Kastljós

Kastljós

RÚV
Ország Izland
Műfajok Hírek
Nyelv IS
Epizódok 5
Legutóbbi 02.10.2026

Kastljós er frétta- og umræðuþáttur RÚV þar sem fjallað er um það sem er efst á baugi hverju sinni. Í þættinum eru teknir fyrir helstu fréttir og málefni dagsins, oft með viðtölum við gesti í myndveri Kastljóss. Umsjónarmenn krufa málin ítarlega og leitast við að varpa ljósi á ólíkar hliðar þeirra. Þátturinn er hluti af dagskrá RÚV og miðlar fréttum og greiningu á íslenskum samtímaefnum.

Epizódok

  • Lykillinn að heilbrigðu langlífi, Dr. David Barzilai og Thor Aspelund 02.10.2026 18p
    Rætt var við Dr. David Barzilai, lektor við Harvard Medical School. Hann sérhæfir sig í heilbrigðum æviárum, gagnreyndum forvörnum og framtíð heilbrigðiskerfa. ATH. Viðtalið er á ensku en það er textað inn á ruv.is og í Spilara RÚV.Í kjölfarið kom Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands í myndver . Thor segir reglulegar heilsufarsmælingar geta hjálpað fólki að greina áhættuþætti fyrr.
  • Endurmeta þarf ofanflóðavarnir, ráðherra um ofanflóðavarnir 01.10.2026 16p
    Snjóflóð sem féll fyrir sex árum gerði sérfræðingum ljóst að hús undir varnargörðum væru ekki jafn örugg og áður var talið. Ríkið ákvað fyrir 30 árum að byggja varanlegar varnir ofan við alla byggð á snjóflóðahættusvæðum. Því verki er ekki lokið og líkur eru á að biðin eftir varnargörðum lengist enn. Ólöf Rún Erlendsdóttir, fréttamaður, fer yfir málið.Rætt við Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra, um stöðu ofanflóðavarna.
  • Rekstur heilbrigðisþjónustu SÁÁ í miklum vanda 30.09.2026 15p
    Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala telur læknisþjónustu af hálfu félagasamtaka vera barn síns tíma. Útlit er fyrir að Landspítali hlaupi tímabundið undir bagga með SÁÁ í læknisþjónustu á Vogi.Viðmælendur:Runólfur PálssonMaría Heimisdóttir
  • Ofur El-Niño og loftslagsaðlögun 29.09.2026 14p
    Í þættinum var fjallað um veðurfyrirbærið El-Niño. Vísindamenn telja að El-Niño atburðurinn í vetur verði sá kröftugasti í manna minnum. Rætt var við Mikael Allan Mikaelsson sérfræðing í loftslagsmálum. Í setti var rætt við Önnu Huldu Ólafsdóttur skrifstofurstjóra loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands um hvar Ísland sendur þegar kemur að því að búa þjóðina undir loftslagsbreytingar.
  • Verðlag og fyrrverandi forsetafrú 25.09.2026 20p
    Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að allt fari í bál og brand á vinnumarkaði? Þær Ásta Fjeldsted forstjóri Festi og Halla Gunnarsdóttir formaður VR glímdu við þessa spurningu í Kastljósi í kvöld. Einnig var rætt við Elizu Reid, fyrrverandi forsetafrú, um samband Kanada og Bandaríkjanna í skugga tollastríðs.Viðmælendur:Ásta FjeldstedHalla GunnarsdóttirEliza Reid
  • Viðtal við Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, umræða um Græland og SÁÁ 24.09.2026 28p
    Viðtal við Kristrúnu Frostadóttur frá Allsherjarþingi SÞ í New York, viðtal við Ölmu Möller um rekstur SÁÁ og umræða um nýjan milliríkjasamning Grænlands, Bandaríkjanna og Danmerkur.Viðmælendur:Alma MöllerGuðbjörg Ríkey Th. ErlingsdóttirKristrún FrostadóttirVilborg Ása Guðjónsdóttir
  • Bílaleigur og orkuskipti 23.09.2026 11p
    Loftslagsráðherra segir að bílaleigur ráði hvort þær verði í fararbroddi orkuskipta á Íslandi eða dragbítur. Bílaleigur hafi hingað til keypt hlutfallslega miklu færri rafmagnsbíla en almenningur. Eru bílaleigur að draga lappirnar eða ættu stjórnvöld að líta sér nær? Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds- Bílaleigu Akureyrar, og Jón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson, teymisstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun, eru gestir Kastljóss.Viðmælendur: Steingrímur BirgissonJón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson
  • Úkraína 22.09.2026 14p
    Eitt helsta vopn Rússa er að reyna að ýta undir ósamstöðu og deilur innan vestrænna samfélaga með það að markmiði að þau dragi úr stuðningi við Úkraínu segir Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Úkraínu og Póllandi. Friðarvilji hjá Rússum sé enginn.Viðmælendur:Friðrik Jónsson
  • Ávanabindandi snjallsímar og ábyrgð foreldra 21.09.2026 19p
    Eru snjallsímarnir okkar farnir að hafa meiri áhrif á okkur sjálf og samfélagið en við almennt gerum okkur grein fyrir? Kastljós fékk til sín sérfræðinga í málefninu til að kryfja vandann og ekki síst ræða um lausnir. Við hittum líka tónlistarmanninn Davíð Berndsen sem segist hafa losnað undan álögum snjallsímans með því að nota einungis takkasíma heima við.Viðmælendur:Halldóra MogensenSkúli Bragi GeirdalDavíð Berndsen

Népszerű itt:

Ez a podcast ezeknek az országoknak a podcast-listáin is szerepel.