Samstöðin
Samstöðin
0
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
ตอน
-
Rauða borðið 21. sept - Pólitík, stefnumótamenning, PISA, atkvæðavægi og Lalli Johns 21.09.2026 4ชม. 23นาทีMánudagur 21. september Pólitík, stefnumótamenning, PISA, atkvæðavægi og Lalli Johns Guðmundur Ari Sigurjónsson er með metnað til að verða varaformaður Samfylkingarinnar þrátt fyrir ungan aldur og stutta þingreynslu. Hann hefur áður hent sér út í djúpa laug og ræðir baráttuna, sigra og töp í samtali við Björn Þorláks. „Karlar hræðast mest að konan líti verr út en á myndinni, en konur hræðast að vera drepnar,“ segir Olga Björt Þórðardóttir, sem hefur opinberlega kallað eftir “góðum mönnum”. Auðunn Gunnar Eiríksson, stjórnunarráðgjafi hjá Gallup, miðlar athyglisverðri Tinder-tölfræði, en tölur sýna að stór hluti karlmanna á Tinder er giftur eða í sambandi. Þau ræða við Ásdísi Olsen.Benedikt Sigurðarson, fyrrum skólastjóri, ræðir PISA í samtali við Björn Þorláks. Ekki er allt sem sýnist í því máli, segir Benedikt. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur bregst við gagnrýni sem komið hefur fram á vinnu sem ætlað er að jafna atkvæðavægi. Björn Þorláks ræðir við hann. Rósa Ólöf Ólafíudóttir hefur skrifað bók um bróður sinn, Lárus Björn Svavarsson, sem er það sem kallast þjóðsagnapersóna. Hún segir Gunnari Smára frá Lalla Johns. -
Synir Egils 20. sept - Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík 20.09.2026 2ชม. 26นาทีSunnudagurinn 20. september Synir Egils: Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík Til okkar koma á vettvang dagsins Árni Helgason þingmaður, Líf Magneudóttir borgarfulltrúi og Margrét Helga Erlingsdóttir sjónvarpskona og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélagsins og síðan þeir Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur Húsnæðis og mannvirkjastofnunar, Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Leigjendasamtakanna að ræða húsnæðismál, en slæm staða þeirra hefur drifið áfram verðbólgu og grafið undan lífskjörum leigjenda mörg undanfarin ár. Er von um breytingu? Í lokin fara þeir bræðir, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi. -
Rauða borðið - Helgi-spjall: Ása Berglind 19.09.2026 1ชม. 18นาทีLaugardagur 19. september Helgi-spjall: Ása Berglind Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona fyrir Samfylkinguna var gestur Sigurjóns Magnúsar í Helgispjallinu þessa helgina. Ása Berglind á rætur í tónlist og spilar til að mynda á trompet. Ása Berglind segir af sjálfri sér og uppvextinum, hvernig það er að verða móðir aðeins 17 ára, frá störfum sínum í bæjarstjórn Þorlákshafnar og frá störfum sínum á Alþingi og hvað henni þykir um Kristrúnu Frostadóttur. -
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 38 18.09.2026 1ชม. 44นาทีFöstudagur 18. september Vikuskammtur: Vika 38 Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri, Freyr Eyjólfsson öskukarl og poppari, Hólmfríður Gísladóttir fréttakona og Nína Helgadóttir fulltrúi í málsvarastarfi Rauða kross Íslands koma í Vikuskammt og ræða fréttir vikunnar við Gunnar Smára, fréttir sem einkenndust af átökum, deilum og upplausn, stríðum, mögulegum heimsenda og langdrægnum markmiðum. -
Rauða borðið 17. sept - Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa 17.09.2026 4ชม. 5นาทีFimmtudagur 17. september Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur ræðir hvers vegna opinberar stofnanir hundsa íbúalýðræði og náttúruvernd. Björn Þorláks ræðir við hann. Ragnheiður Davíðsdóttir, Hákon Gunnarsson og Þorsteinn Sæmundsson voru gestir í Reynsluboltum Sigurjóns. Að venju var víða komið við. Kannski stal Donald Trump senunni með öllum sínum tilskipunum. Ýmislegt fleira bar þó á góma. Dr. Magnús Thorson segir Ásdísi Olsen allt um Cannabis Entrepreneurship. Gunnar Bender, ritstjóri Sportveiðiblaðsins, kom og sagði okkur frá veiði sumarsins. Hvar veiðimenn voru kátastir með aflann og hvar ekki. Einn dagur í góðri á kostar frá 4 til 500 þúsund krónur. Heildræn heilsuhátíð fer fram í Mosfellsbæ um helgina í 16. sinn, þar sem boðið er upp á allskonar andlegt og óhefðbundið, skrítið og skemmtilegt. Vigdís Steinþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og fyrrilífsdáleiðari segir Ásdísi Olsen frá því helsta sem verður á dagskrá. -
Sjávarútvegsspjallið - 90. þáttur: Strandveiðar og staða fiskistofna 17.09.2026 1ชม. 7นาทีFimmtudagur 17. september Sjávarútvegsspjallið - 90. þáttur Viðmælendur Grétars eru að þessu sinni þeir Þórólfur Júlían Dagsson, strandveiðimaður, og Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar Alþingis. -
Græna borðið - 20. þáttur: Stórgölluð stjórnsýsla 17.09.2026 49นาทีMiðvikudagur 16. september Græna borðið - 20. þáttur Þær Katrín Oddsdóttir og Benedikta Svavarsdóttir frá samtökunum Vá-félag um verndun fjarðar settust við Græna borðið ásamt Páli Ásgeiri Ásgeirssyni. Umræðuefnið var nýlegt leyfi sem fyrirtækinu Kaldvík fékk til laxeldis í Seyðisfirði. Þær lýsa meingallaðri stjórnsýslu sem dregur blygðunarlaust taum hagsmunaðila og hunsar almannahagsmuni. Þær boða kærur vegna þessara leyfisveitinga og vilja áfram vernda Seyðisfjörð og fólkið sem þar býr þrátt fyrir þetta áfall. -
Rauða borðið 16. sept - Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal 16.09.2026 3ชม. 40นาทีMiðvikudagur 16. september Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal Kristinn Rúnar Þórisson prófessor í tölvuvísindum við HR ræðir um gervigreind við Gunnar Smára, hvort tæknin geti vaxið manninum yfir höfuð og eytt honum. Björn Bjarnason fyrrum þingmaður og ráðherra sendir frá sér þrjár þýðingar í ár, allt á bókum sem fjalla um breytta stöðu heimsmála. Hann segir Gunnari Smára frá þessum bókum og einkum Einræði hf. eftir Anne Applebaum. Henry Alexander Henrysson heimspekingur svarar Birni Þorláks hvort það sé í lagi að ljúga til að ná fram niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þórarinn Ævarsson athafnamaður segir Ásdísi Ólsen frá glíma sinni við OxyContin-fíkn, skömmina og óttann og sátt við föður sinn. Jón Ólafsson tónlistarmaður ræðir hljómsveit Ingimars Eydal við Björn Þorláks, sveit sem átti sér engan líka. -
Rauða borðið 15. sept - Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing 15.09.2026 3ชม. 34นาทีÞriðjudagur 15. september Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing Flugvirkjar hafa boðað verkfall og mikið ber á milli þeirra og Icelandair. Óskar Einarsson formaður Flugvirkjafélags Íslands skýrir stöðuna fyrir Gunnari Smára. Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent við menntavísindasvið, Magnús Helgason sagnfræðingur og Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragða- og guðfræðingur ræða við Gunnar Smára um áhrif Trump á samfélagið og heiminn. Baktal er hreinlega líkamlega skaðlegt, líkt og um útskúfun sé að ræða segir Lára G. Sigurðardóttir læknir og nemi í taugavísindum í samtali við Ásdísi Olsen. Jón Kaldal blaðamaður ræðir sundrungu innanlands og utan og hvernig öfl róa að því að tvístra fólki. Hann varar við málflutningi sem ætlað er að skapa gjá milli landsbyggðanna og höfuðborgarsvæðisins. Björn Þorláks ræðir við hann. Breki Karlsson ræðir illa þokkuð gjöld og hvort dómur sem féll í Noregi gæti orðið íslenskum neytendum búbót. Svokallaða hrakvæðingu ber einnig á góma. Hvað er það? Björn Þorláks ræðir við Breka. -
Bókaborðið - 1. þáttur: Eru allar gamlar bækur merkilegar? 15.09.2026 57นาทีÞriðjudagur 15. september Bókaborðið - 1. þáttur Í þessum fyrsta þætti Bókaborðsins spjalla María Hjálmtýsdóttir og Eiríkur Ágúst Guðjónsson um fornbókabúðir fyrr og nú, bókasöfnun, verðmæti gamalla bóka, bókband og ýmislegt fleira tengt bókum sem gripum. -
Rauða borðið 14. sept - Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga 14.09.2026 3ชม. 40นาทีMánudagur 14. september Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga Jódís Skúladóttir fyrrum þingmaður og sveitarstjórnarfulltrúi á Austurlandi gagnrýnir suma fyrrverandi félaga í VG harðlega í tengslum við áform um laxeldi á Seyðisfirði. Björn Þorláks ræðir við Jódísi. Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor á menntavísindasviði ræðir við Gunnar Smára um stöðuna á grunnskólanum í ljósi PISA. Stjórnskipuleg, söguleg, þjóðréttarleg og leikjafræðileg álitamál verða til umfjöllunar vegna áhuga Trump á að Ísland verði eitt af fylkjum Bandaríkjanna. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks. Skúli Sigurðsson jógakennari er giftur inn í eina merkilegustu jógafjölskyldu heims. Eiginkona Skúla, dr. Kamini Desai, er merkilegur frumkvöðull sem starfar víða um heim og hefur kennt hundruðum Íslendinga Yoga Nidra. Skúli segir frá einstakri ástarsögu þeirra Kamini í samtali við Ásdísi Olsen. -
Bridgeþátturinn - Úrvalsdeildin 13.09.2026 31นาทีSunnudagurinn 13. september Bridgeþátturinn: Úrvalsdeildin Matthías Imsland framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands og Magnús E. Magnússon landsliðsmaður og briddskennari ræða við Björn Þorláks um sjónvarpsmót fram undan og fleira. -
Synir Egils 13. sept - Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál 13.09.2026 2ชม. 20นาทีSunnudagurinn 13. september Synir Egils: Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál Þau koma og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda; PISA, fjárlagafrumvarp, stefnuræðu, landakort Trump, EES og bókun 35, aðgerðir ríkisstjórnar vegna kjarasamninga, fjölmiðla og fleira. Síðan koma að ræða öryggis- og utanríkismál þau Dagur B. Eggertsson þingmaður, Albert Jónsson fyrrum sendiherra og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæðis og landakorts og símtals Donald Trump. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi. -
Rauða borðið - Helgi-spjall: Lýður Árna 12.09.2026 1ชม. 46นาทีLaugardagur 12. september Helgi-spjall: Lýður Árna Lýður Árnason læknir er litríkur persónuleiki sem hefur komið víða við. Hann ræðir sjálfan sig, læknisfræðina, pólitík og samfélagið í helgi-spjalli við Björn Þorláks. -
Föstudagur 11. september - Vikuskammtur: Vika 37 11.09.2026 1ชม. 17นาทีFöstudagur 11. september Vikuskammtur: Vika 37 Þóroddur Bjarnason félagsfræðiprófessor, Valgerður Árnadóttir aktívisti, Lísa Margrét Gunnarsdóttir stúdent og Bubbi, nemi við Verzló, ræða við Björn Þorláks um fréttir vikunnar. Verður Ísland innlimað í Bandaríkin? Eru nemendur í háskólanum að verða vitlausari og vitlausari? Hvert stefnir ríkisstjórnin? Þessi mál og fleiri til umræðu. -
Rauða borðið 10. sept - Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni 10.09.2026 3ชม. 16นาทีFimmtudagur 10. september Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni Erna Indriðadóttir, Helga Jónsdóttir og Magnús Stefánsson voru reynsluboltarnir að þessu sinni. farið yfir stefnuræðu forsætisráðherra og mál tengd henni, stöðu Reykjavíkurborgar, mismunin á þéttbýlinu og landsbyggðinni, ESB kosningarnar og ýmislegt annað. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin og ekki síst Trump; viðskiptastríð hans við Kanada og viðbrögð íslenskra stjórnvalda við korti sem hann dundaði sér við að gera. Rithöfundar eru enn og aftur settir í óvissu vegna niðurskurðar á bókasafnssjóði. Rithöfundarnir Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambandsins, og Kristín Helga Gunnarsdóttir fyrrverandi formaður Rithöfundarsambandsins, komu og töluðu um óvissu um afkomu rithöfunda. Þórir Baldursson er að fara að gefa út tvær plötur og halda tónleika með Gömmum, gamla tónlist sem hann fann í fórum sínum. Hann kom við á Samstöðinni og ræddi við Gunnar Smára. Sigurpáll Ingibergsson, áhugamaður um íslenska jökla, ræðir við Björn Þorláks um skaflinn í Esju og válegar vísbendingar í umhverfismálum. Líkur eru á að skaflinn gufi upp næsta mánudag. -
Rauða borðið 9. sept - Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir 09.09.2026 3ชม. 57นาทีMiðvikudagur 9. september Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg munu án efa skerða viðkvæma þjónustu við börn og ungmenni og auka hættu á ójöfnuði. Þetta segir Árni Gunnarsson forvarnafulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Kristján Sigurjónsson ritstjóri FF7 ræðir við Gunnar Smára um kosningarnar í Svíþjóð, sem verða um helgina. Verða stjórnarskipti? Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir snýr aftur á Samstöðina eftir hlé og ræðir ásamt Birni Þorláks álitamál í geðheilbrigðisþjónustu. Bergur Ebbi Benediktsson, höfundur, fyrirlesari og uppistandari, segir Gunnari Smára frá nýju bókinni sinni sem fjallar um mennsku og gervigreind. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Víði Sigurðsson íþróttasérfræðing um fótbolta. -
Græna borðið 19. þáttur - Er Ísland frekur krakki í alþjóðastarfi? 09.09.2026 58นาทีMiðvikudagur 9. september Græna borðið 19. þáttur - Er Ísland frekur krakki í alþjóðastarfi? Ísland er frekur krakki í alþjóðastarfi sem vill undanþágur frekar en ábyrgð í loftslagsmálum. Ríkisstjórnin gæti hafa misst atkvæði í eigin þjóðaratkvæðagreiðslu, með því að vera í PR-kór hagsmunaafla sem sleppa sem léttast frá loftslagsaðgerðum. Loftslagið bar hæst í fyrsta Græna borði haustsins. Gestir: Andrés Ingi Jónsson, Árni Finnsson, Kristín Vala Ragnarsdóttir. Stjórnandi. Björg Eva Erlendsdóttir. -
Rauða borðið 8. sept - PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar 08.09.2026 3ชม. 32นาทีÞriðjudagur 8. september PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, koma til okkar til að ræða nýjustu PISA-könnunina. Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Ólafur Þ. Harðarson prófessor velta fyrir sér í spjalli við Gunnar Smára hvað Trump er að hugsa og hvað hann ætli að gera. Þingmennirnir Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar, og Stefán Vagn Stefánsson, annar varaformaður nefndarinnar, mæta til að ræða fjárlög ríkisstjórnarinnar. Víst er að þeir eru fjarri því að vera sammála. Sigmundur Ernir Rúnarsson, eitt þekktasta andlit sjónvarpsfrétta sögunnar, ræðir einokunarstöðu Rúv í sjónvarpsfréttum. Hann ræðir einnig þingveturinn fram undan og svartar niðurstöður PISA í samtali við Björn Þorláks. Sú óvænta staða er uppi að allir þingflokksformenn flokka sem eiga sæti á Alþingi lýsa yfir stuðningi við hvalveiðar. Samt er stefna Samfylkingarinnar að hætta hvalveiðum. Valgerður Árnadóttir hvalavinur ræðir þessa þversögn í samtali við Björn Þorláks. -
Rauða borðið 7. sept - Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi 07.09.2026 5ชม. 18นาทีMánudagur 7. september Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi Margt bendir til að hefðbundin nálgun heilbrigðiskerfisins dugi ekki í öllum tilvikum gagnvart þeim sem líður illa andlega. Of mikil áhersla er á lyfjagjöf. Sjálfsvíg eru þjóðarmein. Auður Axelsdóttir hjá Hugarafli ræðir við Björn Þorláksson. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur fer yfir helstu fréttir í Bretlandi með Gunnari Smára; landsfund Umbótaflokksins, dauða Jason Arday og fyrstu daga nýs forsætisráðherra. Kvenska og karlmennska voru til umræðu í viðtali Ásdísar Ólsen við Hönnu Björk Vilhjálmsdóttur, brautryðjanda í kynjafræði framhaldsskólanna. Þar kom fram að reiði og ofbeldi geta verið afleiðing af tilfinningabælingu hjá strákum. Einnig var rætt um kvensku og mæðrahyggja, og hve mikilvægt er að allir uppeldisaðilar séu meðvitaðir um kynjaskekkjurnar. Sverrir Jakobsson prófessor segir Gunnari Smára frá myndun ríkisvalds á Íslandi og fyrstu öldum landsins undir Noregskóngi. Kórstjórarnir Sunna Karen Einarsdóttir og Magnús Ragnarsson ræða gildi söngsins, Jón Stefánsson organista og kórstjóra; arfleifð hans, tónleika og minningasjóð. Björn Þorláks ræðir við þau.
ยอดนิยมใน
พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย