Hlaðvarp Lestrarklefans
Lestrarklefinn
0
Í hlaðvarpi Lestrarklefans ræða þáttastjórnendur við fjölbreytta lesendur um öll málefni tengd bókmenntum, lestri og menningu. Gestirnir deila sýn sinni á bækur, lestrarvenjur og menningarlíf. Hlustendur fá innsýn í ólíkar bókmenntaumræður og hvattir til að taka sér sæti í Lestrarklefann.
Epizódok
-
26. Sumarlestur - Sexý vandamál? 17.07.2026 24pÍ síðasta þætti sumarsins fjalla Sjöfn og Rebekka um sumarlestur. Hvða ætla þær að lesa í sumar, hvað ætla þær ekki að lesa, og hvað les fólk almennt? Hvað er sumarlestur og hvaða bækur eru tilvaldar í hann? Umsjón þáttar, Sjöfn Asare og Rebekka Sif -
25. Úr bók í bíó: Kindred 03.07.2026 33pEr Kindred Yesteryear 1976? Þeirri spurningu og öðrum í þeim dúr verður svarað í þessu spjalli Sjafnar og Rebekku um bókina Kindred eftir Octaviu E. Butler og sjónvarpsaðlögunina á henni frá 2022. Umsjón: Sjöfn Asare og Rebekka Sif -
24. Leirburður í grasrótinni 12.06.2026 39pLestrarklefinn fær góða gesti í hlaðvarpi vikunnar, Elísu Rún Svansdóttur og Amöndu Líf Fritzdóttur, sem báðar hafa ritstýrt bókmenntatímaritinu Leirburði. Tímarit sem þessi eru einstaklega mikilvæg grasrótinni og Rebekka Sif fékk að forvitnast um þetta góða starf bókmenntafræðinema Háskóla Íslands. Umsjónarmaður: Rebekka Sif Stefánsdóttir -
23. Hefðbundnar húsmæður: Yesteryear eftir Caro Claire Burke 20.05.2026 35pRebekka og Sjöfn ræða hina geysivinsælu skáldsögu Yesteryear sem hefur aldeilis slegið í gegn á skömmum tíma. Rebekka spyr Sjöfn út í hefðbundnar húsmæður (e. Tradwives), en Sjöfn hefur kafað djúpt í þennan áhugaverða og merkilega mormónska subkúltúr sem tröllríður samfélagsmiðlum og hefur djúpstæð áhrif víða um samfélagið. Umsjón: Rebekka Sif og Sjöfn Asare -
22. Ungar stúlkur og eldri menn: Half his Age eftir Jeanette McCurdy 07.05.2026 37pDíana Sjöfn og Sjöfn ræða bókina "Half his Age" eftir unghöfundinn Jeanette McCurdy, sem þekktust er fyrir feril sinn á Disney stöðinni og fyrir endurminningarsögu sína "I'm Glad My Mom Died."Bókin fellur í flokk þeirra ritverka sem fjalla um ungar konur eða stelpur sem eiga í ástarsamböndum við, eða eru táldregnar af, eldri mönnum, sem eiga það mjög oft sameiginlegt að vera enskukennarar. Hvers vegna eru þessar sögur svona vinsælar? Hvað lærum við á að lesa þær ef eitthvað? Og hvers vegna halda allir að enskukennarar séu þeir kennarar sem eru hvað líklegastir til að beita nemenda sína kynferðisofbeldi?Umsjón: Sjöfn Asare og Díana Sjöfn -
21. Úr bók í bíó: Wuthering Heights 23.04.2026 29pÚr bók í bíó snýr aftur með æsispennandi umfjöllun um hina umdeildu aðlögun "Wuthering Heights," sem Sjöfn gerist svo djörf að kalla það versta sem nokkru sinni hefur verið fest á filmu og kallað bíómynd.Umsjón: Sjöfn Asare og Rebekka Sif -
20. Hinsegin aðstæður með Evu Rún og Höllu Þórlaugu 17.04.2026 45pJæja. Eftir mikla tæknilega örðugleika við framleiðslu og útgáfu þáttarins um bókmenntahátíðina Queer Situations snýr hann aftur á streymið. Sjöfn og Unnur Steina ræða við þær Evu Rún og Höllu um æsispennandi bókmenntahátíðina sem þær standa fyrir þar sem alls konar hinsegin bókmenntir eru í fyrirrúmi.Umsjón: Sjöfn Asare -
19. Úr bók í bíó: Hamnet 25.03.2026 30pVið kynnum nýjan dagskrárlið: Úr bók í bíó! Rebekka Sif segir að þessu sinni Sjöfn Asare af upplifun sinni á sögulegu skáldsögunni Hamnet og kvikmyndaaðlögun hennar. Kafað er ofan í frásagnaraðferðir Maggie O´Farrell og hvernig henni tekst að glæða gamla sögu nýju og hrífandi lífi. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare -
18. Leikhúsannáll Lestrarklefans 15.02.2026 51pLeikhúsgagnrýnendurnir okkar Díana Sjöfn og Sjöfn Asare fara yfir liðið leikár og líta til þess sem er spennandi í leikhúsunum 2026. Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare. -
13. Hrollvekjur með Gunnari Theodóri 30.10.2025 37pHrekkjavaka og hræðilegar verur hafa tekið yfir bókmenntirnar þessa dagana. Við fengum Gunnar Theodór til okkar sem hefur einmitt skrifað nokkrar hrollvekjur, þar á meðal Vatnið brennur og Álfareiðina, sem er nýútkomin og er ætluð ungmennum. Kannið með okkur hryllilegar slóðir í hlaðvarpi dagsins. Það er vel við hæfi að þátturinn sé einmitt númer þrettán!Umsjónarmenn: Rebekka Sif og Sjöfn Asare -
12. Landslag ljóðsins með Maó 24.10.2025 39pÍ þætti dagsins fáum við góðan gest, ljóðskáldið og rithöfundinn Maó Alheimsdóttur, sem gaf nýverið út ljóðabókina Hvalbak. Við ræðum um ljóðið, náttúruna og innblásturinn. Stjórendur hlaðvarpsins eru Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn Asare. -
17. Bókmenntaskandalar ársins 2025 02.01.2026 46pÍ þessum hressilega hátíðarþætti Hlaðvarps Lestrarklefans fara Rebekka, Díana og Sjöfn yfir bókmenntaskandala ársins 2026. Er Laxness úti? Arnaldur líka? Hver á að skrifa ungmennabækur? Hver er Akörn? Mun Bókaklúbbur Íslands fordæma þennan þátt? Gleðilegt nýtt lestrarár kæru lesendur!Umsjónarmenn: Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn Asare -
16. Krakkakraftur með Emblu Bachmann 16.12.2025 37pÍ þætti dagsins fáum við Emblu Bachmann til okkar að ræða barna- og ungmennabækur og lífið sem ungstirni með milljón bolta á lofti. Leiðrétting: Í þættinum er rætt um ungmennabækur og að þær séu allar fantasíur þetta árið, en það er ekki rétt, þær eru nánast allar fantasíur, það leynist ein hversdagssaga þarna! Umsjónarmenn: Rebekka Sif, Sjöfn Asare og Díana Sjöfn -
15. Ævintýralegar bækur með Ævari Þór 21.11.2025 40pEinn afkastamesti rithöfundur Íslands settist með okkur í Lestrarklefann og spjallaði við okkur um skrif og bókmenntir. Ævar Þór Benediktsson er með fjórar nýjar bækur í jólabókaflóðinu, Skólastjórann, Góðan daginn, Piparkökuborgina og Gleðileg jól. Verkefnin eru óteljandi og því nóg um að ræða. Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare. -
14. Á barmi heimsenda með Þórdísi Helgadóttur 13.11.2025 43pÍ hlaðvarpi dagsins fáum við rithöfundinn Þórdísi Helgadóttur í heimsókn sem gaf nýverið út skáldsöguna Lausaletur. Við ræðum við Þórdísi um bókina, rithöfundalífið og heimsenda. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare. -
11. Fyrir flóðið 08.10.2025 39pHaustlestur er okkur efst í huga í þætti dagsins. Fyrsta bylgja flóðsins er hafin og við könnum þær gersemar sem hafa nú þegar skolað á land. Við skoðum einnig leikárið og ræðum um þau leikverk sem við erum spenntastar fyrir. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare -
10. Ungmennabækur með Kristínu Björgu 22.09.2025 51pÍ fyrsta hlaðvarpsþætti vetrarins fengum við góða heimsókn frá rithöfundinum Kristínu Björgu Sigurvinsdóttur sem skrifar einnig umfjallanir fyrir Lestrarklefann. Við ræðum okkar uppáhalds ungmennabækur og ræðum um bókmenntaformið, fortíð þess og framtíð. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare -
9. Aðdráttarafl smásögunnar 30.05.2025 46pÍ níunda þætti Hlaðvarps Lestrarklefans ræða Rebekka, Díana og Sjöfn um smásögur, aðdráttarafl þeirra og hvort markaðsöflin komi í veg fyrir blómlegri útgáfu smásagna. Þær eru einnig höfundar smásagnasafnsins Innlyksa sem kom út í byrjun apríl og ræða því einnig um aðferðir við að skrifa stuttar sögur og texta. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare. -
8. Bókaútrás með Pedro Gunnlaugi Garcia 27.04.2025 51pÍ hlaðvarpi Lestrarklefans ræða Díana og Sjöfn við rithöfundinn Pedro Gunnlaug Garcia sem er þekktastur fyrir skáldsöguna Lungu sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2022. Pedro segir frá ferðum sínum erlendis á bókmenntahátiðir þar sem Lungu hefur nú verið þýdd á fjölda tungumála. Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare. -
7. Þýðingar með Hörpu Rún 31.03.2025 47pÍ sjöunda þætti hlaðvarps Lestrarklefans fengum við góðan gest, rithöfundinn og bóndann Hörpu Rún Kristjánsdóttur. Hún starfar einnig sem þýðandi og hefur meðal annars þýtt bækur Emily Henry og leikritið Rómeó og Júlíu eftir sjálfan Shakespeare. Þáttarstjórnendur: Rebekka Sif Stefánsdóttir, ritstjóri Lestrarklefans, og Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, aðstoðarritstjóri Lestrarklefans.
Népszerű itt:
Ez a podcast ezeknek az országoknak a podcast-listáin is szerepel.