Samstöðin

Samstöðin

Samstöðin
Riik Island
Keel IS
Osad 600
Viimane 26.09.2026

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Osad

  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Björn Leví 26.09.2026 1t 53min
    Laugardagur 26. september Helgi-spjall: Björn Leví Í helgispjalli ræðir Björn Leví Gunnarsson við Björn Þorláks um einelti og fleira. Þegar einelti gengur langt má líkja því við tilraun til mannsdráps að sögn hans. Þingið, fall pírata, átök í Flokki fólksins og fleira verður til umræðu.
  • Föstudagur 25. september Vikuskammtur: Vika 39 25.09.2026 1t 11min
    Föstudagur 25. september Vikuskammtur: Vika 39 Fyrsta haustlægðin, hvellurinn í Flokki fólksins, Átök Ísraels og Palestínu, stórafmæli Menntaskólans í Hamrahlíð, staða pólitíkur og efnahagsmála, bridds, brennivín, bækur, músík og fleiri mál verða til umræðu í fréttaþættinum Vikuskammtur. Björn Þorláks hefur umsjá með dagskránni en gestir eru Matthías Imsland framkvæmdastjóri, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur, Árni Guðmundsson forvarnafulltrúi og Hallveig Rúnarsdóttir söngkona.
  • Rauða borðið 24. sept - Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók 24.09.2026 5t 15min
    Fimmtudagur 24. september Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Þorsteinn Pálsson ræða utanríkismál og samband Íslands við umheiminn í samtali við Sigurjón Magnús Egilsson. Heimir Hallgrímsson hefur vakið reiði ísraelska knattspyrnusambandsins. Hjálmtýr Heiðdal hjá Ísland-Palestína ræðir við Björn Þorláks um hugrekki knattspyrnuþjálfarans. Oddný Harðardóttir, Steingerður Steinarsdóttir og Thomas Möller eru gestir Sigurjóns í Reynsluboltum, vinnudeila flugvirkja, ESB og fleira til umræðu. Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um gervigreindarkapphlaup Kína og USA, heimsendaspár og hvernig gervigreindin mun hafa áhrif á samfélagið og ekki síst okkur sjálf. Bjarni Harðarson útgefandi og rithöfundur segir Gunnari Smára frá ferðum sínum um heiminn, en honum finnst best að ferðast einn til staða þar sem hann kann ekki tungumálið. Mao bannaði Kínverjum að stunda Qigong til að koma í veg fyrir sjálfstæða hugsun og frjálsan vilja, segir Þorvaldur Ingi Jónsson Qigong-kennari. Í viðtali við Ásdísi Olsen útskýrir hann kínverska heilsutækni.
  • Sjávarútvegsspjallið - 91. þáttur: Fiskeldi í landi og sjó 24.09.2026 58min
    Fimmtudagur 24. september Sjávarútvegsspjallið - 91. þáttur Viðmælandi Grétars að þessu er Jón Kaldal, sem er félagi í  Íslenska náttúruverndarsjóðnum - The Icelandic Wildlife Fund.
  • Rauða borðið 23. sept - Kynjastríð, okur, Kína, Evrópa og áföll 23.09.2026 3t 31min
  • Græna borðið - 21. þáttur - Þingheimur og grænu málin 23.09.2026 57min
    Þriðjudagur 22. september Græna borðið - 21. þáttur Hvalveiðar verða stóra umhverfisdeilan á þingi í vetur. Gervigreind og gagnaver koma lítið til tals meðal Alþingismanna. Sefur þingheimur á sitt græna eyra? Hver ber ábyrgð á Seyðisfirði? Var gangsetning Vaðölduvers gleðistund? Þetta er meðal þess sem rætt var við Græna borðið þegar þær Ása Berglind Hjálmarsdóttir og Ingveldur Anna Sigurðardóttir frá umhverfis- og samgöngunefnd settust niður með Andrési Inga og Krístínu Helgu til að ræða grænu málin á Alþingi á komandi vetri.
  • Rauða borðið 22. sept - Efnahagsmál, gunguháttur, ný skáldsaga, Grænland og næring 22.09.2026 4t 56min
    Þriðjudagur 22. september Efnahagsmál, gunguháttur, ný skáldsaga, Grænland og næring Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku og Ragnar Sigurður Kristjánsson hagfræðingur Viðskiptaráðs ræða við Gunnar Smára um fjárlögin og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og hætturnar í efnahaginum þar sem verðbólga, vaxandi atvinnuleysi og merki um stöðnun draga um dökka mynd. Auka þarf kröfur til skólabarna, segir Sverrir Norland rithöfundur, bankamaður og lögfræðingur. Hann ræðir hugrekki og aumingjaskap og ýmislegt þar á milli í samtali við Björn Þorláks. Margrét Bjarnadóttir danshöfundur, myndlistarmaður, leikhúskona og margt fleira hefur sent frá sér skáldsöguna Varkár, sem er einskonar skáldævisaga og fjallar um konu sem heitir Margrét og lifir lífi sem er líkt lífi höfundarins. Margrét segir Gunnari Smára frá bókinni og sjálfum sér, og muninum á þessu tvennu. Rasmus Gjedssø Bertelsen prófessor í Tromsø ræðir við Gunnar Smára um ásælni Trump til Grænlands, varnarsamninga Grænlands og Ísland, tengingu Kanada til Evrópu og hverju það kann að breyta fyrir okkur og norðurslóðir. Ásdís Olsen ræðir við Elísabetu Reynisdóttur (Beta Reynis), næringarþerapisti og næringarfræðing um togstreitu við akademíuna og hvernig hún hefur leyst úr áföllum og lært lexíur.
  • Bókaborðið - 2. þáttur: Hamraskáldin Þórunn og Yrsa 22.09.2026 50min
    Þriðjudagur 22. september Bókaborðið - 2. þáttur Í þessum þætti tekur Brynhildur Björnsdóttir tali tengdamæðgurnar og MH- ingana Þórunni Erlu Valdimarsdóttur og Yrsu Þöll Gylfadóttur. Þær ræða starf rithöfundarins, stuttar og langar bækur, nýju bókina hennar Yrsu og námsárin sín í MH.
  • Rauða borðið 21. sept - Pólitík, stefnumótamenning, PISA, atkvæðavægi og Lalli Johns 21.09.2026 4t 23min
    Mánudagur 21. september Pólitík, stefnumótamenning, PISA, atkvæðavægi og Lalli Johns Guðmundur Ari Sigurjónsson er með metnað til að verða varaformaður Samfylkingarinnar þrátt fyrir ungan aldur og stutta þingreynslu. Hann hefur áður hent sér út í djúpa laug og ræðir baráttuna, sigra og töp í samtali við Björn Þorláks. „Karlar hræðast mest að konan líti verr út en á myndinni, en konur hræðast að vera drepnar,“ segir Olga Björt Þórðardóttir, sem hefur opinberlega kallað eftir “góðum mönnum”. Auðunn Gunnar Eiríksson, stjórnunarráðgjafi hjá Gallup, miðlar athyglisverðri Tinder-tölfræði, en tölur sýna að stór hluti karlmanna á Tinder er giftur eða í sambandi. Þau ræða við Ásdísi Olsen.Benedikt Sigurðarson, fyrrum skólastjóri, ræðir PISA í samtali við Björn Þorláks. Ekki er allt sem sýnist í því máli, segir Benedikt. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur bregst við gagnrýni sem komið hefur fram á vinnu sem ætlað er að jafna atkvæðavægi. Björn Þorláks ræðir við hann. Rósa Ólöf Ólafíudóttir hefur skrifað bók um bróður sinn, Lárus Björn Svavarsson, sem er það sem kallast þjóðsagnapersóna. Hún segir Gunnari Smára frá Lalla Johns.
  • Synir Egils 20. sept - Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík 20.09.2026 2t 26min
    Sunnudagurinn 20. september Synir Egils: Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík Til okkar koma á vettvang dagsins Árni Helgason þingmaður, Líf Magneudóttir borgarfulltrúi og Margrét Helga Erlingsdóttir sjónvarpskona og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélagsins og síðan þeir Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur Húsnæðis og mannvirkjastofnunar, Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Leigjendasamtakanna að ræða húsnæðismál, en slæm staða þeirra hefur drifið áfram verðbólgu og grafið undan lífskjörum leigjenda mörg undanfarin ár. Er von um breytingu? Í lokin fara þeir bræðir, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Ása Berglind 19.09.2026 1t 18min
    Laugardagur 19. september Helgi-spjall: Ása Berglind Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona fyrir Samfylkinguna var gestur Sigurjóns Magnúsar í Helgispjallinu þessa helgina. Ása Berglind á rætur í tónlist og spilar til að mynda á trompet. Ása Berglind segir af sjálfri sér og uppvextinum, hvernig það er að verða móðir aðeins 17 ára, frá störfum sínum í bæjarstjórn Þorlákshafnar og frá störfum sínum á Alþingi og hvað henni þykir um Kristrúnu Frostadóttur.
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 38 18.09.2026 1t 44min
    Föstudagur 18. september Vikuskammtur: Vika 38 Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri, Freyr Eyjólfsson öskukarl og poppari, Hólmfríður Gísladóttir fréttakona og Nína Helgadóttir fulltrúi í málsvarastarfi Rauða kross Íslands koma í Vikuskammt og ræða fréttir vikunnar við Gunnar Smára, fréttir sem einkenndust af átökum, deilum og upplausn, stríðum, mögulegum heimsenda og langdrægnum markmiðum.
  • Rauða borðið 17. sept - Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa 17.09.2026 4t 5min
    Fimmtudagur 17. september Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur ræðir hvers vegna opinberar stofnanir hundsa íbúalýðræði og náttúruvernd. Björn Þorláks ræðir við hann. Ragnheiður Davíðsdóttir, Hákon Gunnarsson og Þorsteinn Sæmundsson voru gestir í Reynsluboltum Sigurjóns. Að venju var víða komið við. Kannski stal Donald Trump senunni með öllum sínum tilskipunum. Ýmislegt fleira bar þó á góma. Dr. Magnús Thorson segir Ásdísi Olsen allt um Cannabis Entrepreneurship. Gunnar Bender, ritstjóri Sportveiðiblaðsins, kom og sagði okkur frá veiði sumarsins. Hvar veiðimenn voru kátastir með aflann og hvar ekki. Einn dagur í góðri á kostar frá 4 til 500 þúsund krónur. Heildræn heilsuhátíð fer fram í Mosfellsbæ um helgina í 16. sinn, þar sem boðið er upp á allskonar andlegt og óhefðbundið, skrítið og skemmtilegt. Vigdís Steinþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og fyrrilífsdáleiðari segir Ásdísi Olsen frá því helsta sem verður á dagskrá.
  • Sjávarútvegsspjallið - 90. þáttur: Strandveiðar og staða fiskistofna 17.09.2026 1t 7min
    Fimmtudagur 17. september Sjávarútvegsspjallið - 90. þáttur Viðmælendur Grétars eru að þessu sinni þeir Þórólfur Júlían Dagsson, strandveiðimaður, og Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar Alþingis.
  • Græna borðið - 20. þáttur: Stórgölluð stjórnsýsla 17.09.2026 49min
    Miðvikudagur 16. september Græna borðið - 20. þáttur Þær Katrín Oddsdóttir og Benedikta Svavarsdóttir frá samtökunum Vá-félag um verndun fjarðar settust við Græna borðið ásamt Páli Ásgeiri Ásgeirssyni. Umræðuefnið var nýlegt leyfi sem fyrirtækinu Kaldvík fékk til laxeldis í Seyðisfirði. Þær lýsa meingallaðri stjórnsýslu sem dregur blygðunarlaust taum hagsmunaðila og hunsar almannahagsmuni. Þær boða kærur vegna þessara leyfisveitinga og vilja áfram vernda Seyðisfjörð og fólkið sem þar býr þrátt fyrir þetta áfall.
  • Rauða borðið 16. sept - Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal 16.09.2026 3t 40min
    Miðvikudagur 16. september Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal Kristinn Rúnar Þórisson prófessor í tölvuvísindum við HR ræðir um gervigreind við Gunnar Smára, hvort tæknin geti vaxið manninum yfir höfuð og eytt honum. Björn Bjarnason fyrrum þingmaður og ráðherra sendir frá sér þrjár þýðingar í ár, allt á bókum sem fjalla um breytta stöðu heimsmála. Hann segir Gunnari Smára frá þessum bókum og einkum Einræði hf. eftir Anne Applebaum. Henry Alexander Henrysson heimspekingur svarar Birni Þorláks hvort það sé í lagi að ljúga til að ná fram niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þórarinn Ævarsson athafnamaður segir Ásdísi Ólsen frá glíma sinni við OxyContin-fíkn, skömmina og óttann og sátt við föður sinn. Jón Ólafsson tónlistarmaður ræðir hljómsveit Ingimars Eydal við Björn Þorláks, sveit sem átti sér engan líka.
  • Rauða borðið 15. sept - Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing 15.09.2026 3t 34min
    Þriðjudagur 15. september Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing Flugvirkjar hafa boðað verkfall og mikið ber á milli þeirra og Icelandair. Óskar Einarsson formaður Flugvirkjafélags Íslands skýrir stöðuna fyrir Gunnari Smára. Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent við menntavísindasvið, Magnús Helgason sagnfræðingur og Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragða- og guðfræðingur ræða við Gunnar Smára um áhrif Trump á samfélagið og heiminn. Baktal er hreinlega líkamlega skaðlegt, líkt og um útskúfun sé að ræða segir Lára G. Sigurðardóttir læknir og nemi í taugavísindum í samtali við Ásdísi Olsen. Jón Kaldal blaðamaður ræðir sundrungu innanlands og utan og hvernig öfl róa að því að tvístra fólki. Hann varar við málflutningi sem ætlað er að skapa gjá milli landsbyggðanna og höfuðborgarsvæðisins. Björn Þorláks ræðir við hann. Breki Karlsson ræðir illa þokkuð gjöld og hvort dómur sem féll í Noregi gæti orðið íslenskum neytendum búbót. Svokallaða hrakvæðingu ber einnig á góma. Hvað er það? Björn Þorláks ræðir við Breka.
  • Bókaborðið - 1. þáttur: Eru allar gamlar bækur merkilegar? 15.09.2026 57min
    Þriðjudagur 15. september Bókaborðið - 1. þáttur Í þessum fyrsta þætti Bókaborðsins spjalla María Hjálmtýsdóttir og Eiríkur Ágúst Guðjónsson um fornbókabúðir fyrr og nú, bókasöfnun, verðmæti gamalla bóka, bókband og ýmislegt fleira tengt bókum sem gripum.
  • Rauða borðið 14. sept - Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga 14.09.2026 3t 40min
    Mánudagur 14. september Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga Jódís Skúladóttir fyrrum þingmaður og sveitarstjórnarfulltrúi á Austurlandi gagnrýnir suma fyrrverandi félaga í VG harðlega í tengslum við áform um laxeldi á Seyðisfirði. Björn Þorláks ræðir við Jódísi. Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor á menntavísindasviði ræðir við Gunnar Smára um stöðuna á grunnskólanum í ljósi PISA. Stjórnskipuleg, söguleg, þjóðréttarleg og leikjafræðileg álitamál verða til umfjöllunar vegna áhuga Trump á að Ísland verði eitt af fylkjum Bandaríkjanna. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks. Skúli Sigurðsson jógakennari er giftur inn í eina merkilegustu jógafjölskyldu heims. Eiginkona Skúla, dr. Kamini Desai, er merkilegur frumkvöðull sem starfar víða um heim og hefur kennt hundruðum Íslendinga Yoga Nidra. Skúli segir frá einstakri ástarsögu þeirra Kamini í samtali við Ásdísi Olsen.
  • Bridgeþátturinn - Úrvalsdeildin 13.09.2026 31min
    Sunnudagurinn 13. september Bridgeþátturinn: Úrvalsdeildin Matthías Imsland framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands og Magnús E. Magnússon landsliðsmaður og briddskennari ræða við Björn Þorláks um sjónvarpsmót fram undan og fleira.

Populaarne riigis

See taskuhääling on ka nende riikide taskuhäälingute edetabelites.