Besta platan
Hljóðkirkjan
0
Umræða um bestu plötu hljómsveitar og tónlistarfólks. Nýtt meistaraverk í hverri viku.
Epizódok
-
#0290 The Doors – Strange Days 31.07.2026 2ó 2pFáar rokksveitir í sögunni hafa verið jafn áhrifaríkar, dýrkaðar og umdeildar og The Doors. Þar hélt Jim Morrison nokkur um hljóðnema og lak kynþokkinn af hverri sellu hans og það strítt. Besta plata sveitarinnar er plata tvö, Strange Days, og er það doktorinn sem fer fram með það val og er það ekki nema sæmilega umdeilt. -
#0288 Ariana Grande – Dangerous Woman 17.07.2026 1ó 10pGleymið Adele, Sam Smith og Rihönnu. Þegar kemur að hreinræktuðum sönghæfileikum eru þessar poppstjörnur eins og kófdrukknir, trallandi fjósamenn á sveitaballi í samanburði við Ariönu Grande. Nei, þeir eru ekki margir poppararnir sem skáka henni á söngsviðinu. En hvernig er músíkin? -
#0286 Van Halen – Van Halen 03.07.2026 1ó 34pVan Halen gerði út frá Kálfatjörníu og er ein algerasta rokksveit sögunnar. Það er allt þarna mætti segja, hæðir, lægðir, partístand, vitleysisgangur, linnulaus ranaímokstur og svo að sjálfsögðu trukkandi rokk og ról sem á fáa sína líka … -
#0284 Avril Lavigne – Let Go 19.06.2026 1ó 24pPopppönkprinsessan Avril Lavigne toppaði sig tónlistarlega strax á fyrstu breiðskífunni, Let Go (2002). Áhrif hennar sem poppmenningaríkons eru mikil og farið verður í saumana á því öllu saman í brimafullum þætti… -
#0282 Nýdönsk – Himnasending 05.06.2026 1ó 24pPopptónlist 9. áratugarins var af mörgum talin yfirborðskennd, einnota og vélræn. Það var því sannkölluð „himnasending“ að fá Nýdönsk fram á sjónarsviðið undir lok eitísins. Tónlistin var vönduð, listræn og leitandi. Grípandi án þess að vera eitthvað blöðrupopp. Fullorðna fólkið var mætt í partíið. -
#0280 Faith No More – Angel Dust 22.05.2026 1ó 29pEin merkasta jaðarþungarokkssveit allra tíma, Faith No More, er á borði Bestu plötunnar þessa vikuna. Sitt sýnist hverjum um uppsöfnuð afrek hennar og voru umræðurnar fróðlegar svo ekki sé meira sagt! -
#0278 Angine de Poitrine – Vol. II 08.05.2026 1ó 14pDoppóttu míkrótónal-gosarnir í Angine de Poitrine voru óþekkt stærð í upphafi árs. Rúmum mánuði síðar voru þeir á allra vörum — og hæpið stendur enn yfir. En er eitthvað í þessu?Taktu þátt í umræðunni á Besta platan - Umræðuhópur.Styddu við Bestu plötuna, komdu í áskrift á Patreon og fáðu tvöfalt fleiri þætti. -
#0277 Frímínútur – Björgvin Halldórsson (1951 - 2026) 01.05.2026 51pÍ þessum þætti heiðrum við minningu hins eina sanna Björgvins Halldórssonar sem varð bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði þann 9. apríl síðastliðinn. Blessuð sé minning þessa risa íslenskrar dægurtónlistar. -
#0276 Nick Drake – Pink Moon 24.04.2026 1ó 11pNick Drake lést langt fyrir aldur fram, hafandi ekki hugmynd um þau áhrif sem stuttur tónlistarferill hans myndi hafa á fjölmargar kynslóðir á eftir honum. Þriðja og síðasta platan hans, Pink Moon frá 1972, er sú besta.Athugið að í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins á 1717.is. -
#0275 Killing Joke – Night Time 17.04.2026 1ó 24pKilling Joke er ein ógurlegasta síðpönksveit sögunnar, algerlega einstök mætti segja, og áhrifarík fyrir allan peninginn. Að velja hina poppuðu „Night Time“ sem bestu plötuna mun strjúka einhverjum öfugt en gefum BP-liðum færi á að útskýra sitt mál (doktornum aðallega). -
#0274 Frímínútur – Tónleikatryllingur 03.04.2026 59pÞað er hægt að hjakka endalaust í einhverjum plötum, en að þessu sinni ákváðu þáttastjórnendur að rifja upp bestu tónleika sem þeir hafa sótt. Þrír topp-5 listar og ekkert rugl. Gleðilega páska! -
#0273 Lenny Kravitz – Mama Said 27.03.2026 1ó 13pLenny Kravitz er ekki bara tónlistarmaður, hann er einslags fyrirbæri, menningarlegt skurðgoð, rokkið holdið klætt og bætið endilega við lýsingum eftir smekk. Hann toppaði hljóðversplötulega séð á annarri plötu sinni, Mama Said, en það má sosum deila um það val og það er nákvæmlega það sem við erum að fara að gera. -
#0272 Phil Collins – No Jacket Required 20.03.2026 1ó 36pPlatan No Jacket Required frá 1985 átti stóran þátt í því að gera Phil Collins að einni allra holdugustu poppskepnu 10. áratugarins. Hún er jafnframt sú besta frá Phil. -
#0271 Frímínútur – „Animal“ Andy 13.03.2026 59pÍ þættinum um Wham!/George Michael bærðust vangaveltur um það hvort að eina sólóplata hins helmings dúettsins, Andrew Ridgeley (Son of Albert, 1990), væri mögulega það besta sem hafi komið frá Wham! meðlimi í sólóefnum. Ákveðið var, þá og þar, að gera rannsókn á málinu og hún skilaði sér í þessum þætti. Varúð: Farið inn á eigin ábyrgð. -
#0270 Mastodon – Leviathan 06.03.2026 1ó 27pAtlanta-sveitin Mastodon þvertekur fyrir það að vera kölluð þungarokkssveit, en er þrátt fyrir það eftirlæti margra er kenna sig við metalinn. Við förum í saumana á þessu ferlíki í þætti vikunnar. -
#0269 Spice Girls – Spice 27.02.2026 1ó 23pTrúir því einhver að einungis Bítlarnir skáka Spice Girls hvað ýmsan árangur í vinældalistaklifri varðar? Eftir miðjan tíunda áratuginn kom þessi stúlknasveit inn í poppheima sem stormsveipur og næstu ár voru undirlögð af æði sem aldrei hafði áður sést - nema kannski í tilfelli Bítlaæðisins. Hér verður farið yfir þessa hluti alla auk þess sem doktorinn stillir frumburði Kryddpíanna fram sem þeirra besta árangri á breiðskífusviðinu. -
#0268 Pet Shop Boys – Behaviour 20.02.2026 1ó 42pRafdúettinn Pet Shop Boys hefur selt meira en 100 milljón plötur á heimsvísu, en þeirra gjöfulasta tímabil var níundi áratugurinn. Þar var hins vegar ekki fyrr en árið 1990 sem þeir sendu frá sér sína bestu plötu, hina angurværu Behaviour. -
#0267 Aerosmith – Toys in the Attic 13.02.2026 1ó 15pAerosmith er ein algerasta rokksveit sem heimurinn hefur séð. Sukkið, melódíurnar, riffin, fötin, frægðarflug, niðurbrot og upprisa, þetta er allt þarna. Doktorinn telur bandið hafa toppað á þriðju plötu sinni, Toys in the Attic (1975), en félagar hans tóku þeirri niðurstöðu ekki þegjandi. -
#0266 Frímínútur – Besta Besta platan II: Hlustendaval 06.02.2026 45pÍ beinu framhaldi af síðustu Frímínútum, þá leyfðum við hlustendum að velja bestu plötuna af öllum þeim sem við höfum fjallað um í gegnum tíðina. Í þessum þætti gerum við þetta upp. -
#0265 Frímínútur – Besta Besta platan 26.12.2025 1ó 18pFrá því að fyrsti þátturinn fór í loftið haustið 2019 hafa um 220 plötur hlotið titilinn „Besta platan“. En hver af þessum plötum er raunverulega best?
Népszerű itt:
Ez a podcast ezeknek az országoknak a podcast-listáin is szerepel.