Þetta Reddast
Sonja og Svanhildur
0
Tvær bugaðar, þreyttar mæður á besta aldri sem ákváðu, í augnabliki af ofmati á eigin getu, að byrja podcast. Hugarfarið þeirra hefur alltaf verið að þetta reddist… einhvern veginn. Þær hlæja, kvarta, deila og lifa af – og vonandi hlæja hlustendur með þeim… eða að þeim.
Епізоди
-
Aperol, skyldfólk og Tenerife 30.06.2026 51хвVÁ! Dásemdar ferð á enda til eyju allra Íslendinga, Tenerife. Hugsa að brosið fari ekki af okkur næstu mánuðina. Mikið hlegið, borðar og drukkið. Svo kom það á daginn að Svanhildur á bara heilmikið af skyldfólki á Tene! Who would have thought!Vonandi náið þið að skemmta ykkur yfir þessum!Við erum svo komnar í smá frí en komum hressar til baka í ágúst :)
-
Fæddar til að ferðast saman 10.06.2026 1год 5хвSmá ferðalag hjá okkur vinkonum um memory lane. Við fórum yfir ferðalögin sem við höfum farið í saman gegnum árin OG fórum yfir fyrirhugaða ferð sem er bara handan við hornið! Mögulega smá yfirspenntar en hey! það má og ég meina ef undirbúningurinn var svona geggjaður þá er nú varla að ferðin klikki!
-
Horror, hafmeyjur og húsdýr 27.05.2026 53хвÞað ætti ekki að koma ykkur á óvart að við vinkonurnar fórum um víðan völl í upptökum vikunnar. Þyngdaraflið kom til tals, hafmeyjur, barnauppeldi og húsdýr.Mikið hlegið og við skemmtum okkur konunglega! Ef þið hafið gaman af þá megið þig endilega slást í hópinn á Instagram síðu okkar.
-
Táknmál, dúfur og nuddari frá helvíti 15.05.2026 48хвÞessi þáttur var ansi strembin í fæðingu og má í raun segja að þetta hafi endað með keisara. En þetta hafðist á endanum og skemmtum við okkur konunglega!Við fórum yfir víðan völl. Eins og alltaf þá reynum við að finna húmorinn í áskorunum lífsins. Vonum þið njótið og ef þið viljið koma athugasemdum áleiðis þá erum við komnar með Instagram síðu - Thettareddastpodcast.
-
Andlit á glugga, félagar í skógi og murder mystery? 30.04.2026 35хвSmá rannsóknarvinna hjá okkur stöllum! Hvað í ósköpunum erum við að lesa og syngja fyrir börnin okkar? Við ritrýndum þekktar sögur og kvæði sem við höfum flest lesið og sungið. Eftir að hafa rýnt í textana þá ætlum við mögulega að endurskoða hvað verður framvegis fyrir valinu!
-
Málsháttamálið mikla, klikkhaus í pontu og klósettpappírsskortur! 24.04.2026 56хвMálsháttarmálinu miklu er nú formlega lokið. Að sjálfsögðu gekk það ekki alveg þrautarlaust fyrir sig. Við ræddum nokkrar fréttir úr liðinni viku og tímann sem klósettpappír var orðinn söluhæsta varan á Íslandi.
-
Hebreska og húllumhæ 17.04.2026 43хвEnn og aftur er lagt af stað með plan en eins og okkur er lagið þá fórum við lengri leiðina. Samtalið fór frá Jerúsalem yfir til Góu og enduðum á mannanafnanefnd.
-
Sjálfsmildi, páskaeggjaskandall og málshættir 12.04.2026 45хвEins og vanalega þá fórum við um víðan völl. Byrjuðum á alvarlegri nótum sem endaði í skandal tengt páskunum og svo misstum við mögulega aðeins þráðinn!
-
Inga Sæland, Núvitund og Jarðafarasálmar 05.04.2026 37хвInga Sæland, Núvitund og Jarðafarasálmar
-
Barnaland, Pamela Anderson og Gulli Helga. 29.03.2026 57хвUmræðuefni þáttarins fór um víðan völl. Við ræddum um Barnaland og samfélagsmiðla, misjafnan árangur okkar af googli og af hverju við ákváðum að byrja með podcast.
Популярний у
Цей подкаст також потрапляв у чарти подкастів у цих країнах.