Ljósmæðrarýmið

Ljósmæðrarýmið

Hafdís og Oddný
Negara Iceland
Bahasa IS
Episod 14
Terkini 16.07.2026

Tvær ljósmæður skapa öruggt rými fyrir hrátt spjall um allt sem við kemur fæðingum og fá til sín gesti til að deila sínum fjölbreyttu fæðingarsögum. Rauði þráðurinn er jákvæð upplifun af fæðingu. Okkur finnst að það megi heyrast meira í þeim! Við trúm því að þessar umræður geti styrkt konur í undirbúningi fyrir sína eigin fæðingu.

Episod

  • #20 Arna Ýr 16.07.2026 1j 53min
    Arna Ýr, íþróttakona, fyrirtækjaeigandi, fyrrverandi fegurðardrottning og almennur brasari og fiðrildi eins og hún lýsir sjálf segir frá öllum fæðingunum sínum í löngu og skemmtilegu máli. Allar 3 er ólíkar en þó með sameiginlegum rauðum þræði, S E I G L A.Arna er mögnuð kona og það er heiður að fá að hlusta á hana segja frá fæðingunum sínum, hún er hreinskilin opin og hrá í þessum þætti.Getur hver sem er leyft sér að stefna að upplifunum eins og Örnu, fæðing utan sjúkrahúss með fyrsta barn, bað fæðingar og auðvitað blómafæðingarlaugin fræga? Er það óraunhæft eða á færi allra með góðum undirbúningi að eiga góða fæðingarupplifun?Ræðum þetta og margt fleira í þætti dagsins
  • #19 Foreldrajátningar 09.07.2026 45min
    Hefur þú gleymt að þú varst að keyra um með ungabarn í aftursætinu? Engar áhyggjur, það höfum við líka gert, og flestir hlustendur okkar líka! Endilega skelltu þessum í eyrun ef þú vilt eyða foreldra samviskubiti dagsins, enda erum við flest í sama rugli.
  • #18 Fæðingarsögur Dýrleifar - Hvernig áföll geta haft áhrif á fæðingarferlið 02.07.2026 1j 34min
    Í þessum einstaka þætti segir Dýrleif okkur af svo mikilli einlægni og innsýn frá sínar tveimur ólíku fæðingum og hvernig það var að vera sjálf ljósmóðir þegar kom að því að fæða.Dýrleif deilir líka reynslu sinni af því hvernig áföll úr fortíðinni komu óvænt upp á yfirborðið í fyrri fæðingunni og hvað hún gerði til að geta átt ánægjulega seinni fæðingu.Þetta er þáttur sem við höfum beðið spenntar eftir að taka upp og við vonum að sagan hennar Dýrleifar geti veitt ykkur innblástur.Njótið vel 🤎Vertu með okkur á Instagram:⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
  • #17 TW: Missir snemma á meðgöngu, reynslusaga Oddnýjar 25.06.2026 1j 13min
    Missir snemma á meðgöngu er mun algengari en flestir gera sér grein fyrir. Samt upplifa margar konur sig einar í þessari reynslu og sorginni sem fylgir.Í þessum einlæga þætti deilir Oddný, annar þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins, sinni eigin reynslu af missi á 12. viku meðgöngu. Hún segir frá fyrstu einkennunum, greiningunni, lyfjameðferðinni, líkamlega ferlinu við missinn og þeim bjargráðum sem hún nýtti í þeim aðstæðum. Við ræðum einnig sorgarferlið sem fylgir því að missa barn snemma á meðgöngu. Þegar þú þarft að kveðja litla krílið þitt og þá framtíð sem þú varst búin að sjá fyrir þér og plana lífið í kringum.Þessi þáttur er fyrir þig ef þú hefur upplifað fósturlát, misst snemma á meðgöngu, ert að ganga í gegnum missi núna eða vilt skilja betur reynslu þeirra sem hafa þurft að kveðja litla krílið sitt snemma á meðgöngu.Vertu með okkur á Instagram:⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
  • #16 Fæðingarsögur Írisar Rutar sem upplifði allar þrjár tegundir keisara 18.06.2026 1j 11min
    Íris Rut þriggja barna móðir í úthverfi, kennari og fellihýsa áhugakona, segir okkur frá keisarafæðingunum sínum. Hún fór í gegnum allar 3 tegundir keisara, bjöllu, bráða og skipulagðan. Hún fer vel yfir hvernig fæðingarnar hófust og hvað varð til þess að fæðingarnar hennar voru keisarafæðingar, dregur upp fallega mynd af því þegar keisarar eru besta mögulega útkoman fyrir konu og barn þegar þörf er á. Hún ræðir upplifun sína af fæðingunum, andrúmsloftinu á skurðstofunni og aumingja manninn sinn sem var bitinn í magann, af henni.Vertu með okkur á Instagram:⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
  • #15 Hvar vorum við og hvert erum við að fara? 11.06.2026 44min
    Við erum mættar aftur eftir stutta pásu! Ferskari en nokkru sinni fyrr.Hvert fórum við? Hvert erum við að fara með hlaðvarpið?Pælingar: Af hverju heyrum við og sjáum lang mest af hryllingssögum um fæðingu en sjaldan góðu sögurnar?Af hverju ákváðum við að synda svolítið gegn straumnum og skapa vettvang fyrir jákvæðar fæðingarupplifanir?🎧 Njóttu vel!Vertu með okkur á Instagram:⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
  • #14 Forstig fæðingar - Hvað gerist þegar fæðingin er að byrja? 03.04.2026 27min
    Er þetta að byrja… eða ekki alveg strax?Í þessum örþætti talar Oddný um eitt ruglingslegasta og oft vanmetnasta stig fæðingarinnar: forstigið.Þegar líkaminn er að undirbúa sig fyrir fæðingu, en ekkert er alveg komið í gang ennþá.Verkir geta komið og farið, orðið þéttari og dottið svo niður. Tilfinning um að eitthvað sé að gerast en þú veist ekki alveg hvað. Rætt er um:– hvernig forstigið getur litið út – hvað er að gerast í líkamanum á þessu stigi– hvað er eðlilegt – hvað þú getur gert á þessu stigi til að vinna með líkamanum þínum Þetta er þáttur fyrir þig sem vilt skilja líkamann þinn betur og treysta ferlinu.Vertu með okkur á Instagram:⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
  • #13 Ljósmæður yappa + fæðingarsaga 26.03.2026 58min
    Í þessum þætti tókum við gott spjall.Við svöruðum spurningum sem hlustendur hafa sent inn og fórum út í alls konar pælingar tengdar starfinu.Þetta er meðal annars það sem við ræðum:Fetal ejection reflexFylgjulosAf hverju við fórum í ljósmóðurfræðiHvað er skemmtilegast við vinnuna okkarSpangardeyfingu, er alltaf hægt að biðja um hanaVið endum svo á að lesa upp innsenda fæðingarsöguLéttur, einlægur og notalegur þáttur með smá fræðslu, smá spjalli og svo rúsínu í pylsuendanum.Við skemmtum okkur mjög vel og vonum að þið gerið það líka <3Vertu með okkur á Instagram:⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
  • #12 Örþáttur - Að missa vatnið 23.03.2026 19min
    Legvatnið fer… Hvað gerum við næst?Hvað þýðir það þegar vatnið fer áður en samdrættir hefjast?Hvernig ættum við að bregðast við og hvað gerist næst?Allt þetta og meira um farið vatn í þessum örþætti ljósmæðrarýmisins.Vertu með okkur á Instagram:⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
  • #11 Fæðingarsaga Sólbjartar 19.03.2026 46min
    Sólbjört elskar að tala um fæðingar og við elskuðum að tala við hana um hennar fæðingu.Hún missti vatnið, verandi GBS beri og fór í gangsetningu í kjölfarið - sem endaði vitanlega með barni, þó að henni hafi ekki alltaf liðið eins og það myndi gerast neitt í náinni framtíð.Hlustið og njótið!Fylgist með okkur á Instagram:⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠Sólbjört Sigurðardóttir
  • #10 Örþáttur - Samdráttaverkir eftir fæðingu 16.03.2026 11min
    Vissir þú að það er algengt að fá samdráttarverki eftir fæðingu?Af hverju eigum við ekki betra orð í íslensku talmáli? Eigum við að nota orðið eftirverkir?Hvers vegna koma þeir, hvenær og hvernig er best að höndla þá þegar þeir koma?Fylgist með okkur á Instagram:⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
  • #9 5 hlutir sem koma mörgum á óvart í fæðingu 09.03.2026 43min
    Í þessum þætti ræðir Hafdís 5 hluti sem er kannski minna talað um þegar kemur að fæðingum og gæti komið mörgum á óvart.Við förum yfir:- Hvernig líkaminn tekur yfir í fæðingu- Hvernig fæðingarverkir eru oft öðruvísi en fólk ímyndar sérvernig hugurinn hefur áhrif á ferlið- Hversu óútreiknanlegar fæðingar geta verið- Hinn heimurinn sem maður fer í, í fæðinguAllt til þess að gefa þér betri innsýn í fæðingarferlið og hjálpa þér að mæta henni af meiri ró og trausti <3 Fylgist með okkur á Instagram:⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
  • #8 Fæðingarsaga Huldu Heiðdal 02.03.2026 59min
    Hulda Heiðdal segir okkur frá sinni upplifun af barneignarferlinu, sem var lituð þeirri staðreynd að hún var í mikilli yfirþyngd.Hún var í meðgöngueftirliti á LSH vegna þessa og var ráðlagt að fæða með keisaraskurði, en hana dreymdi um fæðingu um leggöng.Hulda ræðir sína upplifun, fitufordóma og margt fleira.Fylgist með okkur á Instagram:⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠Oddný ljósmóðirHulda og heilsa
  • #7 Fæðingarsögur Kötlu í Systur og Makar 23.02.2026 54min
    Katla sagði okkur á sinn einstaka hátt frá þremur mismunandi fæðingum. Fyrsta gangsetning í covid og blæðing eftir fæðingu, önnur heimafæðing á baðherbergisgólfinu og svo hröð þriðja fæðing á sjúkrahúsi.Þið sem þekkið til Kötlu vitið að hún er ekkert að skafa af hlutunum og það var engin undantekning hér.Njótði vel!Fylgist með okkur á Instagram:⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠Oddný ljósmóðirSystur og makar
  • #6 Fæðingarsögur Helgu Möggu 16.02.2026 49min
    Helga Magga er ein hraustasta kona sem þið finnið og var "óþolandi heilbrigð" á sínum meðgöngum. Enda gekk hún alls ekki fyrir í gangsetningar röðinni fyrr en hún var að detta í 42 vikur. Allar þrjár fæðingarnar hennar voru settar af stað um það leiti.Sú bið var ekki skemmtileg, en fæðingarnar gengu vel og hún átti geggjaðar fæðingar. Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðirHelga Magga
  • #5 Örþáttur - Slímtappinn 13.02.2026 7min
    Hvað er þessi slímtappi? Hvaðan kom hann og hvert er hann að fara? Hlustið til að vita meira.Fylgist með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir
  • #4 Fæðingarsögur Melkorku Rutar 09.02.2026 1j 20min
    Fyrsti gestur Ljósmæðrarýmisins er Melkorka Rut Bjarnadóttir. Hjúkrunarfræðingur og þriggja barna móðir en hún átti þriðja barnið sitt 3 dögum eftir að þátturinn var tekin upp!Melkorka leiddi okkur á skemmtilegan hátt í gegnum fyrstu tvær fæðingarnar sínar og ræddi væntingar og tilfinningar gagnvart þeirri þriðju, sem hún vissi ekki þá að var rétt handan við hornið. Hér var ekkert skilið eftir. Hlustið og njótið.Fylgið okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir
  • #3 Fæðingarsögur Hafdísar 01.02.2026 53min
    Í þessum þætti deilir Hafdís, annar þáttastjórnenda Ljósmæðrarýmisins, sínum fæðingarsögum.Hún var orðin ljósmóðir þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn og fer yfir upplifun sína af tveimur hröðum fæðingum og að lokum tvíburafæðingu sem var mögnuð á svo marga vegu.Þátturinn er persónulegur, einlægur og sýnir hversu fjölbreyttar fæðingar geta verið, jafnvel hjá sömu konu.
  • #2 Fæðingarsögur Oddnýjar 01.02.2026 45min
    Í þessum þætti heyrum við fæðingarsögur Oddnýjar, annars þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins.Hún deilir sínum upplifunum af sínum ólíku fæðingum, fyrsta með löngum aðdraganda og mænurótardeyfingu, annarri sem gerðist hraðar og svo þriðju í Björkinni.Hún ræðir sína upplifun sem fæðandi kona en lítur líka til baka með ljósmæðragleraugun á sér.
  • #1 Hverjar erum við og af hverju ljósmæðrarýmið? 01.02.2026 14min
    Í þessum fyrsta þætti kynnum við okkur og deilum segjum ykkur frá því hvernig Ljósmæðrarýmið varð til.Við ræðum hvernig orð og sögur geta haft lúmsk áhrif á viðhorf kvenna til fæðinga og hvers vegna okkur finnst mikilvægt að hækka rödd þeirra sem upplifa fæðingu sem jákvæða og styrkjandi.

Popular di

Podcast ini turut muncul dalam senarai podcast negara-negara ini.