Þjóðmál

Þjóðmál

Þjóðmál
ประเทศ ไอซ์แลนด์
ภาษา IS
จำนวนตอน 426
ล่าสุด 22.09.2026

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

ตอน

  • #460 – Kaffispjall með Gunnar Baldvins – Mikið unnið með fjárhagslegu sjálfstæði 22.09.2026 43นาที
    Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, mætir í gott spjall um nýútkomna og endurbætta útgáfu af bók sinni, Farsæl skref í fjármálum. Bókin, sem er lokahuti í þriggja bóka röð ætlaðri til að efla fjármálalæsi, hefur stækkað umtalsvert og geymir hagnýt tæki og tól fyrir daglega fjármálastjórn og stærri ákvarðanir á lífsleiðinni. Rætt er um kosti og galla verðtryggðra og óverðtryggðra lána við mismunandi vaxtastig, um sparnað og fjárfestingar, raunhæf dæmi um fasteignakaup ungs fólks og margt fleira.
  • #459 – Helgarvaktin með Árna Helga og Lilju Alfreðs – Vindurinn virkjaður, í logni 18.09.2026 1ชม. 51นาที
    Árni Helgason og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mæta í líflegt og beinskeytt samtal um stóru málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um vindorkuverk sem var ræst í blankalogni, pirraðan fjármálaráðherra og óraunhæf markmið í fjárlögum, hvernig ríkisstjórnin ýtir því verkefni á undan sér að takast á við háa verðbólgu, tillögur um jöfnun atkvæðavægis og hvaða þingmenn eiga sæti sín undir því, bílaleigur sem eru að fá Skattinn í bakið eftir að hafa farið að ráðum Skattsins, áhrif gervigreindar á hagkerfið og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar.
  • #458 – Kaffispjall með Óla Birni – Hamrað á grunnhugmyndum hægri manna 15.09.2026 1ชม. 26นาที
    Óli Björn Kárason ræðir um helstu hugmyndir hægri manna um frjálsan markað, minni ríkisafskipti og öflugt einkaframtak í kjölfar útgáfu á nýrri bók sinni, Villigötur valdsins. Í þættinum er meðal annars rætt um það hvort að ríkisvaldið sé að seilast of langt inn í einkalíf og atvinnulíf landsmanna, hvort að stjórnlyndi sé að verða nýtt norm, um það hvernig ríkið beitir sköttum til að hafa áhrif á hegðun fólks, um afskipti hins opinbera af fjölmiðlum og margt fleira. Hér er um að ræða aðgengilegt samtal fyrir alla sem vilja dýpri skilning á samfélagsmálum, efnahagslífinu og frelsisbaráttunni á Íslandi í dag.
  • #457 – Helgarvaktin með Ásdísi Kristjáns og Herði – Það þarf alvöru verkfæri ef það á að laga eitthvað 11.09.2026 1ชม. 32นาที
    Ásdís Kristjánsdóttir og Hörður Ægisson ræða fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, boðaðar skattahækkanir, leikþáttinn við kynningu frumvarpsins, líkurnar á því að rekstur ríkissjóðs komist yfir núllið og falleinkunn markaðarins yfir frumvarpinu með vaxandi verðbólguvæntingum. Einnig er rýnt í stjórnmálin og stefnuræðu forsætisráðherra og mögulega hefndarför utanríkisráðherra, íslenska hlutabréfamarkaðinn og skort á einkafjárfestum, stórfjárfestingar í tækni og gervigreind erlendis og efnahagsáhyggjur í borgarpólitíkinni. Þá eru fastir liðir á sínum stað, hraðaspurningar, hrós vikunnar auk þess sem viðmælendur reima á sig skóna og stíga á svið.
  • #456 – Kaffispjall með Sigurði Má – Farið yfir sviðið í evrópskum stjórnmálum 08.09.2026 1ชม. 13นาที
    Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um pólitíska stöðu og horfur innan ríkja í Evrópu. Við rýnum í þróunina í Þýskalandi og Frakklandi - tveimur áhrifamestu ríkjum innan ESB - og hvernig innri krísur í þessum lykilríkjum hafa áhrif á stöðu sambandsins allt í heild sinni. Sérstaklega er sjónum beint að nýlegum kosningasigrum AfD í Þýskalandi og vaxandi fylgi stjórnmálaflokka víðs vegar um álfuna sem eru langeygðir eða efagjarnir á frekari samruna innan ESB. Þá er ræddur vaxandi og djúpstæður ágreiningur á milli aðildarríkja þegar kemur að útlendingamálum, landamæravörslu og menningarmálum, breyttan pólitískan veruleika, andstöðu við frekari miðstýringu og minnkandi samkeppnishæfni og aðra þætti sem reyna sífellt meira á þolrif álfunnar.
  • #455 – Helgvarvaktin með Heiðari Guðjóns og Sigríði Andersen – Raunveruleikinn bankar á dyrnar 04.09.2026 1ชม. 36นาที
    Heiðar Guðjónsson og Sigríður Á. Andersen mæta á helgarvaktina og fara yfir eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðild að ESB, kröfur um rannsóknir á úrslitunum, viðbrögð þeirra sem lutu í lægra haldi, starfsemi Rúv í aðdraganda kosningarinnar og fleira. Þá er rætt um mögulega skuldakreppu í Frakklandi og skuldasöfnun annarra ríkja, stöðu hagkerfisins hér á landi sem glímir við verðbólgu, háa vexti og kjarasamninga sem kunna að vera í uppnámi, háa bankaskatta og áhrif þeirra, breytingar á fjölmiðlamarkaði og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, bókarýni, hrós vikunnar og hraðaspurningar.
  • #454 – Miðnæturspjall með Stefáni Einari og Andrési – Jáið er dáið, næsta mál 31.08.2026 2ชม. 2นาที
    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson rýna í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu, ósigur ríkisstjórnarinnar í málinu, stöðu einstakra ráðherra að lokinni, hvað lesa skuli i mikla kjörsókn, hvernig kosningabaráttan fór fram og fleira sem snýr að þessu máli sem lagðist eins og mara yfir þjóðfélagið í sumar. Þá ræðum við um þær áskoranir sem eru framundan, bæði á vettvangi stjórnmála og í hagkerfinu og margt fleira.
  • #453 – Helgarvaktin með Þórði Páls og Orra Hauks – Þetta er alveg að verða búið 28.08.2026 1ชม. 46นาที
    Þórður Pálsson, efnahagsráðgjafi Þjóðmála, og Orri Hauksson mæta í líflegan þátt þar sem efnahagsmálin og stjórnmálin eru í brennidepli. Þeir rýna í nýja könnun Viðskiptablaðsins, þar sem yfirgnæfandi meirihluti telur ríkisstjórnina standa sig illa í efnahagsmálum, ásamt því að leggja mat á þróun væntingavísitölunnar, Evrópusambandsleiðangur ríkisstjórnarinnar, flótta utanríkisráðherra undan alvöru viðtölum, hreyfingar í veðbönkum, skattalækkanir hægri manna í sveitastjórnum og skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og margt fleira. Loks eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.
  • #452 – Kaffispjall með Stefáni Einari og Þórði – ESB mun vilja hagnaðinn af Landsvirkjun 25.08.2026 1ชม.
    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson mæta í líflegt samtal þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan um aðild að Evrópusambandinu og orkumálin eru í brennidepli. Við rifjum upp vel heppnað bjórkvöld Þjóðmála á Selfossi, fjöllum um eftirvæntinguna fyrir Þjóðfundi Þjóðmála á föstudaginn kemur, rýnum í Epic-stuðlana, beinum sjónum okkar að einkaviðtali Rúv við utanríkisráðherra nokkrum dögum fyrir kosningar og ósvöruðum spurningum um sjávarútvegsmál. Þá er rætt um grein Þórðar í Morgunblaðinu í morgun og þá staðreynd að orkumál hafa gleymst í umræðunni þó svo að vitað sé að ESB mun sækjast eftir íslenskri orku.
  • #451 – Maraþonþáttur IV – Epic útgáfa 21.08.2026 4ชม. 36นาที
    Fjórði maraþonþáttur Þjóðmála er mættur á allar helstu veitur og á Youtube. Gestir þáttarins eru Hörður Ægisson, Lárus Welding, Björt Ólafsdóttir, Örn Arnarson, Konráð S. Guðjónsson, Arnar Þór Stefánsson, Andrés Magnússon, Vilhjálmur Birgisson, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Andrea Sigurðardóttir, Þórður heitinn Gunnarsson, Bjarni Benediktsson, Einar Sigurðsson, Stefán Einar Stefánsson, Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir. Hér er um 4,5 klst. skemmtun fyrir alla þjóðina.
  • #450 – Kaffispjall á Te & kaffi með Alberti Jónssyni 19.08.2026 1ชม. 8นาที
    Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, ræðir um utanríkismál og mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu í sérstökum aukaþætti Þjóðmála. Albert færir rök fyrir því að sérstaða Íslands útiloki í reynd aðild án þess að gengið sé á grundvallarhagsmuni þjóðarinnar. Í spjallinu er rýnt í þá óvissu sem fylgir því að hefja viðræður án skýrra markmiða, við ræðum um reynsla Norðmanna af sambærilegu ferli og greint er á milli varanlegra og tímabundinna undanþága. Albert útskýrir hvers vegna ESB mun vart gefa eftir í grundvallarreglum um ýmis atriði sem snúa að Íslandi auk þess sem rætt er um hvernig hátt hlutfall endurnýjanlegrar orku hér á landi skapar árekstra við loftslagsstefnu sambandsins. Þá er litið til sögulegs sjálfstæðis í átakamálum auk þess sem rætt er um það sem sumir vilja kalla „breytta heimsmynd“ og hvort að hún kalli á afdrifaríkar ákvarðanir af hálfu Íslands.
  • #449 – Kaffispjall með Trausta Hjálmarssyni – Bændur eru búnir að kíkja í pakkann 18.08.2026 57นาที
    Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, mætir í efnismikið og upplýsandi spjall um stöðu og framtíð íslensks landbúnaðar. Trausti rýnir í nýútkomna skýrslu um afleiðingar mögulegrar ESB-aðildar Ísland og litlar væntingar til þess að Ísland fái undanþágur frá sameiginlegu landbúnaðarstefnu sambandsins. Hann svarar jafnframt gagnrýnisröddum sem telja samtökin teikna upp hræðslumynd auk þess að ræða hvort aðgangur að Evrópumarkaði gagnist íslenskum bændum í raun. Þá ræðir Trausti einnig um tækifærin í íslenskum landbúnaði, þá framþróun sem hefur átt sér stað og hverju búast megi við í framtíðinni, mikil vægi fæðuöryggis, kynslóðaskipti og nýliðun í greininni og margt fleira.
  • #448 – Helgarvaktin með Snorra Mássyni og Diljá Mist – Þjóðmál boða til þjóðfundar 14.08.2026 2ชม. 20นาที
    Snorri Másson og Diljá Mist Einarsdóttir mæta í líflegt spjall um heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um komandi viðburði Þjóðmála á Selfossi og í Háskólabíói, rýnt er í væntanlega stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og svartsýna spá AGS um að hallalaus fjárlög verði ekki að veruleika fyrr en árið 2031 — sem stangast á við bjartsýni forsætisráðherra um að hlutirnir stefni í rétta átt. Þá er rætt um ESB-atkvæðagreiðsluna, viðhorf ungs fólks til ESB, örvæntingu þeirra sem vilja ganga í ESB og fleira í þeim dúr. Loks eru fastir liðir á sínum stað; Hrós vikunnar, hraðaspurningar, bókameðmæli og nýr liður þar sem viðmælendur velja sér þjóðarleiðtoga til að taka með í frí. Við minnum síðan á miðasöluna á Þjóðfund Þjóðmála inn á Tix.
  • #447 – Kaffispjall með Eddu Hermanns 11.08.2026 52นาที
    Edda Hermannsdóttir, forstjóri Apótekarans, fer yfir stóru stefnubreytinguna og endurmörkunina úr Lyf og heilsu yfir í Apótekarann, stafræna vegferð og hvernig ásýnd apóteka er að breytast í takt við erlenda strauma. Við ræðum líka krefjandi rekstrarumhverfi íslenskra apóteka. Edda ræðir jafnframt áhrif þess þegar ríkið stýrir álagningu á meðan launakostnaður hækkar, hvers vegna ný líftæknilyf breyta framlegðinni, hvernig séríslenskar mönnunarkröfur reyna á rekstur um allt land, jafnvægislistina á milli samfélagslega mikilvægrar heilbrigðisþjónustu og sjálfbærs atvinnurekstrar og margt fleira.
  • #446 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Er skaðinn skeður? 07.08.2026 1ชม. 38นาที
    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin í skugga þess að almyrkvi á sól er framundan. Strákarnir rifja upp vel heppnað golfmót Þjóðmála sem fram fór í gær og bjórkvöld Þjóðmála um hábjartan dag í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Þá er rætt um sjálfsmörk þeirra sem telja að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið, villandi málflutning um tengingu sænsku krónunnar við evru, framleiðslu Rúv á efni fyrir Já til að sjá hreyfinguna, nýjar fylgismælingar og stöðuna í veðbönkum, vandræðalega aðdáun yfirmanns Maskínu á utanríkisráðherra og fleira. Við veltum því líka upp hvort að nú þegar sé búið að skaða samfélagið með því hvernig fulltrúar Viðreisnar og Samfylkingar hafa talað um atvinnulífið, hagkerfið, gjaldmiðilinn og fleira. Loks eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.
  • #445 – Brekkusöngurinn með Heiðari Guðjóns og Agnari Möller – Hægri menn eiga alltaf að vera bjartsýnir 30.07.2026 1ชม. 38นาที
    Heiðar Guðjónsson og Agnar Tómas Möller mæta í léttan en efnismikinn þátt fyrir verslunarmannahelgina. Við ræðum allt milli himins og jarðar, í bókstaflegri merkingu. Rætt er um komandi almyrkva og þar er átt við alvöru almyrkva en ekki hagkerfið sem núverandi ríkisstjórn ræður ekki við að stýra – þó það sé rætt að einhverju leyti líka. Við ræðum um það hvort að hægt sé að miðast við pylsuvísitöluna, um takmarkað fjármálalæsi þingmanns Samfylkingarinnar, sögu peninga og framtíð íslensku krónunnar, vaxandi verndarstefnu í alþjóðaviðskiptum, skatta og stærð ríkisvaldsins og margt fleira. Þá förum við yfir fasta liði, s.s. hrós vikunnar, útilegupælingar og hraðaspurningar þar sem meðal annars er spurt um bekkpressumet, olíuleit og bestu viðskiptaráðin.
  • #444 – Kaffispjall með Adda í Gunnbjarnarholti 28.07.2026 54นาที
    Þórður Gunnarsson ræðir við Arnar Bjarna Eiríksson, bónda og athafnaskáld í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Arnar Bjarni varpar ljósi á áskoranir og tækifæri í íslenskum landbúnaði og deilir sýn sinni á nýsköpun í landbúnaði og rekstur hans auk mikilvægi þess íslenskar sveitir haldist í byggð. Rætt er um mögulegt aðlögunarferli að Evrópusambandinu og áhrif þess á íslenskan landbúnað, hver áhrifin af inngöngu í Evrópusambandið yrðu á hann, staðreyndir um áhrif innlendra matvæla á verðlag á Íslandi og margt fleira.
  • #443 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Erni Arnarsyni – Treystum þjóðinni, en samt ekki 24.07.2026 1ชม. 58นาที
    Sigríður Á. Andersen og Örn Arnarson fara yfir í heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Fjallað er um vandræði Þorgerðar Katrínar og upplýsingaóreiðu síðustu vikna, leyndarhyggjuna sem ríkir um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, meintar undanþágur hvað varðar losunarkvóta og skattahækkanir í gegnum regluverk sem þegar er byrjað að innleiða. Þá er fjallað um „verðlækkunarsumar“ ríkisstjórnarinnar sem virðist þó ekki slá á verðbólgu, fylgi flokkanna, peningahagfræði Dags B. Eggertssonar, arðgreiðslur ríkisfyrirtækja og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar, hraðaspurningar, útilegupælingar og fleira.
  • #442 – Kaffispjall með Láru Herborgu – Ekkert óvænt í pakkanum sem margir vilja skoða 21.07.2026 52นาที
    Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður flutti áhugavert ávarp á upphafsfundi Áfram Ísland fyrr í þessum mánuði. Þar fjallaði hún meðal annars um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu út frá sjónarhorni lögfræðinnar og íslensku stjórnarfari. Í þætti Þjóðmála útskýrir hún nánar innihald ávarpsins og rökstyður vel á hvaða grunni hún byggir afstöðu sína gegn inngöngu Íslands í sambandið. Þá varpar hún ljósi á mikilvægi þess að halda ákvörðunarvaldinu heima, hvort raunhæft sé að fá varanlegar undanþágur fyrir sjávarútveg og landbúnað, hvað aðildarferlið hefur í för með sér fyrir venjulegan borgara, hvaða áhrif þetta ferli kann að hafa á samkeppnishæfni landsins og margt fleira.
  • #441 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Mjólk er góð (og ódýr) 17.07.2026 1ชม. 49นาที
    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða stóra „mjólkurmálið“ og 60% reikningsskekkju varaborgarfulltrúa Viðreisnar, auk þess sem rýnt er í viðbrögð Þorgerðar Katrínar við fréttaflutningi af umræðum í hollenska þinginu. Við ræðum einnig um þau áhrif sem starfsmenn þingflokks Samfylkingar telja sig geta haft á löggjöf ESB með færslum á samfélagmiðlum, hvernig Epic stuðullinn er að þróast í aðdraganda kosninga, mikilvægi þess að ráða fyrir eigin auðlindum og margt fleira. Þá eru fastir liðir einnig á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, útilegupælingar, hraðaspurningar og fleira.

ยอดนิยมใน

พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย