Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Brotkast ehf.
Ország Iceland
Műfajok Arts, Performing Arts
Nyelv IS
Epizódok 1368
Legutóbbi 01.06.2026

Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.

Epizódok

  • Bakslagið #38 - Jakob Bjarnar 01.06.2026 2ó 34p
    Jón Þormar, Helgi Bjarnason og Jakob Bjarnar ræða málin.
  • Segir að Heiða Björg hafi útrýmt heimilisleysi í Reykjavík | Fullorðins | S03E16 31.05.2026 3p
    Ragnar Erling Hermannsson hefur barist fyrir málefnum heimilislausra í nokkur ár og hefur háð baráttu við fíkniefnadjöfulinn. Hann segir okkur sína sögu í þættinum í dag. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Missti báða foreldra sína með stuttu millibili skömmu eftir fermingu | Fullorðins | S03E15 29.05.2026 2p
    Ingibjörg Birna Ársælsdóttir missti báða foreldra sína úr krabbameini, þegar hún var sjálf bara táningur. Í þætti dagsins segir hún okkur frá því hvernig hún komst í gegnum árin á eftir og hvað hún gerði til að búa sér til fallegt og farsælt líf. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Sjálfstæðisflokkurinn ekki hægriflokkur | Harmageddon | S04E21 27.05.2026 17p
    Kjósendur Sjálfstæðflokksins vakna nú upp við þann veruleika að þeir hafa kosið enn eina vinstristjórnina í Reykjavík. Flokkurinn virtist vera ná sér eftir erfitt gengi undanfarið en nú þarf kraftaverk að gerast í Reykjavík til að kjósendur muni treysta flokknum aftur á næstu árum. Jafnvel grjótharðir, innmúraðir Sjálfstæðismenn þurfa nú að fara horfast í augu við þá staðreynd að forysta flokksins vill miklu frekar geta skálað í hvítvíni með RÚV fólkinu, sem hún þráir viðurkenningu frá, heldur en að halda á lofti einhverjum hægri áherslum í pólitík.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Ævintýraprinsinn Björgvin Halldórsson | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E32 27.05.2026 6p
    Jakob Frímann Magnússon er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni.Hann fer hér yfir kynni sín af Björgvini Halldórsyni heitnum en þeir félagar tengdust vinaböndum í gegnum tónlistina og spannaði sú vinátta marga áratugi. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Bjórkast #37 - Frosti Sigurjónsson 25.05.2026 2ó 33p
    Jón Þormar, Helgi Bjarnason, Sverrir Helgason og Frosti Sigurjónsson ræða málin.
  • Sjálfstæðisflokkurinn ekki kosinn til að vinna til vinstri | Harmageddon | S04E20 22.05.2026 14p
    Þrátt fyrir að enginn málefnaleg rök liggi fyrir því, þá er Sjálfstæðisflokkurinn leitandi logandi ljósi af ástæðum til að vinna ekki með Miðflokki. Enginn kjósandi Sjálfstæðisflokks ber þá ósk í brjósti að flokkurinn vinni til vinstri og Viðreisn hefur ekkert að bjóða flokknum annað en ágreining um nokkur af helstu málefnum kosninganna. Samt hefur Sjálfstæðisflokkurinn enn ekki hafið viðræður við Miðflokkinn. Við spáum því að framtíð Sjálfstæðisflokksins sé ekki jafn björt og fylgi þeirra í nýafstöðnum borgarstjórnarkosningum gefur til kynna.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Brottfararstöð nauðsynleg | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E31 20.05.2026 5p
    Dómsmálaráðherra Íslands, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, er gestur Frosta Logasonar í ítarlegu og umdeildu viðtali um helstu hitamál íslenskra stjórnmála.Í viðtalinu ræðir Þorbjörg meðal annars um hertari stefnu ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum, fyrirhugaða brottfararstöð fyrir þá sem hafa fengið synjun um vernd, skipulagða brotastarfsemi, netveðmál, öryggi samfélagsins og stöðu réttarkerfisins.Einnig er rætt um ESB-umræðuna, Schengen-samstarfið, vændiskaup og jafnvægið milli frelsis og öryggis í nútímasamfélagi.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Sjálfstæðisflokkur undir þrýstingi Vóksins | Harmageddon | S04E19 18.05.2026 7p
    Í Harmageddon þætti dagsins förum við yfir niðurstöðu borgarstjórnarkosninganna. Kjósendur gáfu til kynna skýran vilja til þess að breytt yrði um stefnu og gáfu Sjálfstæðisflokki og Miðflokki meirihluta atkvæða til þess. Líklegt er þó að Sjálfstæðisflokkur muni ekki virða þennan vilja kjósenda sinna, heldur eigi eftir að bjóða varadekkjum fyrri meirihluta upp í dans. Við förum yfir málið í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Bjórkast #36 - Þórarinn Hjartarson 18.05.2026 2ó 30p
    Helgi Bjarnason, Sverrir Helgason og Þórarinn Hjartarson ræða niðurstöður sveitastjórnakosninga og fleira.
  • Mun ekki hætta fyrr enn sannleikurinn kemur í ljós | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E30 15.05.2026 5p
    Páll Steingrímsson, fyrrverandi skipstjóri hjá Samherja, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Héraðsdómur sýknaði nýverið ríkisútvarpið og Þóru Arnórsdóttur, fyrrverandi ritstjóra Kveiks, af kröfum Páls en hann fór fram á miskabætur vegna ætlaðra brota starfsmanna Rúv gegn friðhelgi einkalífs hans. Páll hefur ákveðið að áfrýja málinu til Landsréttar auk þess sem hann hefur tilkynnt RÚV til fjölmiðlanenfndar vegna umfjöllunar miðilsins um meintar hótanir hans gegn Helga Seljan og öðrum blaðamönnum. Páll fer í þessu viðtali ítarlega yfir allt hið svokallaða byrlunar- og símastuldsmál og segir því máli aldrei verða lokið fyrr enn sannleikurinn hafi að fullu verið leiddur í ljós.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Nýtt faraldursleikrit sett á svið | Harmageddon | S04E18 13.05.2026 8p
    Í þætti dagsins förum við yfir fyrstu fréttir af hinni skelfilegu hantaveiru en undirbúningur Alþjóðlegu heilbrigðismálastofnunarinnar fyrir næsta faraldur er nú í fullum gangi. Þá fjöllum við einnig um aktívistablaðamenn sem skrifa um Miðflokkinn og áherlsur Samfylkingarinnar á aukna hinseginfræðslu í grunn- og leikskólum fyrir borgarstjórnarkosningarnar um helgina. Þá skoðum við einnig bestu og verstu kosningamyndböndin á samfélagsmiðlum flokkanna. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Segir útgöngu geta orðið „praktískt ómögulega“ eftir upptöku evru | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E29 11.05.2026 18p
    Frosti Sigurjónsson er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann hefur nýverið gefið út Bókina um Evrópusambandið – hvað er í pakkanum, sem hann segir ekki vera áróðursrit um kosti eða galla ESB, heldur tilraun til að útskýra með hlutlægum hætti hvernig sambandið sé uppbyggt og hvaða skuldbindingar fylgi aðild.Í samtalinu fer Frosti meðal annars yfir evruna, fullveldi, kostnað við inngöngu, stöðu Íslands í EES og þá hættu sem hann telur felast í því að afhenda ákvörðunarvald til stofnana sem Íslendingar hafi takmarkaða stjórn á.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Smyglaði 1,5 kílói af hassi til Íslands árið 1972 | Fullorðins | S03E14 10.05.2026 3p
    Ingibergur Sigurðsson er með 4. stigs krabbamein og veit að hann á skammt eftir ólifað. Í þætti dagsins segir hann okkur frá lífi sínu, erfiðri æsku og hvernig er að sættast við það sem ekki fæst breytt.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Túrbókrabbamein eftir bólusetningar | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E28 07.05.2026 6p
    Ute Krüger er þýskur læknir og meinafræðingur með 25 ára starfsreynslu. Á árunum 2005-2023 starfaði hún sem læknir við brjóstameinagreiningu, þar af í átta ár við rannsóknir á brjóstakrabbameini við Háskólann í Lundi. Haustið 2021, eftir að byrjað var að dreifa bóluefnum við Covid-19, tók hún eftir að sjúklingar með brjóstakrabbamein voru með óvenjulegar breytingar í vefjum, nokkuð sem hún hafði aldrei séð áður á löngum ferli. Uppúr þessu fór hún að greina það sem hún kallar túrbó-krabbamein í sjúklingum sem allir höfðu verið bólusettir. Ute vill meina að þrátt fyrir að hún og nokkrir kollegar hennar hafi sannað tengsl á milli bóluefnana og þessara ört stækkandi krabbameina, hafi læknastéttin og heilbrigðisyfirvöld algjörlega hunsað allar slíkar upplýsingar. Hún hætti þess vegna að starfa sem læknir á sjúkrahúsinu í Lundi og hefur síðan þá helgað líf sitt baráttunni fyrir bættu heilbrigðiskerfi. Ute mun tala á ráðstefnu á Reykjavík Natura fimmtudaginn 7. maí klukkan 19:30Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Segir bæinn bera ósanngjarna byrði af hælisleitendum | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E27 07.05.2026 5p
    Einar Geir Þorsteinsson, oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Einar segir að heildarkostnaður Hafnarfjarðar vegna móttöku flóttamanna og/eða hælisleitenda hafi numið rúmlega 4,3 milljörðum króna á árunum 2020 til maí 2025, samkvæmt gögnum sem flokkurinn fékk nýlega frá bænum. Einar segir að Hafnarfjörður sé búinn að vera einn stærsti þjónustuaðili ríkisins þegar kemur að móttöku hælisleitenda með vernd og vill hann meina að stjórnmálamenn í Hafnarfirði hafi hingað til ekki viljað ræða byrðina sem af þess hlýst fyrir sveitarfélagið og íbúa þess.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Sóttvarnarfasismi leiddur í lög á Íslandi | Harmageddon | S04E17 06.05.2026 11p
    Í þætti dagsins fjöllum við um ný og umdeild sóttvarnarlög sem benda til þess að við höfum ekkert lært af mistökum covid-tímabilsins. Við ræðum einnig um sviksemi í mannréttindabransanum og falskar baráttur gegn svokallaðri hatursorðræðu. Þá fjöllum við um mögulegan meirihluta Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í Reykjavík og skoðum í lokin skaðleg áhrif óhóflegrar fíkniefnaneyslu á tónlistarsköpun ungu kynslóðarinnar. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Jeremy R. Hammond, idependent journalist | Arnar Þór | S03E09 | Full episode 05.05.2026
    The public is being dumbed down through state propaganda designed to manufacture consent.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Fólk sækist eftir að komast á bæturnar | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E26 04.05.2026 5p
    Lárus Guðmundsson, fyrrverandi knattspyrnuhetja og oddviti Miðflokksins í Garðabæ, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann hefur lengi verið ötull talsmaður þess að útlendingamál á Íslandi verði tekin fastari tökum og því ekki undarlegt að hann hafi gengið til liðs við Miðflokkinn. Lárus segir Garðabæ vera orðið alltof skuldsett bæjarfélag og talar fyrir auknu aðhaldi í rekstri bæjarins. Hann gagnrýnir samning um samræmda móttöku flóttamanna sem Garðabær er nýbúinn að framlengja við íslenska ríkið og segir hann of kostnaðarsaman fyrir skattgreiðendur. Lárus segir Miðflokkinn í Garðabæ vera á móti skóla án aðgreiningar og vill hann að teknar verði aftur upp stoðdeildir og sérkennslur líkt og áður tíðkaðist. Þá segir hann flokkinn vera á móti þettingarstefnu og núverandi áætlunum um Borgarlínu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
  • Segir Flokk fólksins vera popúlistaflokk | Fullorðins | S03E13 03.05.2026 3p
    Unnar Þór Sæmundsson er að klára lögfræðinám í HR og er í framboði fyrir Pírata. Hann er einn af þeim sem var sendur í Bakkakot á sínum tíma og í þætti dagsins segir hann okkur frá því og hvernig hann hyggst beita sér fyrir málefnum barna og hvar upp á vantar, að hans mati, í kerfinu. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Népszerű itt:

Ez a podcast ezeknek az országoknak a podcast-listáin is szerepel.