Grjótkastið
Björn Ingi Hrafnsson
0
Grjótkastið er íslensk hlaðvarpsþáttaröð sem fjallar um málefni líðandi stundar. Þættirnir innihalda fréttaskýringar, pistla og viðtöl við ýmsa aðila. Dagbókarbrotum er einnig varpað fram í hverjum þætti.
Episodi
-
Vaxtaákvörðun og úrslit kosninga 18.05.2026 48minSkuggabankastjórn kemur saman að loknum sveitarstjórnarkosningum og rýnir í úrslitin og ræðir ákvörðun peningastefnunefndar sem kynnt verður seinna í vikunni. Sigurður Hannesson og Þórður Pálsson liggja ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn.
-
Ríkisstjórnin sem vill ekki hlusta 15.04.2026 42minBergþór Ólason og Ingibjörg Ísaksen um ríkisstjórnina sem hlustar bara alls ekki á nein varnaðarorð, hvaðan sem þau koma, óvænt brotthvarf varaformannsins úr Flokki fólksins, skoðanakannanir og komandi sveitarstjórnarkosningar og magnaðan blaðamannafund forsætisráðherra fyrir utan Jysk í Kópavogi.
-
Baráttan um Ísland 09.04.2026 1h 16minBjörgvins Halldórssonar minnst. Baráttan um Ísland framundan, komandi sveitarstjórnarkosningar, veröld sem var í alþjóðamálum, staða efnahagsmála og margt, margt fleira.
-
Hvar ertu litla saklausa Ísland? 31.03.2026 1h 14minÍ þessum þætti:Staða mála í borgarpólitíkinni, er hægt að bjarga borginni?Ná borgaralegu öflin saman um breytingar, eða vilja sumir sjálfstæðismenn vinna með Samfylkingunni þrátt fyrir allt?Borgarlínan og skipulagsmál og óhófleg yfirbygging borgarkerfisins með fjölda atvinnustjórnmálamanna.Hvaða áhrif hafa Evrópumálin á kosningabaráttuna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar?Munu kjósendur vilja nota tækifærið og refsa stjórnarflokkunum fyrir sífellt óvinsælli ríkisstjórn?Af hverju fáum við ekki betri skóla og kennslu, þegar við setjum meira fjármagn í þennan málaflokk en aðrar þjóðir?Hamas-frétt Moggans og átök í undirheimunum, erum við að lenda á sama stað og hin Norðurlöndin?Solaris-málsóknin gegn formanni Sjálfstæðisflokksins, þingsályktunartillaga Karls Gauta ofl um bann við að hylja andlit í opinberu rými.Hundrað ára afmælis landsmálafélagsins Varðar minnst í nýrri bók.Hvað meinar Tony Blair með því að vinstrið verði að gera upp dálæti sitt á íslamistum, sem vilja ekki aðlagast vestrænum samfélögum?
-
Féllust seðlabankastjóra hendur? 24.03.2026 52minÍ fyrri hluta Grjótkastsins greinir Agnar Tómas Möller stöðu efnahagsmála eftir vaxtahækkun í síðustu viku. Féllust Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra hendur í Silfrinu í gær, þegar hann reyndi að útskýra horfur framundan? Hversu slæm er staðan í reynd? Af hverju er húsnæðisverð og leiguverð að fara að lækka á næstunni og hvað þýðir þessi staða fyrir umræðuna um aðild Íslands að Evrópusambandinu?Í seinni hluta þáttarins koma þau Einar Jóhannes Guðnason og Signý Tryggvadóttir og ræða stöðu mála í Kópavogi og Hafnarfirði í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, þar sem þau eru bæði í framboði.
-
Skuggabankastjórnin: Kreppuverðbólga í kortunum 16.03.2026 53minÞeir eru mættir í Skuggabankastjórninni Þórður Pálsson og Sigurður Hannesson og spá í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í vikunni. Rætt er um hugtakið kreppuverðbólgu (stagflation), íslenska vinnumarkaðsmódelið, Evrópuleiðangur ríkisstjórnarinnar, óvissuna á alþjóðamarkaði, vöxt báknsins og gengi krónunnar svo eitthvað sé nefnt.
-
Sótt að landsbyggðinni úr öllum áttum 24.11.2025 53minSótt er að landsbyggðinni úr öllum áttum af ríkisstjórninni, er samdóma álit þeirra Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, Gunnars Braga Sveinssonar varaþingmanns Miðflokksins og fv. ráðherra og Þórarins Inga Péturssonar þingmanns Framsóknarflokksins. Þeir fara yfir pólitíska sviðið, stefnu og stöðu ríkisstjórnarinnar og sóknarfæri stjórnarandstöðunnar í snörpu spjalli.
-
Skuggabankastjórnin spáir óvæntri vaxtalækkun 14.11.2025 1h 16minSkuggabankastjórn Grjótkastsins kemur saman á mikilvægum fundi og spáir í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans. Hvaða staða er að teiknast upp í íslensku efnahagslífi og hvernig þarf að bregðast við? Þáttur sem telst skylduhlustun.
-
Það er töff að vera trúaður 04.11.2025 48minSöngkonan Dagbjört Rúriks varð fyrir trúarlegri frelsun sem hjálpaði henni að verða edrú. Verkfræðingurinn og athafnamaðurinn Gunnlaugur Jónsson opnaði á alvöru spurningar um trúna og fann svör sem skiptu hann máli. Hvers vegna er aukinn trúarleg vakning meðal ungs fólks? Hvaða áhrif hafði morðið á Charlie Kirk? Hversu miklu máli skiptir kristin trú í okkar daglega lífi og er ekki bara allt í lagi að tala um trúna?
-
Allt um botnfrosinn fasteignamarkað á mannamáli 31.10.2025 1hÓmar Rafnsson er byggingaverktaki til áratuga og gömul knattspyrnukempa. Hannes Steindórsson hefur selt fasteignir um árabil. Þeir vita hvað þeir syngja, þegar kemur að stórfurðulegri stöðu á íslenskum fasteignamarkaði og deila pælingum sínum og stöðumati með þjóðinni.
-
Vinstri femínistar eiga ekki jafnréttisumræðuna 21.10.2025 50minFélagsfræðingurinn Heiðdís Geirsdóttir og foreldrafræðingurinn og uppeldisráðgjafinn Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage ræða jafnréttismál í víðum skilningi, velferð og nám barna, símabann í skólum, leikskólamál í Kópavogi og í Reykjavík, skóla án aðgreiningar, líðan barnanna okkar og margt fleira í sérlega áhugaverðu spjalli.
-
Pólitísk vakning og ferðalag ungrar konu frá VG og Stundinni yfir í Miðflokkinn 14.10.2025 1h 5minFélagsfræðingurinn Hlédís Maren var í ungliðastarfi VG og blaðamaður á Stundinni, en lætur nú til sín taka í Miðflokknum og sat landsþing hans um helgina. Þar var líka hlaðvarparinn Þórarinn Hjartarson sem einnig er stjórnmálafræðingur og hnefaleikaþjálfari. Þau ræða aukinn áhuga ungs fólks á stjórnmálum, nýjar áherslur kvenna í jafnréttismálum, komandi sveitarstjórnarkosningar og margt fleira í stórfróðlegu spjalli sem vekja mun mikla athygli.
-
Hvað er eiginlega að gerast? 26.09.2025 58minEr kreppa í kortunum samfara óvissu um stríðsátök? Hvers vegna gengur ekkert að ná verðbólgunni niður? Hvaða vandamál hrjáir íslenska hlutabréfamarkaðinn? Hvers vegna er ákveðnum hópi haldið nauðugum á leigumarkaði? Hvað er eiginlega framundan í efnahagsmálum heimsins og hvaða áhrif hefur það hér á landi. Agnar Tómas Möller fjárfestir og einn okkar helsti greinandi í þeim efnum svarar því á dýptina í áhugaverðu spjalli við Björn Inga Hrafnsson.
-
Hvað má ræða og hvað ekki? Menningarstríðin hin nýju 16.09.2025 1h 4minMenningarstríðin hin nýju, þar sem margir hreinlega standa á orginu og telja að fólk annarrar skoðunar megi helst hvergi þrífast setja mark sitt á alla umræðu, ekki bara á Íslandi heldur um allan heim. Hvers vegna er skautunin svo mikil og óþol fyrir andstæðum skoðunum? Morðið á Charlie Kirk, staða Þjóðkirkjunnar, hin ömurlegu átök fyrir botni Miðjarðarhafs og margt fleira eldfimt til umræðu og gestir eru sr. Örn Bárður Jónsson prestur, Snorri Másson alþingismaður Miðflokksins og Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður og siðfræðingur.
-
„Ég varð að fá að kveðja hana Margréti mína“ 10.09.2025 55minGuðni Ágústsson, fv. ráðherra, í einkar einlægu og mannlegu spjalli um makamissinn, en eiginkona hans til áratuga, Margrét Hauksdóttir, féll frá fyrr á árinu. Guðni segir frá Njáluástríðu sinni og stórum verkefnum sem henni tengjast og spáir í spilin í pólitíkinni. Hann segir vá fyrir dyrum í heimsmálunum og hér heima við sé ljóst að Framsóknarflokkurinn þurfi nýjan formann; Sigurður Ingi Jóhannsson geri sér vel grein fyrir því.
-
Hver eru tækifæri Íslands í gjörbreyttri heimsmynd? 12.04.2025 1h 16minHér er nú ekki töluð vitleysan! Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og fv. efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, Álfrún Tryggvadóttir hagfræðingur og sérfræðingur hjá OECD og Bergþóra Halldórsdóttir hjá Borealis Data Center og stjórnarmaður í Samtökum iðnaðarins ræða gjörbreytta stöðu í heimsviðskiptunum og tækifæri og ógnir sem Ísland stendur frammi fyrir. Er að koma kreppa ofan á tal um ófrið í heiminum? Hvernig takast ríkisstjórnir hér á landi og annars staðar á við nauðsynlega hagræðingu? Er hagsmunum Íslands betur borgið innan ESB og ber að flýta þjóðaratkvæði? Er lögmál að báknið stækki endalaust? Hverjar eru horfurnar hér á landi og á alþjóðavísu við gjörbreyttar aðstæður? Umræða fyrir þá sem vilja vita meira.
-
Er allt að fara í skrúfuna? Staðan skýrð á mannamáli 07.04.2025 59minStefán Einar Stefánsson og Hörður Ægisson rýna í ótrúlega stöðu á heimsmörkuðum vegna tollastríð Trumps Bandaríkjaforseta, þar sem allt var eldrautt fyrir helgi og óttast að botninum sé ekki náð. Hvað þýðir þetta fyrir Ísland og viðskiptalífið hér á landi? Verður ríkisstjórnin að taka U-beygju í snatri í áformum um tvöföldun veiðileyfagjalds og álögur á ferðaþjónustuna? Er ætlunin að flýta þjóðaratkvæði um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Skylduhlustun fyrir alla sem vilja vera með á nótunum, en mögulega ekki sérlega notalegar vangaveltur rétt fyrir svefninn!
-
Tvær grjótharðar láta gamminn geisa 01.04.2025 1h 8minÞær kalla ekki allt ömmu sína, þær Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins og fv. ráðherra. Í Grjótkasti dagsins er fjallað um ríkisstjórnina og hundrað fyrstu dagana, tvöföldun veiðigjalda og slaginn sem framundan er um sjávarútvegsmálin, stöðuna í stjórnmálunum, nýja forystu Sjálfstæðisflokksins og fl.
-
100 daga ríkisstjórn og fyrsti ráðherrann fallinn, Trump, tollastríð og undarlegt ferðalag til Brussel 21.03.2025 1h 12minGuðmundur Fertram Sigurjónsson í Kerecis og Hermann Guðmundsson í Kemi mæta í Grjótkastið og ræða nýjustu tíðindi: Afsögn barnamálaráðherra á hundrað daga afmæli ríkisstjórnarinnar, hvort rannsaka eigi bakgrunn nýrra ráðherra, furðulegt ferðalag ríkisstjórnarinnar til Brussel, Trump og áherslur hans, tollastríðið sem framundan er, innanlandsflugið, pólitíkina almennt og margt fleira. Allt sem þú þurftir að vita um helstu mál!
-
Margeir í Úkraínu: Allir sammála Trump um að þetta stríð verði að enda 16.03.2025 41minStórmeistarinn og bankamaðurinn Margeir Pétursson hefur verið búsettur undanfarin ár í Úkraínu og þekkir því manna best hvernig innrásarstríð Rússa hefur bitnað á landinu og íbúum þess. Fyrir þremur árum tæpum -- þegar stríð var nýlega hafið -- fór Björn Ingi Hrafnsson til Úkraínu og heimsótti Margeir og stríðsslóðir í austurvegi. Nú eiga þeir samtal aftur, þegar gífurlegur fjöldi hefur fallið í herjum beggja ríkja og ræða möguleika á friði, hvort sem er varanlegur eða tímabundinn; áhrif Trumps Bandaríkjaforseta, vopnavæðingu Evrópu og hvað er eiginlega framundan í alþjóðamálunum. Samtalið er skylduhlustun fyrir þá sem vilja vera með á nótunum!
Popolare in
Questo podcast compare anche nelle classifiche dei podcast di questi paesi.