Kratinn
Samfylkingin
0
Vettvangur til að upplýsa um skilaboð jafnaðarfólks.
Epizódok
-
S236: Eldhúsdagsumræður, viðkvæmir hægrimenn og hækkað í ofnunum á Alþingi 12.06.2026 35pÞáttur vikunnar er seinna á ferðinni en vanalega vegna eldhúsdagsumræðunnar á Alþingi sl. miðvikudag. Ræðumenn Samfylkingarinnar, sem voru Jóhann Páll Jóhannsson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir, fóru þar yfir farinn veg á þessu þingári og ýmis afrek sem unnist hafa á vettvangi þingsins. Þáttastjórnendur fóru yfir bestu og verstu frammistöðurnar. Þá sagði Ásta Guðrún sögu af krullhærðum Pírata í gjaldeyrishöftum ásamt því að fara yfir býsna góða tölfræði úr þingstörfunum. Arnar Þór fór yfir þekkta tækni til að flýta fyrir þinglokum, sem virðist hafa virkað vel hjá honum. Viðbrögð hægri snjókornanna við efnismiklum og upplýsandi Silfursþætti voru krufin til mergjar. Þórður Snær náði að ranta um hagstjórn og Þórhallur Valur lýsti andúð sinni á umræðu um Evrópusambandið.
-
S235: Sigurjón, Áslaug Arna og borgin 04.06.2026 41pÞátturinn hófst á óvæntri gestakomu, Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, kíkti í stutt innlit og fór yfir innviðafélag sem er á dagskrá Alþingis í dag.Rætt var um samgönguáætlun, brotthvarf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur af Alþingi og fyrstu verk nýrrar borgarstjórnar ásamt fleiru.
-
S234: Fjölkæri í Hafnarfirði, tryllingur yfir borginni og já við ESB! 28.05.2026 46pFarið var yfir meirihlutamyndanir í Reykjavík og Hafnarfirði, rætt var um brakandi ferskar og lækkandi verðbólgutölur og svo um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
-
S233: Uppgjör eftir kosningar 21.05.2026 42pFarið var yfir sveitarstjórnarkosningarnar, rætt um kosningabaráttuna og niðurstöður í Reykjavík og á landsvísu.
-
S232: Það er eins og allir flokkar séu jafnaðarflokkar í sveitarstjórnarkosningum 07.05.2026 42pÍ hlaðvarpsþætti vikunnar mættu þær Hildur Rós Guðbjargardóttir frambjóðandi okkar í Hafnarfirði og Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir, frambjóðandi okkar í Garðabæ, í Kratakompuna til Arnars og Vals. Þær fóru yfir stöðuna hjá framboðunum og hvað hefur verið á oddinum síðustu vikur. Rætt var um sund og meira sund fyrir unga sem aldna og af hverju í ósköpunum þær þurfi að fara í kvöldsund í Reykjavík. Grunnskólamálin voru líka tekin rækilega fyrir og mikilvægi úrbóta í þeim málaflokki. Þær stöllur voru spurðar um afstöðu sína til sameiningar Hafnarfjarðar og Garðabæjar sem og samstarfsverkefni ýmis á milli sveitarfélaganna. Hildur Rós lét gamminn geisa um næturstrætó, sem Hafnfirðingar vildu en Garðbæingar ekki, og mikilvægi þess að samgöngumál séu unnin í góðu samstarfi.Einnig ræddum við af hverju í ósköpunum allir flokkar láti eins og jafnaðarflokkar í kosningum en standi svo ekki við stóru orðin (lesist Framsóknarflokkurinn sérstaklega).Þá fór Vilborg Anna yfir stöðuna á Álftanesi og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur vanrækt það mikilvæga svæði. Að lokum vaknaði spurningin: Hvað kemst maður langt á einu skópari? Kosningabarátta er frábært tækifæri til að láta reyna á það.
-
S231: Bensínbann til 1. maí, staðan í Árborg og auglýst eftir framtíðarsýn fyrir Reykjavík 30.04.2026 1ó 4pÍ þætti vikunnar fóru strákarnir yfir skánandi verðbólguhorfur, ársreikning Reykjavíkurborgar og yfirprjón helstu andstæðinga okkar í gagnrýni á hann. Þá ræddu þeir skattalækkun á bensíni og olíu sem tekur gildi 1. maí og afhverju það er mikilvægt að geta ráðist í verðlagseftirlit á þessum markaði. Arnar sagði frá ferð á eilítið einhliða ráðstefnu um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu þar sem skortur á jákvæðri framtíðarsýn fyrir höfuðborgarsvæðið var ríkjandi og einn þeirra sem sat í pallborði virtist harma það að Fossvogsdalurinn hefði ekki verið malbikaður á sínum tíma.Í seinni hluta þáttarins er svo rætt við Sigurjón Vídalín Guðmundsson oddvita okkar fólks í Árborg um stöðu mála í sveitarfélaginu.
-
S230: Fyrstu skrefin tekin í sameiningu Seltjarnar- og Akraness og staðan í Ölfusi 23.04.2026 1ó 2pMyndi eitthvað stórfyrirtæki ráða bæjarstjórann á Seltjarnarnesi sem framkvæmdastjóra með hliðsjón af rekstri og þjónustu bæjarins síðustu ár? Þessari spurningu og ýmsum öðrum er velt upp í spjalli við þau Auði Höllu Rögnvaldsdóttur frambjóðanda S-listans á Seltjarnarnesi og Sigurð Vopna Vatnsdal oddvita Samfylkingarinnar í Akraneskaupstað. Arnar Þór og Þórhallur Valur tóku þau tali. Gunnsteinn R. Ómarsson oddviti Samfylkingar og félaga í Ölfusi er svo gestur í síðari hluta þáttarins og fer yfir stöðu mála fyrir kosningar í sveitarfélaginu.
-
S229: Allt klárt í Kópavogi með Jónasi og Eydísi 16.04.2026 40pOddviti Samfylkingar í Kópavogi, Jónas Már Torfason og Eydís Inga Valsdóttir sem skipar 2. sæti listans kíktu í heimsókn og ræddu málin við þá Arnar og Val.Farið var yfir nýtt útspil Samfylkingarinnar sem kynnt var í síðustu viku og ber heitið Tökum ábyrgð hvert á öðru en Jónas leiddi þá vinnu. Barnaskatturinn í Kópavogi er eitthvað sem þau vilja afnema og þau vilja breyta opnunartíma sundlauga.Kosningabaráttan sem er að hefjast var auðvitað fyrirferðamikil og nú er mánuður í herlegheitin.
-
S228: Bjart yfir Reykjavík með Steinunni og Regínu 09.04.2026 42pFrambjóðendurnir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Regína Ásvaldsdóttir sem sitja í 3. og 7. sæti lista Samfylkingarinnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar komu í spjall um borgina og kosningabaráttuna framundan.Rætt var um jákvæða hluti í borginni eins og frístundamiðstöðvar og græn svæði, reksturinn og leikskólamálin.Nú eru fimm vikur til kosninga og baráttan er að fara á fullt. Þær hvetja alla hlustendur Kratans til að leggja baráttunni lið!
-
S227: Karate, húfueftirlit ríkisins og gremjupólitíkusar á jaðrinum 02.04.2026 1ó 15pKrati vikunnar er þéttpakkaður af oddvitum og gæðaefni. Pétur H. Marteinsson, leiðtogi Samfylkingarinnar í Reykjavíkurborg, er gestastjórnandi í þetta sinn og fer yfir það hvernig takturinn er í framboðinu nú þegar einn og hálfur mánuður er til kosninga.Pétur ræðir meðal annars um Breiðholtið, mikilvægi íslenskukennslu, hvað sundlaugar og íþróttastarf sem miðja hverfa gefur Íslandi mikla sérstöðu í heiminum þegar kemur að lífsgæðum og allt sem hann er búinn að læra um karate. Svo er rætt um fjármálaáætlun, efnahagslega helgarpabbann Sjálfstæðisflokk sem er að reyna að gera allt til að láta engan taka sig alvarlega og öfugar dyggðarskreytingartilraunir Miðflokksins sem eru orðnar að aðhlátursefni og fórnarlambavæðingu gremjupólitíkusa á jaðrinum, svo fátt eitt sé nefnt.Í síðari hluta þáttarins mætir Kjartan Atli Kjartansson, oddviti Samfylkingarinnar í Garðabæ og Álftanesgoðsögn, í viðtal við Arnar Þór Ingólfsson og segir honum frá því hvað hann ætli að gera til að kratavæða Garðabæ.
-
S226: Eru ekki allir forvitnir? 26.03.2026 53pUm helgina fór fram afar vel heppnaður flokksstjórnarfundur.Hvað er flokkstjórnarfundur? Við fórum yfir það og stæla í stjórnarandstöðunni varðandi vindmyllur og bændamóttökur ásamt almennri Evrópu-umræðu.Viðmælandinn í dag er oddviti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ, Ólafur Ingi Óskarsson.
-
S225: Stýrivaxtahækkun og ein lengsta umræða um fyrri þingsályktunartillögu í sögunni 19.03.2026 54pÍ nýjasta þætti Kratans förum við yfir helstu mál vikunnar. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti bæði vegna innri og ytri þátta. Þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu var ein sú lengsta í sögunni og Evrópumálin því aðeins rædd aftur.Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal Arnars Þórs við oddvita Samfylkingarinnar á Akureyri.
-
S224: Stjórnarandstaða sem óttast að sumarfríið styttist 12.03.2026 55pÞjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður um aðild að Evrópusambandinu hefur verið sett á dagskrá þann 29. ágúst. Stjórnarandstaðan er hrædd um sumarfríið sitt. Við fórum yfir hegðun og atferli stjórnarandstöðunnar undanfarna daga ásamt því að ræða um kosti Evrópusambandsins.Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal við Kristinn Ólafsson “Seltjarnarneskempu” sem leiðir S listann þar.
-
S223: Fylgiskannanahlaðborð, ævintýri í kjördæmaviku og GÁS ræðir Kratabylgjuna í Hafnarfirði 05.03.2026 1ó 7pÍ þætti dagsins fórum við yfir þær kannanir sem birtar voru í síðustu viku, lögðum mat á niðurstöðurnar og ræddum nýjustu tíðindi af framboðslistum. Þá sérstaklega ferskleika Framsóknar og framboð Brynjars Níelssonar sem bætti síðast við sig fylgi árið 2017. Björgunarsveitin Kofri í Súðavík fær „shoutout“ fyrir frækna frammistöðu við björgun þingmanna í Skötufirði í síðustu viku og sú saga sögð frá fyrstu hendi. Þórður Snær sagði frá fundinum þegar Davíð Oddsson var kynntur sem ritstjóri Morgunblaðsins. Í seinni hluta þáttar mætti Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður flokksins og oddviti í Hafnarfirði, og fór yfir víðan völl. Meðal annars framboðslistann í Hafnarfirði, helstu málefni í bænum, handabandið hans Obama og hvernig hann öðlaðist virðingu Davíðs Oddssonar.
-
S222: Siðrof í kjördæmaviku 26.02.2026 36pÞað er kjördæmavika og þingmenn og starfsfólk því á fleygiferð um kjördæmin. Farið var yfir dagskrána framundan og það sem hefur drifið á daga okkar undanafarið.Rætt var um Vinstrið, Brynjar Nielsson og Loga Einarsson sem virðist hafa komið heim á töfrateppi frá Indlandi.
-
S221: Er Framsókn vídjóleiga nútímans? 19.02.2026 56pÍ Kratavarpinu þessa vikuna er rætt ítarlega um nýtt formannskjör í Framsóknarflokknum, hvort formaður stjórnmálaflokks geti virkilega setið utan þings árum saman og því velt upp hvort að það hlutskipti að verða formaður í þeim flokki sé sambærilegt og að erfa vídjóleigu árið 2026. Önnur framboðsmál eru rædd, Píratahornið er á sínum stað, velt er upp hvert Sjálfstæðisflokkurinn ætti helst að flytja og línur lagðar fyrir kjördæmaviku. Í seinni hluta þáttarins er rætt við Skúla Helgason borgarfulltrúa um þær nýjungar í leikskólamálum sem kynntar voru í höfuðborginni í vikunni og hafa mælst afar vel fyrir.
-
S220: Gusumeistarar, nýju jógakennararnir og Framsókn í sjálfsmyndarkrísu 12.02.2026 45pÍ Kratanum í dag er rætt um prófkjör í Kópavogi og áhyggjur af verðskrárhækkunum í gusum landsins. Miðflokkurinn ber á góma og misheppnaðar tilraunir Framsóknar til að vera "hip og kúl".Í seinni hluta þáttarins má heyra viðtal Arnars Þórs Ingólfssonar við Jónas Má Torfason, oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, þar sem farið er nánar yfir prófkjörið og næstu skref.
-
S219: Kjósendur elska Samfylkinguna sína (staðfest) 05.02.2026 48pÍ Kratanum í dag er farið raunveruleikatengt yfir stöðu mála í efnahagsmálum, þann gríðarlega stuðning sem Samfylkingin er með í landsmálunum og mjög sterka stöðu flokksins í borginni eftir vel heppnað prófkjör. Þá er farið á dýptina í umræðu um hvort Íslendingar séu meðvitaðir neytendur og þáttastjórnendur skilgreina sig út frá þeim menntaskóla þeir voru í.Í seinni hluta þáttarins er rætt við Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ.
-
S218: Verðandi borgarstjóri Reykjavíkur og nýliðið flokksval Samfylkingarinnar 29.01.2026 51pÍ þættinum fóru Sonja, Ásta, Þórður og Valur yfir vikuna. Þar bar helst á góma flokksvalið síðasta laugardag. Farið var yfir framboð til sveitarstjórnarkosninga hjá Viðreisn og yfirferð á nýlegri könnun Maskínu. Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal við Pétur H. Marteinsson, verðandi borgarstjóra Reykjavíkur.
-
S217: Vinstrið sem gekk í Sönnu og hægrið sem ætlar í stríð um Borgarlínu 22.01.2026 46pArnar, Ásta, Sonja og Þórður fóru yfir mál sem gengið hafa á undanfarna daga. Rætt var um hálku og handbolta, tilraun vinstrisins til að sameinast og sýn Miðflokks og sumra Sjálfstæðismanna á Borgarlínuna. Í síðari hluta þáttarins má heyra viðtal við Guðmund Ara Sigurjónsson um menntamálin.
Népszerű itt:
Ez a podcast ezeknek az országoknak a podcast-listáin is szerepel.