjaldan það heldur fjölþáttaógnir eru að verða hluti af daglegum fréttum og veruleika. Einnig ræðum við grein Economist um þjóðaratkvæðgreiðsluna um hvort Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. -
Flekaskil - 17. þáttur - Kettir, hattar, loftslagsmál, Gaza, bresk stjórnmál og verðugir bandamenn 03.08.2026 1год 25хвÞórdís Kolbrún verður sendiherra - hvað verður um köttinn? Við fjöllum um hatta og hattakaup og hvað sendiherrastaða útheimtir. Yfirlýsingar Mandami borgarstjóra New York og Andy Burnham fyrrum borgarstjóra Manchester og nýs forsætisráðherra Bretlands um Gaza. Nýtt álit um stöðu lofstslagsskuldbindinga skv. alþjóðalögum og fjölda greina um hvað það þýðir að vera verðugur bandamaður, sem birtist í timariti Vörðu - og muninum á stjórnmálum og pólitík. -
Flekaskil - 16. þáttur - Kristrún í Rest is Politics og Þórdís Kolbrún í Skálholti 28.07.2026 1годÍ sextánda þætti Flekaskila - og þeim síðasta áður en Þórdís Kolbrún verður formlega sendiherra í London tölum við um glænýtt viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í uppáhalds hlaðvarpinu okkar Rest is Politics. Dagur nýtir sé aðstöðuna til að ræða við Þórdísi um hátíðarræðu hennar á Skálholtshátíð þar sem alþjóðamálin, Evrópuumræðan og staða Íslands var í brennidepli. Hin ótrúlega og alvarlega staða í Íran er áfram á dagskrá og eins og gjarnan er komið víða við - á þessu sinni á sólbökuðu Óðinstorg. Rest is politics þáttur með Kristrúnu: https://www.youtube.com/watch?v=dbRCjtCw4LM Skálholtsræða Þórdísar: https://thordiskolbrun.is/hatidarraeda-a-skalholtshatid/ -
Flekaskil - 15. þáttur 20.07.2026 50хвVið rifjum upp lítt þekkta greningu Ásgeirs Jónssonar Seðlabankastjóra frá 2014 um hver áhrifin af upptök evru í stað krónu yrðu. Sú umfjöllun var í jafnvægi en niðurstaðan engu að síður skýr. Við tölum um sögu íslensku krónunnar, gjaldmiðlasamstarf Íslands í gengum tíðina - og veltum vöngum yfir Evrópuumræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald viðræðna við Evrópusambandið. -
Flekaskil - 14. þáttur 14.07.2026 1год 5хвHeimurinn er breyttur og mikilvægt er að samfélagið horfist í augu við það og stjórnmálin taki mið af því. Í nýjum þætti Flekaskila ræðum við um eftirköst NATO-fundarins, fjöllum um nýjar afhjúpanir WSJ um rofið milli Bandaríkjanna, Evrópu og Kanda. Ræðum skrif Baldurs Þórhallssonar prófessors í stjórnmálafræði og fyrrum forsetaframbjóðanda þar sem hann varar íslensk stjórnvöld við værukærð í garð breyttrar stöðu og mikilvægi þess að uppfæra mat á ógnum gagnvart fullveldi Íslands í víðu samhengi. Hann bendir á þann súrrealíska veruleika "að danski forsætisráðherrann þurfi að lýsa því yfir að Danir séu tilbúnir að verja konungsríkið reyni Bandaríkin - sem hafa hingað til verið helsti bandamaður þeirra - að hernema Grænland." Þetta og fjölmargt fleira er á dagskrá í þessum fjórtánda þætti. -
Flekaskil - 13. þáttur 08.07.2026 54хвVið förum yfir helstu fréttir af leiðtogafundi NATO í Ankara sem lauk í dag, alvarlegar yfirlýsingar Trump um Grænland sem hann ætlar sér enn að eignast.Þungi Evrópu og Kanada innan bandalagsins eykst og Spánn virðist mega búast við efnahagslegum þrýstingi frá Bandaríkjunum ef marka má orð forsetans. Vægi alþjóðalaga er áfram umræðuefni en nú eru heilagar reglur fótboltans brotnar líka.Brothætt staða Íran og Bandaríkjanna versnar á nýjan leik og samantekt á fjölþáttaógnum og árásum Rússa varpar óhugnanlegu ljósi á stöðuna.Frétt í New Yorker: https://www.newyorker.com/magazine/2026/06/22/inside-the-ludicrous-deadly-serious-plan-to-take-over-greenland?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAc3J0YwZhcHBfaWQPNDM3NjI2MzE2OTczNzg4AAEeSlK-xp04wPxTRBCT2CXtbEbCVOei3GuaMJGPf3FmU-6djSDi5w2f5NFDsqA_aem_QeGzuROKcxamuDGwz4DvHQFrétt um Rússland: https://www.iiss.org/research-paper/2026/06/russias-uav-campaign-over-europe/?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAc3J0YwZhcHBfaWQPNDM3NjI2MzE2OTczNzg4AAEe92XIQiWZdNoVNVTyLp6bWBX-olvzJ5I4P9oAJ9DhdVuuVzMfac-5ASwMmM8_aem_zLwOT7YhJ69uCjOFN8WCaA -
Flekaskil - 12. þáttur 29.06.2026 1год 11хвNATO á Flekaskilum! Við tökum stöðuna innan NATO fyrir í Flekaskilum - þegar vika er til sögulegs leiðtogafundar samtakanna í Ankara. Við ræðum þróun mála síðasta eitt og hálfa árið - frá því Trump varð forseti Bandaríkjanna. Rifjum upp yfirlýsingar um NATO og einstök aðildarland. Greinum stöðuna í Íran, samkomulagið um vopnahlé og áhrif átakanna á heiminn, hagkerfið, Íran og ekki síður Bandaríkin. -
Flekaskil - 11. þáttur 22.06.2026 58хвÍ ellefta þætti flekaskila veitir Þórdís Kolbrún innsýn í borðæfingu sem hún tók þátt í, ECFR Double Crisis Wargame, í París ásamt 45 reynslumiklum og háttsettum evróskum leiðtogum úr pólitík, stjórnsýslu og hernaðartengdum málum þar sem spjótin stóðu á Dönum og Grænlandi, - og Íslandi. Það að setja á svið atburðarrás vekur fjölda spurning um hvað dugir í alþjóðasamskiptum og bandalögum þegar til kastanna kemur. Flekaskil eru aðgengileg á öllum helstu hlaðvarpsveitum. -
Flekaskil - 10. þáttur 15.06.2026 52хвAfleiðingarnar af opnu bréfi Zelenzkys. Trump vildi Iran-samning og slagsmál í afmælisgjöf. Norrænir fjölmiðlar afhjúpa gríðarlega uppbyggingu Rússa við landamæri Noregs, Finnlands og Eystrasaltsríkjanna. Og glænýr íslensk skýrsla um hættuna af drónum. Höfum við verið sofandi?Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson Tónlist: Halldór Eldjárn -
Flekaskil - 9. þáttur 08.06.2026 1год 4хвOpið bréf Zelenskís til Pútin.Þórdís Kolbrún ræðir framgöngu Trump Bandaríkjaforseta. Við tölum um stórmerkilegt páfabréf um gervigreind, ofurvald gervigreindarfyrirtækja og fasisma, svo fátt eitt sé nefnt.Flekaskil eru aðgengileg á öllum helstu hlaðvarpsveitum. -
Flekaskil - 8. þáttur 01.06.2026 56хвTuttugu heilræði gegn harðstjórn, Evrópa, smávaxinn kona sem stendur gegn ásælni stórveldis, að vera niðri fyrir um stöðu heimsmála og fleira og fleira í áttunda þætti Flekaskila.Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn HjartarsonTónlist: Halldór Eldjárn -
Flekaskil - 7. þáttur 25.05.2026 44хвÞað hitnaði í kolunum í Flekaskilum! Fjallað er um heimsókn Trump til Kína, ójöfnuð og ofurvald tækirisa. Ummæli Ólafs Ragnars um Evrópu og Bandaríkin. Þá spurningu hvort meiri hagsæld sé í Bandaríkjunum en Evrópu og fleira og fleira. -
Flekaskil - 6. þáttur 18.05.2026 54хвDagur B. Eggertsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ræða um stöðu Úkraínu. -
Flekaskil - 5. þáttur 11.05.2026 49хвVarnarsamningur Ísland og Bandaríkjanna átti 75 ára afmæli í vikunni. Höfum við tekið vörnum okkar, friði og skipulagi alþjóðakerfisins sem gefnu? Hvers vegna olli varnarsamningurinn svo miklum deilum og klofningi í samfélaginu og hvernig stendur hann í dag, nú þegar allir flokkar á Alþingi styðja hann og aðildina að NATO? Með samningnum hófst nýr kafli í sögu Íslands þar sem alþjóðamál, stórveldapólitík og íslensk fullveldisumræða fléttuðust saman á áður óþekktan hátt. Áhrif varnarsamningsins hafa verið pólitísk, efnahagsleg og samfélagsleg. Hann hefur kallað fram sterkar skoðanir um sjálfstæði Íslands, hervæðingu og stöðu landsins í alþjóðakerfinu. Hvaða áhrif hafa breytt Bandaríki á stöðu hans og okkar? -
Flekaskil - 4. þáttur 04.05.2026 48хвLeiðir Íran-stríðið til heimskreppu?Innrás Bandaríkjanna og Ísrael á Íran hefur alls ekki farið eins og Bandaríkjaforseti hafði væntingar til. Trump hefur brugðist hart við gagnrýni evrópskra bandamanna á stríðið og hefur lýst því yfir að 5.000 hermenn verði fluttir frá Þýskalandi. Gengið hefur á vopnabúr og hátækni loftvarnir bæði Bandaríkjamanna og samstarfsríkja þeirra við botn Miðjarðarhafs. Fjallað er um stöðuna í stríðinu og afleiðingar þess frá mörgum hliðum í þessum fjórða þætti Flekaskila.Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trump og Evrópu.
Популярний у
Цей подкаст також потрапляв у чарти подкастів у цих країнах.