Spegillinn

Spegillinn

RÚV
Riik Island
Žanrid Uudised
Keel IS
Osad 795
Viimane 25.09.2026

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Osad

  • Átök í Flokki fólksins, náttúru- og innviðagjald 25.09.2026 20min
    Í byrjun árs sagði Guðmundur Ingi Kristinsson af sér sem mennta- og barnamálaráðherra. Nokkrum dögum síðar sagði Guðmundur Ingi að Inga Sæland formaður flokksins hefði krafist afsagnar hans á meðan hann var á sjúkrahúsinu eftir aðgerðina. Inga hefur ítrekað sagt að upplifun þeirra Guðmundar af aðdraganda þess að hann sagði af sér sé ólík. Nýtt náttúru- og innviðagjald á ferðamenn sem ætla Gullna hringinn - það er að segja á Þingvelli, Gullfoss og Geysi - verður lagt á frá og með 1. maí á næsta ári, samkvæmt drögum að frumvarpi atvinnuvegaráðherra sem var kynnt í vikunni.
  • Ísland, losun og loftslagsmálin, samningur Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna 24.09.2026 19min
    Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir að gera þurfi miklu meira miklu hraðar, ef Ísland á að ná settu markmiði um 41% samdrátt á samfélagslosun fyrir árið 2030, og segir margt þegar hafa veið gert og fleira í bígerð til að auka líkur á því. Hins vegar er hann efins um að lögbundið markmið um kolefnishlutlaust Ísland fyrir 2040 sé raunhæft. Ekki hefur enn verið skilgreint hvað í þessu hugtaki felst, og það sé því í raun nánast marklaust. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Jóhann Pál. Jens-Frederik Nielsen formanni landsstjórnar Grænlands og Múte B. Egede utanríkisráðherra landsins var vel fagnað þegar þeir komu til Nuuk frá New York í gærkvöld. Þeim var létt: Eftir ítrekaðar yfirlýsingar Donalds Trumps um að Grænland væri öryggi Bandaríkjanna nauðsynlegt og þau þyrftu að ráða því, var samningur milli ríkjanna þriggja um varnir og öryggi í höfn. En hvað felst í honum? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
  • Skammvinnt verkfall flugvirkja og aðstæður vestrænna fréttamiðla í Moskvu 23.09.2026 19min
    Ljóst varð í morgun að ríkisstjórnin ætlaði sér að setja lög á verkfall flugvirkja hjá Icelandair. Ekki kom þó til þess því flugvirkjar aflýstu verkfallinu. Icelandair og flugvirkjar lýstu því yfir að næstu fjórar vikur yrðu nýttar til markvissra viðræðna samkvæmt verkstýrðri áætlun ríkissáttasemjara. En þó að verkfallið hafi verið stutt, hafði það töluverðar afleiðingar. Rætt við Gylfa Dalmann Aðalsteinsson, prófessor og Finnbjörn A. Hermannsson forsta Alþýðusambands Íslands. Bæði viðskiptaþvinganir Vesturlanda gegn Rússlandi og svo ýmsar skorður sem Rússar leggja sjálfir á fjölmiðlun og fjarskipti í landinu gera það að verkum að fyrir erlent fjölmiðlafólk er erfitt að ferðast til Rússlands og að senda þaðan fréttir um lífið í landinu eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Jón Björgvinsson fréttaritari RÚV fékk þó vegabréfsáritun til að fylgjast með nýafstöðum þingkosningum, í Moskvu.
  • Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og kólnun á byggingamarkaði 22.09.2026 19min
    Rætt við Nicole Simone Keller, teymisstjóra losunarbókhalds Umhverfis- og orkustofnunar um nýja skýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi. Rætt við Jónas Má Gunnarsson, aðalhagfræðing Húsnæðis, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um kólnun á byggingamarkaði.
  • Umbrotatímar í þýskum stjórnmálum, lóðamál trúfélaga og breytt staða Svalbarðabúa 21.09.2026 20min
    Katastrófa er hugtakið sem hvorutveggja þýskir stjórnmálaskýrendur og Friedrich Merz Þýskalandskanslari nota um úrslit þingkosninganna í sambandslandinu Mecklenburg-Vorpommern í gær. Með því er í senn átt við sögulega mikið fylgi þjóðernisöfgaflokksins Alternative für Deutschland, AfD, og enn frekar þá staðreynd að flokkur kanslarans, Kristilegir demókratar, CDU, náðu ekki inn manni, í fyrsta sinn í sögunni. Jóhanna Ýr Bjarnadóttir stjórnmálafræðingur í Berlín ræðir stöðuna í þýskum stjórnmálum við Ævar Örn Jósepsson. Í liðinni viku bárust þær fréttir að meirihlutinn í borgarstjórn vildi afturkalla lóðir sem Rússneska rétttrúnaðarkirkjan og Félag múslima fengu úthlutað fyrir alllöngu síðan, án endurgjalds, enda hefðu framkvæmdir ekki hafist innan tilskilinna fresta. Þriðja trúfélagið, Ásatrúarfélagið, sem fékk úthlutað lóð um svipað leyti, byrjaði að byggja fyrir ellefu árum. Þar hafa framkvæmdir gengið hægt - en ólíkt hinum trúfélögunum þarf Ásatrúarfélagið ekkert að flýta sér. Rúnar Pálmason kynnti sér málið og talaði við Öldu Völu Ásdísardóttur hjá Ásatrúarfélaginu. Norrænir ríkisborgarar, þar á meðal Íslendingar, hafa getað öðlast norskan ríkisborgararétt eftir búsetu á Svalbarða án þess að hafa búið á norska meginlandinu - en nú gæti það breyst. Ástrós Signýjardóttir fjallar um þettal Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Rúnar Pálmason.
  • 9 og 10 ára börn of mikið á samfélagsmiðlum og Áslaug Arna um gervigreind 18.09.2026 19min
    80% barna í 4.-5. bekk nota samfélagsmiðla, þrátt fyrir að hafa ekki aldur til. Þetta sýna niðurstöður nýrra Lýðheilsuvísa landlæknis sem kynntir voru í vikunni. Sífellt fleiri nýta sér gervigreind og áhyggjur af þróun hennar aukast. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hjá Fenris Creations segir eðlilegt að áhyggjur fylgi hröðum tæknibreytingum en hefur efasemdir um að ábyrgasta nálgunin sé að hægja á. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir Stjórn útsendingu: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason
  • Kosningakerfið, skattbyrði millistéttarinnar, mállýskur skógarþrasta 17.09.2026 20min
    Tvær af þremur tillögum sem starfshópur um breytingar á kosningalögum leggur til, þurfa aðeins samþykki einfalds meirihluta á Alþingi. Aðeins þriðja tillagan, sem snýst um úthlutun jöfnunarsæta til kjördæmalista, og hefur áhrif á hringekjuna svokölluðu, þarf samþykki tveggja þriðju hluta á Alþingi. Ríkisstjórnin hefur því þingstyrk til að samþykkja meginbreytingarnar sem hópurinn leggur til. Rúnar Pálmason ræðir við Ólaf Þ. Harðarson. Sérfræðingum Visku, stéttarfélags háskólamenntaðra, reiknast svo til, að heildarálögur á íslenskar fjölskyldur með það sem kalla má millitekjur - sem sagt hvorki láglauna- né hálaunafólk - séu nú þegar þær mestu sem tíðkast á Norðurlöndunum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Vilhjálm Hilmarsson hagfræðing Visku. Fáir syngja betur en skógarþrösturinn - en þeir, eins og flestir aðrir, syngja þó hver með sínu nefi eins og Hlynur Steinsson líffræðingur hefur komist að - og Ásrún Aldís Hreinsdóttir talaði við. Umsjón: Rúnar Pálmason, tæknimaður Kormákur Marðarson.
  • Dagur íslenskrar náttúru 16.09.2026 19min
    Þessi þáttur er helgaður íslenskri náttúru, rétt eins og dagurinn allur, því dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur í dag, 16.september. Af því tilefni afhenti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti í Laugarneskirkju. Viðurkenninguna í ár hlaut Andri Snær Magnason, náttúruverndarsinni, rithöfundur og leikstjóri, sem um árabil hefur unnið ötullega að því að vekja athygli almennings jafnt sem ráðamanna á mikilvægi náttúru- og umhverfisverndar, loftslagsbreytingum og afleiðingum þeirra fyrir náttúruna jafnt sem samfélag manna. Rætt er við Andra Snæ í þættinum, og líka við Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Landverndar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason
  • Góð ráð dýr í Hafnarfirði, orð Trumps um sameiningu Írlands og áhrif gervigreindar á háskólanám 15.09.2026 20min
    Áhrif gervigreindar á háskólanám og orð Bandaríkjaforseta um sameinað Írland eru til umfjöllunar í þætti dagsins. En við byrjum í Hafnarfirðinum.
  • Hröð þróun gervigreindar 14.09.2026 20min
    Grein sem Dario Amodei forstjóri og einn af stofnendum bandaríska gervigreindarfyrirtækisins Anthropic birti á vef sínum á laugardag hefur vakið gríðarlega athygli. Í greinni kallaði Amodei eftir því að hægt yrði á þróun gervigreindar og nauðsynlegt væri að fyrirtæki og stjórnvöld kæmu sér saman um ákveðnar takmarkanir og öryggiskröfur. Donald Trump hefur enn áhuga á Grænlandi, segir rannsóknarblaðamaðurinn Ben Taub. Rannsóknir hans leiddu í ljós að þrír aðskildir hópar á sporbraut um Trump unnu á endanum saman að því að reyna að ná yfirráðum á Grænlandi. Landakort sýna á flötu blaði jörð sem er kúlulaga. Þau kort sem nú eru algengust eru sprottin af sýn sem varð til á tímum landvinninga og nýlendna. Landakort hafa löngum verið notuð í áróðursskyni, segir Karl Benediktsson prófessor í landfræði við Háskóla Íslands.
  • Gjaldtaka á ferðamannastöðum, sögur eftirlifenda 11.september og Íslendingar hafa ekkert að segja um varnir landsins 11.09.2026 19min
    Tuttugu og fimm ár frá hryðjuverkaárásum á Bandaríkin og samband sem snýst um hagsmuni Bandaríkjanna, fremur en Íslands eru umfjöllunarefni dagsins. En við byrjum á gjaldtöku á ferðamannastöðum. Gert er ráð fyrir að frumvarp atvinnuvegaráðherra um nýtt gjald á ferðamannastöðum í eigu þjóðarinnar, sem á að skila fimm milljörðum í ríkissjóð, verði opinberað og lagt fram í samráðsgátt í næstu viku
  • Trump talaði um Ísland yrði 51. ríkið, aðalnámsskrá og miklu fleiri nota heyrnartæki en áður 10.09.2026 20min
    Donald Trump hefur ítrekað viðrað hugmyndir um að Ísland verði eitt Bandaríkjanna. Hann gerði það til dæmis í símtali 2024 við Bjarna Benediktsson, sem þá var forsætisráðherra. Það er nauðsynlegt að einfalda aðalnámskrá grunnskóla, segir Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands og tekur þar undir orð Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Fjöldi þeirra sem fá styrk frá Sjúkratryggingum til að kaupa heyrnartæki hefur rúmlega tvöfaldast á um 10 árum.
  • Meira um niðurstöður PISA-könnunar og umsvif Bláa Lónsinns 09.09.2026 20min
    Stefnt er að því að skrá Bláa Lónið hf. á markað í nóvember. Þá kemur í ljós hvert áætlað heildarandvirði félagsins er en forstjóri félagsins segir að í nýlegum viðskiptum með félagið hafi það verið metið á um 83 milljarða króna. En við ætlum að byrja á viðbrögðum við niðurstöðum PISA-könnunarinnar sem kynntar voru í gær.
  • PISA-könnunin og fylgdi samsæriskenninga og stjórnmálaskoðana. 08.09.2026 20min
    Niðurstöður nýjustu PISA-könnunar voru kynntar í dag og voru verri á flestum sviðum en í síðustu könnun. Umboðsmaður barna telur niðurstöðurnar, sem ná líka til þess hvernig börnum líður, mjög alvarlegar. Annars staðar á Norðurlöndum eru niðurstöðurnar sagðar áfall og skammarlegar. Kosningaúrslitin í Saxlandi-Anhalt, þar sem hægriöfgaflokkurinn Alternative für Deutschland, fékk langmest fylgi allra flokka, varpa ljósi á fyrirbæri sem sálfræðingar og stjórnmálafræðingar hafa rannsakað æ meira undanfarin ár: hvernig vantraust á stofnunum getur smám saman breyst úr afstöðu til einstakra mála í heila heimsmynd. Hulda Þórisdóttir stjórnmálasálfræðingur hefur rannsakað fylgnina og útskýrir í Speglinum.
  • Stefnt að hallalausum fjárlögum og kosningar framundan í Svíþjóð 07.09.2026 20min
    Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir fimm milljarða afgangi í fjárlagafrumvarpinu. Það á eftir að fara í gegnum þingið hver verður niðurstaðan eftir það. Rætt við Sigurjón Þórðarson (F) formann fjárlaganefndar og Njál Trausta Friðbertsson (D) sem situr í henni. Þing-, landsþings- og sveitarstjórnarkosningar eru í Svíþjóð 13.september. Skoðanakannanir benda til þess að mjótt verði á mununum milli núverandi ríkisstjórnarflokka og stjórnarandstöðunnar. Rætt við Anders Svenson sænskan blaðamanna um horfurnar.
  • Atvinnuástandið, hægriöfgamenn gætu komist til valda í Þýskalandi og einmanna ungmenni 04.09.2026 20min
    Fyrstu sjö mánuði ársins var atvinnuleysi meðal Íslendinga 2,7% en hefur verið í kringum 2% undanfarin ár. Þetta samsvarar því að tæplega 4000 íslenskir ríkisborgarar hafi verið atvinnulausir. Atvinnuleysi hjá erlenda hópnum var 7,9% eða um 5.200 manns og þokast stöðugt upp á við. Hægriöfgamenn í AfD gætu komist til valda í minnsta sambandslandi Þýskalands – þau úrslit mörkuðu kaflaskil og hefðu afleiðingar langt út fyrir Saxland-Anhalt. Ungt fólk í Bretlandi segist eiga mun færri nána vini en áður og finnst vinskapurinn verri en eldri kynslóðir. Þetta er ekki síst rakið til samfélagmiðla.
  • Tillögur um rýmri heimildir í baráttur við skipulagða glæpi og hamfaraflóð 03.09.2026 19min
    Lagt er til að breyta hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum til að auðvelda baráttu við skipulagða glæpastarfsemi. Meðal annars er lagt til að hámarkslengd gæsluvarðhalds við rannsókn slíkra brota verði sex mánuðir í stað 12 vikna og heimildiir til að upptöku á ólögmætum ávinningi verði rýmkaðar. Rætt við Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjón á öryggis- og greiningarsviði hjá ríkislögreglustjóra. Mikið skyndiflóð fór yfir Rasuwa-hérað í Nepal að morgni 26. ágúst. Flóðið bar með sér feikimikið vatn, aur og stórgrýti og olli miklu tjóni á byggð og innviðum. Gæti slíkt gerst hér? Rætt við Daniel Ben-Yehoshua skriðusérfræðing á Veðurstofu Íslands.
  • Viðbrögð við drónaárásum og líkur á átökum. Jón Ólafsson og Erlingur Erlingsson. 02.09.2026 19min
    Þjóðverjar segja Rússa hafa staðið fyrir drónaárás á flugvellinum í Leipzig í ágúst og að stjórnvöld í Kreml taki mikla áhættu með aðgerðum sínum. Jón Ólafsson, prófessor, og Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, ræða þýðingu þessa og stöðuna í erfiðum samskiptum Rússlands og vesturlanda.
  • Drónaárásir í Þýskalandi, Unglingar og áfengisdrykkja og nýr kóngur í Noregi 01.09.2026 20min
    Nýr kóngur í Noregi, aukin áfengisdrykkja meðal unglinga og drónaárásir í Þýskalandi eru umfjöllunarefni kvöldsins.
  • Sjónvarpsfréttir hætta á Sýn, viðbrögð við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu og lækkun fæðingartíðni 31.08.2026 19min
    Minnkandi fæðingartíðni um allan heim og aukið sjálfstæði kvenna er efni nýrrar fræðigreinar Claudiu Goldin, prófessors við Harvard-háskóla og Nóbelsverðlaunahafa í hagfræði 2023. Þjóðaratkvæðagreiðsla helgarinnar og úrslit hennar hafa vakið viðbrögð hjá evrópskum fjölmiðlum og stjórnmálamönnum. Sjónvarpsfréttir Sýnar verða sendar út í síðasta sinn í kvöld. Stjórnendur fyrirtækisins segja ákvörðunina tekna í ljósi breyttra neysluvenja og muni beina auknum krafti að fréttaþjónustu á vef og í útvarpi.

Populaarne riigis

See taskuhääling on ka nende riikide taskuhäälingute edetabelites.