Marta María býður heim

Marta María býður heim

Marta María Winkel
Країна Ісландія
Мова IS
Епізодів 13
Останній 14.09.2026

Marta María býður heim er hlaðvarp þar sem þáttastjórnandi tekur á móti áhugaverðu fólki sem hefur markað spor. Hver þáttur býður upp á samtöl við gesti sem deila sögum sínum og reynslu. Þátturinn er á íslensku og er framleiddur á Íslandi.

Епізоди

  • 27. Anna Margrét Björnsson: Það þótti ekki fínt að berast á 14.09.2026 1год 10хв
    Anna Margrét Björnsson, blaðamaður og upplýsingafulltrúi í Franska sendiráðinu, hefur lengi haft sterkan og persónulegan fatastíl. Svartur hefur alltaf verið í uppáhaldi, ásamt eyeliner og stöku hlébarðamunstri. Langafi hennar var Sveinn Björnsson, fyrsti forseti lýðveldisins, og í þættinum ræðum við meðal annars hvort það hafi haft einhver áhrif á uppvöxt hennar - eða alls engin. Faðir Önnu Margrétar starfaði í utanríkisþjónustunni og var sendiherra um tíma. Hún ólst að hluta til upp í Bretlandi og segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Íslands. Í þættinum tölum við um fatastíl og tísku, París og London, skinkuvæðinguna og mannasiði Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofans og Mathilda í Smáralind, Kringlunni og mathilda.is.
  • 26. Kristín Agnarsdóttir: Allar góðu ákvarðanirnar 07.09.2026 1год 55хв
    Kristín Agnarsdóttir grafískur hönnuður býr í Lundúnum. Hún er á kafi inni í framtíðartækni og notaði tæknina til að eignast tvo drengi. Svo notaði hún gervigreindina til þess að skilja við barnsföður sinn. Þegar Kristín sagði föður sínum að hún væri að fara að mæta í þennan þátt þá hló hann upphátt og sagði: „Ætlar þú að ræða allar góðu ákvarðanirnar sem þú hefur tekið á lífsleiðinni" og spurði svo hvort þetta væri heil sería. Í þættinum ætlum við að ræða ástir og örlög, tækni og tísku og fara yfir það hvað er dýrmætt að eiga góðar vinkonur. Þessi þáttur er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofanum og Mathilda í Kringlunni og Smáralind.
  • 25. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson: Ég er í ástarsambandi með sjálfum mér 31.08.2026 1год 28хв
    Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður er félagslegur einfari sem líður best með sjálfum sér. Hann er einn af þessum mönnum sem tekið er eftir og fer alltaf sínar leiðir hvort sem það er í klæðaburði, lífsstíl eða vinnu. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, gaddavírs peysur, fyrirsætuferilinn, Reykholtsmálið og ástina. Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind og Blue Lagoon Skin Science.  
  • 24. Sigurlín Ívarsdóttir: Útrásar árin ógnuðu fjölskyldulífinu 24.08.2026 2год 12хв
    Sigurlín Ívarsdóttir prestur og fjölskylduráðgjafi hefur átt litríka tilveru. Hún var prestur í Bresku biskupakirkjunni í Lundúnum á árunum fyrir hrun þegar eiginmaður hennar starfaði hjá Kaupþingi. Hún segir að útrásárárin hafi einkennst af sukki og ógnað hennar fjölskyldulífi. Í þættinum ræðir Marta María við Sigurlín um lífshlaup hennar, áfallavinnu, tísku og hvað það skipti miklu máli að horfa á raunveruleikann eins og hann er. Og geta svo hlegið að öllu saman og haft gaman. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind. 
  • 23. Hrund Gunnsteinsdóttir: Ég er mjög æst í þetta líf 17.08.2026 1год 29хв
    Hrund Gunnsteinsdóttir höfundur InnSæi sagði upp draumastarfinu því hún var ekki að finna sig. Hún segist hafa farið allt of hratt upp metorðastigann sem leiddi til þess að heilsan brást. Við tók uppbyggingarferli sem varð að Prisma-námi sem sló í gegn. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, taugakerfið, InnSæi og hvernig það var að finna ástina í örmum Alfreðs Gíslasonar.   Þátturinn er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind. 
  • 22. Inga Dóra Guðmundsdóttir: Er með plan B ef allt fer á versta veg á Grænlandi 10.08.2026 1год 44хв
    Inga Dóra Guð­munds­dótt­ir framkvæmdastjóri hjá Air Greenland er hálf íslensk og hálf grænlensk. Hún fæddist á Íslandi en var á 13 ári þegar fjölskyldan flutti til Grænlands. Hún segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Qaqortoq og það hafi tekið tíma að aðlagast. Inga Dóra er ekkert blávatn og hefur gengt mörgum áhrifastöðum og tekið virkan þátt í pólitík. Hún var um tíma framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins. Í dag býr Inga Dóra í Nuuk ásamt fjölskyldu sinni. Í þættinum ætlum við að ræða lífshlaup Ingu Dóru og hvernig það sé að lifa í ótta við það sem gæti gerst ef Bandaríkin myndu yfirtaka Grænland. Þátturinn er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind. 
  • 21. Valgerður Halldórsdóttir: Stórt hús getur ekki bjargað ástarsamböndum 03.08.2026 1год 16хв
    Valgerður Halldórsdóttir félags- og fjölskylduráðgjafi er sérfræðingur í stjúptengslum. Hún fór að hafa áhuga á stjúptengslum þegar hún varð sjálf stjúpmóðir. Hún segir að það þýði ekki neitt að kaupa hús og setja alla undir sama þak og halda að allt muni ganga eins og í sögu. Fólk verði að kynnast og það þýði ekkert að halda bara matarboð. Fólk þurfi að kynnast maður á mann. Tilfinningin að tilheyra skiptir lykilatriði þegar fólk setur saman nýja fjölskyldu. Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
  • 20. Vilborg Guðnadóttir: Drifkraftur lífsins er að sjá aðra vaxa 27.07.2026 1год 38хв
    Vilborg Guðnadóttir geðhjúkrunarfræðingur var send í fóstur þegar hún var eins og hálfs árs því móður hennar fékk berkla. Hún flutti ekki aftur heim fyrr en hún var á sjöunda ári en þá var landslagið breytt. Hún byrjaði að safna sér fyrir íbúð þegar hún var 9 ára því hún upplifði að það væri engu að treysta. Þetta hafði mótandi áhrif og hefur Vilborg haft það að ævistarfi að hjálpa fjölskyldum í vanda. Í fyrra var hún sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þegar hringt var í hana frá forseta skrifstofunni hélt hún að forsetaembættið þyrfti handleiðslu og það hrökk upp úr henni hvers vegna það væri verið að verðlauna fólk fyrir að vinna vinnuna sína. En þannig er Vilborg. Hún er félagslegur einfari sem elskar að búa í blokk og með hjarta úr gulli. Þátturin er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bilasölu Bjössa, Hólshrauni 5.   
  • 19. Kamilla Einarsdóttir: Ég get fyrirgefið allt ef fólk er fyndið 20.07.2026 1год 46хв
    Rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir skrópaði sig úr út menntaskóla og fór að vinna á Vegas. Þegar hún var tvítug var hún búin að eignast tvö börn og voru blankheit slík að hún át vorrúllur í öll mál. Þegar Kamilla var þrítug bættist þriðja dóttirin í hópinn. Kamilla er einhleyp og sér ekki fyrir sér að fara í samband því umönnunarþörf hennar sé við frostmark. Í þættinum ræðir Kamilla lífshlaup sitt sem er ævintýralega spennandi og segir að það sé hægt að fyrirgefa fólki allt ef það sé fyndið. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab i Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5 í Hafnarfirði. 
  • 18. Ragna Árnadóttir: Sækir alltaf í erfiðustu verkefnin 13.07.2026 1год 38хв
    Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets er þrjóskukind með góðan fatastíl. Hún er lögfræðingur og stjórnsýslunörd sem hefur verið óhrædd við að taka afdrifaríkar ákvarðanir. Hún var dómsmálaráðherra í bankahruninu og upplifði mikinn ótta þegar mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan heimili hennar. Í þættinum ræðir Ragna um ástina sem hún fann á Tunglinu þegar hún hitti manninn sinn, sumarbústaðaeldhúsið, hvað hafi nýst henni best á framabrautinni og hvað henni líði hræðilega illa í ljótum fötum.  Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab i Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5 í Hafnarfirði. 
  • 17. Hildur Gunnlaugsdóttir: Fann ástina á Tinder og sló í gegn sem áhrifavaldur um fertugt 06.07.2026 1год 46хв
    Hildur Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri ASK arkitekta er praktískt í hugsun. Fyrir áratug fann hún ástina á Tinder þegar Hreiðar Leví Guðmundsson handboltastjarna súperlækaði hana. Í dag búa þau ásamt börnunum í fallegu raðhúsi í Hvassaleitinu. Hildur varð óvænt áhrifavaldur þegar hún ákvað að deila framkvæmdum á húsinu á Instagram. Hún er þessi fyndna og jákvæða týpa sem lætur fátt stoppa sig.  Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab i Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5 í Hafnarfirði. 
  • 16. Sigurjón Sighvatsson: Ég hef aldrei verið númer eitt 29.06.2026 2год 4хв
    Sigurjón Sighvatsson er einn fárra Íslendinga sem á að baki glæstan feril í Hollywood. Hann sló í gegn með Wild at Heart (1990) en hann var búinn að slá í gegn hérlendis þegar hann fór út í nám. Hann var í vinsælum hljómsveitum og lærði bókmenntafræði. Hann er einn af þeim sem er alltaf til í að taka aukahring til að ná meiri árangri. Við ræðum æskuna og hvernig það hafi verið að alast upp hjá einstæðri móður, tölum um sorgina sem hefur bankað upp á og stóru ástina sem hann fann snemma á lífsleiðinni. Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5. 
  • 15. Bryndís Hagan Torfadóttir: Stólpakona með hjartað á réttum stað 22.06.2026 1год 49хв
    Bryndís Hagan Torfadóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri SAS á Íslandi hefur átt litríkt lífshlaup. Hún hefur alltaf fylgt hjartanu sem hefur komið henni þangað sem hún ætlaði sér. Í þessum þætti förum við yfir æviskeiðið og hvað hún hafi lært en hún verður 80 ára á næsta ári. Bryndís fer yfir það hvað hefur gagnast henni best í lífinu og markmiðið hafi alltaf verið að gera sitt besta. Þessi þáttur er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
  • 14. Þorbjörg Hafsteinsdóttir: Ég vil ekki sjá eftir neinu 15.06.2026 1год 39хв
    Þorbjörg næringaþerapisti og hjúkrunarfræðingur hefur lifað margbrotnu lífi. Hún er alin upp af einstæðri móður en faðir hennar stimplaði sig út og kom lítið við sögu framan af. Þegar þau voru að kynnast upp á nýtt fórst hann í sjóslysi. Hún fann ástina í Danmörku en leiðir skildi og svo féll hann frá langt fyrir aldur fram. Þorbjörg lifir heilbrigðu lífi og vill eldast með reisn. Í þættinum ræðum við sorgir og sigra.  Þátturinn er í boði: Icelandair Blue Lagoon Skin Science SkincareLab í Smáralind Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5
  • 13. Margrét Hugrún: Sumir vaxa best utan girðingarinnar 08.06.2026 1год 30хв
    Margrét Hugrún Gústavsdóttir ólst upp hjá kornungri en sjálfstæðri móður á sjöunda áratug síðustu aldar. Þær fluttu víða sem olli því að hún þurfti að skipta oft um skóla en þannig sankaði hún að sér lífsreynslu og sjónarmiðum sem juku með henni bæði seiglu og sjálfsstæði. Á unglingsaldri urðu þýðingarmikil tengsl í lífi hennar þegar hún hitti föður sinn í fyrsta sinn en fljótlega eftir það var hún flutt til London. Margrét á mörg líf að baki. Hún sló eftirminnilega í gegn sem Mæja í kvikmyndinni Sódóma Reykjavík en í þættinum segir hún frá því hvernig það æxlaðist allt saman. Á dögunum útskrifaðist Margrét Hugrún með BA próf í mannfræði þar sem hún skrifaði lokaritgerð um stafræna mannfræði en í þættinum útskýrir hún meðal annars hvers vegna við ættum alls ekki að vera á félagsmiðlum eins og Facebook.   Þátturinn er í boði:  Icelandair  Blue Lagoon Skin Science  SkincareLab í Smáralind  Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5
  • 12. Sasa: Það segir mér enginn hvað ég á að gera 01.06.2026 1год 43хв
    Svanhildur Sigurðardóttir, eða Sasa eins og hún er kölluð er ein af þessum jákvæðu, duglegu og bjartsýnu manneskjum sem smitar annað fólk af lífsgleði sinni. Þegar hún var 11 ára bar hún út blöð og safnaði  sér peningum, fór ein á skrifstofu Icelandair og pantaði sér miða til Kaupmannahafnar án þess að biðja um leyfi frá foreldrum sínum. Fyrir fimm árum greindist hún með krabbamein og hefur tekist á við veikindin með æðruleysi. Hún er stemningsmanneskja sem er alltaf tilbúin til að taka aukaskref svo lífið verði örlítið skemmtilegra. Þessi þáttur er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5. 
  • 11. Gylfi Þór Þorsteinsson: Veröldin hrundi þegar mamma var myrt 24.05.2026 1год 31хв
    Gylfi Þór Þorsteinsson verkefnastjóri hjá Rauða krossinum og oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ upplifði mikla sorg þegar móðir hans var myrt á bóndabæ fyrir Norðan. Hann gat ekki tekist á við sorgina, lokaði sig af og gat ekki grátið. Í þættinum ræðir Gylfi þennan hræðilega tíma og  hvernig hann náði seinna á lífsleiðinni að koma hlutunum á réttan stað. Hann ræðir líka hvernig veröldin hrundi á nýjan leik þegar hann missti vinnuna og gekk í gegnum skilnað.  Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshruni 5. 
  • 10. María Sigrún Hilmarsdóttir: Það stækkar fólk að lenda í áföllum 18.05.2026 1год 39хв
    María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður á fréttastofu Rúv. hefur fengið þung verkefni í lífinu. Eitt af því er að eignast fatlað barn. Hún lýsir ferlinu og hvernig hún hafi siglt í gegnum það. Í fyrra slasaðist hún alvarlega í skíðaslysi á Snæfellsjökli en er nú komin á kreik á ný. Í þættinum ræðum við sorgir og sigra og hvernig það hafi stækkað hana að fá snúin verkefni í fangið. Hún er bjartsýn og segist þakklát fyrir ástina og það að vera umvafin góðum vinkonum. Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
  • 9. Einar Þorsteinsson: Skíðin voru ekki ástæða skilnaðarins 11.05.2026 1год 10хв
    Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík lifir drauminn í Seljahverfinu. Hann er tvíkvæntur og á að tvær dætur með fyrri eiginkonu sinni og tvo drengi með núverandi eiginkonu sinni, Millu Ósk Magnúsdóttur. Þau voru á leiðinni í tæknifrjóvgun þegar hún varð barnshafandi. Einar segir að lífið geti verið flókið og því skipti máli að fara reglulega til hjónabandsráðgjafa. Í þættinum ræðum við skíðaiðkun Einars og hvernig það kom til að skíðin hans enduðu heima hjá þáttastjórnanda. Hann segir að skíðin hafi ekki verið ástæða skilnaðarins.    Þátturinn er í boði:  Icelandair Blue Lagoon Skin Science SkincareLab í Smáralind Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5  
  • 8. Brynjar Níelsson: Góð kona og guð það eina sem getur hjálpað fólki í vandræðum. 04.05.2026 1год 12хв
    Brynjar Níelsson lögfræðingur skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann er íhaldssamur mannvinur og segir að fólk megi ekki láta reiðina fara með sig út í skurð. Hann lærði margt um mannleg samskipti þegar hann keyrði leigubíl á háskólaárunum. Hann var vinsæll lögmaður áður en hann fór inn á þing og segir að reynslan hafi kennt honum að það sé bara tvennt sem geti bjargað fólki út úr alvarlegum vandræðum. Það er að eiga góðan maka eða finna guð. Hann var orðinn fullorðinn þegar hann komast að því að faðir hans hefði eignast tvö börn utan hjónabands. Hann upplifði aldrei að foreldrar hans væri hamingjusamir. Það er kannski þess vegna sem fjölskyldan skiptir hann öllu máli í lífinu. Þátturinn er í boði:  Icelandair Blue Lagoon Skin Science  SkincareLab í Smáralind Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5

Популярний у

Цей подкаст також потрапляв у чарти подкастів у цих країнах.