Spegillinn
RÚV
0
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
ตอน
-
Breytt meðferð við brjóstakrabbameini, geðheilsu hrakar og bresk pólitík 01.06.2026 20นาทีBrjóstakrabbamein er algengasta tegund krabbameins hjá íslenskum konum og er nærri þriðjungur af öllum meinum sem greinast. Niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar gefa til kynna að með erfðaprófum sé hægt að meta líkurnar á gagnsemi lyfjameðferðar. Slík erfðapóf eru notuð hér og Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins segir að íslenskir sjúklingar njóti góðs af. Um 1.2 milljarðar Jarðarbúa, 1.200 milljónir karla, kvenna og barna, eru með geðsjúkdóma eða geðraskanir af einhverju tagi. Það eru nær tvöfalt fleiri en 1990. Það þýðir að geðraskanir eru algengasta heilbrigðisvandamál samtímans. Þetta er meginniðurstaða viðamikillar rannsóknar sem birt var í læknatímaritinu Lancet á dögunum. Bresk stjórnvöld birtu í dag skjöl í þremur bindum upp á um fimmtán hundruð síður með samskiptum sem tengjast sendiherratíð Peters Mandelsonsa í Bandaríkjunum. Ýmislegt í skjölunum er talið koma illa við Keir Starmer sem þegar sætir mikilli gagnrýni vegna skipunar Mandelsons.
-
Þjóðaratkvæðagreiðsla samþykkt - hvað nú? Og Ebóla virðir engin landamæri 28.05.2026 20นาทีÞingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný var samþykkt a Alþingi í dag. Það er því ljóst að atkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst. Þangað til eru þrír mánuðir - við hverju getum við búist á þeim tíma? Yfirveguðum umræðum um það sem greiða á atkvæði um eða áframhaldandi skotgrafahernaður um kosti og galla ESB og aðildar að því? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing og sérfræðing í málefnum Evrópu og Evrópusambandsins. Í Ituri-héraði í norðausturhluta lýðstjórnarlýðveldisins Kongó mætast sjúkdómar og átök með hörmulegum afleiðingum, sagði Tedros Ghebreyesus forstöðumaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í yfirlýsingu á X í gær. Engin lyf bíta á það afbrigði ebóluveirunnar sem nú geisar í nokkrum löndum Afríku, einkum Kongó. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um þetta og ræðir við Þórhildi Ólafsdóttur, sem býr með fjölskyldu sinni í Úganda. Umsjón: Ævar Örn Jósespsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason
-
Ný borgarstjórn í Reykjavík og sjálfbærniverkefni á Austurlandi 27.05.2026 20นาทีOddvitum Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks var tíðrætt um traustið sem ríkir milli þeirra þegar þau kynntu nýjan meirihluta í borgarstjórn í Viðey í morgun. Hildur Björnsdóttir, sem fer fyrir Sjálfstæðismönnum, verður borgarstjóri, Björg Magnúsdóttir Viðreisn verður forseti borgarstjórnar fyrsta árið og Einar Þorsteinsson Framsóknarflokki formaður borgarráðs. Þau skipta svo um hlutverk eftir árið. Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði segir sögulegt að sjálfstæðismenn leiði nýjan meirihluta í borginni. Sjálfbærniverkefni, sem hófst við gerð Kárahnjúkavirkjunar og byggingu álvers Alcoa í Reyðarfirði er lokið, eftir tæplega 20 ára vöktun á áhrifum þessara framkvæmda á samfélag, atvinnulíf og umhverfi á Austurlandi. Austurbrú, sem fer með sameiginleg málefni sveitarfélaga á Austurlandi, hefur haft umsjón með verkefninu frá 2013 og hefur nú gefið út lokaskýrslu þar sem helstu niðurstöður þessarar vöktunar eru teknar saman.
-
Viðkvæmar upplýsingar í rangar hendur, sveitastjórnarkosningar og fækkun barna í Kína 26.05.2026 20นาทีEmbætti landlæknis afhenti karlmanni viðkvæmar upplýsingar um fjóra aðra þegar hann óskaði eftir afriti af eigin sjúkraskrá. Upplýsingarnar höfðu verið svertar en reyndust samt auðlesanlegar. Sveitarstjórnarkosningar snúast um nærsamfélagið og hefðbundin flokkapólitík stýrir ekki öllu, engu síður hefur verið talað um hægri bylgju og hana má tengja svipuðum hræringum í öðrum löndum. Kínversk stjórnvöld boða barnvænni borgir og aukinn stuðning við barnafjölskyldur í von um að snúa við lækkandi fæðingartíðni.
-
Eignir útgerðarinnar, hriktir í stoðum NATO og erfið stjórnarmyndun í Danmörku 22.05.2026 20นาทีStærstu útgerðarfyrirtæki landsins hafa safnað stóru eignasafni samkvæmt úttekt Hagfræðistofnunar fyrir Atvinnuvegaráðuneytið. Helgi Seljan skoðar gögnin. Það hriktir í stoðum NATO og þungt var í utanríkisráðherrum bandalagsins á fundi í Svíþjóð í dag, þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, var stödd. Spegillinn ræddi við hana. Stjórnarmyndun í Danaveldi er í hnút. Lars Lökke Rasmussen neitaði síðdegis að styðja hægristjórn Troels Lund Poulsen, formanns venstre. Nú gæti komið að Mette Frederiksen á ný.
-
Farsóttir og viðbrögð, loftslagsmál og staða Pútíns í sínu föðurlandi 21.05.2026 20นาทีSkelfing vegna ebólu hefur gripið um sig í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó þar sem smituðum fjölgar og menn óttast að veiran dreifist hraðar en talið var í fyrstu fyrir tæpum mánuði. Í vor bárust fréttir af hópsýkingu af völdum hantaveiru sem valdið hefur dauðsföllum. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir skilur að eftir covid-faraldurinn vakni meiri áhyggjur hjá fólki hér af farsóttum úti í heimi. Anna Kristín Jónsdóttir talar við hana. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna gerðu í gær ráðgefandi úrskurð Alþjóðadómstólsins í Haag frá því í fyrra að sínum. Þar er kveðið á um skyldu ríkja heims til að verja fólk og umhverfi gegn yfirstandandi loftslagsbreytingum og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hamla gegn þeim. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Vladímír Pútín Rússlandsforseti sneri heim úr Kínaferð í gær og kom þaðan tómhentur, fyrir utan yfirlýsingu um áframhaldandi vináttu og bræðralag þjóðanna tveggja. Og þótt rússneskir fjölmiðlar kenni Kínverjum um árangursleysið ku vera sótt að hart að Pútín á heimavelli. Samkvæmt skýrslu evrópskrar leyniþjónustustofnunar, sem var lekið á ótrúlegan hátt til fjölda fjölmiðla nýlega, óttast forsetinn að verið sé að brugga honum launráð og hefur gripið til harkalegra aðgerða til að komast lífs af. Ingólfur Bjarni Sigfússon tók saman.
-
Stýrivextir og millilandaflug frá Akureyri 20.05.2026 20นาทีSeðlabankinn hækkaði stýrivexti en dugir það vopn í baráttunni þegar lykilástæður eru utan landssteinanna? Rætt við Katrínu Ólafsdóttur, lektor í hagfræði, Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og Höllu Gunnarsdóttur, formann VR. Mælanleg áhrif eru á lífsgæði og atvinnulíf á Norðurlandi eftir að reglubundið flug til útlanda frá Akureyri festi sig í sessi. Rætt við Þórodd Bjarnason, prófessor við Háskóla Íslands.
-
Lækkandi fæðingartíðni og eilítið vaxandi fjölmiðlafrelsi á Íslandi 19.05.2026 20นาทีSamkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar hefur fæðingartíðni aldrei mælst lægri hér á landi. Árið 2025 fæddust að meðaltali 1,56 börn á hverja konu. Fyrir aðeins rúmum áratug hafði sú tala aldrei farið niður fyrir 1,93 börn. Að óbreyttu þýðir þessi fæðingartíðni fólksfækkun. Ingólfur Bjarni Sigfússon fjallar um þetta og talar við Ara Klæng Jónsson ogSigríði Ingibjörgu Ingadóttur. Blikur eru á lofti í heimi fjölmiðla og fréttamennsku í henni veröld, þar sem valdhafar, glæpagengi, stórfyrirtæki, dóms- og löggæslustofnanir vinna leynt og ljóst að því að skerða tjáningar- og fjölmiðlafrelsi. Góðu fréttirnar fyrir okkur eru þær að Ísland færist upp um 5 sæti á nýútgefnum lista yfir fjölmiðlafrelsi í ríkjum heims. Það eru góðar fréttir, sem segja þó ekki alla söguna. Ævar Örn Jósepsson talar við Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formann Blaðamannafélags Íslands. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
-
Skautun kjósenda og orðalag spurningar í atkvæðagreiðslu um Evrópusambandsviðræður 18.05.2026 20นาทีSjálfstæðisflokkurinn er ótvíræður sigurvegari sveitarstjórnarkosninganna um helgina og í dag hefur ítrekað verið talað um að Hildur Björnsdóttir, oddiviti í Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sé með öll spil á hendi þar. En aðrir flokkar geta víða vel við unað, meðal annars flokkar sem eru lengra til hægri eða vinstri en verið hefur um langa hríð. Gengi flokka í höfuðborginni virtist skiptast mjög eftir hverfum. Ingólfur Bjarni Sigfússon ræddi við Viktor Orra Valgarðsson, aðjúnkt í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hver er munurinn á því að bera upp spurninguna á að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið eða spyrja á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Meirihluti utanríkismálanefndar vill eftir athugasemdir orða spurninguna þannig að talað sé um að hefja á ný en ekki halda áfram. Rætt við Pawel Bartozek (C) og Sigurð Inga Jóhannsson um orðalag og tímaramma og líka úrslit sveitarstjórnarkosninga.
-
Kosið á morgun og ný könnun á fylgi í Reykjavík 15.05.2026 20นาทีFrambjóðendur hafa flengst um í viðtölum og á fundum undanfarið og sérstaklega hert á allra síðustu daga, legið í símanum og jafnvel bankað upp á hjá fólki til að vinna það á sitt band fyrir kosningarnar á morgun. Hvernig hefur baráttan verið og hvað er líklegt að komi upp úr kössunum í sveitarstjórnarkosningunum á morgun? Ný könnun í Reykjavík sýnir vaxandi gengi Sjálfstæðisflokksins. Rætt við Evu Marín Hlynsdóttur prófessor í stjórnmálafræði og Stíg Helgason sem stýrir kosningaumfjöllun Ríkisútvarpsins.
-
Viðbrögð við hamförum, strandveiðar 13.05.2026 20นาทีSkortur á áhættumati, skriflegu verklagi og skýrum áætlunum þegar almannavarnastigi er lýst yfir er meðal þess sem starfshópur dómsmálaráðherra um viðbrögð vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga setur út á í áliti sínu, sem birt var í morgun. Viðbragðsaðilar eru þó sagðir hafa unnið þrekvirki og tekið fram að það sé þeim að þakka að ekki fór verr. Alma Ómarsdóttir ræðir niðurstöður nefndarinnar og viðbrögð við þeim við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Eigendur 820 báta hafa tryggt sér rétt til strandveiða og 583 bátar eru komnir á sjó. Í reglugerð segir að veiðarnar megi stunda í 12 daga innan hvers mánaðar, 48 daga samtals. Undanfarin sex ár hafa sjómenn hins vegar ekkii getað klárað leyfilegt strandveiðitímabil því tiltækar veiðiheimildir klárast jafnan áður en komið er að lokadegi. Þetta eru sjómenn ósáttir við, eog þeim brá líka í brún þegar úthlutun fyrir þetta sumar var minni en í fyrra. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta, en hann fór á bryggjurölt og hitti sjómenn að máli. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
-
Sveitarstjórnarkosningar og dvínandi fjölmiðlafrelsi 11.05.2026 20นาทีHart er sótt að frelsi og sjálfstæði fjölmiðla í heiminum. Stjórnvöld og stórfyrirtæki, auðkýfingar og einvaldar, glæpagengi og löggæslustofnanir víða um heim taka þátt í þessari aðför og sækist hún giska vel. Þannig reiknast sérfræðingum alþjóðlegu V-Dem - rannsóknastofnunarinnar í lýðræðismálum, sem er með höfuðstöðvar sínar í Gautaborgarháskóla, svo til að fjölmiðlafrelsi hafi minnkað um tíu prósent á síðustu rúmlega tíu árum. Niðurstöður nýjustu rannsóknar alþjóðlegu samtakanna Blaðamenn án landamæra eru á svipuðum nótum. Á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á laugardaginn eru 302.688 manns. Það er kosið í 57 sveitarfélögum, kjörstaðir eru 129 og kjördeildirnar 293. Framkvæmdastjóri landskjörstjórnar skrifaði í grein á Vísi um helgina að ekki væri fjarri lagi að áætla að 1.400 til 1.500 manns yrðu að störfum í kjördeildum á laugardaginn. Og fjöldi þeirra sem komi með einum eða öðrum hætti að undirbúningi og framkvæmd kosninganna hlaupi á þúsundum og handtökin séu nánast óteljandi.
-
Eldri atvinnuleytendur, hanta-veiran og skemmtiferðaskip 07.05.2026 20นาทีEldri atvinnuleytendur telja sig verða fyrir fordómum vegna aldurs en vinnumiðlanir og rannsakendur segjast ekki kannast við aldursfordóma. Atvinnumarkaðurinn sé flókinn og atvinnuleit krefjist vinnu. Hanta-veiran dreifist allt öðru vísi en Covid og inflúensa, og smitast ekki nema við náið samneyti um lengri tíma. Þetta eru skilaboð Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sem vill slá á ótta við heimsfaraldur. Það gengur hægt að ná til baka skemmtiferðaskipum sem strikuðu Ísland út af siglingakortinu í kjölfar innviðaskatts sem lagður var á skipafélögin fyrir tveimur árum. Útlitið er þó skárra eftir að gjaldið var lækkað.
-
Íransstríðið og flugið, lokasprettur kosningabaráttunnar og ný leyniþjónusta Svía 05.05.2026 20นาทีFlugfélög víða um heim eru farin að bregðast við ört hækkandi eldsneytisverði og búa sig undir að það hækki jafnvel enn frekar, dragist stríðsátökin við Persaflóa á langinn. Verðhækkunina má nefnilega fyrst og fremst rekja til árásarstríðs Bandaríkjamanna og Ísraela við Íran, og viðbrögð flugfélaganna eru meira og minna öll á einn veg: Fækkun flugferða, hækkun fargjalda og lækkun kostnaðar. Kosningabarátta fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí er komin á lokasprettinn, ellefu dagar til kosninga og má búast við að herðist á skrúfunni víða, rætt við Evu H. Önnudóttur prófessor um kosningarnar. Svíar ætla að stofna nýja leyniþjónustu, til viðbótar við þær leyniþjónustustofnanir sem þeir reka nú þegar. Sænska utanríkisleyniþjónustan á að safna upplýsingum og njósna – og það strax frá og með næstu áramótum.
-
Hantaveiran, Eistar vígbúast og hlýindaárið mikla 2025 04.05.2026 20นาทีTiltölulega fágæt en iðulega banvæn veira, Hantan-veiran, dró að líkindum þrjár manneskjur til dauða í hollensku skemmtiferðaskipi, sem væntanlegt er hingað til lands síðar í maí. Hvaða veira er þetta, hversu skæð er hún og er einhver hætta á ferðum ef skipið kemur hingað? Grétar Þór Sigurðsson ræddi við Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómum. Ævar Örn Jósepsson tók saman. Eina leiðin til að eiga við Rússa er að vígbúast og mæta þeim af hörku segir Margus Tsahkna, utanríkisráðherra Eistlands. Eistar vilja að Norðurlandaþjóðirnar, Eystrasaltsríkin, Pólland, Bretland, Þýskaland og Frakkland myndi varnarbandalag sem verði þess búið að takast á við ógnina frá Rússlandi, sem Eistar eru sannfærðir um að blasi við. Ingólfur Bjarni Sigfússon hitti Tsahkna. 2025 var hlýjasta ár í sögu veðurmælinga á Íslandi, og það þriðja hlýjasta á heimsvísu. Fjölmörg hitamet voru slegin hérlendis og annars staðar í Evrópu, einkum á norðurslóðum, og skógar- og gróðureldar sviðu meira land í Evrópu en dæmi eru um í áreiðanlegum, skráðum heimildum þar um. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
-
Neyðarbirgðir, kosningar og mannréttindi 28.04.2026 20นาทีÍslendingar eiga vasaljós og rafhlöður og telja sig almennt vel undir það búna að takast á við hamfarir, samkvæmt nýrri könnun hugveitunnar Vörðu. Hins vegar virðist vanta töluvert upp á raunverulegan undirbúning og mat á því hvaða hamfarir gætu orðið og hvers konar undirbúning þær gætu kallað á. Ingólfur Bjarni Sigfússon fjallar um þetta og ræðir við þá Kristin Hrobjartsson og Runólf Þórhallsson. Í dag höfðu 1.854 kosið utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Þetta eru nærri tvöfalt fleiri en á sama tíma 2022, þegar 942 höfðu kosið. Það eru tvær og hálf vika til kosninga og vinna við undirbúning stendur því sem hæst. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Sigríði Jóhannesdóttur, sem situr í yfirkjörstjórn Langanesbyggðar. Það er ekki aðeins á alþjóðasviðinu sem sótt er að mannréttindum með markvissum hætti. Síauknar árásir eða í það minnsta aðfarir yfirvalda í hinum ýmsu ríkjum að frelsi og réttindindum eigin borgara eru Amnesty líka mikið áhyggjuefni og þessi þróun er langt í frá bundin við ríki sem Vesturlandabúar vilja skilgreina sem einræðis- eða valdstjórnarríki. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Önnu Lúðvíksdóttur, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
-
Samdráttur í ráðningum, hnignandi mannréttindi og þátttaka í bólusetningum. 27.04.2026 20นาทีEinn fylgifiskur Covid-19 var aukin umræða um andstöðu gegn bólusetningum, sem var þó ekki alveg nýtt fyrirbæri. Kannanir erlendis hafa bent til að traust á bóluefnum hafi farið minnkandi frá 2015. Ný samantekt Council for Foreign Relations sýnir glögglega að nánast hvert sem litið er hafa efasemdir farið vaxandi og þátttaka þverrandi á liðnum árum. Ein afleiðingin er að sjúkdómar sem nánast hafði tekist að útrýma, eins og mislingar, hafa náð verulegri útbreiðslu á ný. Það hefur dregið úr ráðningum hjá íslenskum fyrirtækjum og fleiri fyrirtæki en áður hyggjast fækka starfsfólki. Þá gefur nýsköpun eftir og minna er fjárfest. Þetta sýnir könnun sem landshlutasamtök sveitarfélaga gera á þriggja ára fresti – árið 2025 að þessu sinni – og ríflega 2.000 fyrirtæki um allt land tóku þátt í. Í nýjustu ársskýrslu Amnesty International, um stöðu mannréttinda í heiminum í fyrra, kemur fram að hættulegar árásir á alþjóðastofnanir og -samvinnu, alþjóðalög og rétt og borgaralegt samfélag, hafi einkennt árið 2025. Við blasi heimsskipan sem markast af kynþáttafordómum, áhrifum feðraveldis og ójöfnuði, þar sem réttindi fólks og ríkja eru ekki virt. Varað er við hruni núverandi heimsskipanar, „það vofir ekki lengur yfir, það stendur yfir,“ segir í ársskýrslunni.
-
Nýjar ratsjár gegn smygli og skuggaflota, Finnafjörður og innflytjendamál 20.04.2026 20นาทีHvað eiga smyglarar og skuggaflotinn sameiginlegt? Að vilja ekki sjást, til dæmis á ratsjám, og að vera meðal þess sem nýjum tæknibúnaði Landhelgisgæslunnar verður beint gegn. Í sumar verða teknar í notkun fjórar ratsjár sem verða á völdum stöðum þar sem fylgjast á betur með skipaumferð í kringum landið. Ingólfur Bjarni Sigfússon ræðir við Finnboga Jónasson, yfirmann greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Miklar breytingar hafa orðið á verkefni því sem snýr að uppbyggingu stórskipahafnar og iðnaðar við Finnafjörð á Langanesi. Sveitarfélögin Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur hafa frá árinu 2008 unnið að því að skapa þar tækifæri til atvinnu. Enn er unnið að uppbyggingu við Finnafjörð, eins og Björn S. Lárusson sveitarstjóri Langanesbyggðar rekur í samtali við Ágúst Ólafsson. Öfugt við flest önnur Evrópuríki, sem leggja áherslu á að hindra för ólöglegra innflytjenda inn í landið og koma þeim sem þar eru úr landi, hyggjast Spánverjar veita rúmlega hálfri milljón innflytjenda sem þar eru án tilskilinna leyfa dvalar- og atvinnuleyfi til eins árs. Þetta er allt í senn skynsamlegt, gagnlegt og siðferðislega rétt, segir forsætisráðherrann. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
-
Heimskreppa, einkunnir grunnskólanema og vöktun Landhelgisgæslu 16.04.2026 20นาทีÁrásarstríð Bandaríkjamanna og Ísraela við Íran hefur skilað helstu olíurisum heimsins sem svarar 90 milljörðum króna aukahagnaði á degi hverjum frá því að það hófst, um 2.700 milljörðum á mánuði. Ástæðan er mikil hækkun á heimsmarkaðsverði olíu vegna lokunar Hormússunds og óvissu í olíuframleiðslu og -flutningum, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við alheimskreppu að óbreyttu, það er, ef ekki tekst að binda enda á stríðið hið snarasta. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra fór vítt og breitt þegar hún ávarpaði þing Kennarasambands Íslands í gær. Mesta athygli hafa ummæli hennar um einkunnagjöf vakið. Foreldrar hefðu meðal annars bent á að erfitt væri að geta ekki farið yfir próf barna sinna til að átta sig á stöðu þeirra og vildu meira gagnsæi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir þetta við Þórunni Sif Böðvarsdóttur kennara. Ógnir sem Landhelgisgæsla Íslands þarf að bregðast við eru orðnar fjölbreyttari og flóknari en áður. Þar vega þungt GPS-truflanir, tilraunir skipa til að senda rangar staðsetningarupplýsingar og aukin umferð svokallaðs skuggaflota nærri íslenskri lögsögu. Heimsmyndin er breytt og ógnirnar aðrar, segir Auðunn Kristinsson í viðtali við Ingólf Bjarna Sigfússon, Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
-
Veðurfyrirbærið El Niño og framkvæmdaráðstefna Vegagerðarinnar 14.04.2026 20นาทีVegagerðin tekst jafnan á við miklar áskoranir í vegakerfinu og fjárskortur mörg undanfarin ár hefur valdið því að viðhaldsskuldin er mikil og þar skortir milljarða. Innlendir og erlendir sérfærðingar ætla að ræða vegaframkvæmdir og viðhald á ráðstefnu sem Vegagerðin stendur fyrir á Grand Hóteli á miðvikudag. Í ár er spáð El Niño, loftslagsfyrirbærinu sem felur í sér hlýnun sjávar og breytingar í lofthjúpnum og tengt hefur verið við alls konar hamfarir undanfarin ár. Um miðja síðustu öld tóku vísindamenn að veita áhrifum þessa veðurfyrirbrigðis athygli á heimsvísu og El Niño hefur verið í fréttum reglulega frá því um síðustu aldamót. Nú fjalla fjölmiðlar vestanhafs um líkurnar á Súper El Niño og að allt stefni í öflugasta El Niño frá 1870.
ยอดนิยมใน
พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย