Félagsráðgjafahlaðvarpið

Félagsráðgjafahlaðvarpið

Félagsráðgjafafélagið
Paese Islanda
Generi Society & Culture
Lingua IS
Episodi 3
Ultimo 10.06.2026

Hlaðvarp Félagsráðgjafafélags Íslands er vettvangur fyrir samtal, þekkingu og innsýn í heim félagsráðgjafar. Þar er fjallað um málefni sem snerta daglegt starf félagsráðgjafa, þróun fagsins, nýjar rannsóknir, samfélagsbreytingar og áskoranir í velferðarþjónustu. Í þáttunum heyrum við raddir fagfólks, skjólstæðinga og sérfræðinga sem varpa ljósi á fjölbreytt hlutverk félagsráðgjafa og mikilvægi þeirra í samfélaginu. Hlaðvarpið tengir saman fagið, miðlar reynslu og styrkir umræðu um velferð, réttindi og mannlega reisn.

Episodi

  • Þáttur #3 - Hervör Alma Árnadóttir 10.06.2026 43min
    Í þessum þætti ætlum við að ræða félagsráðgjafanám við Háskóla Íslands, þróun þess og framtíð.Hvernig eru félagsráðgjafar menntaðir fyrir sífellt flóknari verkefni í samfélaginu? Hvers vegna eru starfsréttindi nú bundin við meistaragráðu?Hvaða hæfni þarf félagsráðgjafi framtíðarinnar að búa yfir og hvernig tryggjum við að námið haldist í takt við þarfir samfélagsins?Gestur minn er Hervör Alma Árnadóttir, deildarforseti Félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands.
  • Þáttur #2 - Páll Ólafsson 27.05.2026 57min
    Í dag ætlum við að fara beint í eina stærstu umbreytingu sem er að eiga sér stað í þjónustu við börn og fjölskyldur á Íslandi.Við ætlum að tala um farsældarlögin og hvað gerist þegar þau eru ekki bara orð á blaði heldur lifandi verkfæri í daglegu starfi.Við ætlum einnig að kafa dýpra í "signs of safety", nálgun sem snýr að því hvernig við hugsum um ábyrgð samtala og lausna.Spurningin er einföld en svarið er það ekki. Getum við í raunverulega breytt kerfinu eða erum við enn föst í sama fari?Gestur okkar í dag er Páll Ólafsson, félagsráðgjafi, með meira en 26 ára reynslu að vinnu með börnum og fjölskyldum bæði á vettvangi og innan kerfisins.
  • Þáttur #1 - Steinunn Bergmann 13.05.2026 43min
    Velkomin í Félagsráðgjafahlaðvarpið. Það eru ákveðin tímamót í miðlun og sýnileika hjá okkur, því með því að hefja hlaðvarp í hljóði og mynd þá erum við farin á nýjan vettvang.Við viljum opna lifandi samtöl um fagið, fólkið, áskoranirnar og framtíðina.Við erum líka að opna alveg nýja leið í fjölmiðlun félagsins með því að dýpka viðtölin í tímaritinu okkar og gefa lesendum kost á að skanna inn QR kóða sem fylgja með greinunum og senda viðkomandi beint í þáttinn. Það er viðeigandi og ánægjulegt að fyrsti gestur okkar sé formaður félagsins, Steinunn Bergmann.Í þessum fyrsta þætti ætlum við að ræða stöðuna hjá félaginu, faglega og kjaralega, og verkefni ársins og hvert sé stefnt, en einnig að kynnast manneskjunni á bakvið hlutverkið.

Popolare in

Questo podcast compare anche nelle classifiche dei podcast di questi paesi.