Spursmál
Ritstjórn Morgunblaðsins
0
Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is. Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.
ตอน
-
#143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í 11.09.2026 1ชม. 26นาทีFjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 gerir ráð fyrir tæplega 1.700 milljarða útgjöldum ríkissjóðs á komandi ári. Allt stefnir í hörð átök í þinginu um þessi viðamiklu og stefnumarkandi lög.Af því tilefni mæta þeir í Spursmál þingmennirnir Grímur Grímsson frá Viðreisn og Stefán Vagn Stefánsson frá Framsóknarflokki. Þeir líta þessi mál gjörólíkum augum og munu meðal annars takast á um skattahækkanir sem stefnir í á banka, ferðaþjónustu og ökumenn.Í þáttinn mætir líka sveitarstjórnarfólk af Suðurnesjum. Þar eru á ferðinni Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri í Suðurnesjabæ og Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Þau munu ræða fréttir vikunnar, niðurstöður Pisa-könnunar og margt fleira. -
#142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu 04.09.2026 1ชม. 42นาทีGrípa þarf til enn frekari aðhaldsaðgerða hjá Reykjavíkurborg að sögn Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem er gestur Spursmála að þessu sinni. Hallareksturinn nam 4,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi.Í liðinni viku var greint frá umtalsverðum skipulagsbreytingum hjá borginni sem spara eiga um 900 milljónir króna á ársgrundvelli. Fer Hildur yfir þessar aðgerðir í þættinum og hvernig hún hyggist á sama tíma standa vörð um grunnrekstur borgarinnar.Í fréttum vikunnar er rætt við þá Magnús Jóhann Ragnarsson píanóleikara og Örn Arnarson, fjölmiðlarýni og hagfræðing sem starfar á Viðskiptablaðinu. Þeir ræða meðal annars miklar væringar á fjölmiðlamarkaði sem birtast í því að kvöldfréttir Sýnar heyra nú sögunni til.Í síðasta hluta þáttarins er rætt við dr. Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Hann rýnir í niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um liðna helgi og hvað úrslitin þýða fyrir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. -
#141. - Uppgjörið 01.09.2026 1ชม. 1นาทีMeirihluti kjósenda hafnaði því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Að baki er löng og ströng barátta þar sem andstæðar fylkingar bárust á banaspjótum. En hver er staðan að átökum loknum?Þessu hyggjast blaðamennirnir Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon svara í aukaþætti Spursmála sem fer í loftið klukkan 14:00. Þau hafa leitt fréttaumfjöllun Morgunblaðsins og mbl.is síðustu mánuði þar sem ljósi hefur verið varpað á kosti og galla mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu.Í síðari hluta þáttarins mætir Óli Björn Kárason fyrrverandi ritstjóri og alþingismaður í þáttinn og ræðir nýjustu tíðindi af fjölmiðlamarkaði en í gær var tilkynnt um það að kvöldfréttatími Stöðvar 2 og síðast Sýnar hefði lagt upp laupana eftir 40 ára úthald.Hvað þýðir þetta fyrir frjálsa fjölmiðlun í landinu og af hverju eiga fjölmiðlar jafn erfitt uppdráttar og raun ber vitni? -
#140. - Titringur á lokametrum baráttunnar 28.08.2026 1ชม. 42นาทีNú er innan við sólarhringur í að kjörstaðir opni um allt land og það styttist óðum í að úrslit fáist í einu stærsta pólitíska þrætumáli síðari ára á Íslandi. En hver verður niðurstaðan?Þeirri spurningu munu þau Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar reyna að svara í Spursmálum dagsins.Í fréttum vikunnar verður rætt við þá Loga Bergmann Eiðsson og Jón Júlíus Karlsson en þeir halda úti hinu geysivinsæla hlaðvarpi Seinni níu. Þar verður óhjákvæmilega rætt um fráfall Haraldar Noregskonungs en einnig önnur tíðindi af innlendum og erlendum vettvangi.Áður en rætt verður við þessi tvö tvíeyki mun Ingibjörg Davíðsdóttir, fyrrverandi sendiherra Íslands í Noregi mæta í Spursmál og ræða fráfall konungs og ríkisarfann sem nú hefur sest í hásætið í Ósló, Hákon VIII.Í lok þáttar verður rætt við Sigríði Maríu Egilsdóttur, lögmann í New York og fyrrverandi varaþingmann Viðreisnar. Hún hefur skipt um skoðun í Evrópusambandsmálum. Hún hyggst segja nei á morgun og fyrir því eru mjög forvitnilegar ástæður sem hún verður spurð út í. -
#139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið 24.08.2026 1ชม. 2นาทีHilmar Veigar Pétursson stýrir Fenris Creations, áður CCP. Hann var sannfærður um að Ísland ætti að ganga í ESB. Nú hefur hann skipt um skoðun. Hann lýsir ástæðum þess í aukaþætti af Spursmálum. Hann flutti ræðu í liðinni viku á vettvangi samtakanna Áfram Ísland þar sem sjónum var beint að nýsköpunarfyrirtækjum á Íslandi og möguleikum slíkra fyrirtækja innan eða utan ESB.Ræðan hlaut mikla athygli enda hafði Hilmar Veigar talað skarpt fyrir því á árinu 2014 að halda ætti áfram aðildarviðræðum við ESB og taka upp evru í stað krónunnar.Um svipað leyti flutti Hilmar Veigar til Bretlands þar sem hið svokallaða BREXIT var nýlega um garð gengið. Hann segir að reynslan þaðan kenni að ef Ísland gangi einu sinni til liðs við ESB verði aldrei þaðan snúið að nýju.Hann mun einnig fara yfir það í viðtalinu hvernig hann telji að það að „kíkja í pakkann“ muni taka athygli frá brýnum úrlausnarefnum í íslensku samfélagi og koma í veg fyrir að þjóðin grípi ótrúleg tækifæri, ekki síst á sviði hugverkaiðnaðarins. -
#137. - Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi 14.08.2026 1ชม. 51นาทีÁ sama tíma og þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB stendur fyrir dyrum styttist í að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði verði endurskoðaðir. Hvað ætlar verkalýðshreyfingin að gera? En atvinnurekendur?Þeim spurningum verður reynt eftir fremsta megni að svara í Spursmálum dagsins þar sem Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins mætast og fara yfir stöðuna. Ljóst er að verðbólgan mælist langt yfir því marki sem samið var um árið 2024.Í þættinum verður einnig rætt við Óskar Magnússon, lögmann, rithöfund og bónda á Sámstaðabakka í Fljótshlíð og Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra.Þau verða meðal annars spurð út í nýjustu vendingar í máli áhafnarinnar á Bandero sem gerði óskunda inni í íslenskri lögsögu fyrir skemmstu og einnig verður vöngum velt yfir því hvernig það gat komið til að böðullinn Angjelin Sterkaj sem varð manni að bana með hrottafengnum hætti í Rauðagerði árið 2021 er laus úr íslensku fangelsi og farinn til heimalands síns, Albaníu. -
#136. - Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? 07.08.2026 1ชม. 11นาทีEngin þjóð hefur stofnað til umsóknar að Evrópusambandinu með þeim hætti sem íslensk stjórnvöld vilja gera nú. Hvað ætlast forystumenn ríkisstjórnarinnar fyrir í málinu?Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður hefur fjallað ítarlega um yfirvofandi umsóknarferli Íslands og ræðir það í Spursmálum dagsins. Hann var meðal annars formaður utanríkismálanefndar Alþingis þegar Íslendingar samþykktu EES-samninginn fyrir sína parta.Auk Björns mæta stjórnendur hlaðvarpsins, Komið gott, á vettvang og ræða fréttir vikunnar. Það eru þær Kristín Gunnarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir. Þar verður Evrópuumræðan sannarlega fyrirferðarmikil en sennilega munu hvalveiðar og átök við Íslandsstrendur einnig bera á góma. -
#135. - Hverju búast menn við í aðildarsamningi? 31.07.2026 1ชม. 34นาทีHvers væntir Já til að sjá-hreyfingin í aðildarsamningi við Evrópusambandið þegar hann liggur fyrir? Þeirri spurningu verður beint að Jónasi Hagan, fjárfesti og einum stofnenda hreyfingarinnar í Spursmálum dagsins.Þar mætir hann Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi en hún hefur ákveðnar hugmyndir um það hvað Evrópusambandið muni leggja upp með þegar kemur að stærstu auðlind þjóðarinnar í kringum landið.Þá mun Andrés Magnússon, blaðamaður og fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu mæta til leiks og ræða fréttir vikunnar. Þar verður sjónum meðal annars beint að hlutverki fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu sem þeirrar sem fram fer þann 29. ágúst. Eiga fjölmiðlar að vera hlutlausir í umfjöllun sinni? -
#134. - Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi 29.07.2026 1ชม. 25นาทีDagur B. Eggertsson, alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri segir gríðarlegan velferðarábata felast í því að taka upp evru á Íslandi. Vitnar hann meðal annars til 12 ára gamallar skýrslu í því efni. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og hagfræðingur segir skýrsluna úrelta.Þau takast á um efnið og hvaða tækifæri felist mögulega í því að Ísland gangi í Evrópusambandið í aukaþætti Spursmála sem sendur er út á mbl.is klukkan 10:00 í dag. Unnin að beiðni ASÍ og fleiri 2014.Skýrslan sem um ræðir og varð umtalsefni eftir að Dagur birti grein á visir.is þar sem hann vitnaði til hluta niðurstaðna hennar, var unnin af Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands árið 2014 að beiðni Alþýðusambands Íslands og nokkurra atvinnurekendasamtaka.Þar eru kostir upptöku evru tíundaðir, meðal annars í ljósi þess gríðarlega verkefnis sem stóð fyrir dyrum um að koma Íslandi út úr fjármagnshöftum. Stjórnvöld Íslands á árunum 2009-2013 höfðu heykst á því verkefni og það var ekki fyrr en með ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem lausn fékk á þeim málum með tröllauknum samningum við kröfuhafa föllnu bankanna.Ásdís Kristjánsdóttir brást við skrifum Dags og sagði stöðu efnahags- og peningamála allt aðra á Íslandi í dag en árið 2014. Grundvallarbreytingar hefðu verið gerðar á kerfinu sem hafi komið Íslandi á beinu brautina. Hún varar við inngöngu í ESB og upptöku evru og segir að með því missi Ísland mikilvægt hagstjórnartæki úr höndum. -
#133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins? 24.07.2026 1ชม. 34นาทีGuðmundur Fertram Sigurjónsson er meðal gesta Spursmála þennan föstudaginn og ræðir þar af hverju hann leggst gegn aðildarviðræðum við ESB en hann flutti ræðu á fundi samtakanna Áfram Ísland sem haldinn var á Selfossi á miðvikudaginn síðastliðinn.Hann býr yfir alþjóðlegri reynslu og hefur starfað við uppbyggingu fyrirtækja í Bandaríkjunum, ýmsum ríkjum Evrópu og á Nýja-Sjálandi.Hver staðan á Kerecis?Í þættinum verður hann einnig spurður út í stöðuna á Kerecis sem rekur framleiðslustarfsemi sína á Ísafirði en fyrirtækið var selt til danska lækningavöruframleiðandans Coloplast fyrir þremur árum á nærri 180 milljarða króna.Íslenskt atvinnulíf, sjávarútvegur og ESBÍ þættinum verður einnig rætt við þá Hjálmar Vilhjálmsson sem situr í stjórn Já til að sjá og Hermann Guðmundsson sem er meðal stofnfélaga Áfram Ísland. Hjálmar er framkvæmdastjóri hjá útgerðarfélaginu Brimi og verður hann meðal annars spurður út í álitamál tengd íslenskum sjávarútvegi ef Ísland gengur í ESB. Hermann er forstjóri Kemi. Hvorugur þeirra kemur þó til samtals um þessi mál sem fulltrúi fyrirtækisins sem þeir starfa hjá heldur sem einstaklingar sem vilja beita sér fyrir málefnalegri umræðu um mögulega aðild Íslands að ESB. -
#132. - Á ríkið eitt að selja fólki áfengi 21.07.2026 56นาทีEr ríkisvaldið eini aðilinn sem getur með viðunandi staðið að áfengissölu hér á landi? Er það ógn við lýðheilsu og heilbrigðiskerfið ef einkaaðilum er falið það verk? Hér mætast þeir Kári Stefánsson, læknir og stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar og Arnar Sigurðsson stofnandi og eigandi áfengisverslunarinnar Santé. -
#131. - Kjaftæði um matvæla- og húsnæðisverð 17.07.2026 1ชม. 31นาทีEr dýrt að kaupa í matinn á Íslandi og er húsnæðismarkaðurinn ókleifari múr fyrir ungt fólk hér á landi en annars staðar. Hagfræðingurinn Konráð S. Guðjónsson verður knúinn svara um það í Spursmálum.Hann hefur að undanförnu fjallað mikið um matvælaverð á Íslandi og hvernig markaðurinn hér á landi er í samanburði við nágrannaríkin. Í Spursmálum í dag hyggst hann einnig birta áhugaverðan samanburð á fasteignamarkaðnum á Íslandi og í Danmörku.Í fréttum vikunnar er rætt við íþróttafréttamanninn Eddu Sif Pálsdóttur sem staðið hefur í ströngu meðan á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu hefur staðið og Jón Kristin Einarsson sagnfræðing sem þessa dagana fræðir íslensku þjóðina um sögu lands og þjóðar. Það gerir hann á nýstárlegan hátt í samtölum við helstu fræðimenn landsins á þessu sviði.Þau munu þó ekki aðeins ræða HM og sagnfræði heldur einnig rýna í aðrar stórar fréttir vikunnar. -
#130. - Innflutningur á glæpaklíkum og spurningin um ESB 10.07.2026 1ชม. 21นาทีMargt hefur dregið til tíðinda í íslensku samfélagi í vikunni sem nú er að líða. Á vettvangi Spursmála verður drepið niður í umræðu um nokkur helstu málin, meðal annars stórt fíkniefnasmygl sem nú tengist beint veitingu ríkisborgararétts til albansks manns árið 2015. Hann er nú Íslendingur en fyrrgreint ár fóru ákveðnir fjölmiðlar og alþingismenn hamförum vegna ákvörðunar útlendingastofnunar um að vísa albanskri fjölskyldu úr landi.Þingið kiknaði í hnjánum og gestrisni þess hefur nú verið endurgoldin með fyrrnefndum hætti þar sem hópur glæpamanna vinnur að því hörðum höndum að dæla ólöglegum fíkniefnum inn í landið.Fréttir vikunnar og ESB-málin í forgrunniÞetta mál og fleiri ræða þeir Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs Fjarðarbyggðar og Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður og bæjarstjóri og rithöfundur með meiru þar sem farið er yfir fréttir vikunnar.Ásmundur sat á Alþingi þegar fyrrnefnd ákvörðun var tekin.Í síðari hluta þáttarins er rætt við dr. Björn Zoëga, forstjóra King Faisal sjúkrahússins í Sádi-Arabíu en hann kom fram á upphafsfundi Áfram Ísland á mánudaginn þar sem hann færði rök fyrir því af hverju Íslendingar eigi að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst næstkomandi. -
#129. - Ungt fólk, stórar spurningar og harðnandi barátta 03.07.2026 1ชม. 23นาทีBaráttan um framtíð Íslands gagnvart Evrópusambandinu færist nú á nýtt stig og í Spursmálum vikunnar er tekist á við stóru spurningarnar sem blasa við þjóðinni fyrir atkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Í þættinum er rætt um upplýsingagjöf stjórnvalda, stöðu krónunnar, áhrif mögulegrar aðildar á atvinnulíf og heimili landsmanna og ekki síst það hvernig ungt fólk hyggst láta til sín taka í einni stærstu pólitísku umræðu síðari ára.Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal hvalveiðar, stöðu Landhelgisgæslunnar, menntamál og þá umræðu sem nú stendur um einkunnagjöf og samræmt mat í skólakerfinu. Gestir þáttarins koma úr ólíkum áttum og draga fram mismunandi sjónarmið, en sameiginlegt er að umræðan er beinskeytt, lifandi og á köflum snörp. Í seinni hluta þáttarins mætast fulltrúar ungs fólks sitthvoru megin í ESB-deilunni og ræða hvað raunverulega er undir þegar þjóðin gengur að kjörborðinu.Gestir þáttarins eru Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akranesi, og Einar Jóhannes Guðnason, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Kópavogi, sem fara yfir fréttir vikunnar með Stefáni Einari Stefánssyni. Í síðari hluta þáttarins mæta Júlíus Viggó Ólafsson, formaður Ung gegn ESB-aðild, og Óðinn Freyr Baldursson, formaður Ungra Evrópusinna. -
#128. - Þjóðaratkvæði, þjóðargrafreitur og milljarðarnir í boltanum 26.06.2026 1ชม. 35นาทีÍ Spursmálum vikunnar fara þingmennirnir Jón Gnarr og Snorri Másson yfir lok þingvetrarins og takast á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar greinir þá á um hvort verið sé að „kíkja í pakkann“ eða veita stjórnvöldum opið umboð til að sækja um aðild.Þá er rætt um Þingvelli, vel heppnaða tónleika Kaleo og þjóðargrafreitinn þar sem hugsanleg rannsókn á beinum Jónasar Hallgrímssonar vekur spurningar um sögu, virðingu og helgi.Í lok þáttarins ræðir Sævar Þór Sveinsson, sérfræðingur í fjármálum íþrótta og maðurinn á bak við Utanvallar.is, um gríðarlegt umfang heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, tekjur FIFA, hækkandi miðaverð og hvað HM-sæti hefði þýtt fjárhagslega fyrir íslenska knattspyrnu. -
#127. - Myndi matvælaverð lækka eða hækka við ESB-aðild? 19.06.2026 1ชม. 21นาทีÝmsum fullyrðingum hefur verið haldið á lofti um að matvælaverð muni lækka ef Ísland gengur í Evrópusambandið. Því hefur jafnvel verið haldið fram að það muni lækka um allt að fjórðung.Hvað er satt og logið í því? Þeirri spurningu munu þær Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og stjórnarmaður í Heimssýn og Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og stjórnarmaður í Evrópuhreyfingunni reyna að svara á vettvangi Spursmála í dag.Þá munu hagfræðingarnir Birta Karen Tryggvadóttir og Þórður Gunnarsson rýna í nýja fjármálaáætlun ríkisins. Birta Karen birti fyrr í vikunni grein þar sem hún gagnrýnir vinnubrögð fjármálaráðherra og Alþingis þar sem fjármálaáætlun til ársins 2031 var samþykkt án þess að tillit væri tekið til nýrrar hagspár Seðlabanka Íslands sem gerir ráð fyrir talsvert verri horfum á komandi árum og misserum en áður var gert. -
#126. - Er upptaka evru ógn við efnahag Íslands? 12.06.2026 1ชม. 47นาทีJón Helgi Egilsson er doktor í peningamálahagfræði. Hann segir að upptaka evru gæti leitt hundruða milljarða króna tjón yfir íslenskt efnahagslíf ef atvinnuleysi myndi aukast vegna gjaldmiðilsins.Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítarlegu viðtali við Jón Helga í Spursmálum þennan föstudaginn. Bendir hann á að sú fastgengisstefna sem óhjákvæmilega myndi fylgja upptöku evru gæti leitt til aukins atvinnuleysis í kjölfar efnahagsáfalla.Jón Helgi hefur ritað tvær greinar í Morgunblaðið að undanförnu þar sem hann ræðir gjaldmiðlamál. Þar hefur hann meðal annars gagnrýnt stjórnvöld fyrir að rangtúlka niðurstöður skýrslu sem fjármála- og efnahagsráðherra lét gera á kostum þess að taka upp evru. Bendir hann á að í skýrslunni hafi auk þess ekkert mat verið lagt á það hvaða áhrif upptöku gætu haft á atvinnustig í landinu.Þá mætir einnig í Spursmál Jón Bjarnason sem var ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála á árunum 2009-2011 meðan Ísland stóð í aðlögunarviðræðum við Evrópusambandið. Hann segir að Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel og þáverandi aðalsamningamaður Íslands í umsóknarferlinu við ESB á sínum tíma fari með rangt mál þegar hann lýsi ferlinu. Vissulega hafi verið hafin aðlögun að reglum ESB í ferlinu.Skyggnst er að tjaldabaki í samtalinu við Jón og lýsir hann meðal annars ótrúlegum samskiptum sínum við Steingrím J. Sigfússon, þáverandi formann Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Jóhönnu Sigurðardóttur, formann Samfylkingarinnar.Í þættinum er einnig rætt við þá Birgi Olgeirsson, fréttamann á Sýn og Bjarna Helgason, fréttastjóra íþrótta á Morgunblaðinu og mbl.is. Þeir fara yfir Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem hófst með látum í gærkvöldi, afrekið sem Gunnlaugur Árni Sveinsson vann þegar hann vann sér inn þátttökurétt á US Open í golfi. En þeir láta ekki þar við sitja. Þeir munu skyggnast yfir fleiri fréttir sem hátt bar í vikunni sem leið. -
#125. - Áslaug kveður, ESB-sumarið hefst 05.06.2026 1ชม. 58นาทีÍ Spursmálum vikunnar er farið yfir pólitíska jarðskjálfta síðustu daga, brotthvarf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur úr stjórnmálum og það sem kann að bíða hennar handan þingsalarins. Þá hefst heit umræða um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, enda virðist íslenska sumarið ekki eiga að fara í sól, sund og pylsur heldur gjaldmiðlamál, fullveldi og skýrslur.Hermann Nökkvi Gunnarsson og Hlédís Maren Guðmundsdóttir fara yfir fréttir vikunnar, þar á meðal stöðu Miðflokksins eftir kosningar, fánamál í Reykjavík, útlendingamál í Reykjanesbæ, Icelandair, Oculis og umræðuna um íslenska fánann. Þá ræðir Áslaug Arna ákvörðun sína og framtíðina, áður en Lilja Alfreðsdóttir og Dagbjört Hákonardóttir takast hressilega á um ESB, krónuna, EES-samninginn og stöðu Íslands í breyttum heimi. -
Bókaspjall: Þorskastríðin með Guðna Th. Jóhannessyni 04.06.2026 1ชม. 24นาทีÍ þættinum ræðir Stefán Einar Stefánsson við Guðna Th. Jóhannesson, sagnfræðiprófessor og fyrrverandi forseta Íslands, um bók hans Stund milli stríða: Saga landhelgismálsins 1961 til 1971. Rætt er um Þorskastríðin, átökin við Breta, togvíraklippur, NATO-vopnið, hleranir, alþjóðalög og þá flóknu sögu sem mótaði sjálfsmynd Íslendinga sem strandþjóðar. Guðni segir frá lykilatvikum, persónum og pólitískum átökum tímabilsins og veltir fyrir sér hvernig sagan lifir áfram í samtímanum, meðal annars í umræðu um fullveldi, auðlindir og samband Íslands við Evrópu. -
#124. - Guðrún vs. Sigmundur og blikur á lofti 29.05.2026 1ชม. 48นาทีSjálfstæðisflokkur og Miðflokkur náðu ekki saman um meirihluta í höfuðborginni, þrátt fyrir vonir margra þar um. Formenn flokkanna, þau Guðrún Hafsteinsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gera upp sveitarstjórnarkosningarnar og fara yfir yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst.Þá mætir til leiks Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka en hann ritaði grein í Morgunblaðið í morgun sem nefnist Maður mjólkar ekki dauða kú. Hann hefur verulegar áhyggjur af stöðu Icelandair sem hann segir mikilvægasta fyrirtæki landsins. Hann kom að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í Covid-faraldrinum og þekkir því vel til á vettvangi. Hvað er til ráða? Er hætt við því að Íslendingar missi úr höndunum þessa lífæð milli landsins og meginlandanna í austri og vestri?Í lok þáttarins ræðir Stefán Einar við þau Önnu Laufeyju Stefánsdóttur hjá Stafrænni velferð og Svein Tryggvason, framkvæmdastjóra Tæknivara. Þau hafa áhyggjur af stöðu samfélagsmiðla og hvernig þeir virka á unga fólkið í landinu. Hvar liggur vandinn? Eru þessir sömu miðlar nú þegar búnir að gleypa foreldra barnanna?
ยอดนิยมใน
พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย