Legvarpið

Legvarpið

Stefanía Ósk Margeirsdóttir
Країна Ісландія
Жанри Education
Мова IS
Епізодів 38
Останній 18.05.2026

Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu.

Епізоди

  • Ófrjósemi og frjósemislækningar með Ingunni 18.05.2026 1год 17хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Ingunn Jónsdóttir kvensjúkdóma- og fæðingalæknir, stofnandi og meðeigandi Sunnu frjósemisstofu. Hún leiðir okkur í allan sannleikann um frjósemisvanda og frjósemislækningar og heyrum við af allskyns meðferðum og þjónustu sem veitt er í frjósemisferlinu.
  • Áhrif nikótíns á meðgöngu á nýbura með Snjólaugu og Björk 17.04.2026 54хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestir þáttarins eru tvær fagkonur frá Vökudeild Landspítala, þær Snjólaug Sveinsdóttir nýburalæknir og Björk Áskelsdóttir ljósmóðir. Þær fjalla um áhrif nikótín-notkunar á meðgöngu og í brjóstagjöf á nýburann til skemmri og lengri tíma og má til dæmis nefna fráhvarfseinkenni á borð við öndunarerfiðleika og óværð. Gríðarleg aukning hefur orðið á nikótín-neyslu síðustu ár með vaxandi notkun nikótín-púða meðal ungmenna og fólks á barneignaraldri. Talið er að 20% kvenna á barneignaraldri neyti nikótíns daglega og um þriðjungur karla í sama aldursflokki en erfitt er að vita hve mikið magn nikótíns er notað vegna skorts á merkingum og innihaldslýsingum á púðunum. Því er til mikils að vinna þegar kemur að vitundarvakningu um áhrif nikótín-notkunar og hér er framlag Legvarpsins!
  • Fæðingarparís með Ósk 01.04.2026 1год 8хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þættinum segir Sigurveig Ósk Pálsdóttir ljósmóðir frá svokölluðum Fæðingarparís sem hefur nýlega verið innleiddur hér á landi. Markmið verkefnisins er að hvetja konu og stuðningsaðila þeirra að undirbúa sig fyrir fæðinguna og stuðla að aukinni virkni á meðgöngu og í fæðingu. Ósk leiðir okkur í allan sannleikann um Fæðingarparísinn, uppruna hans og innleiðingu hérlendis, hvað í honum felst og hvers vegna það sé nú skynsamlegt að rifja upp gamla takta og stökkva af stað!
  • Trans fólk og barneignir með Alexander 06.02.2026 41хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins að þessu sinni er Alexander Björn Gunnarsson, félagsráðgjafi í Transteymi fullorðinna á Landspítala. Alex ræðir við okkur um málefni og upplifun trans- og kynsegin fólks af barneignarferlinu og samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk. Þessi hópur mætir ýmsum áskorunum innan heilbrigðiskerfisins, sérstaklega þegar kemur að kynheilsu og frjósemi og heyrum við því góð ráð til að tryggja jafna topp þjónustu fyrir öll. Alex er sjálfur trans og fjölskyldufaðir og heyrum við frá hans upplifun af því að koma út sem trans og stofna síðar fjölskyldu. Komiði með!
  • Offita á meðgöngu með Bryndísi Ástu 23.01.2026 1год 22хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Bryndís Ásta Bragadóttir, sérfræðiljósmóðir á Landspítalanum og ræðir hún við okkur um yfirþyngd og offitu á meðgöngu. Við veltum málefninu fyrir okkur út frá ýmsum hliðum, allt frá frjósemi yfir í langtímaheilsu kvenna eftir meðgöngur. Áhrif yfirþyngdar og offitu á meðgöngu geta verið margvísleg þegar kemur að útkomum móður og barns og fræðumst við því um það sérhæfða eftirlit sem stendur þessum hópi til boða til þess að stuðla að heilbrigði, vellíðan og öryggi á meðgöngu, í og eftir fæðingu.
  • Brjóstagjöf með Fríðu 12.06.2025 1год 17хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu.Gestur þáttarins að sinni er brjóstagjafaráðgjafinn og Vestfjarðar-Valkyrjan Hallfríður Kristín Jónsdóttir, betur þekkt sem Frí-ða-nipple Hún fjallar um starf brjóstagjafaráðgjafans og þá miklu menntun og kröfur sem liggja að baki þeim titli Fríða brennur fyrir það að styðja við konur í þeirra brjóstagjöf og hefur metnað fyrir aukinni þekkingu meðal bæði heilbrigðisstarfsfólks og verðandi og nýrra foreldra almenntSpjallið fer á flug um sögu, menningu, tölfræði, sorgir og sigra þegar kemur að brjóstagjöf og deilir Fríða skemmtilegum sögum úr lífi og starfi.
  • Ljósmæður líta um öxl: Anna Eðvaldsdóttir 06.05.2025 1год 26хв
    Ljósmæður líta um öxl: Anna Eðvaldsdóttir by Stefanía Ósk Margeirsdóttir
  • Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu 03.04.2025 1год 21хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Eva Sigrún Guðjónsdóttir hlaðvarpsstjarna og kvenskörungur með meiru og er hún fyrsti gestur Legvarpsins sem mætir að hljóðnemanum í annað inn. Í fyrri þætti frá 2019 ræddi Eva um "mömmupressuna" en í þetta sinn beinist umræðan að því að ganga með og fæða tvíbura og komast í gegnum fyrstu mánuðina sem tvíburamamma og þriggja barna móðir. Eva segir frá því sem var frábrugðið varðandi líðan og eftirlit á meðgöngunni og fer vel yfir fæðingarsöguna þar sem tvíburi A var í sitjandi stöðu. Við heyrum skemmtilegar sögur að hætti Evu af hennar reynslu og bjargráðum til þess að komast í gegnum daginn með litla tvíbura. Rifinn árshátíðarkjóll, áhrifamikið trúnó í Vesturbæjarlaug, samningaviðræður við iðnaðarmenn í miðri gangsetningu og bananaknippi á rúmgaflinum. Komiði með!
  • Ljósmæður líta um öxl: Áslaug Hauksdóttir 17.04.2024 59хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestur þáttarins er Áslaug Hauksdóttir ljósmóðir, báráttukona og kvenskörungur með meiru. Hún segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeglar forvitni og þörf til að taka þátt í framþróun og breytingum í þágu kvenna. Áslaug hefur sinnt ljósmæðrastörfum erlendis og í flestum landshornum hérlendis, þar með talið á Landspítala þar sem hún tók til dæmis þátt í uppbyggingu og starfsemi Glasafrjóvgunardeildar. Segja má að Áslaug sé mikill brautryðjandi á sviði ljósmóðurfræða á Íslandi og tók hún stóran þátt í að innleiða og festa í sessi vatnsfæðingar sem og heimafæðingar hér á landi. Komið með inn í skemmtilegar sögur allt frá símhringingu í útvarpsþátt yfir í fundi við Landlækna, þar sem réttlætiskennd og baráttuandi fyrir kvennamálum skín í gegn.
  • Ljósmæður líta um öxl: Magga Bjarna og Gunna Bö 22.03.2024 1год 19хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestir dagsins eru hið órjúfanlega tvíeyki Margrét Ásdís Bjarnadóttir og Guðrún Böðvarsdóttir, betur þekktar sem Magga og Gunna. Ljósmæðraáhugi þeirra beggja kviknaði í sauðburði, enda sveitastúlkur að vestan. Þær segja frá námsárunum þar sem þær rétt náðu í skottið á heimavistinni með tilheyrandi sjarma, útivistarreglum og stífuðum köppum. Magga og Gunna hafa í gegnum tíðina upplifað allskyns strauma og stefnur í fræðum og starfsháttum og lýsa vel þeim tækniframförum og breytingum sem orðið hafa á starfsumhverfi fæðingarþjónustunnar. Komið með inní fjölmargar skemmtilegar sögur af ævintýrum þessara einstöku vinkvenna innan vinnu sem utan, en þeir heimar hafa aldeilis skarast þegar þær tóku á mótu börnum hvor annarrar og aðstoðuðu við fæðingar barnabarnanna.
  • Ljósmæður líta um öxl: Guðrún Guðbjarts 09.01.2024 56хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestur dagsins er Guðrún Guðbjartsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af lífi og ljósmæðrastörfum á Suðurnesjum. Ferill Guðrúnar á Ljósmæðravakt HSS spannar 47 ár og fer hún yfir hápunkta og skemmtilegar sögur í viðtali dagsins. Ljósmæðra-áhuginn, námsárin, samblandan við einkalífið, uppáhalds ljósubarnið, sorgir og sigrar. Það er áhugavert að heyra frá breytingum og þróun á starfsháttum og menningu í kringum fæðingar á þessum tíma, og ekki síður magnað að heyra frá því sem ekki breytist í aldanna rás þegar ljósmæðralistin er annars vegar.
  • Þegar ljósmóðir eignast barn 31.10.2023 1год 31хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þetta sinn fá Legvörpur ekki til sín gest heldur beinist hljóðneminn að Stefaníu sem leysir frá skjóðunni. Hún segir sína reynslusögu af því að ganga með og fæða barn sem ljósmóðir. Hvernig er það að upplifa þetta sjálf á eigin skinni eftir að hafa fylgt ótal konum í gegnum ferlið? Hvað kom á óvart? Hvenær var ljósmæðraþekkingin gagnleg.. eða þvældist hún einhverntíman fyrir? Komið með í þetta magnaða ferðalag, allt frá tilfinningarússíbananum sem fylgir óráðgerðri þungun yfir í kraftmikla heimafæðingu með nágrannana á vorhreingerningardegi fyrir utan gluggann.
  • Sitjandi fæðingar með Kamillu 21.07.2023 50хв
    English below// Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er danski fæðingarlæknirinn Kamilla Gerhard Nielsen sem fjallar af sinni fagmennsku og einstöku yfirvegun um sitjandi fæðingar og allskyns fróðleik sem tengist hinni sjaldgæfu sitjandi stöðu. Kamilla fræðir okkur um sérþekkingu sína og reynslu af “Upright breech” eða sitjandi fæðingum í uppréttri stöðu, útkomur, upplifun, fræðslu til foreldra og kennslu starfsfólks. Spjallið fer á flug um sögu, menningu, tölfræði og tilfinningar þegar sitjandi fæðingar eru annars vegar, sem einkennist af bæði trú og auðmýkt. // The midwives Stefanía and Sunna talk to the danish obstetrician and pioneer Kamilla Gerhard Nielsen about upright breech birth. In this episode, Kamilla shares with us her knowledge and experience of the upright breech concept along with statistics and outcomes. She also educates us on how health care staff is trained so everyone feels safe, the staff and the parents and how parents are informed about this rare presentation so they can take an informed decision about their birth. Kamilla also sheds light on spiritualism, culture and emotions regarding the fascinating breech birth. Come and listen to this episode with us about upright breech birth with the humble brilliant obstetrician, Kamilla Gerhard Nielsen
  • Kristbjörg og Amish konurnar í Pennsylvaníu 03.07.2023 1год 13хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af ljósmæðrastörfum með Amish fólki í Lancaster sýslu í Pennsylvania fylki Bandaríkjanna. Kristbjörg dregur upp mynd af lífi Amish fólksins sem einkennist af einfaldleika, sjálfbærni og nægjusemi, allt frá klæðaburði til farartækja. Einnig talar hún um viðhorfi kvennanna til barneigna og menninguna í kringum fæðingar, þar sem hin mikla trú á kvenlíkamanum og móður náttúru ræður ríkjum.
  • Icelandic maternity care for women of foreign origin 21.09.2022 1год
    Íslenska neðar// The midwives Stefanía Ósk and Sunna María are back and for the first time in English, a language they aren't that great in but thankfully Edythe M. Mangindin, did most of the talking. In this episode, Edythe, a woman of many titles but first and foremost a Filipino-American-Icelandic wife, mother, nurse and midwife, talks about the outcomes and experience of foreign women who receive maternity care in Iceland. How do we ensure respectful, safe and equal care for women of foreign origin? This and other important questions will be discussed in today's episode. //Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu og spreyta sig í fyrsta sinn á ensku. Gestur þáttarins er hin reynslumikla og sprenglærða ljósmóðir Edythe Mangindin sem ræðir við Legvörpur um málefni erlendra kvenna í barneignarferlinu á Íslandi, og því er þátturinn að sjálfsögðu á ensku. Edythe fjallar um niðurstöður rannsókna og fer meðal annars yfir fæðingar-útkomu og upplifun kvenna af fæðingum og barneignarferlinu. Hverjar eru helstu hindranir tengdar aðstæðum og kerfinu og hvernig tryggjum við jafna, örugga og einstaklingsmiðaða þjónustu? Túlkaþjónusta, réttindamál, félagsleg tengsl, menningarhæfni og margt fleira með Edythe. Komið með og látum orðið berast til enskumǽlandi kvenna!
  • Hulda Þórey í Hong Kong 13.06.2022 1год 25хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni "Ljósmæðralíf" sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Gestur dagsins er Hulda Þórey Garðarsdóttir sem deilir með okkur sögunni af því hvernig leiðir hennar lágu frá Kópaskeri í ljósmóðurfræði og þaðan til Hong kong. Þar bjó Hulda Þórey ásamt fjölskyldu sinni í mörg ár og segir okkur skrautlegar sögur af þvi hvernig hún sigraðist á hinum ýmsu hindrunum sem nýútskrifuð ljósmóðir í þessari merkilegu borg þar sem fólk úr ólíkum áttum og allskyns menningarheimum mætast. Fljótlega tók Hulda yfir rekstur á fyrirtækinu Annerley og sinnti þar með ýmiskonar ljósmæðraþjónustu fyrir fjölskyldur á meðgöngu og eftir fæðingu. Hulda deilir með okkur stórskemmtilegum minningum og sögum, allt frá heimafæðingu í einstökum aðstæðum á aðfangadag yfir í fylgjuna í framsætinu sem bjargaði henni úr klóm lögreglunnar. Komið með í litríkt ferðalag til Hong Kong!
  • Kristín Rut á Fósturgreiningardeild 06.01.2022 1год 11хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Kristín Rut Haraldsóttir, sérfræðiljósmóðir á Fósturgreiningardeild Landspítalans. Kristín segir skemmtilegar sögur af uppbyggingu fósturgreiningar-þjónustu á norðurhjara veraldar á tímum tækniframfara. Einnig ræðir hún við Legvörpur um fjölbreytta starfsemi deildarinnar, siðferðislegar vangaveltur í tengslum við fósturskimanir og framtíðardrauma. Það er erfitt að hrífast ekki með ástríðu þessarar ótrúlegu hugsjónarkonu. Hverjar eru þessar konur sem sitja dagana langa á kollum í myrkvuðum sónarherbergjum og rýna á skjáinn? Komiði með!
  • Vatnsfæðingar 24.12.2021 1год 16хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er ljósmóðirin Sigurveig Ósk Pálsdóttir, betur þekkt sem Ósk og ræðir hún við Legvörpur um vatnsfæðingar. Ósk tekur okkur með inní draumkennt andrúmsloft vatnsfæðingarinnar þar sem ljósmæðra-listin fær að leika lausum hala. Vilt þú vita hver ávinningur vatnsbaða er á ólíkum stigum fæðinga, hvernig þetta allt saman virkar og hvers vegna í ósköpunum sumar konur kjósa að fæða börnin sín ofan í baðkörum? Þá ertu á réttum stað!
  • Ljósmæðralíf: Anna Rut í Palestínu 29.09.2021 1год 8хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni "Ljósmæðralíf" sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Gestur dagsins er hin eina sanna Anna Rut Sverrisdóttir sem deilir með okkur sögum af aðúnaði palestínskra ljósmæðra og fæðandi kvenna í Betlehem. Anna Rut dregur upp magnaða mynd af ljósmæðralífinu, allt frá ferð sinni til vinnu frá Jerúsalem í gegnum varðstöðvar ísraelshers, að frumlegum aðferðum við að laga rótsterkt arabískt kaffið sem var ómissandi á kaffistofu ljósmæðranna. Komið með í magnað ferðalag til Palestínu!
  • Ljósmæðralíf: Hólmfríður Garðarsdóttir á hamfara- og átakasvæðum í 27 ár 29.05.2021 1год 45хв
    Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni "Ljósmæðralíf" sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Gestur dagsins er Hólmfríður Garðarsdóttir ljósmóðir eða Hófí eins og hún er kölluð. Í viðtalinu segir hún frá störfum sínum sem sendifulltrúi hjá Rauða Krossinum og reynslu sinni af því að vera ljósmóðir á hamfara- og átakasvæðum víðsvegar um heiminn auk þess að taka þátt í þróunarverkefnum. Meðal þeirra landa sem hún hefur starfað í síðastliðin 27 ár eru Afganistan, Bosníu-Hersegovína, Mósambík, Malaví, Suður-Súdan, Norður-Kórea, Úkraína, Íran og Írak. Það er ótrúlegt að heyra af lífi eða öllu heldur lífsstíl Hófíar sem er alltaf klár þegar kallið kemur, gjarnan með stuttum fyrirvara. Hún hefur vægast sagt magnaðar sögur að segja af aðstæðum kvenna í barneign þar sem oft þarf að beita útsjónarsemi til að yfirstíga hinar ýmsu hindranir. Hnetumauk í Súdan til þess að bæta upp fyrir blóðleysi, soðna ýsan á Íslandi til að kjarna sig þegar heim er komið og allt þar á milli með Hófí. Komið með!

Популярний у

Цей подкаст також потрапляв у чарти подкастів у цих країнах.