Börnin á vistinni

Börnin á vistinni

RÚV Hlaðvörp
Paese Iceland
Generi Society & Culture, History, Documentary
Lingua IS
Episodi 18
Ultimo 24.04.2026

Sögur fólks sem þurfti að dvelja barnungt á heimavist fjarri fjölskyldum sínum til þess að stunda grunnskólanám. Fyrir mörg var það þungbær reynsla meðan önnur eiga ljúfar minningar. Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.

Episodi

  • 3. þáttur - „svona var þetta bara“ 24.04.2026 41min
    Heimavistarskólarnir voru barn síns tíma. Nauðsynlegt úrræði til þess að mennta börn til sveita en ekki ákjósanlegasta fyrirkomulagið til þess að sinna tilfinningalegum þörfum þeirra. Í þessum lokaþætti köfum við aðeins ofan í tilfinningarnar en bregðum okkur líka aftur í tímann og heimsækjum Reykjanesskóla í Ísafjarðardjúpi árið 1980 og Hallormsstaðaskóla aldamótaárið 2000.Viðmælendur: Guðbrandur Árni Ísberg, Halldór Halldórsson, Rúnar Sigþórsson, Berglind Rós Magnúsdóttir, Eva Björk Eyþórsdóttir og ýmsir viðmælendur úr stundinni okkar 1980 og 2000.Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 2. þáttur - gamli skólinn minn 17.04.2026 39min
    Umsjónarmaður heimsækir sinn gamla skóla, Þelamerkurskóla í Hörgárdal, og spjallar við fólk sem dvaldi þar í heimavist á sjöunda og áttunda áratugnum. Sum þeirra ylja sér við ljúfar minningar en önnur líkja vistinni við helvíti á jörð.Viðmælendur. Anna Rósa Friðriksdóttir, Anna Ragna Árnadóttir, Eydís Björk Davíðsdóttir og ónefnd systkini.Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 1. Þáttur - skólahald til sveita 10.04.2026 41min
    Það er flókið að tryggja öllum börnum í strjálbýlu landi sömu tækifæri til menntunar. Heimavistarskólar voru langþráð lausn og stolt hverrar sveitar þegar þeir loksins risu. Í þessum fyrsta þætti skoðum við hvernig skólahald til sveita þróaðist á 20. öldinni og heyrum bæði af heimþrá og hamingju á heimavist.Viðmælendur: Rúnar Sigþórsson, Jónína Einarsdóttir, Þura Jónasdóttir, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir og Líney Snjólaug Diðriksdóttir. Lesari: Ólöf Elsa Ásgrímsdóttir.Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Bruninn í Skildi 3/3: Þögnin 03.04.2026 42min
    Það er gamlársdagur og grimmur raunveruleiki blasir við íbúum í Keflavíkurkauptúni. Eldurinn er slökknaður en leitað er í rústunum að fórnarlömbum brunans í Skildi. Þau finnast fljótt en ekki er hægt að bera kennsl á alla. Á sjúkrahúsi liggja 13 þungt haldin.Harmi lostnir kveðja íbúar Keflavíkurhrepps hið liðna ár og heilsa hinu komandi með sorg og kvíða.Umsjón: Dagný MaggýjarRitstjórn: Anna Marsibil Clausen Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Bruninn í Skildi 2/3: Eldur laus 31.03.2026 42min
    Jólatréð stóð aðeins fyrir innan miðjan salinn í Skildi. Börnin gengu í kringum tréð og sungu á milli þess sem þau fóru til skiptis upp á svið til að þiggja þar veitingar. Salurinn var í hátíðarbúningi og litfilmur voru settar við ljós til að skapa stemningu. Klukkan var um hálf tíu, og gestir sungu Göngum við í kringum einiberjarunn, þegar skyndilega kviknaði í trénu.Umsjón: Dagný MaggýjarRitstjórn: Anna Marsibil Clausen Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Bruninn í Skildi 1/3: Fyrirboðar 27.03.2026 37min
    Það er 30. desember. Árið er 1935. Veðrið er kyrrt, snjóföl liggur yfir og hiti er rétt undir frostmarki. Að samkomuhúsinu Skildi í Keflavík streymir prúðbúinn hópur ungmenna á seinni jólaskemmtun dagsins.Lítil hnáta skokkar við hlið bróður í nýrri kápu, systur með krullað hár leiðast og piltar í sparibuxum ærslast. Amma leiðir lítinn dreng sem er örlítið haltur. Engan grunar hættuna framundan.Umsjón: Dagný MaggýjardóttirRitstjórn: Anna Marsibil Clausen Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Sprengjan sem sprakk - 4. þáttur 14.03.2026 41min
    Áföll geta mótað fólk fyrir lífstíð og því miður er það ekki fyrr en á síðustu árum sem það þykir eðlilegt að tala um hlutina. Fólkið á Ási og í Veturhúsum talaði aldrei um þá lífsreynslu sem það gekk í gegnum á fimmta áratug síðustu aldar. Viðmælendur í þættinum eru: Baldur Davíðsson, Edda Emilsdóttir, Friðþór Eydal, Sigrún Sigurðardóttir og Sturla Pálsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Sprengjan sem sprakk - 3. þáttur 07.03.2026 43min
    Í þessum þætti liggur förin upp á Eskifjarðarheiði og til fjölskyldunnar í Veturhúsum. Fjölskyldu sem vann hetjudáð á dimmri janúarnóttu 1942. Viðmælendur í þættinum eru: Edda Emilsdóttir, Friðþór Eydal, Sigrún Sigurðardóttir og Sturla Pálsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Sprengjan sem sprakk - 2. þáttur 28.02.2026 41min
    Íslenska ríkið skuldbatt sig til þess að greiða ekkjum sjómanna, sem létust á hafi úti af völdum stríðsátakanna, bætur. En hvað með bónda og börnin sem létust af völdum handvammar af hálfu breska hersins og hvernig metum við mannslíf? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Sprengjan sem sprakk - 1. þáttur 21.02.2026 39min
    Sprengja sem sprakk á Ási í Fellum árið 1946 kostaði fjögur mannslíf. Talið er að sprengjan hafi verið skilin eftir af breska hernámsliðinu. Mikið var fjallað um atburðinn í fjölmiðlum í nokkrar vikur en svo fjaraði umræðan út og um leið krafan um sprengjuleit þrátt fyrir að þess væru mörg dæmi að ósprungin skothylki fyndust í Norður-Múlasýslu síðan breski herinn var þar við skotæfingar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Elsta land í heimi - 3. þáttur 20.02.2026 56min
    Er ásókn Trump í Grænland það afdrifaríkasta sem komið hefur fyrir sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga? Við reynum að skilja samhengi sjálfstæðisbaráttunnar, afnýlenduvæðingu og samband Hans Egede og Hafmóðurinnar. Viðmælendur í þættinum eruGuðmundur (Gujo) Þorsteinsson Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen Aka Hansen Lög sem spiluð voru í þættinum Sooq - Tarrak og Peand-eLUummatip tusaataa - Uillut QILAAT - Varna ANAANA - Varna Imigassaq - Sumé Qullissat=Qullissat - Sumé Brot úr þættinum Um Grænland frá 1976 Lestur úr bókinni A Kayak Full of Ghosts: Eskimo Tales eftir Lawrence Millman frá 1987 Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Elsta land í heimi - 2. þáttur 13.02.2026 56min
    Elsta berg á yfirborði jarðar er að finna á Grænlandi og bergið hefur mótandi áhrif á samfélagið sem á því er byggt. Jarðfræði Grænlands hefur áhrif á innviði, efnahag og lífsskilyrði í landinu og við ætlum að reyna að skilja þessi fyrirbæri betur. Við veltum fyrir okkur blokkunum, heilbrigðiskerfinu, tónlistinni, leikhúsinu og þögninni.Viðmælendur voru:Jón Viðar SigurðssonEmbla KristjánsdóttirMette Marie JensenGlenn MøllerVivi SørensenLög sem notuð voru í þættinum:Uummatip tusaataa - UillutAkimut Ikaarneq - UillutInuuneq Nunaaq - UillutKalaallit Nunaat, Kalaallit Pigaat - Kalaallit Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Elsta land í heimi - 1. þáttur 06.02.2026 54min
    Í janúar hvíldu augu heimsbyggðarinnar á Grænlandi. Bandaríkjaforseti var með yfirlýsingar um að hann ætlaði sér að innlima Grænland inn í Bandaríkin. Um viku eftir að Trump lofaði að beita ekki hervaldi til þess að taka Grænland fórum við til Nuuk til að ræða við fólkið sem situr eftir með spurningar eins og hvað gerðist? Hvers vegna? Og hvað tekur nú við fyrir Grænlensku þjóðina?Umsjónarmenn eru Pétur Magnússon og Lóa Björk Björnsdóttir Viðmælendur voru Inga Dóra Guðmundsdóttir Lis Lindenhann Jokumsen Bent Jokumsen Aka Hansen Martin Zink Lög sem voru notuð í þættinum Uummatip tusaataa - UillutAqqusernit - Nive Nielsen and the Deer ChildrenTimmissat taartut - Nanook Tupilak - TarrakUummatima feat. Suspekt - Tarrak Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Sölvadalur - 5. þáttur 13.12.2025 39min
    Bæir í Sölvadal í Eyjafirði voru aldrei tengdir rafmagni frá samveitunni. Í staðinn voru notaðar viðhaldsfrekar og ótryggar heimavirkjanir. En hvernig lítur framtíð dalsins út? Viðmælendur: Gyða Sjöfn Njálsdóttir, Halldór Hauksson, Hrólfur Eiríksson, Jón Björn Hákonarson, Njáll Kristjánsson og Finnur Yngvi Kristinsson. Einnig eru flutt brot úr eldri viðtölum við Tryggva Emilsson og Lilju Karlsdóttur. Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Sölvadalur - 4. þáttur 06.12.2025 38min
    Aftakaveður gekk yfir landið í byrjun desember 2019. Það hafði miklar afleiðingar og sérstaklega inni í Sölvadal. Miðvikudagskvöldið 11. desember barst útkall vegna slyss við Eyvindarstaðavirkjun. Björgunarsveitir víðsvegar að af landinu tóku þátt í leitinni, meðal annars félagar í hjálparsveitinni Dalbjörg í Eyjafirði.Viðmælendur: Gyða Sjöfn Njálsdóttir og Óskar Pétur Friðriksson.Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Sölvadalur - 3. þáttur 29.11.2025 39min
    Við horfum enn til baka og fáum loks að vita hvaða menn á Akureyri keyptu á sínum tíma vatnsréttindin í Núpánni. En fyrst heyrum við í einu af síðustu börnunum sem ólust upp í Sölvadal.Viðmælendur: Gyða Sjöfn Njálsdóttir, Valgerður H. Bjarnadóttir og Njáll Kristjánsson. Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Sölvadalur - 2. þáttur 22.11.2025 40min
    Tvær heimavirkjanir sáu bæjunum í Sölvadal fyrir rafmagni. Í lok júní 1995 urðu náttúruhamfarir sem höfðu mikil áhrif á líf fólksins í dalnum. Þjónustuleysi og lélegar samgöngur héldu áfram að einkenna búsetuna.Viðmælendur: Egill Þórólfsson, Petrea Lára Hallmannsdóttir, Ingibjörg Eiríksdóttir, Hrólfur Eiríksson og Njáll Kristjánsson.Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Sölvadalur - 1. þáttur 15.11.2025 41min
    Í Sölvadal í Eyjafirði hefur lengst verið búið á Eyvindarstöðum, Draflastöðum og Þormóðsstöðum. Við kynnumst nánar sögu dalsins og fólksins sem þar bjó. Hvernig kom það til að heimavirkjanir voru reistar í stað þess að rafmagn frá samveitunni væri lagt í dalinn? Viðmælendur: Ingibjörg Eiríksdóttir, Hrólfur Eiríksson og Njáll Kristjánsson.Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir - Rás 1Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Popolare in

Questo podcast compare anche nelle classifiche dei podcast di questi paesi.