Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Útvarp Saga
Riik Island
Keel IS
Osad 1351
Viimane 25.09.2026

Opin og beinskeitt umræða um þjóðfélagsmál.

Osad

  • Heilbrigðismálin - Arnþrúður Karlsdóttir & Ólafur Adolfsson 25.09.2026 45min
    Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Ólaf Adolfsson þingmann Sjálfstæðisflokksins og lyfjafræðing um boðað bann við hvalveiðum og ætlun heilbrigðisráðherra að breyta hlutverki heilbrigðisstétta.  -- 25. sept. 2026
  • Skipulagsmálin - Hjördís Vilhjálmsdóttir & Kári Stefánsson 24.09.2026 57min
    Hjördís Vilhjálmsdóttir ræðir við Kára Stefánsson lækni um þróun byggðar og læknastofnana.  -- 23. sept. 2026 
  • Tónlistarþáttur - Arnþrúður Karlsdóttir og Soffía Karlsdóttir söngkona 24.09.2026 55min
    Arnþrúður Karlsdóttir og Soffía Karlsdóttir söngkona ræða um tónlistarlífið og feril Soffíu ásamt því að spiluð verður vel valin tónlist sem tengist næstkomandi minningarhljómleikum hennar og hljómsveitarinnar The Saints of Boogiestreet, en þeir minnast 10 ára sem eru frá láti Leonard Cohen og verða tónleikarnir þann 21. okt. næstkomandi í Bæjarbíói Hafnarfyrði.  -- 24. sept. 2026
  • Menntamálin - Arnþrúður Karlsdóttir & Valgerður Snæland Jónsdóttir 24.09.2026 56min
    Arnþrúður Karlsdóttir og Valgerður Snæland Jónsdóttir fyrrverandi skólastjóri og kennari í áraraðir ræða um skólamálin og breytingar á námsefni fyrir börn og ungmenni, í tímans rás.  -- 24. sept. 2026
  • Skipulagsmálin - Hjördís Vilhjálmsdóttir & Pétur H Ármansson 23.09.2026 55min
    Hjördís Vilhjálmsdóttir ræðir við Pétur H Ármannson, arkitekt og sviðstóra hjá Minjastofnun Íslands um þróun byggðar.  -- 23. sept. 2026
  • Bókun 35 - Arnþrúður Karlsdóttir & Arnar Þór Jónsson 23.09.2026 46min
    Arnþrúður Karlsdóttir og Arnar Þór Jónsson ræða um frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35 og fyrirhugaða vopnaframleiðslu Íslendinga og fleiri mál sem bera hæst núna.  -- 23. sept. 2026
  • Lífið í Sovíetríkjunum - Pétur Gunnlaugsson & Ólafur Egilsson - 2. sept. 2015 22.09.2026 53min
    Pétur Gunnlaugsson ræðir við Ólaf Egilsson, fyrrverandi sendiherra Íslands til Sovíetríkjanna, um lífið í Sovíetríkjunum árin 1990-1994 á tímum Míkhaíls Gorbatsjovs. Þátturinn var upprunalega útvarpaður 2. sept. 2015 og endurunninn 22. sept. 2026
  • Eftirmálar kosninganna - Arnþrúður Karlsdóttir & Haraldur Ólafsson 22.09.2026 56min
    Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Harald Ólafsson prófessor og formann Heimssýnar um eftirmála kosninganna um umsókn að ESB.  -- 22. sept. 2026 
  • Grænland - Arnþrúður Karlsdóttir & Atli Lilliendahl 21.09.2026 46min
    Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Atla Lilliendahl framkvæmdastjóra sem var að koma frá Grænlandi og hefur fylgst með atburðarrásinni á Grænlandi í samningaviðræðum við Bandaríkin og Danmörku um öryggisyfirráð Grænlands.  -- 21. sept. 2026
  • Orkumálin - Arnþrúður Karlsdóttir & Kristinn Sigurjónsson 17.09.2026 47min
    Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Kristinn Sigurjónsson rafmagns- og efnaverkfræðing um rafvæðingu strandveiðflotans, brunann í Toppstöðinni í Elliðaárdal og skógarbruna víða erlendis og einnig um Tækniskólann og tæknimenntun.  -- 17. sept. 2026
  • Ríkisfjármálin - Arnþrúður Karlsdóttir & Guðlaugur Þór Þórðarson 17.09.2026 51min
    Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson alþingismann og fyrrverandi ráðherra sjálfstæðisflokksins um fjármál ríkisins og fleiri mál.  -- 17. sept. 2026
  • Skipulagsmálin - Breki Karlsson & Hildur Ýr Viðarsdóttir 16.09.2026 51min
    Hjördís Vilhjálmsdóttir ræðir við Breka Karlsson formann Neytendasamtakanna og Hildi Ýr Viðarsdóttur lektor við Háskólann í Reykjavík og formann Húseigendafélagsins.  -- 16. sept. 2026
  • Arnþrúður Karlsdóttir & Guðmundur Ólafsson - 16. sept. 2026 16.09.2026 55min
    Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Ólafsson hagfræðingur ræða margvísleg mál af innlendum og erlendum vettvangi.  -- 16. sept. 2026
  • Básahverfið í Gufunesi - Hjördís Vilhjálmsdóttir & Símon Þorkell Símonarson Ólsen 15.09.2026 56min
    Hjördís Vilhjálmsdóttir ræðir við Samúel Þorkel Ólsen íbúa í Gufunesi um aðstöðu íbúa þar varðandi vanefndir borgarstjórnar gagnvart samgöngumálum og bílastæðaskorti og fleiri mál.  -- 15. sept. 2026
  • Spámiðlun - Arnþrúður Karlsdóttir & Guðrún Kristín Ívarsdóttir 15.09.2026 51min
    Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Guðrúnu Kristínu Ívarsdóttur miðil og heilara í 7. himni um þá atburðarás sem búast megi við á Íslandi og erlendis á næstu vikum eftir því sem hún er að skynja.  -- 15. sept. 2026
  • Fjárlögin - Arnþrúður Karlsdóttir, Pétur Gunnlaugsson & Sigurjón Þórðarson 11.09.2026 59min
    Arnþrúður og Pétur ræða við Sigurjón Þórðarson þingmann Flokks fólksins og formann fjárlaganefndar. Að hluta tímans verður opinn símin fyrir hlustendur sem vilja koma með spurningar fyrir Sigurjón Þórðarson.  -- 11. sept. 2026
  • Fjárlögin - Pétur Gunnlaugsson & Lilja Alfreðsdóttir 10.09.2026 51min
    Pétur Gunnlaugsson ræðir við Lilju Alfreðsdóttur formann Framsóknarflokksins um stefnu ríkisstjórnarinnar, fjárlögin og efnahagsmál þjóðarinnar.  -- 10. sept. 2026
  • Skattahækkanirnar - Pétur Gunnlaugsson & Ragnar Sigurður Kristjánsson 10.09.2026 52min
    Pétur Gunnlaugsson ræðir við Ragnar Sigurð Kristjánsson hagfræðing viðskiptaráðs um fjárlögin og skattahækkanir ríkisstjórnarinnar.  -- 10. sept. 2026
  • Skipulagsmálin - Hjördís Vilhjálmsdóttir, Vilhjálmur Árnason & Guðlaugur Kárason 09.09.2026 58min
    Skipulagsmálin í umsjón Hjördísar Vilhjálmsdóttur. Í dag verður fjallað um breytingu skipulags í Reykjanesbæ, þá jákvæðu breytingu að lóðir verða fáanlegar án endurgjalds. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og fyrrverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins verður gestur þáttarins ásamt Guðlaugi Kárasyni formanni bæjarráðs Reykjanesbæjar.  -- 9. sept. 2026
  • Písa könnunin - Arnþrúður Karlsdóttir & Jón Pétur Zímsen 09.09.2026 45min
    Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Jón Pétur Zímsen alþingismann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóra um niðurstöður Písa könnunarinnar.  -- 9. sept. 2026

Populaarne riigis

See taskuhääling on ka nende riikide taskuhäälingute edetabelites.