Besta sætið
bestasaetid
0
Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.
ตอน
-
22. sept - Erfið og leiðinleg staða fyrir Heimi að vera í 22.09.2026 20นาทีPólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi leiki sína við Ísrael í Þjóðadeildinni. Aron Guðmundsson og Valur Páll Eiríksson með ykkur í dag. -
21. sept - Slagsmál í Vesturbæ og erfið helgi Bjarka 21.09.2026 22นาทีValur Páll Eiríksson, Aron Guðmundsson og Bjarki Sigurðsson gerðu upp risastóra íþróttahelgi sem er að baki. Rígur er að myndast í Bakgarðshlaupum, Þróttur komst í Bestu deildina, Víkingur varð Íslandsmeistari og óvænt úrslit á Englandi. -
18. sept - Bikarar í boði og hvað gerir Steindi í Bakgarðshlaupinu? 18.09.2026 25นาทีRosaleg helgi í sportinu og nóg að fara yfir. Lengjudeildarúrslit, Víkingur getur orðið meistari í Bestu karla, Bakgarðshlaup með Steinda og enski boltinn. -
17. sept - Man. Utd aftur í ruglinu og léleg mæting á Laugardalsvöll 17.09.2026 26นาทีÞað er enn og aftur krísa hjá Man. Utd. Kunnuglegt stef síðustu ára þrátt fyrir bjartsýni í sumar. Svo ræðir Besta sætið af hverju Íslendingar virðast ekki vilja koma og horfa á sitt lið spila á Laugardalsvelli? -
Alfreð Finnbogason: Úr auga stormsins í ævintýri Freys með Rosenborg 16.09.2026 26นาทีÁ rúmu hálfu ári hefur Alfreð Finnbogason barist um í þeytivindu fótboltans sem yfirmaður knattspyrnumála hjá norska stórliðinu Rosenborg. Félagið hefur gengið í gegnum erfiða tíma, ekki eins glæsta og þá sem félagið er þekkt fyrir og það reyndi svo til um leið á leiðtogahæfileika Alfreðs sem býr að mikilli reynslu frá sínum ferli sem atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta. Útlitið var ekki bjart í byrjun starfstíðar Alfreðs. Fallbarátta og erfið úrslit leiddu af sér uppsögn á þjálfara liðsins, stjórn félagsins sagði af sér en úr öskunni hefur félagið risið upp á síðkastið og það ekki síst með hjálp Íslendinganna hjá félaginu. Freyr Alexandersson var ráðinn inn sem þjálfari og er að upplifa, með sjö sigrum í fyrstu níu leikjum sínum, bestu byrjun þjálfara Rosenborg síðan árið 2010. Fallbaráttan hefur verið kvödd og er Rosenborg nú í harðri baráttu um Evrópusæti. Alfreð fer hér yfir fyrsta rúma árið í starfi, samstarfið með Frey og önnur tengd mál. Meðal annars gullmolann sem félagið hefur klófest með einum mest spennandi sóknarmanni Skandinavíu að mati Alfreð sem var sjálfur markamaskína á sínum leikmannaferli. -
16. sept - Kjartan Atli ræðir endurkomu sína á Álftanesið og Bestu deildina 16.09.2026 28นาทีKjartan Atli Kjartansson er gestur dagsins í Besta sætinu en þar fer hann yfir ástæður þess af hverju hann sé orðinn aðstoðarþjálfari Álftaness. Liðsins sem hann þjálfaði síðustu ár. Einnig ræðir Kjartan um Bestu deildina og nýjan feril í pólitíkinni. -
15. sept. - Víkingar vilja fagna í Vesturbænum 15.09.2026 19นาทีVíkingar eru með níu putta á Íslandsbikarnum og Blikar mæta í Úlfarsárdalinn í kvöld. Hugsanlega að glíma við bikarþynnku. Óli Óli er meiddur hjá Grindavík sem er búið að fá Pargo og svo er spurning hvort Tottenham nái loksins að skora í kvöld. -
Dagný Brynjars: Þriggja barna fótboltakona og sendiherra West Ham 15.09.2026 19นาทีDagný Brynjarsdóttir er byrjuð að spila fótbolta á ný, fimm mánuðum eftir að hafa fætt sinn þriðja son. Hún er orðin 35 ára og viðurkennir að hún sé óviss um framhaldið á ferlinum, sem og með landsliðinu, eftir langan og farsælan feril. Hún heldur þó öllu opnu. Í viðtali við Vísi fer Dagný um víðan völl. Hún er flutt heim til Íslands og lék með Selfossi í Lengjudeildinni í lok sumars, og vill láta að sér kveða til að bæta umgjörð í fótbolta kvenna hér á landi. Hún segir sorglegt að sjá Ísland dragast þar aftur úr öðrum þjóðum sem séu allar að gefa í. Þá ræðir Dagný um sitt nýja hlutverk sem sérstakur sendiherra enska félagsins West Ham. -
11. sept - Bikarhelgi og baráttan um Manchester 11.09.2026 23นาทีÞað er pressa á Blikum í úrslitaleik kvöldsins og það kemur nýtt nafn á kvennabikarinn á morgun. Besta deildin heldur áfram eftir skiptingu og baráttan í neðri hlutanum er hörð. Baráttan um Manchester er svo aðalleikurinn í enska þessa helgina. -
10. sept - Getur einhver stöðvað Barcelona? 10.09.2026 25นาทีYfirreið yfir Meistaradeildina þar sem Barcelona og PSG líta hrikalega vel út. Man. Utd stígur aftur á stóra sviðið í kvöld. ÍBV fær Kana í handboltanum og umspilið í Lengjunni er galopið. -
9. sept - Er Mourinho enn nógu góður? 09.09.2026 26นาทีJose Mourinho er mættur með látum í Meistaradeildina á nýjan leik. Liverpool á risaleik í Meistaradeildinni í kvöld á meðan Arsenal fer til Ítalíu. Umspilið í Lengjunni hefst í kvöld og svo er NFL-deildin að fara af stað með stórleik. -
8. sept - Meistaradeildin fer loksins í gang 08.09.2026 19นาทีÞað er hátíðisdagur því Meistaradeild Evrópu snýr aftur í kvöld. Við hitum vel upp fyrir kvöldið þar sem Jose Mourinho snýr aftur með Real Madrid í keppnina og það með liði sem hann þjálfaði áður. -
7. sept - Arsenal með langbesta liðið 07.09.2026 22นาทีArsenal sýndi mátt sinn og megin í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. Svo gerum við upp Bestu karla en Víkingar eru með pálmann í höndunum og Keflavík verður í efri hlutanum. Valur og Stjarnan munu spila í neðri hlutanum. Mikill skellur fyrir bæði félög. -
4. sept - Risahelgi í boltanum 04.09.2026 26นาทีLokaumferð deildarkeppni Bestu karla, lífsbaráttulaugardagur í Lengjunni og enski boltinn. Það þarf ekki að standa upp úr sófanum um helgina. -
3. sept - Handboltinn rúllar af stað í kvöld 03.09.2026 23นาทีOlís-deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Haukum og Val er spáð toppsætunum. Stjarnan heldur áfram að spila í Miðgarði og svo rennum við yfir bestu kaupin í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. -
2. sept - Uppgjör á stórleik KR og Víkings 02.09.2026 24นาทีRisaleikur KR og Víkings í gær er eðlilega í brennidepli í þætti dagsins. Rúmlega 4.000 manns mættu á leikinn sem hófst klukkan 17.30 á þriðjudegi. Víkingur er með pálmann í höndunum eftir leikinn. -
1. september - Leikur ársins á Meistaravöllum 01.09.2026 23นาทีÞað er allt á suðupunkti fyrir stórleik KR og Víkings í Bestu deild karla. Skemmdarverk unnin í skjóli nætur hafa kynt bálið enn frekar. Besta sætið hitar vel upp fyrir leikinn og spáir aðeins í spilin í enska boltanum. -
28. ágúst - Man. City verður meistari 28.08.2026 28นาทีÞað er lítil bjartsýni fyrir landsleik kvöldsins í körfunni enda við ofurefli að etja. Handboltinn fer að rúlla af stað og Val er hvorki spáð titli í karla- né kvennaflokki. Það eru stórir leikir í Bestu deild karla og svo heldur enski boltinn áfram að rúlla. -
27. ágúst - Eini stuðningsmaður Zirkzee fundinn 27.08.2026 23นาทีUEFA ætlar að draga Infantino fyrir dómstóla, Víkingar spila um hálfan milljarð, Freyr blómstrar í Noregi og maður sem elskar knattspyrnumanninn Joshua Zirkzee í þætti dagsins. -
26. ágúst - Mun Arsenal valta yfir deildina? 26.08.2026 22นาทีÍþróttafréttamenn lélegir í golfi, sprungið dekk í Þakgili og umræða um enska boltann og meinta yfirburði Arsenal.
ยอดนิยมใน
พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย