Mannlegi þátturinn
RÚV
0
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
ตอน
-
Hinrik Ólafsson föstudagsgestur og súrmjólk og purusteik í matarspjallinu 05.06.2026 54นาทีHinrik Ólafsson leikari og leiðsögumaður var föstudagsgesturinn okkar í dag en hann er handritshöfundur og leikstjóri nýrrar íslenskrar heimildarmyndar, Above Iceland, sem verður frumsýnd í Bíó Paradís 10.júní. Í henni er fjallað um eldfjöll, jöklar, þjóðsögur og lífsbaráttu þjóðar. Myndin er sérstök fyrir það leyti að hún er aðallega tekin upp að ofan með drónum. Hinrik Ólafsson útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands 1993 og hefur starfað sem leikari í leikhúsum landsins og í fjölda kvikmynda- og sjónvarpsverkefna. Svo kom Sigurlaug Margrét til okkar í matarspjallið. Grasið grænkar, laufblöðin spretta fram, beðin fyllast af gróðri, velkomnum og óvelkomnum og alltaf þurfum við að borða. Við töluðum lengst af um súrmjólk, minningar og nostalgíu henni tengd og aðeins í lokin um purusteik. Tónlistin í þættinum: Times like these / Glen Campbell (Foo Fighters lag) Time in a bottle / Jim Croce (Jim Croce) You´ve got að friend / James Taylor (Carole King) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
-
Lögin hans Bubba, hjóluðu 3.500 km. og Jónatan um Stefán Jónsson í Lúdó 04.06.2026 54นาทีGunnlaugur Jónsson og Þór Freysson komu til okkar í dag, en þeir hafa verið að gera nýju heimildarþættina um Bubba Morthens, Lögin hans Bubba, þar sem farið er yfir 15 vinsælustu lögin hans að mati þjóðarinnar. Á laugardaginn er komið að sjötugsafmælinu sjálfu, en þriðji og síðasti þátturinn verður í sjónvarpinu á föstudagskvöldi. Í þáttunum er rætt við Bubba auk fjölda samferðamanna hans þar sem lögin og hans helstu tímabil á löngum ferli eru rifjuð upp. Þeir Þór og Gunnlaugur fræddu okkur aðeins um Bubba Morthens í þættinum. Við töluðum snemma í apríl við Einar Guttormsson og Hartmann Guðmundsson sem voru þá á leiðinni í 3.500 km. hjólreiðaferðum vesturströnd Bandaríkjanna á 37 dögum. Nú eru þeir komnir aftur til baka og við heyrðum í dag hvernig ferðin gekk. Markmið ferðarinnar var að vekja athygli á Parkinsonsjúkdómnum og undirstrika mikilvægi líkamlegrar hreyfingar í baráttunni við sjúkdóminn, en Einar er sjálfur með Parkinson. Einar og Hartmann sögðu okkur betur frá hjólreiðaferðinni. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði Jónatan um Stefán Jónsson söngvara Lúdó sextett, eða Stebba í Lúdó. Hann var meðal allra fyrstu rokksöngvara Íslands en hann kom kornungur fram á sjónarsviðið laust fyrir 1960 og varð jafnframt sá fyrsti af þeirri kynslóð rokksöngvara sem söng inn á plötu. Tónlistin í þættinum: Fjórir kátir þrestir / Egill Ólafsson, Edda Heiðrún Backman og Tamlasveitin (erlent lag, texti Jón Sigurðsson) Þrek og tár Fallegur dagur / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Því ekki að taka lífið létt / Lúdó sextett (Lew Douglas, Cliff Parman & Frank Levere, texti Ómar Ragnarsson) Ólsen Ólsen / Lúdó sextett (Mann & Appel, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
-
Gervigreind í kennslu með Námfús, histamínóþol kvenna á miðjum aldri og vísindaspjallið með Eddu 03.06.2026 54นาทีÞað er fátt sem hefur verið rætt meira um undanfarin tvö ár en gervigreind og spurningarnar eru óteljandi, margt afskaplega spennandi og einni margt sem vekur ugg. En við kynntum okkur í dag hvernig gervigreindin getur virkað í skólum, bæði fyrir kennara og nemendur. Námfús er íslensk lausn fyrir leikskóla og grunnskóla sem er notuð bæði á Íslandi og Þýskalandi og unnið er að því að aðlaga lausnina fyrir framhaldsskóla. Skúli Thorarensen framkvæmdastjóri Námfús kom í þáttinn í dag við fengum hann til að útskýra fyrir okkur hvernig þetta virkar og hverjir möguleikarnir eru. Næringarþerapía á rætur að rekja til hugmyndafræði functional medicine, þar sem meginmarkmiðið er að styðja líkamann út frá rót vandans. Við ræddum við Sigríði Róbertsdóttur, eða Siggu Róberts, í þættinum í dag, en hún er næringaþerapisti sem lærði fræðin í Bretlandi. Hún segir að líkaminn hafi ótrúlega getu til að ná jafnvægi þegar hann fær réttan stuðning. Hún talaði meðal annars um það af hverju konur á miðjum aldri eru í meiri hættu á histamínóþoli. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn á músum þar sem var í fyrsta skipti skoðað hvernig krabbamein og krabbameinslyf virka mismunandi á mismunandi aldurskeiðum þar sem líkaminn og ónæmiskerfi líkama okkar eru berskjaldaðri á efri árum en þegar við erum ung. Tónlistin í þættinum: Þetta loft / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson) Það sýnir sig / Hjálmar (Sigurður Halldór Guðmundsson) Heiðlóan / Gísli Magna og Co. (Steingrímur M. Sigfússon) Kötturinn sem gufaði upp / Olga Guðrún Árnadóttir (Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
-
Leikhópurinn Lotta tuttugu ára og Guðbrandur Árni á Heilsuvaktinni 02.06.2026 53นาทีLeikhópurinn Lotta heldur upp á tuttugu ára afmælið í ár og sýning hópsins í sumar er Litaland sem segir frá grunnlitunum gulum, rauðum og bláum. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og í upphafi eru samskipti milli heimanna lítil enda vill hver litur halda sig út af fyrir sig. Anna Bergljót Thorarensen er höfundur verksins og jafnframt stofandi leikhópsins. Hún kom í þáttinn í dag ásamt öðrum af tveimur leikstjórum, Þórunni Lárusdóttur. Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Hvað einkennir heilbrigð og langlíf ástarsambönd og hvenær verða þau óheilbrigð? Hvaða máli skipta tengslin og nándin sem við fáum í æsku fyrir ástarsambönd okkar á fullorðinsárum og hvernig getur það komið fram á neikvæðan hátt ef örugg tengsl og nánd hafa ekki verið til staðar. Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur leitast við að svara þessum spurningum og fjölmörgu öðru um ástina í nýútkominni bók sinni Í augum þínum verð ég til. Helga ræddi við Guðbrand á Heilsuvaktinni í tilefni af því. Tónlistin í þættinum: Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir) Hver er hann? / Leikhópurinn Lotta, Rósa Ásgeirsdóttir (Baldur Ragnarsson, texti Sævar Sigurgeirsson) Ósvikin ást / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
-
Einverfa og kulnun kvenna, skjöl Jónasar frá Hriflu og Úlfar lesandi vikunnar 01.06.2026 53นาทีÁ undanförnum árum hefur umræða um einhverfu kvenna aukist en þær fá oft ekki greiningu fyrr seint á ævinni. Í áratugi var einhverfa skilgreind út frá drengjum og stúlkur féllu utan rammans og fullorðnar konur enn frekar. Þegar greiningin kemur, oft á þrítugs- eða fertugsaldri og stundum eftir fimmtugt, lýsa margar konur henni eins og þar hafi þeim loksins verið gefin hin rétta skýring á eigin lífi. Skýringu á því hvers vegna ákveðnir hlutir voru alltaf erfiðari, hvers vegna félagsleg samskipti voru alltaf lýjandi og hvers vegna einföld dagleg verkefni gátu á stundum tekið alla orku frá þeim. Við ræddum við Vigdísi M Jónsdóttur sálfræðing í dag. Við fórum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið og hittum þar fyrir Njörð Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörð. Hann sýndi okkur einkaskjöl sem Jónas Jónsson frá Hriflu lét geyma á safninu eftir að hann lét af störfum. Hann fór fram á það að skjölin skyldu vera lokuð frá afhendingu 1966 til 1.maí árið 1985, en þá hefði hann orðið 100 ára. Njörður sagði okkur frá þessum skjölum sem geymd eru í fimm öskjum á safninu, en þau voru talsvert persónuleg. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Úlfar Jökull Eyjólfsson nemandi í MR. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Úlfar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Himnaríki og helvíti e. Jón Kalman Þrúgur reiðinnar e. john steinbeck Gamli maðurinn og hafið e. Ernest Hemingway Behind the shades (ævisaga Bob dylans) e. Clinton Heylin. Náðarstund e. Hannah Kent Harry Potter bækurnar. Tónlistin í þættinum: Á ferðalagi / Ragnar Bjarnason (D. Darst, texti Ómar Ragnarsson) The Girl from Ipanema / Stan Getz og Astrud Gilberto (Carlos Antoni Jobim, Vinicius de Moraes & Norman Gimbel) Kóngur einn dag / KK og Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
-
Sigtryggur Baldursson föstudagsgestu og espadrillur og sniglar í matarspjallinu 29.05.2026 53นาทีFöstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var trymbillinn og tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson. Hann hefur verið í fjölda hljómsveita, Þeym, Kukl, Sykurmolarnir, svo er það auðvitað hliðarsjálf hans Bogomil Font, sem sungið hefur sig inn í íslensku þjóðarsálina, bæði með Milljónamæringunum og Greiningardeildinni. En með síðastnefndu sveitinni var hann að senda frá sér glænýtt lag af glænýrri plötu sem er væntanleg og við fengum að heyra það í þættinum. En við ferðuðumst líka með honum fram og aftur í tíma, frá Babylon í New York í Kópavoginn. Á handahlaupum sagði hann okkur til dæmis frá hljómsveitinni Hattímas, knattspyrnuferlinum, tilurð Bogomil Font og miklu fleiru í þættinum í dag. Svo kom Sigurlaug Margrét til okkar í matarspjallið og í dag voru það espadrillur, kjúklingar, sniglar og mátulega skítugir veitingastaðir sem voru ræddir. Tónlistin í þættinum: Sjóddu frekar egg / Bogomil Font og Greiningardeildin Í faðmi dalsins / Haukur Morthens (Bjarni J. Gíslason, texti Guðmundur Þórðarson) Gellur eru bestar / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
-
Gefum íslensku séns, vatnsvernd og Jónatan um Hallbjörgu Bjarnadóttur 28.05.2026 50นาทีVið forvitnuðumst í dag um verkefnið Gefum íslensku séns sem sett var af stað við Háskólasetur Vestfjarða en hefur nú verið stofnað sem formlegt félag sem ætlað er að ná til landsins alls. Markmiðið er að hvetja íslenska móðurmálshafa til að vera þolinmóði, umburðarlyndir og einnig hvetjandi við þau sem eru að læra málið. Við fengum Eirík Rögnvaldsson, prófessor emeritus og Elizu Reid, rithöfund, fyrrverandi forsetafrú, til að segja okkur frá verkefninu og félaginu Gefum íslensku í dag. Við töluðum svo um vatn og vatnsvernd í þætti dagsins. Vatns- og fráveitufélag Íslands (VAFRÍS) stendur fyrir opnum fræðslufundi um vatnsverndarskipulag í samstarfi við Háskóla Íslands seinna í dag. Þar verður meðal annars rætt um það hvernig góðar ákvarðanir um vatnsvernd geta tryggt okkur heilnæm vatn í kranann og hvernig á að vega saman hagsmuni í þessum mikilvægu málum. Einn þeirra sem tekur til máls á þessum fundi er Baldur Dýrfjörð, stjórnarmaður í VAFRÍS. Hann kom í þáttinn í dag. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur og hlustendur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag var það Hallbjörg Bjarnadóttir. Jónatan sagði okkur frá stórmerkilegum ferli hennar og lífi og við heyrðum tvö lög sem hún söng. Tónlistin í þættinum: Egils appelsín / Spilverk þjóðanna (Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson, Kristján Jónsson, Sigurður Bjóla Garðarsson og Sveinbjörn Egilsson) Sukiyaki / Kuy Sakamoto (Nakamura, Rokusuke) Moonlight and Shadows / Hallbjörg Bjarnadóttir (Frederik Hollander, texti Leo Robi) Björt mey og hrein / Hallbjörg Bjarnadóttir (Hallbjörg Bjarnadóttir, texti Stefán Ólafsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
-
Herferð Amnesty á Íslandi, steraleikarnir og vísindaspjall með Eddu 27.05.2026 51นาทีVið kynntum okkur nýja herferð Íslandsdeildar Amnesty International sem kallst Mannúðin mun sigra - Virðum réttindi fólks á flótta. Markmið hennar er að mæta ótta og rangfærslum með staðreyndum, mannlegum sögum og samtali sem byggir á samkennd og mannréttindum. Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildarinnar, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá herferðinni. Við kynntum okkur svo umdeilt íþróttamót. Um helgina fór fram viðburður sem er kallaður "Enhanced games“ sem stundum er kallaður „steraleikarnir“ upp á íslensku. Þar var keppt í nokkrum greinum - eins og sundi, spretthlaupi og lyftingum. Og á þessum leikum eru ýmis lyf og efni leyfð sem almennt eru bönnuð í hefðbundnum íþróttakeppnum. Einn íslenskur keppandi tók þátt - og vann, Hafþór Julius Björnsson. Við fræddumst aðeins um þessa keppni og spjölluðum við Jóhann Pál Ástvaldsson íþróttafréttamann. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar með vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn þar sem kannaður var munurinn á virkni heilans þegar við skrifum með blýanti eða penna, sem sagt handskrifum, miðað við það að pikka á lyklaborðin. Tónlistin í þættinum: Kúadelluslamm / Melchior, Elín Jónína Bergljótardóttir (Hilmar Oddsson) Landþvættirnir / Bogomil Font (Rafael De Leon, texti Sigtryggur Baldursson) Gi Mig Hvad Du Har / Dodo and The Dodos (C. Nerenst, texti A. Valbro og S. Christiansen) Reynimelur / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Steingrímur Karl Teague, Magnús Trygvason Eliassen og Daníel Friðrik Böðvarsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
-
Gullmoli frá 1946, veðurspjall um hita og hret og Birna lesandi vikunnar 26.05.2026 52นาทีHelga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kom til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn var það efni úr útvarpsþættinum Um daginn og veginn frá árinu 1946 þar sem Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður fjallar um nýafstaðnar kosningar í Reykjavík, þáttöku, framkvæmd talninga og áróðusaðferðir, með áherslu á nauðsyn siðfágaðrar kosningabaráttu. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Hann byrjaði í dag á að tala um hitana í Evrópu og ástæðu þeirra. Svo voru það horfurnar hjá okkur og spár um jafnvel vorhret í byrjun júní. Og í því samhengi rifjaði hann upp með okkur upp sumarhret á sama tíma í fyrra og ekki síst hitteðfyrra. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Birna Hjaltadóttir kennari í Brúarskóla við Dalbraut, en hún er einnig með meistaranám í ritlist. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Birna talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Frumbyrjur e. Dag Hjartarson Huldukonan e. Fríðu Ísberg Formaður húsfélagsins e. Friðgeir Einarsson Tók ég eftir því þá eða tók ég eftir því eftir á e. Höllu Birgisdóttur Jakobína, saga skálds og konu e. Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur. Salka Valka e. Halldór Laxness Tónlistin í þættinum: Það er svo ótalmargt / Ellý Vilhjálms (Jackie Smith & Derry Lindsay, texti Jóhanna G. Erlingsson) Angelía / Vilhjálmur Vilhjálmsson (W. Meisel, texti Theódór Einarsson) Northern Sky / Nick Drake (Nick Drake) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON
-
Helgi Björns og Ragga Gísla föstudagsgestir og matarspjall um vorilm og fleira 22.05.2026 52นาทีÞað voru tveir föstudagsgestir í dag, Helgi Björnsson og Ragnhildur Gísladóttir, en þau sameina krafta sína á tónleikum sem þau kalla Helgi & Ragga syngja og spjalla. Búið er að setja á þrenna tónleika, til að byrja með, þar sem þau munu flytja mörg af þeim lögum sem Íslendingar þekkja með þeim og hafa tekið ástfóstri við, auk þess að rifja upp eftirminnileg augnablik úr litríkri vegferð þeirra í tónlist. Þau skipa bæði stóran sess í íslenskri tónlistarsögu sem var gaman að rifja upp með þeim í þættinum og ferðast með þeim í gegnum tímann. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag vildi Sigurlaug ræða lyktina sem fyllir loftið í byggðum landsins á þessum árstíma... og þá var hún ekki að meina ilminn af nýslegnu grasi. Svo rifjuðum við upp fleiri greinar úr Eldhúsbókinni frá sjötta og sjöunda áratugnum sem standast misvel tímans tönn. Tónlistin í þættinum: Lífsgleði / Moses Hightower (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) Draumaprinsinn / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson) Ég fer á Landrover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Atli Bollason og Guðmundur Óskar Guðmundsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
-
Dáleiðslufélag Íslands 25 ára, Skólakór Öldutúns 60 ára og Jónatan um Gunnar Ormslev 21.05.2026 52นาทีHannes Björnsson sálfræðingur kom til okkar í dag. Hann hefur starfað sem sálfræðingur frá 2009 en var áður sóknarprestur á Vestfjörðum og prestur Íslendinga í Noregi. Hann vinnur mikið í greiningu og klínískri meðferð þunglyndis, kvíða, áfalla og ADHD fullorðinna. Hannes er einnig formaður Dáleiðslufélags Íslands, sem á 25 ára afmæli þessa dagana og hann sagði okkur frá félaginu, ráðstefnu sem fer fram í lok maí og hvernig dáleiðsla nýtist hans starfi. Skólakór Öldutúnsskóla fagnar 60 ára afmæli með afmælistónleikum í Hörpu sunnudaginn 24. maí. Egill Friðleifsson, stjórnandi kórsins vann þrekvirki því hann hélt kórnum úti árum saman og þurfti sífellt að þjálfa upp nýjar raddir og náði að halda uppi gæða söngstarfi. Brynhildur Auðbjargardóttir tók við þegar Egill hætti, en hún var nemandi í Öldutúnsskóla á sínum tíma og söng með kórnum meðal annars inn á vísnaplöturnar vinsælu með Björgvini Halldórssyni og Gunnari Þórðarsyni. Fyrrverandi kórfélagar munu koma fram á tónleikunum ásamt núverandi kór, en það hafa ýmsir fyrrum nemendur skólans haldið áfram að fást við tónlist eins og þær Brynhildur, Margrét Eir og t.d. Guðrún Árný ofl. Margrét Eir og Bryndhildur komu í þáttinn í dag. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Gunnari Ormslev saxófónleikara. Gunnar má telja meðal máttarstólpa íslenskrar djasstónlistar á upphafsárum hennar en stundum er sagt að hann hafi komið með djassinn með sér til Íslands frá Danmörku. Jónatan sagði okkur meira frá hans merkilega ferli í þættinum í dag. Tónlistin í þættinum: Sólin er komin / Mugison (Örn Elías Guðmundsson) Klappa saman lófunum / Björgvin Halldórsson og Kór Öldutúnsskóla (Gunnar Þórðarson, íslensk þjóðvísa) Frá Vermalandi / Gunnar Ormslev (sænskt þjóðlag) Lady be Good / Tríó Jóns Páls Bjarnasonar (George & Ira Gerschwin) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
-
Ljósmyndir af hversdagsleikanum, íslenski refurinn og vísindaspjall með Eddu 20.05.2026 53นาทีÁ morgun verður opnuð ljósmyndasýning í Ljósmyndasafni Reykjavíkur Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum, ljósmyndir eftir Þórdísi Erlu Ágústsdóttur. Þórdís hefur myndað fólk, sem flest er henni náið eða vel kunnugt, yfir löng tímabil. Myndirnar segja sögur af ólíku fólki sem hún hefur fylgt eftir og velur stundir úr hversdeginum, lítil augnablik sem segja stærri sögu. Þórdís kom í þáttinn í dag og sagði frá. Við fræddumst svo um íslenska refinn í dag en Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun hefur rannsakað tófuna um árabil og á næstunni verður haldið málþing á vegum Náttúrufræðistofnunar þar sem verður einmitt rætt um íslenska refinn, sérstöðu stofnsins, svipgerðir, erfðafræði og fleira. Ester sagði okkur frá refnum og málþinginu í dag. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, en í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að góðgerlar sem finnast í kimchi geti hjálpað til við að losa líkamann við nanoplast. Tónlistin í þættinum: Sólarsamba / GÓSS (Magnús Kjartansson, texti Halldór Gunnarsson) Í sól og sumaryl / Stebbi & Eyfi (Gylfi Ægisson) Hr. Reykjavík / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson) Daglega fer mér fram / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
-
Ofurhlauparinn Karlotta, bókin Hamingja og Olga Hörn á Heilsuvaktinni 19.05.2026 49นาทีVið töluðum í dag við Karlottu Ósk Óskarsdóttur sem hefur verið kölluð ofurhlaupari og það er ekki fjarri sanni. Hún lætur sér ekki nægja til dæmis bara venjulegt maraþonhlaup, heldur hljóp hún 75 kílómetra að meðaltali á dag, tíu daga í röð, eða samtals 750 kílómetra í Búlgaríu í síðustu viku. Hún hefur slegið sjö Íslandsmet á síðustu níu mánuðum, þar af þrjú í Búlgaríu og það hlaup var lengsta vegalengd sem Íslendingur hefur farið í keppnishlaupi. Við ræddum við Karlottu í þættinum í dag og spurðum hana til dæmis af hverju hún hreinlega er að standa í þessu? Mars Baldurs er verðlaunað ungskáld sem stundar nám á Akureyri og nú í byrjun vors kom út bók eftir hann i pastelritröð Flóru menningarhúss á Akureyri. Bókin heitir Hamingja og við mæltum okkur mót við Mars á kaffihúsi fyrir norðan. Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Fargufur hafa notið sívaxandi vinsælda síðustu ár og Helga náði tali af einum svokölluðum gusumeistara, Olgu Hörn Fenger, í Rjúkandi fargufu á Ægissíðu, við heyrðum þeirra spjall á Heilsuvaktinni í dag. Tónlistin í þættinum: Frækorn og flugur / Dúmbó og Steini (H. Newman, texti Ellert Borgar Þorvaldsson) Gvendur á Eyrinni / Dátar (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson) Heim í Búðardal / Ðe Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
-
Crohns og sáraristilbólga, efni af Þjóðskjalasafni og Pétur Már lesandi vikunnar 18.05.2026 50นาทีAlþjóðlegur vitundardagur tileinkaður bólgusjúkdómum í meltingarvegi er á morgun 19.maí. Talið er að yfir 10 milljónir, þar af um 3,4 milljónir í Evrópu, séu annaðhvort með Crohns-sjúkdóm eða sáraristilbólgu, oft nefnda IBD. Á Íslandi hefur tíðnin aukist mikið frá 1950 og nýgengi sáraristilbólgu á Íslandi er u.þ.b. 22 á hverja 100.000 íbúa sem er með því hæsta í heiminum. Í ár vekja samtökin athygli á því að það á ekki að vera neitt feimnismál að tala um sjúkdómana eða það sem þeim fylgir, þótt þeir tengist þörmum og salernisferðum og mjög mikilvægt að eyða öllum fordómum. Hjalti Þór Davíðsson kom til okkar í dag en hann tekur þátt í vitundarvakningunni fyrir CCU samtökin, sem stendur fyrir Crohn’s og Colitis Ulcerosa, eða sáraristilbólgu. Svo fórum við í heimsókn á Þjóðskjalasafnið og fengum Ólaf Arnar Sveinsson, sviðsstjóra miðlunar og rannsókna þar á bæ, til að segja okkur frá sakamáli, svokölluðu dulsmáli, frá árunum 1832-33 í Tálknafirði á Vestfjörðum. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Pétur Már Gunnarsson, myndlistar- og garðyrkjumaður. Við fáum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Pétur Már talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Frjáls e. Lea Ypi Nói bátasmiður - Lífshlaup Nóa skráð af Erlingi Davíðssyni Sorgin í fyrstu persónu e. Ko Un í þýðingu Gyrðis Elíassonar Tokyo-Montana hraðlestin e. Richard Brautigan Daníil Kharms og Brautigan Tónlistin í þættinum: Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason) Fegurðin svo hrá / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) He’ll Always Know / Elísabet Eyþórsdóttir ( Elísabet Eyþórsdóttir) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
-
Daði Freyr föstudagsgestur og matarspjallið um sænskar kjötbollur 15.05.2026 50นาทีFöstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Daði Freyr Pétursson tónlistarmaður. Þjóðin kynntist honum fyrst í Söngvakeppninni og svo fór hann auðvitað fyrir Íslands hönd í Eurovision keppnina og hefur síðan samið og framleitt tónlist undir eigin nafni og farið í tónleikaferðir víða um heim. Hann er nýfluttur aftur til landsins eftir að hafa búið í ellefu ár erlendis, en fjölskyldan býr nú í Hveragerði. Við fórum með Daða Frey aftur í tímann og svo fram og til baka í tíma og rúmi til dagsins í dag en hann er nýbúinn að gefa út nýja plötu sem komin er á allar streymisveitur og er væntanleg til landsins á vínilplötum. Við fengum að heyra tvö lög af nýju plötunni. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, þar héldum við áfram að grúska aðeins í Eldhúsbókinni gömlu og svo var það Svíþjóð sem átti sviðið, sænskt eldhús og kjötbollur. Tónlist í þættinum í dag: Lítill drengur / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Kjartansson, texti Vilhjálmur Vilhjálmson With You / Daði Freyr (Daði Freyr og Ásdís María Viðarsdóttir) I’m Out and I Want to Home / Daði Freyr (Daði Freyr og Simon Alexander Ward) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
-
Ungt fólk og umhverfismálin, vísindaspjallið um tónlist og hreyfingu og Jónatan um Magnús Ingimarsson 13.05.2026 50นาทีVið forvitnuðumst í dag um Uppskeruhátíð í verkefninu Umhverfisfréttafólk sem var á vegum Landverndar og Grænfánans, en hún fór fram í lok apríl. Á hverju ári berast fjölmörg vönduð og fjölbreytt verkefni í keppnina frá skólum víðsvegar á landinu. Í ár voru það m.a. rapplög, spil, myndbönd, hlaðvarp, fréttaskýringar, smásögur, dagatal, ljóð, listaverk, tímarit vöruhönnun og ljósmyndir. Við fengum Sigurlaugu Arnardóttur, verkefnastýru Menntateymis Landverndar til að segja okkur frá keppninni og hátíðinni og með henni komu Daney Emma Svansdóttir, fulltrúi hópsins úr Garðaskóla sem sigraði í flokki grunnskóla, og Húgó Heiðreksson, fulltrúa hópsins úr Tækniskólanum sem bar sigur úr býtum í flokki framhaldsskóla. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur frá finnskri rannsókn á áhrifum tónlistar á hreyfingu. Svo kom Jónatan Garðarsson aftur til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Magnúsi Ingimarssyni og hans merka starfi, en hann var einn þekktasti tónlistarmaður á Íslandi sem mestmegnis starfaði á bak við tjöldin, en hann var hljóðfæraleikari, hljómsveitastjóri, kórstjóri, laga- og textahöfundur, upptökustjóri en fyrst og fremst útsetjari sem flestir þekktustu tónlistarmenn landsins störfuðu með á sjöunda og áttunda áratugnum. Tónlistin í þættinum: Ó, ljúfa líf / Flosi Ólafsson (P. Doddoge, texti Flosi Ólafsson) Marína / Sigrún Jónsdóttir (Rocco Granata, texti Magnús Ingimarsson) Það er svo geggjað / Flosi Ólafsson (Magnús Ingimarsson, texti Flosi Ólafsson) Sveitin milli sanda / Ellý Vilhjálms (Magnús Blöndal Jóhannsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
-
Aldin samtökin og kórinn, leikhús í bíó og veðurspjallið með Einari 12.05.2026 50นาทีVið kynntumst aðeins starfi Aldin, samtaka eldri aðgerðarsinna gegn lofslagsvá í þættinum í dag. Sólveig Baldursdóttir og Halldór Reynisson eru félagar í Aldin og þau komu til okkar og sögðu frá tilurð samtakanna, starfinu, samnefndum kór og þýðingu hans í þeirra starfi. Í lokin fengum við svo að heyra upptöku af kóræfingu. National Theatre Live er framtak Breska Þjóðleikhússins þar sem margar af bestu sýningum leikhússins eru sýndar í völdum kvikmyndahúsum um allan heim. Bíó Paradís er samstarfsaðili NTL á Íslandi og meðal sýninga framundan er uppfærsla Breska Þjóðleikhússins, All My Sons, eða Allir synir mínir eftir Arthur Miller, sem sýnd verður 25.maí. Ása Baldursdóttir dagskrárstjóri í Bíó Paradís og Sigríður Jónsdóttir, verkefnastjóri á leikminjasafni Þjóðminjasafnsins, komu í þáttinn og fóru til dæmis yfir hvaða sýningar verða í boði. Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í dag í veðurspjallið. Hann byrjaði á veðurútlitinu og veðurhorfum fram á kjördag og mikilvægi þess að almennar kosningar á landinu eru tímasettar á þeim árstíma þegar auðvelt er að komast leiðar sinnar. Svo fjallaði hann um muninn á veðri, tíðarfari, veðurfari og loftslagi. Að lokum voru það svo El-Nino og La-Nina, sem eru fyrirbæri í Kyrrahafinu og Einar skýrði fyrir okkur hver munurinn á þeim er og tengsl þeirra við veður á jörðinni og hnattræna hitann. Tónlistin í þættinum: Og co. / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) Jörðin mín / Aldin kór (Jón Ásgeirsson, texti Ludvig Guðmundssyni) Glaumbær / Dúmbó og Steini (Jóhann G. Jóhannsson) Ítalskur calypso / Erla Þorsteinsdóttir (Monte & Merrell, texti Loftur Guðmundsson) Landsímalína / Spilverk þjóðanna (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
-
Systkinin í Blood Harmony, um Húsmæðraskólann frá 1948 og Friðrik lesandi vikunnar 11.05.2026 53นาทีBlood Harmony er samstarfsverkefni systkinanna Arnar, Aspar og Bjarkar Eldjárn sem hófst snemma árs 2021 þegar heimsfaraldurinn skall á og þau voru flutt í heimahagana fyrir norðan. Þau umbreyttu kjallaranum á æskuheimilinu Tjörn í upptökustúdíó og hófu að taka upp lög. Nú, fimm árum síðar er loksins komið að því að fagna útgáfu plötunnar sem kemur út á vínyl þau halda upp á með útgáfutónleikum á miðvikudaginn. Þau komu þrjú til okkar í dag. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar í dag með enn einn gullmolann af safni RÚV. Í þetta sinn af lakkplötu, brot frá 1948 úr þættinum Úr skólalífinu. Þar fengum við að heyra kynningu á starfi Húsmæðraskóla Reykjavíkur og framsetningin var mjög áhugaverð. Nokkrar stúlkur úr skólanum leiklesa handrit þar sem þær léku sig sjálfar að segja frá því hvað þær eru að gera í skólanum og starfinu þar. Í rauninni leikin kynning á starfi skólans. Helga Lára sagði okkur betur frá þessu og leyfði okkur að heyra. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var svo Friðrik Sólnes, en hann er rafvirki og kennir rafvirkjun í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Við fengum hann til að segja okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Friðrik talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Fátækt fólk e. Tryggva Emilsson Svartfugl e. Gunnar Gunnarsson Heimsljós e. Halldór Laxness Kæri fáviti e. Virginie Despentes A Confederacy of Dunces e. John Kennedy Toole 2666 e. Roberto Bolaño Tónlistin í þættinum: Betri tíð / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Þórður Árnason) Way Home / Blood Harmony (Örn Eldjárn Kristjánsson) Landsímalína / Spilverk þjóðanna (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
-
Eva Ruza föstudagsgestur og húsráð og brauð í ofni í matarspjallinu 08.05.2026 55นาทีEva Ruža Miljević er föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Eva er þekkt útvarpskona, sjónvarpskona, skemmtikraftur, stjörnufréttakona hjá K100, velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna á Íslandi og áhrifavaldur. Og ef allt þetta er ekki nóg þá er hún líka í veitingabransanum, en hú rekur ásamt eiginmannisínum Svarta kaffi. Við ferðuðumt með Evu aftur í tímann, til Króatíu, en faðir hennar er þaðan, svo í gegnum æskuárin þar sem kom fljótt í ljós að hún ætlaði sér að verða fræg og hafði snemma mikið sjálfstraust í því að koma fram. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag héldum við áfram að skoða Eldhúsbókina gömlu og góðu, húsráð frá 1971 og fleira. Í framhaldi af því rifjuðum við upp þegar við vorum yngri og settum til dæmis brauð með skinku osti og tómatsósu í ofninn. Nostalgía og brauð í ofninn í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Fallegur dagur / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Lucky / Britney Spears (Max Martin, Rami Yacoub & Alexander Kronlund) Finesse / Bruno Mars (Bruno Mars, James Fauntleroy, Philip Lawrence, Brody Brown, Jeremy Reeves, Jonathan Yip, Ray Charles McCullough II & Ray Romulus) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
-
Undirskriftarlisti gegn brottfararstöð, hæglætisstefna í leikskólum og Jónatan um Önnu Vilhjálms 07.05.2026 53นาทีFrumvarp dómsmálaráðherra um brottfarastöð hefur hlotið gagnrýni, meðal annars vegna heimildar til að vista þar börn. Umboðsmaður barna segir frumvarpið vera andstætt Barnasáttmálanum og brjóta gegn réttindum barna. Yfir tvö þúsund manns hafa skrifað nöfn sín á undirskriftarlista á Ísland.is til að mótmæla þessu frumvarpi. Í gær bárust fréttir af breytingartillögu á frumvarpinu og mátti skilja á fréttum að börn yrðu ekki vistuð á brottfararstöðinni, en Alma Mjöll Ólafsdóttir, sem kom í þáttinn í dag, segir að það líti samt út fyrir að ekki sé næg breyting, það sé aðeins verið að færa til úrræðið fyrir börn, en að það muni vera frelsissvipting engu að síður. Alma sagði okkur frá þessu í dag, en hún er ábyrgðarmaður undirskriftarlistans. Á ráðstefnunni Að finna taktinn koma saman bæði alþjóðlegir fræðimenn og starfandi leikskólakennarar til að varpa ljósi á hæglæti í leikskólastarfi frá ólíkum sjónarhornum. Meðal fyrirlesara eru íslenskir leikskólakennarar sem segja frá eigin reynslu af þróunarverkefninu Stilla, þar sem hæglæti hefur verið innleitt í daglegt starf fjögurra leikskóla. Niðurstöðurnar sýna meðal annars að þegar börn fá meiri tíma og rými eykst sjálfstjórn þeirra, félagsfærni og sköpun og leikur þeirra verður dýpri og merkingarbærari. Anna Lilja Sævarsdóttir, leikskólastjóri á Iðavöllum Akureyri og Agnes Gústavsdóttir, leikskólastjóri Aðalþings í Kópavogi komu í þáttinn í dag. Jónatan Garðarson, okkar gamli samstarfsfélagi, ætlar að koma til okkar næstu fimmtudaga og fræða okkur um íslenskt tónlistarlíf, hljómsveitir, lög, tónlistarfólk og fleira. Það eru ekki margir sem vita meira um íslenska tónlist en Jónatan og því mikil forréttindi að fá að ausa úr hans viskubrunni hér í Mannlega þættinum. Hann byrjaði í dag á því að segja okkur frá Önnu Vilhjálms, það eru ekki til mörg lög hljóðrituð með henni, en Jónatan mun fræddi okkur um hana og hennar feril í dag. Tónlistin í dag: Á berjamó / Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir (Gunnar Þórðarsson, texti Stefán Jónsson) Jamaica Farewell / Harry Belafonte (Irving Burgie og Burgess) Ég bíð við bláan sæ / Anna Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson (Phil Spector, texti Jón Sigurðsson) Fráskilin að vestan / Anna Vilhjálms (Kolbrún Hjartardóttir og Linda Björk) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
ยอดนิยมใน
พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย