Lestin
RÚV
0
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
ตอน
-
Mónókúltúr og Svanasöngur Selinu 21.09.2026 56นาทีÁ undanförnum árum höfum við tekið eftir því að skortur er á menningarefni sem öll þjóðin sameinast um. Maður mætir ekki á kaffistofuna á þriðjudögum til að ræða nýjasta þáttinn af Lost, fjölskyldan safnast ekki saman á föstudögum til að horfa á Idol stjörnuleit eða Á tali með Hemma Gunn. Er menningin að glata möguleikanum á að sameina heiminn, sameina Íslendinga, sameina stóra hópa ólíks fólks? Er mónókúltúrinn dauður? Til þess að ræða þetta höfum við fengið til okkar þau Nínu Hjálmarsdóttur, lektor við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands, Ísabellu Lenu Borgarsdóttur (bellamix69), plötusnúð, og Gísla Martein Baldursson, umsjónarmann Vikunnar. Í spilara RÚV er nú að finna skandinavíska þáttaröð sem slegið hefur í gegn í Skandinavíu. Upp úr aldamótum hóf utangarðs-unglingur Í Norður-Noregi, Selina, að blogga. Áður en hún vissi af hafði hún öðlast landsfrægð og var orðin að umdeildum áhrifavaldi. Fylgst er með Selinu Rekviem for Selina, eða Svanasöngur Selinu er umfjöllunarefni Brynju Hjálmsdóttu, sjónvarpsgagnrýnanda að þessu sinni. -
Sheeran í klípu, heimsendi frestað, Fuglar (og menn), No Rest for the Wicked 17.09.2026 54นาทีStormur hefur geysað í kring um Ed Sheeran á dögunum eftir að rapparanum Macklemore var sparkað út úr tónleikaferðalagi þar sem hann átti að hita upp fyrir Sheeran. Netheimar hafa logað síðan og nýjar vendingar virðast verða í málinu á hverjum degi. Við förum yfir atburðarásina og veltum fyrir okkur tjáningarfrelsinu, völdum milljarðamæringa og hvort tími hinna ópólitísku poppara sé liðinn. Rómantíski hryllingurinn No Rest for the Wicked gerist í færeyjum 1862 og fjallar um ástir sjómanns frá eyjunum og Dana. Þetta er ein stærsta og metnaðarfyllsta færeyska kvikmyndaframleiðslan til þessa, unnin í samstarfi Færeyinga, Dana og Íslendinga. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina og einnig heimildarmyndina Fuglar og menn en myndin er tekin upp í loðmundarfirði, en á hverju ári í þrjá mánuði safnast í þeim afskekkta firði tólf þúsund fuglar og fimm manneskjur. Forstjórar nokkurra helstu gervigreindarfyrirtækja heims hafa kallað eftir sameinuðu átaki í að hægja á þróun gervigreindar til að tryggja öryggi mannkyns. Fréttir af gervigreindarmódelum sem láta ekki af stjórn hafa vakið athygli, og innanbúðarmenn sem hafa spáð því að 10% líkur séu á að gervigreind muni ganga að mannkyninu dauðu innan áratugar. Við berum þessa spádóma undir Kristinn R. Þórisson prófessor við Háskólann í Reykjavík og stofnanda Vitvélastofnunar íslands. -
Draumaríngl og kuðungar 16.09.2026 55นาทีDraumaríngl er samsýning 14 listamanna sem haldin er á Gljúfrasteini og stendur til 31. október 2026. Sýningin er leikur milli listforma og listaverka, samtal við Halldór og Auði; samtal við skáldverkin, lífið og listaverkin sem þau hjónin sköpuðu. Auður Lóa Guðnadóttir og Berglind Erna Tryggvadóttir eru sýningarstjórar en sú síðarnefnda fór með Lestina í leiðsögn. Í byrjun mánaðarins kom út 8 laga tilraunarafpoppplatan Kuðungur, frumraun tónlistarkonunnar Unu Mistar Óðinsdóttur. Við gerð plötunnar notast hún meðal annars við sérsmíðað hljóðfæri þar sem hún notast við kuðunga og skeljar til að stjórna rafhljóðum. Við ræðum við Unu Mist. Og við ræðum um nýjustu sjónvarpsveituna í streymishlaðborði Íslendinga, Apple TV. -
NAZA, töframáttur matarins, verslunin 114, Rómönsk-amerísk kvikmyndahátíð 15.09.2026 56นาทีMenning fólks frá rómönsku Ameríku er að verða stöðugt meira áberandi í Reykjavík, það eru æ fleiri veitingastaðir sem bjóða upp á mat frá álfunni, tónlistarviðburðir og danspartý. Og nú í dag hefst í fjórða sinn rómansk Ameríska kvikmyndahátíðin í Bíó Paradís. Það eru fimm myndir sýndar frá fimm löndum en allar eftir konur. Við fáum til okkar skipuleggjendur hátíðarinnar, þau Hugo Llanes og Taniu Zarak. Í gamla húsi Tryggingarmiðstöðvarinnar á Laugavegi 114 hefur verið opnuð ný listamannarekin verslun sem heitir 114, eftir húsnúmerinu. Það sem gerir búðina sérstaka er að vörurnar sem þar eru til sölu eru mestmegnis framleiddar á staðnum og gestir geta jafnvel fylgst með handverksfólki skapa þær í rýminu, allt frá fatnaði og fylgihlutum til ilmvatna. Húsið er núna, eins og margir þekkja, kallað Hlemmur Haus og er undirlagt af alls kyns skapandi einstaklingum. Bræðurnir Rik og Ross McNair stofnuðu verslunina en þeir vinna einnig í húsinu undir nafninu Endurtakk. Verslunin þjónar þeim tilgangi að vera sá hluti þessa skapandi samfélags sem opnast út á götuna og býður fólki inn. Við spjöllum við Maddý Hauth, framkvæmdastýru Hlemms Haus um búðina. Svo er það matur. Í síðustu viku fjallaði Björn Teitsson um sjónvarpsmanninn og rokkstjörnukokkinn Anthony Bourdain. Og hann ætlar að halda áfram að pæla í matarmenningunni út frá hugðarefnum Bourdain - það hvernig matur tengir fólk, En nú veltir hann því fyrir sér hvar og hvernig við verslum í matinn í samtímanum. Kaupmaðurinn á horninu og heimsending, kemur við sögu. Og svo heyrum við um Ísraelsku heimildarmyndina NAZA sem hefur vakið hörð viðbrögð í heimalandinu. -
Hið slor-móderníska ástand og menningarhátíðin Ulga/Fró 14.09.2026 55นาทีNú á dögum fer fram pólsk menningar- og listahátíð víða um borgina. Hátíðin ber nafnið Ulga, eða fró, og er markmiðið að skapa rými fyrir fólk til að koma saman, nærast og njóta menningar á afslappaðan hátt. Á meðal þess sem er um að vera er hljóðganga um Sorpu og matarlist með einföldi i-i. Lestin settist niður með skipuleggjendum hátíðarinnar, þeim Ignacy Rybka, Katarzynu Strojnowsku og Weroniku Adamowsku á Bókasafni Kópavogs til að forvitnast um málið. Gervigreindarsmíðuð mynd sem lögreglan hefur prentað á límmiða og dreift til íslenskra skólabarna thefur vakið umtal í dag. Tveir brosandi lögregluþjónar og krúttlegur skógarbjörn í teiknimyndastíl öll merkt “Lógreglan.” Svona ódýrar og metnaðarlausar gervgreindarmyndir er það sem á ensku er kallað AI Slop en íslenska þýðingin gervigreindarslor er að ná nokkurri útbreiðslu. Við pælum í hinu slor-móderníska ástandi í þætti dagsins. Og ræðum í kjölfarið við Adam Flint grafískan hönnuð og lektor við listaháskóla Íslands um notkun gervigreindarmynda í pólitískri umræðu, slopaganda, sem er að verða sífellt algengara. Hvernig notar Trump gervigreindina og hvernig birtist hún á samfélagsmiðlum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB? -
Hangið í Bókinni, Hvar er draumurinn?, Misþyrming og Nergal, Um tímann og vatnið 10.09.2026 58นาทีMargir þekkja hina ævintýralegu fornbókaverslun Bókina, sem stendur á horni Klapparstígs og Hverfisgötu. Lestin heimsótti ræddi við eigandann, Ara Gísla Bragason, um breytingar sem hafa nýlega orðið á búðinni, bókakostinn og ferðamennina sem sækja mikið í búðina. Þá ræddum við einnig við gesti og gangandi og tókum púlsinn á stemningunni í þessari miðbæjarperlu. Þessa dagana er hægt að sjá tvær nýjar en mjög ólíkar íslenskar myndir í kvikmyndahúsum - önnur er heimildarmynd um jökla og tengingar milli kynslóða, en hin er söngvamynd byggð á lögum Sálarinnar hans Jóns míns. Kolbeinn Rastrick rýnir í báðar myndirnar, Um tímann og vatnið og Hvar er draumurinn? Íslenska svartmálmshljómsveitin Misþyrming hefur undanfarna mánuði ferðast milli tónlistarhátíða og leikið með einni stærstu stjörnu öfgarokkheimsins undanfarna áratugi, hinum pólska Nergal söngvara hljómsveitarinnar Behemoth. Saman hafa þeir leikið þrjátíu ára gamla plötu í heild sinni. Við fáum til okkar Dag Gíslason, forsprakka Misþyrmingar og ræðum um Sventevith. -
Ímyndunarafl Bergs Ebba 09.09.2026 54นาทีÖld ímyndunaraflsins nefnist ný bók eftir Berg Ebba Benediktsson, rithöfund og fyrirlesara - sem vill ekki láta kalla sig framtíðarfræðing. Í bókinni skorar hann samtímann á hólm og veltir fyrir sér stöðu mennskunnar á tímum gervigreindar. Fríða og Kristján spjalla við Berg um gervigreind, bækur, líkamleika og kapítalisma. -
Samfélag ólæsra, Anthony Bourdain og Tilboð mánaðarins 08.09.2026 54นาทีÞað er alþjóðlegur dagur læsis. Læsi er í þó nokkurri útrýmingarhættu en bara rétt rúmlega helmingur íslenskra unglinga býr yfir grunnhæfni í lesskilningi. Við veltum fyrir okkur hvers konar samfélag tekur við þegar lestur og bækur hætta að skipta máli, það sem á ensku er kallað post-literate samfélag. Anna María Tómasdóttir og Gígja Hilmarsdóttir hafa skapað öðruvísi leikhúsupplifun í Tjarnarbíói undir yfirskriftinni Tilboð mánaðarins. Í stað hefðbundinna uppsetninga er hér á ferðinni leiklestur og miðinn kostar bara 2000 krónur. Í kvöld mun Hjörtur Jóhann Jónsson, leikari, lesa fyrsta verk Tyrfings Tyrfingssonar, Grande. Næstu vikur ætlum verður matargerðarlist í Lestinni á þriðjudögum. Björn Teitsson ætlar að flytja okkur pistlaröð um matarmenningu, hvernig við njótum og neytum matar og matartengds menningarefnis í samtímanum. Í fyrsta pistlinum fjallar hann um kokkinn og sjónvarpsmanninn Anthony Bourdain heitinn, sem var mikil rokkstjarna meðal matarperra. Nýlega kom út kvikmyndin Tony sem byggir á ævi hans og endurminningum. -
Stórt svart núll, óhlýðin gervigreind og Furious 07.09.2026 54นาทีÍ þætti dagsins fjöllum við um leikræna tilburði stjórnmálafólks. Á Íslandi hafa pólitíkusar framið alls kyns gjörninga til að vekja athygli á þeim málum sem þeir vilja koma á dagskrá. Við förum yfir nokkra slíka og veltum fyrir okkur hvað stóra núll Kristrúnar Frostadóttur merkir í því samhengi. Eftir alvarlegt atvik í júlí óttast nú margir að mannkynið geti ekki haft stjórn á gervigreindinni sem það er að þróa. Meira en 1200 gervigreindar-agentar frá OpenAI sem voru í prófunum fundu leiðir til að eiga í samskiptum sín á milli, hópurinn skipulagði sig, laumaðist út af afmörkuðu æfingasvæði sínu, og hakkaði og gerði óskunda hjá hugbúnaðarsíðunni Hugging Face. Við ræðum málið við Tryggva Frey Elínarson hjá Datera. Brynja Hjálmsdóttir kemur við og segir frá þáttaröðinni Furious. Um er að ræða lögguþætti sem gætu þó höfðað til þeirra sem hafa ekki gaman af lögguþáttum alla jafna. -
Sigvaldi, strumpar og Mos Def 03.09.2026 55นาทีHið Íslenska bókmenntafélag gaf nýlega út glæsilegt yfirlitsrit yfir verk Sigvalda Thordarson arkitekt. Albína Thordarson, arkitekt og dóttir Sigvalda, skrifaði bókina eftir að hafa safnað upplýsingum um verk föður síns um árabil en Pétur H. Ármannsson ritar aðfararorð og kafla um mótunarár arkitektsins. Líkt og flestar bækur um arkítektúr inniheldur hún mikinn fjölda teikninga og ljósmynda en þar er líka farið yfir ævi Sigvalda, sem fæddist árið 1911 en varð aðeins 52 ára gamall. Albína segir okkur frá bókinni og ræðir einnig arkítektúr nútímans. Bandaríski rappparinn Yasin Bey, sem er þó betur þekktur sem Mos Def, er á leiðinni til Íslands þar sem hann leikur á tónleikum í næstu viku. Mos Def sló fyrst í gegn um miðjan tíunda áratuginn, en nýtur mikillar virðingar í hip-hop heiminum. Davíð Roach ætlar að rifja upp feril kappans, en nýtilkomið flóð amerískra gullaldarrappara til landsins kveikir þó einnig tilvistarlegar pælingar um tímann og aldurinn. Og við ætlum líka að heyra um 30 ára gamlan geisladisk, Strumpastuð, sem var einn sá allra vinsælasti á íslandi árið 1996 og er loksins komin á Spotify. Jónatan Garðarson gaf diskinn út á sínum tíma og greinir frá tilurð hans. -
Maríuklefi Eiríks Guðmunds og geðleikhús 02.09.2026 54นาทีÁ morgun kemur út skáldsagan Maríuklefinn, eftir Eirík Guðmundsonn rithöfund og útvarpsmann, en fullfrágengið handrit af bókinni fannst í fórum Eiríks eftir að hann lést árið 2022. Þetta er bréfaskáldsaga þar sem bréfritari í Lissabon skrifar til ástarinnar sinar Maríu, hann skrifar um allt sem sækir á hugann, leiftur úr bókmenntum og mannkynssögunni og það sem verður á vegi ferðalangs á framandi slóðum. Í tilefni af útgáfunni verður haldið málþing í Eddu á morgun þar sem vinir og fræðimenn varpa ljósi á feril Eiríks sem skáldsagnahöfundar, dagskrárgerðarmanns í útvarpi og fræðimanns. Við ræðum þetta við Jón Kalman Stefánsson rithöfund. Jacob Levy Moreno lagði grunninn að leikrænni geðmeðferð, sýkódrama, á fyrri hluta síðustu aldar en hann var frumkvöðull á sviði hópmeðferða í geðlækningum. Trausti Ólafsson, leikhúsfræðingur tók diplómapróf í sýkódrama í Bretlandi árið 2003 og hefur reglulega síðan leitt hópa í geðleikhúsi. Nú hefur hann skrifað bókina Geðleikhús Moreno - Lifandi skáldskapur í rými, þar sem hann fer yfir hugmyndafræði geðleikhússins og hvernig slíkar vinnulotur eru settar upp. Við ræðum við Trausta á heimili hans í Kópavogi. -
Morðingi Tupac sakfelldur, Um tímann og vatnið, ljóstillífunarlist 01.09.2026 56นาทีRétt tæpum 30 árum eftir að rappstjarnan Tupac Shakur var myrtur í Las Vegas hefur sá sem fyrirskipaði morðið loksins verið sakfelldur. Heimildarmyndin Um tímann og vatnið var frumsýnd hér á landi fyrir helgi. Myndin byggir á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar frá árinu 2019. Myndin notast við gríðarlegt magn af heimamyndböndum frá Andra, mömmu hans og afa, til að velta fyrir sér framgangi tímans og bráðnun jökla vegna loftslagsbreytinga. Við spjöllum við Andra Snæ og leisktjóra myndarinnar, hina óskarstilnefndu, Söru Rosa. Við kíkjum svo aftur á Hamraborg festival sem nú fer fram í Kópavogi. Í gær sagði Silfrún Una okkur frá bílagjörningi sínum en í dag mun hönnuðurinn Tomas Pausz segja frá lifandi tæknilistaverki sem hann vann ásamt gagnasérfræðingnum Miguel Angel Crozzoli. -
Dauði sjónvarpsfréttanna, leitað að stæði 31.08.2026 57นาทีVið kynnum nýjan liðsmann í Lestinni. Fríða Þorkelsdóttir mun leysa Lóu af næstu vikurnar. Hún kíkti upp í Kópavog um helgina, en þar er mikið um að vera þessa dagana - Hamraborg Festival fer fram í sjötta sinn. Listakonan Silfrún Una Guðlaugsdóttir segir frá gjörningi sínum sem fram fór í bílakjallara í Hamraborginni en þar bauð hún upp á bíladans, tónlist, öskrandi hljólreiðafólk og labradora, meðal annars. Við veltum svo fyrir okkur stöðu fjölmiðla. Í kvöld fer í loftið síðasti kvöldfréttatími Sýnar - eða Stöðvar 2 eins og hún hét lengi. Það eru rétt tæp 40 ár frá því að stöðin hóf að sjónvarpa fréttum og hefur verið mikilvægur hluti af íslensku fjölmiðlalandslagi. En nú verður slökkt á myndavélunum, Hvað segir þetta um stöðu fjölmiðlunar og blaðamennsku á Íslandi í dag, geta hlaðvörp og vefmiðlar tekið keflinu og hvað þýðir þetta fyrir lýðræðið og samfélagslega umræðu í landinu. Við ræðum við Eyrúnu Magnúsdóttur og Eirík Hjálmarsson. -
Sænskir lögfræðihundar 27.08.2026 30นาทีViðfangsefni þáttarins er nýtt sænskt sjónvarpsdrama sem nefnist Hundarnir. Þættirnir sem hafa fengið glimrandi dóma og gríðarlegt áhorf í heimalandinu fjalla um starfsfólk á lögmannsstofunni Matsson og Moradi í Stokkhólmi sem sérhæfa sig í að verja harðsvíraða glæpamenn. Þarna er tekist á við gengjamenningu í svíþjóð þar sem ungmenni og börn eru notuð til voðaverka, þarna er tekist á við metoo, jafnvægi vinnu og einkalífs og meltingarvandræði. Við spjöllum við Vigdísi Häsler lögfræðing um þættina. -
Hver er fullvalda? 26.08.2026 27นาทีMyndu Íslendingar afsala sér fullveldinu með því að ganga í Evrópusambandið, eða er innganga einmitt besta leiðin til að tryggja raunverulegt fullveldi Íslands til framtíðar. Um þetta hafa verið skrifaðar ótal skoðanagreinar undanfarnar vikur í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við ESB. Í þætti dagsins ætlum við að reyna að skilja betur þetta hugtak, hvað það þýðir, og hvort að skilningur okkar á því hafi breyst frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki árið 1918. Við spjöllum við Guðmund Jónsson prófessor í sagnfræði. -
Grínáhrif Radíusbræðra 25.08.2026 27นาทีUm helgina bárust þær fréttir að leikarinn og grínistinn Steinn Ármann Magnússon væri látinn, 62 ára að aldri. Steinn Ármann er þekktur fyrir hlutverk í fjölmörgum sjónvarpsþáttum, kvikmyndum, leikritum og talsetningum - Kötturinn Keli í Stundinni Okkar, Sveppi í Veggfóðri, Siggi Sæti í Latabæ en hann vakti fyrst athygli sem annar hluti gríntvíeykisins Radíusbræður sem komu eins og stormsveipur inn í íslenskt grín á tíunda áratugnum. Jón Gnarr kíkir í heimsókn og við ræðum uppistand Radíusbræðra, óheflaðan húmor og grínseríuna Limbó sem var slaufað af RÚV eftir tvo þætti. -
Beef, Hver var sumarsmellurinn 2026? 24.08.2026 55นาทีÍ Lestinni í dag ætlum við að leita að sumasmellinum 2026. Var eitthvað eitt lag sem fangaði sumarið í ár eða er hinn brotakenndi samtími búinn að gera út af við stóra sameiginlega sumarsmellinn? Við fáum hóp tónlistargrúskara til að segja hvaða lag einkenndi sumarið hjá þeim og hvað gerir lag að góðu sumarlagi. Bellamix69, Óli Dóri, Margrét Erla Maack, Dóra Júlía, Una Schram og Einar Karl í Ólátagarði eru ráðgjafar Lestarinnar í dag. Við sökkvum okkur svo ofan í aðra seríu af rifrildisþáttunum Beef á Netflix. Nú fylgjumst við með erjum tveggja para sem starfa á ríkmannlegum golfvelli. Brynja Hjálmsdóttir segir frá. -
Næsta stríð Ásgeirs 20.08.2026 32นาทีÞað er 20. ágúst og í dag fagnar Lestin fimmtudagsafmæli góðvinar þáttarins, ljóðskáldsins og menningargagnrýnandans Ásgeirs H. Ingólfsson. Ásgeir lést eftir skammvinn veikindi í byrjun síðasta árs og hefur skilið eftir sig skarð í íslensku menningarlífi. Hann fjallaði reglulega um kvikmyndir og bækur í hina ýmsu prent- og vefmiðla, ekki síst á bloggsíðunni sinni Menningarsmygl. Hér á Rás 1 var hann verið með árlega pistla frá kvikmyndahátiðunum í Berlín og Karlovy Vary í Tékklandi - en þar í landi bjó hann undanfarinn áratug. En Ásgeir var einnig skáld og nú í tæka tíð fyrir afmælið er komin út þriðja ljóðabók Ásgeirs, Næsta stríð, og á morgun verður veisla, útgáfuhóf, bíósýning, ljóðakvöld til heiðurs honum í Bíó Paradís. Við ræðum um hugsjónir og list Ásgeirs H. Ingólfssonar við tvo vini hans Val Gunnarsson og Jón Bjarka Magnússon. -
Ódysseifskviða og Christopher Nolan 19.08.2026 26นาทีÍ Lestinni í dag miðvikudaginn 19. Ágúst ætlum við að hrekjast um miðjarðarhafið undir lok bronsaldar með sjálfum Ódysseifi. The Odyssey eftir bandaríska leikstjórann Christopher Nolan hefur notið mikilla vinsælda í kvikmyndahúsum í sumar. Myndin byggir á einu höfuðriti vestrænna bókmennta, Ódysseifskviðu sem eins og Illíónskviða er eignuð gríska skáldinu Hómeri - og hún var líklega rituð fyrir meira en 2700 árum en hafði áður varðveist í munnlegri geymd í einhverjar aldir. Við ræðum við Svavar Hrafn Svavarsson prófessor og sérfræðing í heimspeki fornaldar um það hvort Nolan nái að fanga kjarna Ódysseifskviðu. -
Sagan af Jason Arday 18.08.2026 32นาทีJason Arday átti sér ævintýralega sögu, sonur Ganískra innflytjenda í Bretlandi sem var á einhverfurófi, lærði ekki að tala fyrr en 11 ára og lesa 18 ára - en var orðinn yngsti svarti prófessor Cambridge háskóla fyrir fertugt. Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið fjallað ítarlega og stundum heiftúðlega í breskum fjölmiðlum um Arday en hann var sakaður um ritstuld og að hafa ýkt eða logið ýmsu um eigin ævi. Hann varð að skotspón í menningarstríðum Bretlands um kynþætti og háskólamenntun, einhver umtalaðasti og umdeildasti maður landsins. Um helgina bárust svo þær fréttir að hann væri látinn, hefði fallið fyrir eigin hendi. Við ræðum við Gauta Sigþórsson sem hefur starfað í rúma tvo áratugi í bresku háskólaumhverfi um Jason Arday.
ยอดนิยมใน
พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย