Tbr Listinn

Tbr Listinn

TBR
Ország Izland
Nyelv IS
Epizódok 78
Legutóbbi 16.09.2026

Íslenskt bókahlaðvarp þar sem fjallað er um bækur og bókmenntir. Þátturinn fjallar um íslenskar og erlendar bókmenntir, bæði nýjar og gamlar. Hér er rætt við höfunda, þýðendur og bókaunnendur, og veitt innsýn í bókakostinn. Hlaðvarpið er áhugavert fyrir alla sem vilja fylgjast með bókmenntaumræðu á Íslandi.

Epizódok

  • Banging My Birthday Bear - örþáttur 16.09.2026 24p
    Jæja þá er komið að því aftur...  Alma segir okkur frá stuttsögunni Banging My Birthday Bear. Hún veit ekki alveg hvað hún er að segja og er pínu plotlaus, svona eins og "bókin" sem hún segir frá var.  Hlustið á okkur hlæja og fíflast um þessa dásamlega fyndnu bók, þó hún eigi ekki beint að vera fyndin.   Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum: Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp Insta: tbrlistinn  
  • Aumingi, mella, syndari og heilagur andi 13.09.2026 1ó 11p
    Við fáum góðan gest til okkar í dag en engin önnur en Lilja Ósk snýr aftur til okkar! Lilja var að gefa út sína aðra bók og fyrstu skáldsöguna sína! Auðvitað þurftum við að lesa hana í hvelli og fá Lilju í heimsókn til að spyrja hana spjörunum úr!  Við förum um víðan völl, hvernig karakterarnir urðu til, hvort var erfiðara skáldsaga eða sjálfsævisaga, persónuleika karaktera og svo margt annað. Við getum með sanni sagt að við mælum sterklega með þessari bók og takk Lilja fyrir að koma til okkar í smá spjall
  • Pounded by poseidon - örþáttur 12.09.2026 17p
  • Sumarið og hraðaspurningar 06.09.2026 55p
    Við erum komnar aftur! Í þessum þætti fara Alma og Fjóla yfir sumarið og taka svo laufléttar hraðaspurningar varðandi lestur og bækur.  Við byrjum þriðju seríu með stæl með nýju logo eftir hana Daníelu, tattoo artista og bóka gellu, ásamt nýju stefi sem lýsir okkur stöllum í hnotskurn. Smá kaos, smá glimmer! Ein önnur breyting er sú að Anna Karen hefur tekið ákvörðun um að fókusa á önnur verkefni, enda af nógu að taka í sveitinni og hún algjör dugnaðarforkur, en við þökkum henni svo sannarlega og innilega fyrir tímann okkar saman! Við erum ótrúlega spenntar fyrir komandi mánuðum með ykkur og erum með fullt spennandi planað! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn  Insta hjá Daníelu; dansadansss  
  • Sumarlestur! 01.06.2026 35p
    Síðasti þátturinn í seríu 2 hefur litið dagsins ljós! :( Alma og Fjóla setjast niður og ræða um stemninguna sem þær vilja hafa í lestrinum í sumar. Bæði í bókunum og í umhverfinu sem þær ætla að lesa í.  Heyrst hefur að þær séu báðar að plana mikið ferða og sólarfrí, spurningin er bara hvort að veðurguðirnir hlusti á bænir þeirra og gefi þeim smá sól með lestrinum.  Og auðvitað fóru þær í smá útirdúr um Dungeon Crawler Carl, því hvenær talar maður ekki um cultið sitt?    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn      
  • RDG Bókakarakterar og bóklegir hlutir 28.05.2026 49p
    Anna Karen og Fjóla standa vaktina að þessu sinni á meðan Alma spókar sig í sólinni á Spáni.  Efni þáttarins að þessu sinni er létt bókaspjall og svo RDG eða R**a, drepa, giftast þar sem þemað eru bæði bókakarakterar og bókalegir hlutir eða aðstæður. Léttur og skemmtilegur þáttur að þessu sinni! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn  
  • Yesteryear - HÖSKULDARVIÐVÖRUN 18.05.2026 1ó 20p
    Alma og Fjóla eru báðar nýbúnar með bók sem er sjóðheitt umræðuefni þessa dagana, en það er engin önnur en bókin Yesteryear eftir Caro Claire Burke! Stelpurnar gætu talað endalaust um bókina en hafa þó sett niður nokkur atriði sem þær ætla að tala um, einfaldlega því þær fengu ekki lengri upptökutíma. Annars sætu þær líklega ennþá í Kompunni á Borgarbókasafninu í Grófinni að tala um þessa bók...  Þær eru sammála, ósammála og taka svo auðvitað nokkra útidúra, því hvað væru þættirnir án þeirra?  Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn  
  • PÍB - Remarkably Bright Creatures 11.05.2026 49p
    Við erum strax komnar með annan þátt af poppkorn í blaðsíðunum!  Í þetta sinn setjast Alma og Fjóla niður og ræða saman um bók og mynd; Remarkably Bright Creatures. Þær eru sammála um flest allt sem viðkemur bæði bók og mynd en við viljum endilega heyra hvað ykkur finnst!  Kolkrabbar, menn að taka út þroska og bara allt væbið.   Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn    
  • Bækur sem létu okkur gráta 04.05.2026 29p
    Þátturinn í dag er heldur rólegur og smá sár.  Við förum yfir þær bækur sem hafa látið okkur gráta í gegnum tíðina. Við fórum samt ekki yfir allar, Alma og Fjóla væru enn í upptökum ef svo væri... Við viljum alltaf á okkur tárum bæta svo ef þið hafið grátibækur í farteskinu endilega deilið þeim með okkur!  Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn  
  • Bókakrydd kemur í heimsókn! 28.04.2026 57p
    Í þessum þætti fáum við frábæran gest, en það er engin önnur en hún Íris sem rekur Bókakrydd.  Við stelpurnar erum búnar að vera ansi forvitnar um Bókakrydd þar sem við erum rétt að fá smjörþefinn af þeim frábæru hlutum sem sem Íris ætlar sér.  Við ræðum við hana um hvað Bókakrydd er, hvað er henni mikilvægt og hvert hún ætlar sér. Að sjálfsögðu förum við svo langt út fyrir umfjöllunarefnið eins og okkur einum er lagið!  Við skulum öll bjóða Írisi og Bókakrydd velkomin í litla bókasamfélagið okkar!  Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn Bókakrydd getið þið svo nálgast á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; bokakrydd Insta; bokakrydd og svo að sjálfsögðu ef þið viljið fara í röð fyrir sumarpakkann hjá þeim; https://bokakrydd.is
  • Poppkorn í blaðsíðunum 13.04.2026 43p
    Í dag, eftir tveggja vikna pásu, kemur út nýr liður hjá okkur sem við erum að kalla Poppkorn í blaðsíðunum!  Í þessum þáttum lesum við bók, horfum svo á myndina og ræðum bæði bók og mynd.  Erum við sáttar við hvernig bókin kom út? Hvort fannst okkur betri platform fyrir söguna? Ná karakterarnir að skína í gegn? Var myndin jafnvel betri en bókin???? Umfjöllunarefni þáttarins er SPOILER Project Hail Mary en Alma og Fjóla lásu bókina, skelltu sér á myndina og ræða nú saman um hvað þeim fannst!    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn  
  • Fyrsta bls - Síðasta bls 22.03.2026 1ó 16p
    Alma og Fjóla tækla verkefnið "fyrsta blaðsíða - síðasta blaðsíða" sem stelpurnar settu sér fyrir fyrir nokkrum þáttum síðan. Alma var með bókina "The Nowhere Girls" og Fjóla var með bókina "The Inevitable Victorian Thing". Þetta voru eins ólíkar bækur og hugsast getur og sagan segir að Fjóla er ennþá mjög ringluð og Alma er enn meiri rauðsokka eftir þennan þátt. Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn      
  • Kúrekarómans 16.03.2026 1ó 6p
    Í þessum þætti fengu þær Fjóla og Anna Karen það verkefni frá Ölmu að lesa eina kúrekarómans. Alma var stödd á bókamessu og var því fjarri góðu gamni (eða bara í öðru gamni). En hún skildi eftir þau fyrirmæli að við læsum Chasing the wild eftir Elliott Rose og ræddum svo í þætti. Við setjum höskuldar viðvörun á þennan þátt þar sem við förum frekar vel yfir söguna en einnig er um frekar gróft orðbragð á köflum þannig að við mælum með að hlusta ekki á þennan þátt í nálægð við ungmenni.  Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
  • Lestrarlægðar þerapíur 02.03.2026 46p
    Fjóla og Alma fara í gegnum nokkur tips and tricks til að koma mani í gegnum erfiðu lestralægðirnar sem vilja stundum leggjast á man. Alma kemur einnig með nokkrar hugmyndir af bókum, sem er auðvelt að lesa, ef þið eruð alveg týnd í bókaflórunni! Gleymdum við einhverju eða viltu segja frá þínum aðferðum til að losna úr lægð? Segðu okkur frá því á samfélagsmiðlunum okkar!    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn  
  • Bókahrollar 23.02.2026 1ó 11p
    Alma og Anna Karen ræða saman um nokkra bókahrolla (e. bookish pet peeves) og fara yfir hvað fer verst í þær.    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn  
  • Ég hef aldrei - Bókaútgáfa 16.02.2026 1ó 23p
    Stelpurnar eru komnar með lista af spurningum, svona Ég hef aldrei stemning, og svara þær allar!    Einnig erum við að byrja nýja áskorun þar sem við lesum fyrstu og síðustu blaðsíðuna af bók og reynum að giska hvað gerist í henni.  Síðan komum við saman og látum ykkur vita hvað gerðist í raun og veru í bókunum okkar.   Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn  
  • Pucking Mad About You 02.02.2026 39p
    Alma og Anna Karen taka fyrir bókina Pucking Mad About You eftir elsku bestu Karen C. McDermott okkar.  Þetta er bókin sem kom okkur í íshokkí gírinn áður en Heated Rivalry tók yfir líf okkar, já allra nema Önnu Karenar þó að hún hafi lofað að horfa á þættina fyrir næstu upptökur!  Bókina hennar Karenar má finna á Amazon en einnig er hægt að sérpanta hana í gegnum bóksölu stúdenta ef þið viljið eiga physical eintak af henni.    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn  
  • Heated Rivalry 19.01.2026 1ó 3p
    Alma og Fjóla setjast niður í þætti dagsins og tala um nýjasta æðið sitt. Íshokkí rómans þættina Heated Rivalry!  Myndatakan, þættirnir, bækurnar, höfundurinn, leikararnir, þetta bara getur ekki orðið betra!   Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn  
  • 1 stjörnu umsagnir - íslensku þýddar 12.01.2026 51p
    Stelpurnar koma saman og segja okkur frá nokkrum einnar stjörnu umsögnum um bækurnar sem þær hafa lesið og nokkrar sem þær ætla sér að lesa, twistið er að þær íslensku þýddu  þær allar!    Mikið hlegið, smá pirringur og svakalega skemmtilegar umsagnir svo þið ættuð ekki að láta þennan þátt framhjá ykkur fara!    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn  
  • Nýársþáttur! 05.01.2026 56p
    Alma og Fjóla taka upp fyrsta þátt ársins. Stiklum við á ansi mörgu þennan þátt en við förum snögglega yfir þær bækur sem við lásum í jólafríinu, tölum um tölvuleikinn Split Fiction sem Alma kláraði yfir jólin og leikritið Hamlet sem þær fóru á ásamt Lilju og Þorbjörgu skvísum.    Við hlökkum til frábærs lesárs með ykkur! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn      

Népszerű itt:

Ez a podcast ezeknek az országoknak a podcast-listáin is szerepel.