Jón Ólafs á spjallinu
Jón Ólafsson
0
Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og komið víða við. Fjölmiðlaferilinn hóf hann sem blaðamaður á Tímanum og þegar Rás 2 var stofnuð var Jón einn fjórmenninganna sem stýrðu fyrsta þættinum á stöðinni. Ekki leið á löngu þar til hann fór í sjónvarp og margir kannast við þættina Af fingrum fram sem svo breyttust í spjalltónleika í Salnum sem sér ekki fyrir endann á.
Епізоди
-
43.þáttur: Lalli töframaður 14.09.2026 1год 45хвLalli töframaður er besti vinur barnanna og nýtir eigin lífsreynslu óspart þegar hann skemmtir þeim. Töfri töfri kallast sýning sem hann var að frumsýna í Tjarnarbíói og fjallar um ofurkraftana hans sem hann tengir við greiningar sínar, adhd, lesblindu og tourette. Hann er menntaður smiður en undanfarin ár hefur hann nær eingöngu starfað sem skemmtikraftur á eins marga vegu og sá starfstitill rúmar. Lalli hefur gefið út plötu, skrifað bók og er ávallt reiðubúinn í sínum grunnbúning að skemmta fólki - stundum með nær engum fyrirvara! -
42.þáttur: Rán Flygenring 02.09.2026 1год 50хвRán Flygenring ólst upp á heimili arkitekta og fyrir vikið var hún síteiknandi sem barn og sér ekki fyrir endann á þessu. Hún ákvað að ferðast um heiminn og sjá hvort hún gæti framfleytt sér á meðan sem teiknari og höfundur. Þetta gekk aldeilis upp en eftir tæpan áratug flutti hún aftur heim til Íslands, reynslunni ríkari. Rán hefur sent frá sér fjölda bóka og myndskreytt fyrir sjálfa sig og aðra. Hún er að læra á píanó auk þess sem hún spilar á selló. Rán er mikill hvalavinur og hefur beitt sér gegn hvalveiðum á Íslandi. Sundfíkn hefur litað líf hennar en hún ber höfuðið hátt. -
41.þáttur: Margrét Valdimarsdóttir 20.08.2026 1год 39хвVið höfum öll sögu að segja og Dr. Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur er ekki þar undanskilin. Æskuárin í Breiðholti voru erfið og hún varð vitni að ýmsu sem hún gat svo sannarlega nýtt sér síðar meir í afbrotafræðunum. Hún vann í nokkur ár sem barþjónn áður en hún sótti um starf á útvarpsstöðinni FM 957 án þess að hafa nokkurn tímann hlustað á útvarpsstöðina. Við tóku nokkur ár á ljósvakamiðlum en um þrítugt skellti hún sér í háskólanám. Margrét hefur fjallað um viðkvæm málefni afbrotafræðinnar og er eftirsóttur álitsgjafi á sínu sviði. -
40.þáttur: Jónatan Garðarsson 05.08.2026 1год 52хвJónatan Garðarsson hefur setið allt um kring hið íslenska tónlistarborð og slær hvergi slöku við. Hann hefur alla tíð alið manninn í Hafnarfirði og byrjaði ungur að safna hljómplötum og á þúsundir vinylplatna og geisladiska. Jónatan lærði á hljóðfæri og söng með unglingahljómsveitum en fannst óspennandi að spila á böllum fyrir drukkið fólk og fann sér því aðra leið í faðm tónlistargyðjunnar. Í áratugi hefur hann frætt okkur um tónlist á margvíslegan hátt í ljósvakamiðlum RUV, í dagblöðum og ritstýrt menningarþáttum. Jónatan fellur seint verk úr hendi og hann hefur setið í hinum ýmsu nefndum og ráðum og koma þar trúmál, tónlist og náttúruvernd helst við sögu. -
39.þáttur: Óskar Hrafn Þorvaldsson 28.07.2026 2год 26хвÓskar Hrafn er umtalaðasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu þökk sé leiftrandi sóknarknattspyrnu sem meistaraflokkur KR í knattspyrnu býður upp á í hverjum leik. Sjálfur raðaði hann inn mörkunum í yngri flokkunum en var svo færður í vörnina í 2.flokki. Eftir nokkur ár í meistaraflokki KR hélt hann til Noregs í atvinnumennsku en þurfti að leggja skóna á hilluna aðeins 25 ára gamall. Þá hóf hann að skrifa um knattspyrnu í dagblöð og sinnti með tíð og tíma ýmsum yfirmannsstörfum í fréttamennsku og var hvað lengst hjá 365 miðlum auk þess sem hann skrifaði skáldsögu árið 2010. Óskar Hrafn var ekkert á leiðinni í þjálfun þegar hann fékk afdrifaríkt símtal úr vesturbænum og síðan hefur þjálfunin átt hug hans allan. -
38.þáttur: Vigdís Hafliðadóttir 22.07.2026 2год 4хвSviðsljósið skín skærar og skærar á Vigdísi Hafliðadóttur sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir margvíslega hæfileika. Eftir að hafa klárað MH þreytti hún inntökupróf í leiklist en komst ekki inn og vill meina að hún hafi nú bara haft gott af þeirri höfnun. Hún ákvað að nema heimspeki við Háskóla Íslands auk þess að hleypa heimdraganum til Svíþjóðar og læra þar vísnatónlist af innfæddum. Vigdís syngur og semur lög og texta með kvennahljómsveit sinni Flott og kemur fram sem uppistandari. Frammistaða hennar í sjónvarpsþáttunum 20 og eitthvað og kvikmyndinni Ljósvíkingar er eftirminnileg og Vigdís er svo sannarlega fjölhæf og hæfileikarík. -
37.þáttur: Gói 11.07.2026 1год 54хвGuðjón Davíð Karlsson (Gói) var aðeins 5 ára gamall þegar hann ákvað að verða leikari og í annarri tilraun komst hann inn í Leiklistarskólann. Hann eyddi æsku- og unglingsárum í Þingholtunum og spilaði fótbolta með Megasi. Gói var lagður í einelti sem barn einfaldlega af því að hann var prestssonur. Hann segist hafa sloppið vel frá þessu af því hann átti svo góða vini. Hann er þakklátur fyrir hlutskipti sitt og elskar að starfa í leikhúsinu. -
36.þáttur: Pétur Pétursson 03.07.2026 2год 10хвPétur Pétursson er einn besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar og var með eindæmum fundvís á netmöskva andstæðinganna. Hann lék sem atvinnumaður í Hollandi, Belgíu og á Spáni og lék og æfði með mörgum frábærum leikmönnum eins og Mario Kempes og Ruud Gullit svo dæmi séu nefnd. Hann setti markamet með uppeldisfélagi sínu ÍA á Akranesi og átti frábæran tíma með KR. Pétur starfaði um árabil sem ljósmyndari og rak eigin ljósmyndastofu. Hann þjálfaði kvennalið Vals árin 2017-2024 sem hampaði ófáum titlunum undir hans stjórn. Þrátt fyrir þennan afbragðs árangur fékk hann að lokum reisupassann. Pétur er mikill áhugamaður um tónlist og hefur látið sig dreyma um að læra hljóðupptökur, bassa- og gítarleik þó ekkert hafi enn orðið af því. -
35.þáttur: Gunnar Árnason 25.06.2026 1год 53хвGunnar hefur verið í fremstu röð íslenskra hljóðmanna í áratugi og hefur byggt sér glæsilegt hljóðver í Vatnsendahverfi Kópavogs. Hann hljóðsetur m.a. kvikmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar og er margverðlaunaður. Gunnar hefur prófað nánast allt á Íslandi tengt hljóðhönnun og ein eftirminnilegasta ráðningin er þegar hann hljóðblandaði sjálfan Páfann. Hann segir Magnús Kjartansson vera sinn helsta örlagavald í bransanum og fyrir nokkrum árum gaf hann besta vini sínum nýra. -
34.þáttur: Brynhildur Björnsdóttir 19.06.2026 1год 50хвBrynhildur Björnsdóttir er leikkona, söngkona, mannfræðingur, bókmenntafræðingur, dagskrárgerðarkona, feministi og kattahaldari svo fáein dæmi séu nefnd. Hún hefur svo sannarlega frá mörgu að segja enda reynt ýmislegt um ævina. Þættir hennar, Hold, sem hún gerði fyrir Rás 1 hafa vakið mikla athygli. -
33.þáttur: Björn Stefánsson 11.06.2026 1год 30хвBjörn vakti fyrst athygli sem trommuleikari hljómsveitarinnar Mínus. Hann kom öllum á óvart þegar hann ákvað að skella sér í leiklistarnám í Danmörku árið 2009. Námið var hreint ekki auðvelt fyrir mann með óskilgreindan athyglisbrest auk þess sem það var á dönsku. Eftirminnileg leikhlutverkin eru mörg en hann heldur mest upp á samleik þeirra Hjartar Jóhannssonar í Fjallabaki. Alkóhólískt heimilishald hafði mikil áhrif á æsku- og unglingsár Björns sem er með bók í smíðum. -
32.þáttur: Helga Möller 01.06.2026 1год 35хвHelga Möller hefur oft verið nefnd Diskódrottning Íslands. Samt voru þau Jóhann Helgason ekkert sérstakt áhugafólk um diskótónlist þegar þau sungu inn á fyrstu plötuna sem Þú & ég. Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og hefur talað opinskátt í fjölmiðlum um mjög persónuleg málefni enda upplifað erfiða hluti eins og dótturmissi. Helga á enn eftir að gera plötuna sem hana hefur alltaf langað til að gera. -
31.þáttur: Guðmundur Pétursson 20.05.2026 1год 44хвGuðmundur varð landsfrægur í einu vetfangi þegar hann birtist landsmönnum í kosningasjónvarpinu aðeins 14 ára gamall. Honum líkaði ekkert sérstaklega við að vera kallaður undrabarn eða snillingur en víst er að hæfileikar tónlistarmannsins eru einstakir. Ungur missti hann móður sína og lærði að standa á eigin fótum og taka engu sem gefnu. -
30.þáttur: Guðrún Gunnarsdóttir 12.05.2026 1год 47хвGuðrún hóf söngferil sinn sem meðlimur í MK-kvartettinum og í framhaldi tók svo vísnatónlistin við. Hún leitaði á vit ævintýranna í Noregi áður en hún sneri aftur heim. Við tóku ýmis söngverkefni og hún komst fljótt í röð okkar fremstu söngkvenna með sinni áheyrilegu rödd. Það lá fyrir henni að starfa í fjölmiðlum og hefur hún stýrt ýmsum þáttum á ljósvakamiðlum landsins. Í dag er það "Mannlegi þátturinn" sem hún stýrir ásamt Gunnari Hanssyni á Rás 1. -
29.þáttur: Andrea Jónsdóttir 28.04.2026 1год 45хвAndrea hefur fjallað um tónlist á einn eða annan hátt í áratugi og oft nefnd Rokkamma Íslands. Þegar hún heyrði Be Bop A Lula í fyrsta sinn varð hún heltekin af rokktónlist. Hún ólst upp við Elvis, Bítlana og Hljóma og elti þá síðastnefndu á röndum landshorna á milli. Hún starfaði lengi sem prófarkalesari á Þjóðviljanum og kunni vel við sig innan um kommana enda alin upp af félagshyggjufólki. Andrea hefur starfað sem plötusnúður á Dillon í 26 ár og er hvergi nærri hætt, 77 ára gömul. -
28.þáttur: Rúnar Freyr Gíslason 17.04.2026 1год 41хвUm miðjan aldur var Rúnar Freyr búinn að brenna allar brýr að baki sér þrátt fyrir glæstan feril sem leikari og söngvari. Við tók bataferli sem mun standa yfir út lífið að hans sögn. Hann hefur heldur betur snúið við blaðinu, bætt ráð sitt og gert sig gildandi á ýmsum sviðum m.a. hjá SÁA, RUV og sem fjölmiðlamaður. Rúnar á mörg börn og eina dóttur sína hitti hann fyrst þegar hún var orðin 10 ára gömul. Þessa dagana heimsækir hann fólk og vinnustaði enda í framboði til borgarstjórnar í Reykjavík. -
27.þáttur: Jóhann Hjörleifsson 09.04.2026 1год 39хвÞið hafið heyrt oftar í Jóhanni Hjörleifssyni en ykkur grunar. Hann hefur trommað marga af helstu smellum undanfarinna ára m.a. með Sálinni hans Jóns míns. Hann var hálfgert undrabarn á sitt hljóðfæri og var farinn að spila með Sinfóníuhljómsveit Íslands 15 ára gamall. Jóhann byrjaði í MH en ætlaði að fresta náminu um einn vetur því það var svo mikið að gera í spileríinu. Stúdentsprófið bíður enn og listinn yfir tónlistarfólkið og hljómsveitirnar sem hann hefur unnið með er ógnarlangur og glæsilegur. -
26.þáttur: Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Hansa) 27.03.2026 1год 28хвJóhanna Vigdís Arnardóttir fékk leiklistarbakteríuna tiltölulega seint og kom sjálfri sér á óvart með því að fljúga inn í Leiklistarskólann í fyrstu tilraun. Að loknu námi fékk hún samning í Borgarleikhúsinu og brilleraði næstu árin í hverju hlutverkinu á fætur öðru. Frammistaða hennar í söngleikjum eins og Mary Poppins, Kysstu mig Kata og Mamma Mia er eftirminnileg þeim sem sáu . Hansa er með burtfararpróf bæði í klassíkum píanóleik og söng og telur tónlistina æðsta allra lista. Svo vippaði hún sér í MBA nám líka - svo sannarlega sterkur námsmaður. Hún greindist með MS sjúkdóminn fyrir tæpum þremur árum en kvartar ekki og lætur hvergi deigan síga. -
25.þáttur: Róbert Marshall 17.03.2026 1год 51хвFlestir tengja Róbert Marshall við fréttir og stjórnmál og réttilega. Vestmannaeyingurinn víðlesni á þér þó fleiri hliðar og útivist hefur átt hug hans allan síðustu árin og varla er til sá fjallstoppur sem hann hefur ekki rölt upp á. Einnig sinnir Róbert tónlistarsköpun þegar tími vinnst til og er m.a. forsöngvari og helsti lagahöfundur hljómsveit sem kallast Hvítá. Einu sinni talaði Leonard Cohen beint til hans á tónleikum og í kjölfarið tók Róbert sína bestu ákvörðun. -
24.þáttur: Sveinn Rúnar Sigurðsson 05.03.2026 1год 23хвEnginn Íslendingur hefur átt jafn mörg lög í úrslitum Söngvakeppninnar og músíkalski læknirinn, Sveinn Rúnar Sigurðsson. Hann byrjaði að forrita aðeins 10 ára gamall og munaði minnstu að hann fengi ekki að útskrifast úr Versló vegna splattermyndar sem sýnd var í skólanum. Sveinn er kvæntur úkraínskri konu og hefur farið yfir 120 sinnum til heimalands hennar; hinnar stríðshrjáðu Úkraínu sem honum þykir svo vænt um.
Популярний у
Цей подкаст також потрапляв у чарти подкастів у цих країнах.