HLAÐLIST.

HLAÐLIST.

einarhler
Država Islandija
Jezik IS
Epizode 16
Zadnja 14.09.2026

Hlaðvarp um arkitektúr, skipulag og byggingargeirann. Þáttastjórnendur Einar og Óskar ræða við fólk sem hefur ólíka aðkomu að byggingargreinunum, svo sem arkitekta, verkfræðinga, verktaka og stjórnmálamenn. Þeir fjalla einnig um bækur og fræðigreinar tengdar arkitektúr, auk vettvangsferða og heimsókna í áhugaverð fyrirtæki. Einar rekur arkitektastofuna Sei Studio en Óskar er með doktorsgráðu í arkitektasögu frá Columbia-háskóla og starfar hjá skipulagi Reykjavíkurborgar.

Epizode

  • 18. Páll Ársæll og Áróra Árnadóttir, HMS - Lífsferilsgreiningar 14.09.2026 48min
    Í þættinum komu Páll og Áróra til okkar til þess að tala um innleiðingu lífsferilsgreininga og aðra þætti tengda umhverfismálum í byggingariðnaðinum. Páll og Áróra eru hluti af sjálfbærniteymi HMS og höfðu bæði mikla reynslu í þeim geira áður en þau gengu til liðs við HMS.
  • 17. Snædís Traustadóttir - Fornverk 07.09.2026 59min
    Snædís Traustadóttir er lærður smiður með sérþekkingu á fornu handverki. Hún hefur fengist við ýmis verkefni, m.a. endurnýjun á þaki Landakotskirkju en hún kennir einnig námskeið í fornverki um allt land. Snædís er um þessar mundir einnig í meistaranámi í Noregi, hún kom og sagði okkur frá því og fræddi okkur um ýmislegt er varðar gömlu aðferðirnar.
  • 16. Ásta Birna og Stefanía, ARKIBYGG - Frá Seyðisfirði til Bíldudals 31.08.2026 53min
    Ástíður Birna Árnadóttir og Stefanía Helga Pálmarsdóttir reka saman arkitektastofuna ARKIBYGG, sem stofnuð var árið 2020. Stofan hefur unnið til fjölda verðlauna, þrátt fyrir ungan aldur, en þær hafa einnig verið að vinna mikið í verkefnum á Seyðisfirði og Bíldudal og annars staðar á landinu.
  • 15. Páll Hjaltason - Skipulag Reykjavíkur 2040 24.08.2026 52min
    Páll Hjaltason er einn eiganda +Arkitekta og hefur komið víða við á löngum ferli. Árið 2010 var hann í 7. sæti á lista Besta flokksins og varð í kjölfarið borgarfulltrúi og formaður Skipulagsráð.Páll segir okkur frá tímanum í Reykjavík og m.a. frá gerð aðalskipulags Reykjavíkur 2040, sem nú er í gildi.
  • 14. Auður Hreiðarsdóttir, ESJA - Hófleg þétting og ferðamannastaðir 08.06.2026 49min
    Auður Hreiðarsdóttir rekur arkitektastofuna ESJA. Stofan er tiltölulega ný og var stofnuð í Danmörku í byrjun áratugarins. ESJA hefur fengist við rannsóknarverkefni, haft sigur í samkeppnum og fengist við ferðamannaverkefni. Við töluðum um allt þetta og margt fleirra með Auði.
  • 13. Anna María Bogadóttir - Niðurrif 01.06.2026 1h 4min
    Anna María Bogadóttir er prófessor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Hún rekur einnig stofuna Úrbanistan og hefur komið að útgáfu margra bóka um arkitektúr á íslensku. Við töluðum við Önnu Maríu um niðurrif bygginga og tengist það helst bók hennar, Jarðsetning, sem kom einnig út sem kvikmynd árið 2021.
  • 12. Hildigunnur Sverrisdóttir - Samfella og rákun 25.05.2026 1h 6min
    Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt og fyrrum deildarforseti arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, hefur sinnt kennslu, rannsóknum og ráðgjöf í tengslum við félagspólitískt samhengi manngerðs umhverfis, m.a. sem gestaprófessor við Yale. Í þættinum notar Hildigunnur hugmyndir Deleuze og Guattari sem linsu á íslenskt landslag, borgarskipulag og samspil markaðs- og lýðræðis. Einnig ræðir hún kennslu, rannsóknaverkefnið Turfiction og fleiri atriði.
  • 11. Þorsteinn Gunnarsson - Kirkjur Íslands 18.05.2026 1h 2min
    Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, hefur um áratuga skeið verið í fararbroddi í rannsóknum og varðveislu íslenskra menningarminja. Hann var fyrstur Íslendinga til að sérhæfa sig í endurgerð eldri bygginga og hefur m.a. komið að endurreisn Viðeyjarstofu, Nesstofu, Bessastaðastofu, Alþingishússins og Hóladómkirkju. Þorsteinn hefur verið ritstjóri ritraðarinnar Kirkjur Íslands frá upphafi, en um er að ræða 31 bindi um friðaðar kirkjur landsins. Í þættinum fer Þorsteinn yfir íslenska kirkjubyggingarsögu, allt frá torf- og timburkirkjum til steinhlaðinna og steinsteyptra kirkna.
  • 10. Lilja Pálmadóttir - Andinn og efnið 14.05.2026 39min
    Lilja Pálmadóttir er athafnakona og hrossabóndi á Hofi. Sem myndlistakona hefur hún einnig næmt auga fyrir byggingarlist og hefur átt frumkvæðið af því að láta reisa eða gera upp margar ólíkar byggingar, allar í hæsta gæðaflokki. Hún kom og sagði okkur frá þessum byggingum, samstarfi sínu við arkitekta ásamt mörgu fleirru.
  • 9. Gylfi Ólafsson - Ísafjörður og Vestfirðir 09.05.2026 48min
    Gylfi Ólafsson var áður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og er nú varaþingmaður Viðreisnar og oddviti Í-listans á Ísafirði, en listinn hefur verið í meirihluta þar síðan 2022. Gylfi fræðir okkur um ástandið á innviðum í sveitarfélaginu og þróun síðustu ára, ásamt því að fara yfir sögu nokkurra af helstu byggingum bæjarins.Nokkrir tenglar á umfjöllun um Ísafjarðarkirkju:https://timarit.is/page/7360713#page/n5/mode/2uphttps://timarit.is/page/6548129#page/n17/mode/2uphttps://timarit.is/page/7346132
  • 8. Vigfús Þór Hróbjartsson - Selfoss og skipulag 06.05.2026 46min
    Vigfús Þór er skipulagsfulltrúi Árborgar, en hefur einnig sinnt starfi skipulagsfulltrúa á mörgum öðrum stöðum á Suðurlandi. Við förum í hlutverk skipulagsfulltrúa, miðbæ Selfossar og fleirri atriði í þættinum.
  • 7. Magnús Skúlason - Þétting byggðar og fagurfræðin 10.04.2026 50min
    Magnús Skúlason, arkitekt, á að baki langan og glæstan feril, bæði í einkageiranum og á opinbera sviðinu. Hann hefur starfað sem formaður byggingarnefndar Reykjavíkur, en er einnig einn af leiðtogunum í verndun eldri byggðar. Hann er vinsæll hjá fjölmiðlum þegar talað er um fréttir er tengjast byggingarmálum og Magnús fór yfir víðan völl í þættinum með okkur Óskari og Einari.
  • 6. Ríkharður Kristjánsson - Verkfræði og bygginarrannsóknir 26.03.2026 1h 12min
    Ríkharður Kristjánsson, oft kallaður verkfræðingur Íslands, kom til okkar og fór yfir þætti úr sínum goðsagnakennda starfsferil. Við ræðum hlutverk verkfræðinga, ráðhúsið og Hörpu, selinn og sauðkindina.
  • 5. Andri Snær Magnason - Jötunsteinn og ljótleiki 18.03.2026 1h
    Andri Snær er þjóðþekktur rithöfundur sem gaf út bókina Jötunsteinn fyrir síðustu jól. Andri kom í spjall til okkar Óskars og sagði okkur frá þátttöku sinni í arkitektúr í gegnum tíðina, við ræddum bókina hans og aðra hluti sem tengjast kannski helst ljótleika í arkitektúr.
  • 4. Hlökk Theodórsdóttir - Um Græna Gímaldið 24.02.2026 58min
    Í þættinum segir Hlökk okkur frá grein sinni "„Græna gímaldið“ við Álfabakka– hvað segir það okkur um stjórnsýslu skipulagsmála á Íslandi?", sem birtist í tímaritinu Stjórnmál og Stjórnsýsla undir lok árs 2025. Hlökk er meðal fremstu skipulagsfræðinga landsins og fer með okkur yfir sögu þessarar alræmdu byggingar ásamt öðrum málum.Hlekkur á greinina.
  • 3. Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson, S. AP - Framtíð í arkitektúr 13.02.2026 58min
    Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson eru uppistaðan í stofunni s. ap arkitektar. Þau hafa verið áberandi á sviði arkitektúrs síðustu ár, m.a. með verkefnið Lavaforming, sem var valið sem fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2025. Einnig segja s.ap okkur frá tveimur verkefnum sem eru bæði við það að klárast, en í þeim verkefnum, Háteigsvegi 59 og Frakkastíg 1, hafa s.ap verið að ryðja brautina í því að lækka kolefnislosun bygginga.
  • 2. Hjörleifur Stefánsson - Frá hvílíku torfi til tómrar steypu 05.02.2026 1h 3min
    Hjörleifur Stefánsson, arkitekt, hefur mikla reynslu af rannsóknum og skrifum um sögu bygginarlistar á Íslandi og hefur m.a. gefið út bækurnar Af jörðu og Hvílíkt torf - tóm steypa. Í þættinum leiðir Hjörleifur okkur frá landnámi til nútímans og fer yfir öll tímabil byggingarlistarsögunnar, þ.m.t. timburhúsatímabilið.
  • 1. Pétur Ármannsson - Gunnar Hansson og skipulag Reykjavíkur 05.02.2026 1h 11min
    Fyrsti þátturinn af hlaðvarpinu Hlaðlist. Óskar Örn og Einar Hlér byrja á að ræða við Pétur Ármannsson um ný útkomna bók um arkitektinn Gunnar Hansson. Einnig er talað um "skipulagsslys" í Reykjavík, ástandið á bygginarmarkaði og margt fleirra.

Priljubljen v

Ta podkast je tudi v lestvicah podkastov teh držav.