Allt í lagi með Birni Skúlasyni

Allt í lagi með Birni Skúlasyni

Hugarafl
Negara Iceland
Bahasa IS
Episod 7
Terkini 23.06.2026

Hlaðvarpið er hluti af árverkniátaki Hugarafls, Allt í lagi, sem hefur það að markmiði að opna umræðu um andlega heilsu og hvetja fólk til að nýta sér úrræði þegar á reynir. Björn Skúlason stýrir hlaðvarpinu. Verkefnið er unnið með stuðning frá Orkusölunni og Sýn.

Episod

  • Elín Hall - Manneskjan hefur meiri seiglu en við höldum 23.06.2026 52min
    Björn Skúlason sest niður með Elínu Hall í þessum sjöunda þætti. Elín talar á einlægan hátt um leiklistina, tónlistina og lífið í heild sinni. Hún ræðir meðal annars um erfitt tímabil sem spannaði marga mánuði þar sem þar sem taugakerfið festist í spennu í kjölfar þess að hún lék gríðarlega þungt hlutverk í kvikmyndinni Ljósbrot. Hún talar sömuleiðis um lífið með ADHD, hvernig það breyttist algjörlega við þá greiningu, ábyrgðina sem fylgdi því að leika unga Vigdísi Finnbogadóttur í samnefndum þáttum og stressið sem hún upplifði þegar þættirnir voru að koma út.
  • Jón Jónsson - Hamingjan og gleðin er ákvörðun - og svo þarf að sinna því. 11.06.2026 1j 2min
    Björn Skúlason og Jón Jónsson taka spjallið þar sem gleðin er allsráðandi. Jón segir frá því hvernig lífið hefur tilhneigingu til að fara vel og hvernig hann nálgast tilveruna með jákvæðni að vopni. Hann talar um stóra og smáa drauma, um fótboltann, ferilinn, fjölskylduna og hvernig hann velur að nýta sér platformið sem hann hefur til að vera jákvæð fyrirmynd.
  • Emilíana Torrini - Ber virðingu fyrir fóli sem lifir - þrátt fyrir. 11.06.2026 39min
    Björn Skúlason sest niður með Emiliönu Torrini í þessum fimmta þætti þáttaraðarinnar. Hún ræðir á sinn einlæga hátt m.a. um lífið sem fylgir því að verða landsfræg aðeins 16 ára og hvernig menningarmunurinn birtist henni í uppvextinum verandi hálf ítölsk. Hún ræðir sömuleiðis stöðuna í samfélaginu okkar og furðar sig á hvernig jafn ríkt samfélag og okkar geti brugðist fólkinu sem virkilega þarf á stuðningi að halda.
  • Páll Óskar - Sjúkdómurinn með stóra S-inu. 17.05.2026 1j 3min
    Páll Óskar sest í stólinn hjá Birni Skúlasyni og ræðir við hann um allt milli himins og jarðar. Um gerendur og þolendur, um Dr.Love tímann og hinsegin baráttuna. Hann fer inn á stjórnsemina, höfunina, leitina í hið ljóta og eilífðarverkefnið- jafnvægið.
  • Alaska 1867 - Ef lífið væri alltaf gott væri það leiðinlegt. 01.05.2026 54min
    Tónlistarkonan Kolfreyja Sól Bogadóttir eða Alaska1867, sest í stólinn hjá Birni Skúlasyni og ræðir um uppvöxtinn, erfiðleikana við að tilheyra og þykjustuleikina. Hún ræðir alkóhólismann, bataferlið, eftirsjánna og hvað þarf að gerast svo hún haldi sér á réttri braut.
  • Una Torfa - Skömm, sorg og einmannaleiki 16.04.2026 37min
    Una Torfadóttir tónlistarkona sest í stólinn hjá Birni Skúlasyni. Hún fer yfir víðan völl og ræðir á hispurslausan hátt um þunglyndi, sjálfsmyndina, feimnina, fullkomnunaráráttuna, listina og lífið.„Hugurinn er gjarn á að sannfæra okkur um að við séum alein um að líða einhvern veginn.” www.hugarafl.is
  • Mugison - Taugaveiklun, oföndun og álag 14.04.2026 1j 8min
    Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, segir að hann hafi leitað til sálfræðings um aldamótin eftir að hafa glímt við taugaveiklun og oföndun undir álagi. Hann hafi í fyrstu haldið að hann væri að verða geðveikur. Þetta kemur fram í fyrsta þætti af nýju hlaðvarpi í umsjón Björn Skúlasonar, forsetamaka.

Popular di

Podcast ini turut muncul dalam senarai podcast negara-negara ini.