Heimsglugginn
RÚV
0
Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni í þessum hlaðvarpsþætti frá RÚV.
ตอน
-
Bismarck, fjárdráttur í Skotlandi, kosningabarátta í Svíþjóð, Íran og Bandaríkin 28.05.2026 23นาทีÍ Heimsglugganum heyrðum við í Burkard von Müllenheim-Rechberg sem var hæst settur þeirra sjóliðsforingja sem komust lífs af er orrustuskipinu Bismarck var sökkt 1941. Hann var fyrsti ræðismaður Vestur-Þýskalands á Íslandi eftir stríðið. Peter Murrell, fyrrverandi framkvæmdastjóri Skoska þjóðarflokksins, og eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrsta ráðherra Skotlands, hefur viðurkennt fjárdrátt upp á 166 milljónir króna. Hjónabandi Murrells og Sturgeon er lokið og hún kveðst ekki hafa vitað um fjárdrátt eiginmannsins og rannsókn hafi leitt í ljós sakleysi hennar. Í Svíþjóð hefur stjórnarandstaðan tæplega 10 prósentustiga forskot á stjórnarflokkana en kosið verður til þings 13. september. 53,9 prósent segjast styðja stjórnarandstöðuflokka í nýrri könnun, 44,2 prósent kveðast ætla að kjósa einhvern stjórnarflokkanna. Í lokin var rætt um stöðuna í átökum Bandaríkjanna og Írans og möguleika á friðarsamningum.
-
Norræn öryggismál og fleira 21.05.2026 24นาทีNorræn öryggismál voru í brennidepli í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1 og rætt um norrænan sjónvarpsþátt um varnar- og öryggismál. Þátturinn var á dagskrá allra ríkissjónvarpsstöðva Norðurlanda á miðvikudagskvöld, nema RÚV. Þarna voru meðal annarra Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, Anders Adlercreutz, ráðherra norrænnar samvinnu í Finnlandi og fleiri ráðamenn og sérfræðingar. Í Heimsglugganum var einnig rætt um utanríkisráðherrafund NATO, freigátukaup Svía, stjórnarmyndunarviðræður í Danmörku, aukna bjartsýni Úkraínumanna, heimsókn útsendara Trumps til Grænlands og stuttlega um heimsóknir til Kína þar sem svo virðist sem bæði Trump og Pútín hafi farið bónleiðir til búðar.
-
Stefnir í afhroð gömlu flokkanna á Englandi 07.05.2026 23นาทีKosið er í Bretlandi í dag, þingkosningar í Skotlandi og Wales og sveitarstjórnarkosningar víða í Englandi. Þar er Reform, Umbótaflokki Nigels Farage, spáð mikilli fylgisaukningu. Flokkurinn er yst til hægri í breskum stjórnmálum og segja má að Grænir séu lengst til vinstri og þeim er einnig spáð fylgisaukningu. Frjálslyndir demókratar búast við góðum úrslitum en flokkarnir sem einu sinni báru höfuð og herðar yfir aðra breska stjórnmálaflokka mega muna fífil sinn fegri. Þetta eru Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn sem eiga í vök að verjast. Reform og Plaid Cymru, sem vill að Wales verði sjálfstætt ríki í framtíðinni, keppast um að verða stærsti flokkurinn í Senedd, þingi Wales. Verkamannaflokkurinn hefur stjórnað Wales í næstum þrjá áratugi en er spáð þriðja sæti að þessu sinni. Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, virðist hins vegar eiga góða möguleika á að halda völdum. Sólveig Jónsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, og Bogi Ágústsson ræddu um skosk stjórnmál og kosningabaráttuna.
-
Grænland, Trump og Leó páfi og minningarhátíð gyðinga 16.04.2026 21นาทีNýjar stjórnir hafa tekið við í Færeyjum og á Grænlandi. Múte B. Egede tók við af Vivian Motzfeldt sem utanríkisráðherra og tekst á við ásælni Trumps Bandaríkjaforseta í yfirráð á Grænlandi. Bandaríkjamenn virðast hafa áhuga á að koma upp herstöð í Narsarsuaq syðst á Grænlandi. Í Færeyjum hafa tveir borgaraflokkar myndað stjórn með Jafnaðarmönnum. Lögmaður er Beinir Johannesen sem tekur við af föðurbróður sínum Aksel V. Johannesen. Daglega berast fréttir af því að Donald Trump skammi Leó páfa XIV og saki hann um vinstrimennsku, standi á sama þó að Íranir komi sér upp kjarnorkuvopnum og glæpamenn vaði uppi óáreittir. Í lok Heimsgluggans sagði Bogi Ágústsson frá minningarstund gyðinga vegna helfararinnar og kvaðst hafa fellt tár.
-
Afdrifaríkar kosningar í Ungverjalandi 09.04.2026 23นาทีViktor Orbán hefur stjórnað Ungverjalandi í 16 ár en nú benda kannanir til þess að Fidesz-flokkur hans tapi þingkosningum á sunnudag. Gunnsteinn Ólafsson, hljómsveitarstjóri sem nam tónsmíðar við Franz Liszt-akademíuna í Búdapest, var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu um Ungverjaland og horfurnar í stjórnmálum.
-
Flókin staða eftir kosningar í Danmörku 26.03.2026 24นาทีHallgrímur Indriðason fréttamaður fylgdist með þingkosningunum í Danmörku á þriðjudag og Bogi Ágústsson ræddi við hann í Heimsglugganum um stöðuna í dönskum stjórnmálum. Fyrst ræddi Bogi þó kosningarnar í Færeyjum sem fram fara í dag og nýja skýrslu, ,,State of the Nordic Region“, sem inniheldur mikinn fróðleik um Norðurlönd. State of the Nordic Region hefur verið gefin út annað hvert ár frá 1981. Skýrslan sýnir þróun og stefnur á Norðurlöndum á sviðum eins og lýðfræði, vinnumarkaði og efnahagsmálum. Skýrslan er unnin af Nordregio sem er rannsóknastofnun Norrænu ráðherranefndarinnar.
-
Lýðræði í Bandaríkjunum hefur „sokkið eins og steinn“ 19.03.2026 22นาทีLýðræði í heiminum er á undanhaldi og í Bandaríkjunum hefur það „sokkið eins og steinn,“ segir í skýrslu V-dem-stofnunarinnar við háskólann í Gautaborg. Tveir þungavigtarmenn í Siumut-flokknum á Grænlandi, Vivian Motzfeldt utanríkisráðherra og Kim Kielsen þingforseti, hafa sagt sig úr flokknum. Í Bandaríkjunum eiga ráðamenn í mestu vandræðum með að skýra ástæður árásanna á Íran og skýringar eru mótsagnakenndar. Þetta var til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1.
-
Óljós stríðsmarkmið Bandaríkjamanna 12.03.2026 24นาทีBjörn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu ýmsar hliðar og afleiðingar árása Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran. Hráolía hefur hækkað mikið í verði og óttast er að það leiði til umtalsverðra almennra verðhækkana um allan heim. Í Bretlandi beit Keir Starmer forsætisráðherra hressilega frá sér í fyrirspurnatíma forsætisráðherra. Hann á annars undir högg að sækja þó að engar sláandi upplýsingar kæmu fram í skjölum sem birt voru í gær um aðdraganda ráðningar Peters Mandelsons sem sendiherra í Bandaríkjunum. Skipan Mandelsons var umdeild og hann var rekinn úr starfi vegna tengsla við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein.
-
Útlit fyrir stjórnarskipti í Færeyjum og ósamræmi í málflutningi bandarískra ráðamanna um árásirnar á Íran 05.03.2026 22นาทีHjálmar Waag Árnason var gestur Heimsgluggans og ræddi stjórnmál í Færeyjum en frændur okkar og frænkur ganga til kosninga síðar í mars. Hjálmar á ættir að rekja til Færeyja og er þar öllum hnútum kunnugur. Hann telur líklegt að hægri stjórn taki við eftir kosningar en Jafnaðarmenn hafa verið í stjórnarforystu síðustu ár. Þá var rætt um mismunandi yfirlýsingar bandarískra ráðamanna um ástæður árása á Íran þar sem ýmsar skýringar hafa verið á lofti.
-
„...aldrei hefur forseti logið jafn mikið…“ 26.02.2026 22นาทีDanska blaðið Politiken sagði í leiðara að aldrei hefði forseti logið jafn mikið og gert jafn mikið til að sundra landi sínu. Þarna var Politiken að fjalla um State of the Union-ræðu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Þetta var til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu einnig við Boga Ágústsson um orð Finnlandsforseta um stríðið í Úkraínu sem sagði Pútín Rússlandsforseta ekki geta unnið stríðið en vildi heldur ekki semja um frið. Þá var rætt um mikilvægar aukakosningar til breska þingsins í dag þar sem þrír flokkar geta unnið. Raving Monster Loony Party er ekki í þeim hópi en hlustendur fengu að heyra í frambjóðanda flokksins sem kallar sig Sir Oink A lot eða Sir Rýta mikið.
-
Millibilsástand í fjármálum heimsins 19.02.2026 23นาทีÁsgeir Brynjar Torfason var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu um rof í alþjóðakerfinu og efnahagslegar afleiðingar, verðsveiflur á gulli, silfri og bitcoin. Ásgeir Brynjar segir millibilsástand „interregnum“ vera í fjármálakerfinu, dollarinn sé ekki lengur viðmiðunarmynt heimsins og óvíst sé hvað taki við.
-
Erna Solberg hættir eftir 22 ár sem formaður Høyre 12.02.2026 24นาทีHeimsglugginn var að mestu norrænn að þessu sinni. Erna Solberg lætur af formennsku í Høyre, norska íhaldsflokknum. Eftirmaður hennar er Ine Eriksen Søreide, sem hefur verið bæði varnarmála- og utanríkisráðherra. Þá var rætt um grein þar sem Bertel Haarder eggjar norræna stjórnmálamenn lögeggjan til að bregðast við breyttri heimsmynd með stóraukinni samvinnu í varnarmálum. Í lokin var rætt stuttlega um kosningar í Danmörku og Svíþjóð sem verða síðar á árinu.
-
Margt áhrifafólks í vandræðum vegna Epstein-skjalanna. 05.02.2026 24นาทีÞórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson um Epstein-skjölin og afleiðingar birtingar upplýsinga sem fram koma í þeim. Peter Mandelson hrakist úr starfi sendiherra Breta í Bandaríkjunum og Keir Starmer, forsætisráðherra Breta, gæti misst stöðu sína vegna þess að hann skipaði Mandelson í sendiherraembættið. Í Noregi vill tæplega helmingur þjóðarinnar ekki að krónprinsessan Mette-Marit verði drottning vegna náinna tengsla hennar við Jeffrey Epstein eftir að hann var dæmdur fyrir barnaníð.
-
Krísa gömlu flokkanna í Bretlandi 29.01.2026 23นาทีKristján Guy Burgess, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi fréttaritari RÚV í Lundúnum, var gestur Heimsgluggans og ræddi við Boga Ágústsson um bresk stjórnmál. Hefðbundnu stjórnmálaflokkarnir tveir sem lengst af hafa farið með völd, Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn, glíma báðir við tilvistarvanda. Ástæðan er uppgangur Reform, Umbótaflokksins, undir stjórn Nigels Farage. Reform nýtur mestra vinsælda breskra flokka samkvæmt nýjustu könnunum. Fjöldi málsmetandi fyrrverandi ráðherra hefur hlaupist á brott úr Íhaldsflokknum og gengið til liðs við Reform.
-
Úkraína og mögulegt samkomulag um Grænland 22.01.2026 22นาทีFriðrik Jónsson, sendiherra í Póllandi og Úkraínu, var gestur Heimsgluggans og ræddi stöðuna í Úkraínu. Hann segir viðstöðulausar árásir Rússa á borgaralega innviði í Úkraínu hafa leitt til rafmagnsskömmtunar, ekki sé hægt að hita hús í höfuðborginni Kyiv þegar rafmagnið fari. Hann segir þessar árásir séu stríðsglæpi. Bogi Ágústsson ræddi einnig stuttlega um bresk stjórnmál þar sem Robert Jenrick hafi yfirgefið Íhaldsflokkinn og gengið til liðs við Nigel Farage og Umbótaflokk hans, Reform. Þá var rætt um málefni Grænlands þar sem Trump Bandaríkjaforseti hafi lýst yfir að samkomulag „til eilífðar“ hafi tekist.
-
Blaðamenn drepnir, Gaza og Grænland 15.01.2026 23นาทีSamtökin Blaðamenn án landamæra (Reporters sans frontières) segja að 67 blaðamenn, hið minnsta, hafi verið drepnir á síðasta ári, Flestir þeirra féllu á Gaza fyrir hendi Ísraelshers. Bandaríkjastjórn hefur lýst því yfir að annað þrep vopnahléssamkomulags á Gaza hafi tekið gildi. Samkvæmt því eiga Hamas-samtökin að afvopnast og Ísraelsher að draga sig enn frekar frá Gaza. Þá skal alþjóðleg nefnd taka við stjórn á Gaza og fjölþjóðlegt friðargæslulið sjá þar um öryggi. Í lok Heimsgluggans var rætt um fund utanríkisráðherra Danmerkur og Grænlands með bandarískum ráðamönnum um Grænland. Ákveðið var að viðræðum yrði haldið áfram en Bandaríkjaforseti heldur til streitu kröfum um bandarísk yfirráð á Grænlandi.
-
Skrítin ásælni Trumps í Grænland 08.01.2026 23นาทีMargir furða sig á röksemdafærslu bandarískra ráðamanna er þeir krefjast yfirráða á Grænlandi; varnarsamningur Danmerkur og Bandaríkjanna leyfi Bandaríkjamönnum nánast allt sem þeir vilja. Margt í málflutningi Donalds Trumps og annarra ráðamanna er beinlínis rangt, forsetinn hefur til dæmis haldið því fram að 30 þúsund manns búi á Grænlandi. Íbúar landsins eru nær tvöfalt fleiri eða tæp 57 þúsund.
-
Hlutabréfaverð vestra tvöfalt hærra en ætti að vera 11.12.2025 24นาทีGylfi Magnússon, prófessor við Viðskiptadeild Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um stöðu og horfur í efnahagsmálum heimsins. Gylfi sagði að hann teldi að hlutabréfaverð í hlutfalli við hagnað fyrirtækja í Bandaríkjunum væri orðið tvöfalt hærra en það væri við eðlilegar aðstæður. Annars var Gylfi þokkalega bjartsýnn á horfur í efnahagsmálum heimsins og Íslands. Hann sagði að þrátt fyrir áföll ætti ekki að vera neitt óþolandi ástand á Íslandi þó að kannski muni ekki smjör drjúpa af hverju strái.
-
Úkraína og vandræði norskra og danskra krata 04.12.2025 23นาทีBogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu í Heimsglugga vikunnar um stöðuna í friðarviðræðum í Úkraínu. Rússar hafa ekki hvikað frá ítrustu kröfum sínum svo litlar líkur virðast á vopnahléi eða friði á næstunni. Í Noregi og Danmörku eiga leiðtogar Jafnaðarmanna og forsætisráðherrar landanna í nokkrum erfiðleikum. Litlu munaði að norska stjórnin félli vegna deilna um fjárlög og staða Mette Frederiksen hefur veikst verulega eftir sveitarstjórnarkosningarnar í nóvember.
-
Íslendingar eiga allt undir því að alþjóðlegar reglur séu virtar 27.11.2025 23นาทีMark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sækir Ísland heim í dag og Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs – samtaka um vestræna samvinnu, var gestur Heimsgluggans. Umræðuefnið var þátttaka Íslands í NATO og staða heimsmála. Davíð segir meðal annars að Íslendingar eigi allt undir því að alþjóðaskipulag sé virt og aðrar þjóðir viðurkenni að Ísland sé herlaust land. Rússnesk stjórnvöld hafi farið gegn þessu með innrásinni í Úkraínu og taka eigi alvarlega ógnina sem stafi af stjórnvöldum í Kreml.
ยอดนิยมใน
พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย