Spor
RÚV Hlaðvörp
0
Spor er íslenskur hlaðvarpsþáttur þar sem Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og leitar í hversdeginum að sannleikskornum um hver við erum í dag. Í þættinum kynnist hún alls konar fólki og spyr tilvistarspurninga um spor í nútíð, fortíð og framtíð – sporin sem við skiljum eftir okkur og sporin sem heimurinn markar í okkur. Fjallað er um tækni, vísindi, umhverfið, samtímann og söguna. Hlusta má á þáttinn í hlaðvarpi RÚV.
Osad
-
Verði þinn greiðsluvilji 23.09.2026 57minHvaða þýðingu hefur það fyrir neytendur og fyrirtæki að verð séu orðin sérsniðin? Hvers eiga unglingar og fólk í viðskiptaferðum að gjalda? Í þættinum skoðum við heim verðlagningar sem er að breytast hratt. Það er ekki lengur eitt verð, það eru mörg verð. Viðmælendur í þættinum: Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum.Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Rannsóknarseturs HR í markaðsfræði og neytendasálfræði.Þórarinn Stefánsson, framkvæmdastjóri Mobilitus og stjórnarmaður í Neytendasamtökunum. ***Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Óreiðan sem gerir okkur brjáluð 16.09.2026 55minHvers vegna fær sumt fólk kikk út úr því að losa sig við mörg hundruð hluti á einu bretti á meðan aðrir upplifa djúpa vanlíðan við að henda einum hlut?Umsýslan með hlutunum sem við eigum er orðin stór partur af annarri og þriðju vaktinni, markaðsöflin eru búin að kveikja á perunni og það fjölgar í hópi skipuleggjara sem bjóðast til að hjálpa fólki við að ráða fram úr draslinu á heimili sínu.Í þættinum ræðir Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, við fólk um mannlegt eðli og það að losa sig við hluti.Viðmælendur í þættinum:Arnrún Árnadóttir skipuleggjariMarkús Þórhallsson fréttamaður og sagnfræðingurRagna Benedikta Garðarsdóttir prófessor í félagssálfræðiSvala Fanney Snædahl áhrifavaldur og kennariÞórður Örn Arnarson doktorsnemi í sálfræði***Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Þegar búslóðin fuðrar upp 01.09.2026 51minHvers virði eru efnislegir hlutir? Afhjúpar það að missa alla búslóðina á einu bretti eitthvað um þýðinguna sem hlutir hafa fyrir okkur? Nær maður sér af slíku? Í þættinum ræðir Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, við fólk sem missti stóran hluta veraldlegra eigna sinna í stórbrunanum í Geymslum árið 2018 í þeim tilgangi að skilja betur mannlegt eðli og mikilvægi hlutanna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Populaarne riigis
See taskuhääling on ka nende riikide taskuhäälingute edetabelites.