Bíddu Bara
Bíddu bara
0
Mömmuhópurinn þinn í eyrunum 🎧. Hlaðvarpið fjallar um lífið, foreldrahlutverkið og allt þar á milli með hlýju og húmor.
Episod
-
Hafdís - ósýnilegir sjúkdómar 26.05.2026 1j 49minHafdís Houmøller Einarsdóttir kom til okkar í spjall og segir okkur frá sinni reynslu af því að lifa með ósýnilegum sjúkdómum. Hún ræðir fordóma og skilningsleysi sem oft fylgir, en líka ákvörðunina að verða mamma þrátt fyrir áskoranir lífsins. Meðal sjúkdóma sem hún er með eru endómetríósa, vefjagigt og mígreni.
-
Að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlof 19.05.2026 58minRæðum um það hvernig það er að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlof. Hvernig þetta er á sama tíma erfitt en líka svo frelsandi!
-
Mömmuþáttur 12.05.2026 1j 1minVið settumst niður á mæðradaginn sjálfan og spjölluðum um móðurhlutverkið í allri sinni dýrð 💛Ræðum allt frá því hvað okkur finnst best/erfiðast við móðurhlutverkið, hvað breyttist mest þegar við urðum mömmur og allskonar mömmuspjall. Dass af ranti líka um nýjast útspil heilbrigðisráðherra!
-
Ofbeldi í nánum samböndum 05.05.2026 1j 35minTrigger warning: Í þessum þætti er rætt um heimilisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum. Jenný Kristínu Valberg, mamma og starfandi teymisstjóri Bjarkahlíðar ræðir við okkur um ofbeldi í nánum samböndum. Sláandi tölfræði sýnir að um 20 prósent íslenskra mæðra eru beittar ofbeldi á meðgöngu, sem undirstrikar hversu mikilvægt er að tala opinskátt um þessi mál.Jenný, sem hefur mikla reynslu af málaflokknum, fræðir um birtingamyndir heimilisofbeldis, rauð flögg í upphafi sambanda og hvert hægt er að leita eftir hjálp og stuðningi.
-
Aðskilnaðarkvíði 28.04.2026 55minÍ þessum þætti tölum við um aðskilnaðarkvíða, bæði hjá okkur foreldrunum og börnunum. Hvort sem það er í fyrsta skipti sem barnið fer í pössun, næturpössun, til dagmömmu eða byrjar í leikskóla, þá fylgja oft alls konar tilfinningar.
-
Fæðingarsaga Helgu Dísar 21.04.2026 1j 31minHelga Dís deilir reynslu sinni af erfiðri fæðingu og þeim áhrifum sem hún hafði á fyrstu mánuðina. Hún ræðir bæði andlega og líkamlega vanlíðan og þá áskorun sem fylgdi því að stíga inn í móðurhlutverkið við þær aðstæður ❤️🩹
-
Guðrún Sortveit - finna stílinn eftir meðgöngu ✨ 14.04.2026 1j 29minGuðrún Sortveit áhrifavaldur kom til okkar í spjall um mömmulífið og hvernig það er að finna sig og stílinn sinn aftur eftir meðgöngu og orlof.
-
Fæðingarsögur Ásdísar 07.04.2026 1j 35minÍ þessum þætti segir Ásdís frá sínum tveimur meðgöngum og fæðingum. Við deilum líka fréttum tengdum hlaðvarpinu 💬✨
-
Páskaþáttur 🐰 31.03.2026 54minMá borða páskaegg fyrir páska? förum yfir páskahátíðina - hefðir og venjur. Léttur og góður þáttur fyrir fríið.
-
María Ellen - ófrjósemi 24.03.2026 2j 6minMaría Ellen kom í heimsókn til okkar og deildi sinni persónulegu og heiðarlegu sögu af ófrjósemi. Það gekk ekki áfallalaust fyrir hana að verða ólétt og hún ræðir opinskátt um sína reynslu.
-
Eyrún Ösp - Krabbameinsgreining eftir fæðingu 17.03.2026 1j 31minEyrún Ösp greindist með þriðja stigs krabbamein í leghálsi þegar hún fæddi þriðja barnið sitt. Hún deilir ótrúlegri baráttu sinni og fjölskyldunnar á krefjandi tíma, en skömmu síðar varð rýming í Grindavík þar sem þau bjuggu.
-
Fanney Dóra - Baby Led Weaning 🥑 10.03.2026 1j 36minFanney Dóra, mamma og áhrifavaldur kemur til okkar að spjalla um spennandi og stressandi tímann þegar maður byrjar að gefa barninu sínu að borða.
-
Babyshower & skírnarveislur 03.03.2026 1j 31minÍ þessum þætti tölum við um allt sem tengist babyshower og skírnar/nafna-veislum. Förum yfir undirbúninginn, vafaatriði, hugmyndir að gjöfum, veitingar og fleira. Léttur og skemmtilegur þáttur fullur af praktískum ráðum og svörum við algengum spurningum!
-
Nostalgía 24.02.2026 1j 2minKöfum aðeins ofan í æskuna okkar og rifjum upp hvernig það var að alast upp á tíunda áratugnum (90s) og svo auðvitað aldamótastemninguna sem fylgdi í kjölfarið. Ef þú ert „millennial“ eins og við, eða bara elska fortíðina og nostalgíu, þá munt þú elska þennan!
-
Kristín Gunnarsdóttir - kraftaverkasaga! 17.02.2026 2j 4minÍ þessum þætti fáum við að heyra ótrúlega áhrifamikla og persónulega frásögn Kristínar Gunnarsdóttur af því þegar nýfæddur sonur hennar veiktist alvarlega. Kristín deilir upplifun sinni af þessum ólýsanlega erfiða tíma, frá fyrstu einkennum og allt þar til lífi sonarins var á ótrúlegan hátt bjargað á elleftu stundu.Við ræðum hvernig er að takast á við svona erfitt ferðalag með makanum sér við hlið og hvað skiptir mestu máli þegar þarf að styðja hvort annað í gegnum það ómögulega.Þetta er einstaklega einlægur þáttur, kraftaverkasaga sem gefur von og minnir okkur sterklega á hvað fólkið í kringum okkur skiptir miklu máli þegar lífið reynir á ❤️
-
Hlaðfréttir - Pabbaspjall 10.02.2026 1j 38minFengum þá Benna og Fannar úr Hlaðfréttum í alvöru pabbaspjall. Þeir tveir eiga, eins og þeir orða það "saman" sex börn og við ræddum við þá um pabbalífið og lífið almennt! Mjög einlægt, fyndið og skemmtilegt spjall.
-
Halló febrúar ✨🩵 03.02.2026 1j 13minEinn léttur, ljúfur og kátur þar sem við kveðjum lengsta mánuð ársins og tökum fagnandi á móti fallegum febrúar! Skemmtilegt yapp um allskonar og mömmupepp fyrir komandi mánuð!
-
Leikskólamálin með Höllu Gunnarsdóttur 27.01.2026 1j 40minÍ þessum þætti ræðum við við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, um leikskólamálin sem hafa verið mikið í umræðunni upp á síðkastið. Sveitarfélögin eru mörg hver farin að bjóða sex tíma gjaldfrjálsan leikskóla. Við ræðum um pressuna á foreldra, áskoranir starfsfólks leikskóla og hvort við séum á réttri leið í að byggja upp kerfi sem virkar fyrir börn, foreldra og samfélagið allt.Mjög áhugavert og mikilvægt spjall um eitt heitasta málefni landsins um þessar mundir.
-
Kristín svefnráðgjafi 20.01.2026 1j 45minGott og fræðandi spjall við Kristínu svefnráðgjafa um svefn ungabarna 👼💤
-
Nýársþáttur 13.01.2026 1j 2minNýtt ár - nýr þáttur! Kick störtum þessu ári og ræðum hitt og þetta. Mömmumarkimið ársins, rant um leikskólamál, mömmviskubit, framtíðarsýn Bíddu bara og margt fleira!
Popular di
Podcast ini turut muncul dalam senarai podcast negara-negara ini.