EKKI AUMINGI

EKKI AUMINGI

Eva Matta
Paese USA
Generi Self-Improvement, Education, Health & Fitness
Lingua IS
Episodi 4
Ultimo 26.05.2026

Eva Matta endurrammar umræðuna um endurhæfingu og kulnun. Af hverju er svona erfitt að hægja á, án þess að líða eins og aumingja?

Episodi

  • S1E1 - Lóan er komin að segja mér að vera ekki aumingi 05.05.2026 1h 14min
    Fyrsti þáttur í fyrstu seríu! Þetta podcast er tilraun Evu til þess að endurramma orðræðuna um hvíld, endurhæfingu og allt sem fylgir. Hún fer yfir hvers vegna í ósköpunum henni datt í hug að henda í þetta podcast og að sjálfsögðu þurfum við að ræða þessa aumingjahræðslu okkar...  TAKK FYRIR AÐ VERA MEÐ: LYFJA, NORDAID, SAN PELLEGRINO & BATI.APP <3 
  • S1E2 - "Ekki ganga yfir Vatnajökul einn" - Matti Osvald 12.05.2026 1h 30min
    Kæri hlustandi það er komið að fyrsta viðmælanda þessa ágæta hlaðvarps.. og fyrst ég er að vanda mig að halda taugakerfinu rólegu í endurhæfingunni þá var best að fá hann pabba minn bara með mér í fyrsta þátt. Hann er engum líkur, fagmaður í því að koma fólki í gegnum krefjandi tímabil, Matti Osvald gjöriðisvovel! 
  • S1E3 - "Hvað er líkaminn að reyna að segja þér?" - Hólmfríður sjúkraþjálfari 19.05.2026 1h 20min
    Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir eða Hófí eins og við þekkjum hana mörg, er sjúkraþjálfari sem ég fór til í minni endurhæfingu, og það breytti öllu. Hófí starfar hjá Verkjalausnum og er önnur stofnenda Stoðkerfis- og heilsuskóla Hólmfríðar og Þórhöllu, ásamt allskonar öðrum áhugaverðum úrræðum fyrir fólk í leit af lausnum fyrir líkamann. Þetta er fagkona sem þú vilt hlusta á.  Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid spreyvítamína, Bati.app og San Pellegrino - TAKK  
  • S1E4 - Er baðið að sjóða þig lifandi? 26.05.2026 1h
    Hvað einkenndi langlífustu konu heims? Skammar þú þig einhverntíman? Ertu að bíða eftir að einhver sjái þig? Hvað er temmilegt hitastig á baði? Þetta og margt fleira í þætti vikunnar.  Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid spreyvítamína, San Pellegrino og Bati.app - TAKK 
  • S1E5 - "Ég er ekki lengur með áfallastreituröskun" - Svava Brooks 02.06.2026 1h 14min
    Svava Brooks er er mögnuð kona, TRE® leiðbeinandi og ein af stofnendum samtakanna Blátt áfram. Hún hefur áratuga reynslu af því að styðja fólk á batavegi eftir áföll og erfiðleika.  Ég er vægast sagt þakklát fyrir að hafa tekið þetta spjall við Svövu og þú verður eiginlega að heyra þetta. Í þættinum ræðum við meðal annars TRE® (Tension & Trauma Releasing Exercises), aðferð sem hjálpar líkamanum að losa um uppsafnaða spennu, streitu og áföll, og Svava deilir sinni innsýn í tengsl áfalla, taugakerfisins og bataferlisins, og hvernig hægt er að finna leiðina aftur til sín með mildi, öryggi og sjálfsást. 

Popolare in

Questo podcast compare anche nelle classifiche dei podcast di questi paesi.