Pallborðið

Pallborðið

visir
Riik Island
Keel EN
Osad 48
Viimane 24.09.2026

Viðtalsþáttur á Vísi þar sem kafað er í mál í brennidepli.

Osad

  • Klukkan tifar og staðan sögð við­kvæm 24.09.2026 46min
    Kjaramál voru til umræðu í Pallborðinu á Vísi. Frestur til að segja upp kjarasamningum vegna forsendubrests rennur út eftir sléttar tvær vikur, eða þann 8. október. Staðan er sögð viðkvæm og kröfur aðila ólíkar. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR mættust í Pallborðinu.
  • Línurnar lagðar fyrir spennandi þing 03.09.2026 1t 1min
    Gera má ráð fyrir að þingveturinn hefjist með hvelli enda nóg um að vera í samfélaginu. Verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár, forsendur kjarasamninga eru brostnar og enn er óvíst hvernig fer með umsókn Íslands að Evrópusambandinu eftir að þjóðin hafnaði aðildarviðræðum.  Við snertum á þessum málum og mörgum öðrum í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi.
  • Satt, logið og um­deildar aug­lýsingar 27.08.2026 51min
    Farið verður yfir samsæriskenningar og fleiri fullyrðingar sem tæplega standast skoðun í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag í fjórða og síðasta Pallborði Vísis fyrir kosningar. Auk þess verður kosningabaráttan hingað til gerð upp af álitsgjöfum. Stjórnmálafræðingarnir og þáttastjórnendur Skuggavaldsins þau Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir mæta í fyrri hluta þáttarins og ræða upplýsingaóreiðu, samsæriskenningar og fullyrðingar í baráttunni sem tæplega standast skoðun.  Í síðari hluta munu Þórhildur Þorkelsdóttir ráðgjafi og hlaðvarpsstjórnandi, Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjórnandi og Lilja Katrín Gunnarsdóttir útvarpskona rýna í kosningabaráttuna frá ólíkum sjónarhornum, ræða umtalaðar auglýsingar og andlega líðan þjóðar. 
  • Hasar í umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna 26.08.2026 1t 6min
    Þriðja Pallborð fréttastofu Vísis að viðræðum fór fram í dag en þar mættu þau Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Jónas Hagan Guðmundsson, fjárfestir og einn stofnenda Já til að sjá sem fulltrúar Já-ara en Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins og Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP, mættu fyrir hönd Nei-ara.
  • Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? 20.08.2026 1t 1min
    Evrópumálin eru enn í brennidepli í Pallborðinu. Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að því hvað innganga í Evrópusambandið myndi þýða fyrir ungt fólk á Íslandi. Hvort ætti ungt fólk að kjósa já eða nei? Gestir eru Jóhannes Óli, María Malmquist, Magnea Gná og Steinar Ingi.
  • Já-arar og nei-arar í Pallborði 20.08.2026 59min
    Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, og Gréta María Grétarsdóttir, stjórnarkona í Já til að sjá mættu þeim Ernu Bjarnadóttur, stjórnarkonu í Heimsýn, og Júlíusi Viggó Ólafssyni frá Áfram Ísland í pallborðsumræður um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.
  • Evrópusambandið: Nei eða já? 23.07.2026 55min
    Rætt var um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu voru Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur, Gréta María Grétarsdóttir verkfræðingur, Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði.
  • Ofbeldisalda hjá ungmennum 20.03.2025 41min
    Gestir Bjarka Sigurðssonar í Pallborðinu eru þau Hermann Austmar, faðir í Breiðholti, Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, Elísa Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur og Helga Þórðardóttir, formaður skóla- og frístundasviðs borgarinnar.
  • Um­ferðar­öryggi og 200 milljarða viðhaldsskuld 13.03.2025 40min
    Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu, Ólafur Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur, Guðmundur Valur Guðmundsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar og Þorgrímur Sigmundsson þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi voru gestir Hallgerðar Kolbrúnar E. Jónsdóttur í Pallborðinu.
  • Hvar stendur Ís­land gagn­vart Trump, tollastríði og breyttri heims­mynd? 06.03.2025 43min
    Pawel Bartoszek, Friðjón Friðjónsson, Stefán Pálsson og Sigríður Á. Andersen voru gestir Elínar Margrétar Böðvarsdóttur fréttamanns í Pallborðinu á Vísi. 
  • Brýnustu verkefnin í borginni 27.02.2025 48min
    Berghildur Erla fékk til sín oddvita í Reykjavík til að ræða brýnustu verkefnin í borginni sem framundan eru. Gestir voru Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknar, Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Helga Þórðardóttir, oddviti Flokks fólksins og Líf Magneudóttir oddviti Vinstri grænna.
  • Áslaug Arna og Guðrún í Pallborðinu 24.02.2025 54min
    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðrún Hafsteinsdóttir, frambjóðendur til formanns Sjálfstæðisflokksins, mættu í Pallborðið til Vésteins Arnar Péturssonar.
  • Fjórir berjast um for­manns­sætið í VR 18.02.2025 54min
    Bjarni Þór Sigurðsson, stjórnarmaður í VR, Flosi Eiríksson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og núverandi ráðgjafi hjá Aton, Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Þorsteinn Skúli Sveinsson, sérfræðingur á mannauðs- og stefnusviði BYKO voru gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu þar sem formannskjör VR voru til umræðu.
  • Kjara­deila grunn­skóla- og leik­skóla­kennara 05.02.2025 46min
    Þau Ragnheiður Stephensen grunnskólakennari í Garðaskóla í Garðabæ, Kristófer Már Maronsson í málsóknarfélagi barna og formaður fræðslunefndar í Skagafirði og Jón Pétur Zimsen fyrrverandi kennari og skólastjóri og þingmaður Sjálfstæðisflokksins voru gestir Berghildar Erlu í Pallborðinu á Vísi.
  • Handboltaæði runnið á þjóðina 22.01.2025 41min
    Stefán Árni Pálsson hitar upp fyrir leik Íslands og Egyptalands og keppni í milliriðlum á heimsmeistaramótinu í handbolta karla ásamt þeim Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Bjarna Fritzsyni í Pallborðinu.
  • Sér­fræðingar rýna í stöðuna á loka­sprettinum 25.11.2024 55min
    Margrét Helga Erlingsdóttir, fréttamaður, fær til sín þau Þóru Ásgeirsdóttur, framkvæmdastjóra Maskínu, Eirík Bergmann, stjórmálafræðiprófessor við Bifröst, Huldu Þórisdóttur, prófessor í stjórnmálasálfræði við HÍ og Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, doktorsnema við Hí til að rýna í stöðuna á lokasprettinum.
  • Rýnt í hæðir og lægðir baráttunnar 18.11.2024 54min
    Hlaðvarpsstjórnendur sem halda úti umfjöllun um kosningarnar mættu í myndver til þess að fara yfir stöðuna. Þórhallur Gunnarsson úr Bakherberginu, Kristín Gunnarsdóttir úr hlaðvarpinu Komið gott, Gísli Freyr Valdórsson hjá Þjóðmálum og Þórarinn Hjartarson sem heldur úti Einni Pælingu.
  • Hvalveiðafár og skóla- og heil­brigðis­mál 13.11.2024 1t
    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Gunnar Smári Egilsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Sigmar Guðmundsson voru gestir Pallborðsins í dag. Til umræðu voru meðal annars nýjustu vendingar í skoðanakönnunum og pólitíkinni og skóla- og heilbrigðismál, svo eitthvað sé nefnt. Pallborðinu stýrði Hólmfríður Gísladóttir fréttamaður.
  • Hvaða lausnir bjóða flokkarnir? 11.11.2024 49min
    Í þetta skiptið tekur Berghildur Erla á móti Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, Ölmu Möller landlækni í leyfi sem leiðir lista Samfylkingar í Kraganum, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur þingmanni sem fer fyrir lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður og Bergþóri Ólasyni, þingmanni og oddvita Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi. 
  • For­menn Fram­sóknar, Flokks fólksins og Sam­fylkingar ræða málin 06.11.2024 56min
    Nú er röðin komin að formönnum síðustu þriggja flokkanna sem bjóða fram í öllum kjördæmum í komandi alþingiskosningum. Þetta eru Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Inga Sæland formaður Flokks fólksins sem mættu í settið til Elínar Margrétar Böðvarsdóttur fréttamanns.

Populaarne riigis

See taskuhääling on ka nende riikide taskuhäälingute edetabelites.