Heimili og skóli

Heimili og skóli

Heimili og skóli
Ország Izland
Nyelv IS
Epizódok 26
Legutóbbi 27.08.2025

Á þessari rás eru hlaðvarpsþættir Heimilis og skóla. Meðal þátta er Það þarf þorp, Netöryggi á nýjum tímum og Siggi og Sigga Dögg nöldra um netið.

Epizódok

  • Það þarf þorp - Samfélagsleg viðmið um snjalltækjanotkun 27.08.2025 47p
    Kristín Ólöf Grétarsdóttir og Anna Laufey Stefánsdóttir mættu til okkar og tóku spjall um símafrí í skólum, tölvuleiki og viðmið og gildi sem við sem samfélag þurfum að koma okkur saman um þegar kemur að bæði börnum og okkur sjálfum.
  • Það þarf þorp - Kjarabarátta kennara 12.12.2024 1ó 7p
    Magnús Þór formaður Kennarasambands Íslands mætti í spjall og fór yfir stöðuna í kjarabaráttu kennara.
  • Það þarf þorp - Okkar heimur 19.06.2024 39p
    Í þessum þætti er rætt við Sigríði Gísladóttur og Þórunni Eddu Sigurjónsdóttur um Okkar heim. Okkar heimur er stuðningsúrræði fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda. Úrræðið var sett á laggirnar vegna skorts á stuðning og fræðslu fyrir börn í þessari stöðu á Íslandi.   Sigríður og Þórunn Edda ræða um starfsemina, stöðuna á Íslandi í málaflokknum og ýmislegt fleira.  
  • Það þarf þorp - Forvarnir og áhættuhegðun 06.06.2024 46p
    Spjall við Kára Sigurðsson, verkefnastjóra forvarna hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkur. Við spjöllum um áhættuhegðun barna og unglinga. Einnig ræðum við um forvarnir og gefum foreldrum og forsjáraðilum verkfæri til nýta með sínum börnum.
  • Það þarf þorp - Skóli í skýjunum 24.05.2024 54p
    Spjall við Esther Ösp Valdimarsdóttir skólastjóra og tengilið farsældar í Ásgarðsskóla - skóla í skýjunum. Ásgarðsskóli er ekki hefðbundinn skóli en aðsóknin er mikil. Skólinn er búinn að stækka hratt á þeim þremur árum sem hann hefur starfað og er að stimpla sig inn sem frábær viðbót við skólakerfið okkar.
  • Einhverfa og áskoranir 24.04.2024 47p
    Hvaða áskoranir þurfa einhverf börn að kljást við í skólanum? Hvað er að vera skynseginn? Hvað er skynvænn skóli? Er foreldrakulnun algeng? Er skóli án aðgreiningar að virka? Hvert er markmið menntunar? Þær Sara Rós Kristinsdóttir og Linda Björk Oddsdóttir settust niður með okkur og ræddu þær áskoranir sem einhverf börn kljást við í skólakerfinu. Þáttur sem enginn ætti að láta framhjá sér fara!
  • Það þarf þorp: Börnin eru besti mælikvarðinn 08.12.2022 34p
    Þorvar Hafsteinsson, formaður Heimilis og skóla, ræðir um mikilvægi foreldrastarfs. 
  • Það þarf þorp: Helga Margrét Guðmundsdóttir 08.12.2022 1ó 3p
    Í tilefni 30 ára afmælis Heimilis og skóla fengum við Helgu Margréti Guðmundsdóttur, fyrrverandi formann Heimilis og skóla, til að segja okkur frá ferlinum í foreldrastarfi. 
  • Aðeins um: BeReal 21.10.2022 19p
    Í þessum þætti af Aðeins um: ræða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sérfræðingar hjá SAFT, um samfélagsmiðilinn BeReal. Hvers konar miðill er BeReal? Afhverju er hann svona vinsæll hjá ungu fólki? Hvað er jákvætt við hann og hvað ber að varast? Í þættinum er einnig rætt um hvað sé gott að ræða við börn og ungmenni þegar kemur að því að vera á BeReal.
  • Aðeins um: Misskilning á netinu 19.09.2022 19p
    Í þessum þætti af Aðeins um: ræða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sérfræðingar hjá SAFT, um misskilning á netinu. Hvers vegna á misskilningur á netinu sér stað? Hvernig birtist hann? Hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir misskilning í stafrænum samskiptum? Í þættinum er einnig rætt um lyndistákn og þá misjöfnu merkingu sem fólk leggur í þau.
  • Aðeins um: Tiktok 01.09.2022 21p
    Í þessum þætti af Aðeins um: ræða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sérfræðingar hjá SAFT, um samfélagsmiðilinn Tiktok, hvernig hann virkar, hvað ber að varast, hvað er jákvætt við miðilinn og hvernig foreldrar geta hjálpað börnum sínum að nota TikTok á öruggan hátt. 
  • Netöryggi á nýjum tímum 5: Réttindi barna og netið 12.04.2022 40p
    Eyrún Eva Haraldsdóttir, sérfræðingur hjá SAFT, ræðir við Pétur Hjörvar Þorkelsson, sérfræðing í innleiðingu Barnasáttmálans hjá UNICEF, um réttindi barna og síbreytilegan stafrænan heim.
  • Það þarf þorp 3: Hinsegin börn og ungmenni 11.03.2022 37p
    Bryndís Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Heimili og skóla, ræðir við Tótlu I. Sæmundsdóttur, fræðslustýru hjá Samtökunum 78, um starfsemi samtakanna og málefni hinsegin barna.
  • Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 5: Sexting, myndbirtingar og mörk 09.03.2022 26p
    Í þessum þætti ræða Siggi og Sigga Dögg um Sexting, myndir, pressuna að taka þátt og mörk. Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun.
  • Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 4: Fjölskyldureglur og fullorðnir sem fyrirmynd 18.02.2022 23p
    Í þessum þætti ræða Siggi og Sigga Dögg um mikilvægi fjölskyldureglna og hvernig við sem fullorðið fólk þurfum að huga að okkur sjálfum sem fyrirmynd barna okkur þegar kemur að netnotkun.   Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun.
  • Netöryggi á nýjum tímum 4: Viðtal við Þórdísi Elvu. (Íslenska) 08.02.2022 9p
    Við tókum viðtal við Þórdísi Elvu, stjórnarformann NORDREF, en samtökin héldu málþing um kynferðislega friðhelgi á stafrænum tímum. Í Í samtalinu ræðum við um málþingið og hvernig þessi málaflokkur hefur þróast á undanförnum árum. #sid2022 #saferinternetday
  • Netöryggi á nýjum tímum 4: Interview with Thordis Elva (English) 08.02.2022 11p
    An interview with Thordis Elva, chairperson of NORDREF. They resently held a seminar called "When Sexual Privacy Meets Gender-Equality in a Digital World". Thordis Elva tells us all about the seminar and what NORDREF is doing to combat online abuse in this episode of the SAFT podcast. #Saferinternetday #SID2022
  • Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 3: Hvernig ræðum við um netið sem fjölskylda 03.02.2022 18p
    Umræðuefni vikunar er að þessu sinni hvernig við ræðum um netið sem fjölskylda. Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun.
  • Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 2: Myndbirtingar 27.01.2022 16p
    Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun. Umræðuefnið þessa vikuna eru myndbirtingar og þá pressu sem við finnum fyrir að birta myndir á samfélagsmiðlum. 
  • Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 1: Samskipti á netinu. 20.01.2022 15p
    Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun. Í þessum fyrsta þætti er umræðuefnið samskipti á netinu. Meðal annars neikvæð samskipti og þá pressu sem við setjum á hvort annað að svara netskilaboðum samstundis

Népszerű itt:

Ez a podcast ezeknek az országoknak a podcast-listáin is szerepel.